Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 14
14 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR GRJÓTKAST Á VESTURBAKKANUM Palestínskir unglingspiltar kasta steinum að ísraelskum skriðdrekum í Balata-flótta- mannabúðunum skammt frá bænum Nablus á Vesturbakkanum. Hörð átök brutust út þegar ísraelskar hersveitir gerðu áhlaup á búðirnar. Aðeins fyrir Golf, Bora og Bjöllu. Volkswagen Hekla • Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Hjólbarðaverkstæði HEKLU • Klettagörðum 8-10 • Sundahöfn • Sími 590 5060 SPRENGITILBOÐ Verð kr. 98.000.- (4 stk.) Raunverð kr. 180.000.- á 16" álfelgum og hjólbörðum Dómur í líkamsárásarmálinu á Skeljagranda: Hrottaskapur kostar fangelsisvist DÓMSMÁL Bræðurnir sem mis- þyrmdu manni á hrottafenginn hátt við Skeljagranda í fyrrasumar hafa verið dæmdir í fangelsi. Eldri bróðirinn, Kristján Markús Sívarsson, fékk þriggja og hálfs árs dóm og sá yngri, Steinar Logi Sí- varsson, tveggja ára fangelsisvist. Kristján Markús rauf skilorð eldri fimmtán mánaða fangelsisdóms. Það skýrir mismuninn á dómunum. Verjendur mannanna sögðu dómana í samræmi við það sem við hafi verið að búast. Þeir tóku sér þó lögbundinn frest til að kynna sér forsendur dómsins með tilliti til þess hvort honum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Bræðurnir hafa setið í gæslu- varðhaldi frá því þeir voru hand- teknir eftir árásina um verslunar- mannahelgina í fyrra. Varðhaldið kemur til frádráttar fangelsis- dómunum. Samkvæmt dóminum eiga bræð- urnir að greiða fórnarlambi sínu ríf- lega 90 þúsund krónur í bætur auk alls málskostnaðar. Fórnarlambið, ríflega tvítugur piltur, hefur sjálfur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela lyfjum og lyf- seðlum á Landspítalanum. Bræðurnir eiga að baki áralang- an feril blóðugra ofbeldisverka og hafa áður verið dæmdir til fangels- isvistar. ■ Framsóknarmaður: Vill breyta lóð símans SKIPULAGSMÁL Framsóknarmaður sem er fulltrúi Reykjavíkurlistans í skipulags- og byggingarnefnd seg- ist andvígur því skipulagi sem meirihlutinn hefur ákveðið fyrir Landsímalóðina í Grafarvogi. Á síðasta fundi nefndarinnar sagðist Björn Ingi Hrafnsson vilja að kannað yrði hvort stækka mætti opin svæði á lóðinni enn frekar en ætlunin er samkvæmt núverandi skipulagshugmynd. Formaður nefndarinnar, Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, sem er fulltrúi Samfylk- ingarinnar, segir einkaskoðun Björns Inga ekki breyta stefnu meirihluta nefndarinnar. ■ UNGVERJALAND, AP Tveggja hæða rúta varð fyrir farþegalest í Ung- verjalandi með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 32 þýskir ferða- menn létu lífið og níu slösuðust. Slysið átti sér stað á lestarteinum skammt frá ferðamannabænum Siofok við Balaton-vatn. Rútan fór í tvennt þegar lestin lenti á henni og dróst annar hlutinn um það bil 150 metra eftir lestarteinunum. Ná- kvæmar orsakir slyssins eru enn ókunnar en vitni fullyrða að rautt ljós hafi logað á viðvörunarskiltum þegar rútan lagði af stað yfir tein- ana. Ökumaður rútunnar var á með- al þeirra sem létust en lestarstjór- inn er lífshættulega slasaður. ■ Verðmæti okkar hrynur Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar full- yrðir að fyrningarleiðin gengi af fyrirtæki hans dauðu ef til hennar kæmi. FISKVEIÐISTJÓRNUN „Ef fyrningar- leiðin yrði farin og leigugjald þorskígilda yrði 40 krónur myndi Vinnslustöðin Í Vestmannaeyjum verða gjaldþrota,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- k v æ m d a s t j ó r i Vinnslustöðvarinn- ar. S i g u r g e i r Brynjar segir að frá engu leigu- gjaldi upp í fjöru- tíu króna leigu- gjald fyrir hvert kíló myndi verð- gildi hlutabréfa lækka stigvax- andi. „Ef leigugjaldið yrði tíu krónur yrði rýrnun heildarfram- leiðni 150 milljónir, sem gæti leitt til 25 prósenta lækkunar á hluta- bréfum félagsins. Gert er ráð fyr- ir að framleiðni vinnslustöðvar- innar verði einn milljarður. Tutt- ugu króna leigugjald leiðir til framleiðnirýrnunar um 300 millj- ónir eða um 50 prósenta minna verðgildi hlutabréfa og þannig koll af kolli við hvern tíkall sem settur yrði í leigugjald. Þannig að við 40 króna leigugjald yrði ekk- ert eftir og fyrirtækið verðlaust,“ segir Sigurgeir. Hann segir að líklega hafi út- gerðarmenn ekki staðið sig nógu vel í að útskýra fyrir þjóðinni hvernig málin séu í raun og veru. Hann segir að frá 1992 hafi orðið mikil endurnýjun hluthafa og nýir hluthafar séu 90 prósent eigenda fyrirtækisins. Hann segir að hlut- hafar geti átt á hættu að verða gjaldþrota eða eignarlausir rýrni verðmæti fyrirtækisins. „Þessi rýrnun sem yrði ef fyrningarleið- in verði farin kemur útgerðar- mönnum ekki einum við. Til að mynda á Lífeyrissjóður Vest- mannaeyja fimmtán prósenta hlut í Vinnslustöðinni sem myndi tap- ast og sést þar berlega hve marga það snertir. Tryggvi Agnarsson, frambjóð- andi Nýs afls, sagði í Fréttablað- inu á þriðjudag að forsendur stjórnenda Vinnslustöðvarinnar væru rangar og að fyrirtækið þoli fyrningarleiðina. Eigið fé þess sé verulegt og því stafi engin hætta af breyttu fiskveiðastjórnunar- kerfi. „Það er rétt hjá Tryggva þegar hann segir að fyrirtækið sé vel rekið og sterkt þó það þoli ekki fyrningarleiðina,“ segir Sig- urgeir. hrs@frettabladid.is HÉRAÐSDÓMUR Rúmlega tvítugir bræður hafa verið dæmdir í annars vegar tveggja ára og hins vegar þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir miskunnarlausa líkamsárás á Skelja- granda. Verjendur segja dóminn í sam- ræmi við væntingar. Þjóðirnar hafa sama markmið: Ágreiningsmál að baki NEW YORK, AP Bandarískir og evr- ópskir embættismenn hafa ákveð- ið að reyna að bæta samskipti Bandaríkjanna og þjóða Evrópu eftir talsverðar deilur vegna stríðsrekstursins í Írak. Javier Solana, erindreki Evrópusam- bandsins, og Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, voru sammála um að samband ríkjanna væri sterkara en svo að það þyldi ekki árekstra af og til. Reyndar gengu þeir svo langt að segja að skiptar skoðanir og deil- ur væru einmitt uppistaða lýð- ræðislegs þjóðfélags. Ekki er langt síðan Powell lét hafa eftir sér að Frakkar myndu súpa seyðið af mótstöðu sinni við innrás í Írak og þykja tíðindi að stjórnvöld í Washington hafi dreg- ið svo vel í land sem raun ber vitni. ■ POWELL OG SOLANA Sammála um að jafna ágreiningsmálin. SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON Sigurgeir segir rýrnunina sem yrði við fyrningarleið ekki koma útgerðamönnum einum við. ■ „Þannig að við 40 króna leigu- gjald yrði ekk- ert eftir og fyr- irtækið yrði verðlaust.“ Á SLYSSTAÐ Rútan fór í tvo hluta þegar lestin lenti á henni og dróst annar hlutinn um 150 metra með lestinni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Íbúi í Reykjavík: Vill rannsókn á mútumáli SAKAMÁL Ríkissaksóknari hefur fengið beiðni um rannsókn á meintum mútutilraunum for- ráðamanna Baugs við forsætis- ráðherra. „Komi í ljós að hæstvirtur forsætisráðherra, Davíð Odds- son, bar rangar sakir á stjórn- endur Baugs hlýtur það að vera krafa þjóðarinnar að hann segi af sér tafarlaust og verði sóttur til saka fyrir meiðyrði. Hafi hæstvirtur forsætisráðherra, Davíð Oddsson, aftur á móti sagt satt og rétt frá hlýtur að sama skapi að verða að sækja stjórnendur Baugs til saka,“ segir Hans Gústafsson í Reykja- vík. ■ 32 fórust í rútuslysi: Lestin skar rútuna í tvennt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.