Fréttablaðið - 09.05.2003, Síða 33

Fréttablaðið - 09.05.2003, Síða 33
34 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR Leikskáldið heldur alltaf vinsældum sínum og þessa dagana eru tvö verka þess, Sum- arævintýri og Rómeó og Júlía, sýnd í Borg- arleikhúsinu. Íslenska óperan sýndi fyrir skömmu hinn blóðuga harmleik hans Macbeth og þá komust færri að en vildu. William Shakespeare er sjálf-sagt frægasta leikskáld allra tíma og einnig það allra besta að margra mati enda gnæfir hann yfir bókmenntasögunni með verk- um sínum sem menn þreytast ekki á að vinna úr bæði á leiksviði og hvíta tjaldinu. Shakespeare fæddist þann 23. apríl árið 1964 í Warwick-skíri á Englandi. Hann var sonur handverksmanns af miðstétt. Hann gekk í barnaskóla en hlaut ekki aðra formlega menntun. Þegar hann var 18 ára gekk hann að eiga Önnu Hath- away, sem var honum nokkuð eldri. Þau eignuðust þrjú börn saman en átta árum eftir gifting- una yfirgaf Shakspeare heimilið og hélt til London, þar sem hann hugðist hasla sér völl sem leikari og leikskáld. Hann sló í gegn og varð vin- sælasta leikskáld landsins og var meðal annars í miklum metum hjá Elísabetu I Englandsdrottningu. Hann var um árabil einn eigenda Globe-leikhússins, sem setti meðal annars upp sýningar fyrir drottn- inguna og hirð hennar. Hann var afkastamikið skáld og framleiddi ódauðleg verk á færibandi, þar á meðal harmleikina Rómeó og Júlíu, Hamlet, Júlíus Sesar, Lér konung, Macbeth og Óþelló og gamanleikina Skassið tamið, Fár- viðrið og Ys og þys út af engu. Verkum hans var safnað saman og þau gefin út að honum látnum og snemma á átjándu öld var al- mennt viðurkennt að hann væri mesta skáld enskrar tungu og rómantísku skáldin tóku hann upp á arma sína sem holdgerving snilligáfunnar sem þau trúðu statt og stöðugt á. Vinsældir Shakespeares urðu til þess að vekja áhuga fólks á einkalífi skáldsins en þrátt fyrir það að nánast hvert mannsbarn þekki nafn hans er lítið vitað um manninn sjálfan og því hafa sprottið upp ýmsar kenningar um að einhver annar hafi skrifað verkin sem haldið hafa nafni hans á lofti, þó fáir fræðimenn vilji taka undir slíkt. ■ Hlátur og grátur: Heimurinn er leiksvið SHAKESPEARE Rómantísku skáldin litu hann sem náttúru- legan snilling en hann vann sér það meðal annars til frægðar að rjúfa heilagar eining- ar leikritunar með því að banda saman hlátri og gráti í verkum sínum. Fimleikasýningin Rómeó og Júl-ía var frumsýnd í Borgarleik- húsinu í nóvember síðastliðnum og hefur gengið ágætlega síðan þá þrátt fyrir ýmis skakkaföll en þar sem leikurinn fer meira og minna fram í lausu lofti reynir mikið á leikarana. Nú síðast þurfti að fresta sýningum eftir að aðalleik- konan Nína Dögg Filippusdóttir, í hlutverki Júlíu, féll af sviðinu. Hún var þó fljót að ná sér og í kvöld verður verkið sýnt í þrítug- asta og sjötta sinn og mun halda áfram út leikárið. „Mig hefur lengi langað að gera einhvers konar fjölleika- húsasýningu, svona rosalega fýsíska eða líkamlega sýningu, og var að spá í hvaða verk væri skemmtileg að útfæra þannig. Mér datt í hug að gaman væri að taka fallega ástarsögu sem er í eðli sínu rólegri og þá lá eiginlega beinast við að velja ástarsögu allra tíma,“ sagði Gísli Örn Garð- arsson, leikari, leikstjóri og hug- myndasmiður að sýningunni, skömmu eftir frumsýningu. ■ Ást í meinum: Sígildur harmleikur í lausu lofti JÚLÍA Í RÓLUNNI Rómeó og Júlía hafa farið í loftköstum í Borgarleikhúsinu frá því fyrir jól við mikla hrifningu áhorfenda. Uppfærslan hefur reynt mikið á leikarana, sem margir hafa gengið sárir af velli, en ekkert stöðvar elskendurna sem fengu ekki að njótast og harmsaga þeirra verður sögð í lausu lofti út leikárið. Sumarævintýri Shakespeares ersýnt á Nýja sviði Borgarleik- hússins um þessar mundir. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson segir að hér sé ekta Shakespeare á ferð- inni þó verkið hafi hingað til gengið undir nafninu Vetr- arævintýri en Bene- dikt hefur með upp- færslu sinni bætt nýrri neðanmáls- grein við bók- menntasöguna með því að nefna verkið Sumarævintýri. Til- drögin eru að sögn Benedikts þau að skáldjöfurinn birtist honum í draumi og bað hann lengstra orða að gefa verkinu nýtt nafn þar sem ekki væri við hæfi að setja Vetr- arævintýri á fjalirnar að vori. Þeir félagar sættust á þetta, tók- ust í hendur og að svo búnu gekk skáldið blístrandi burt en Bene- dikt vaknaði og kom Sumarævin- týrinu á fjalirnar. Shakespeare var einkar lagið að skrifa tímalaus verk sem virð- ast geta höfðað til fólks alls stað- ar á öllum tímum. Hér fjallar hann um örlög sundraðrar fjöl- skyldu en enn þann dag í dag er fátt sárara fyrir fólk en að horfa upp á fjölskyldu sinni sundrað og börn tekin frá mæðrum sínum með tilheyrandi vinslitum og illindum. Í þessu tilfelli er það afbrýðisamur konungur sem hrindir hörmungunum af stað en fyrir gráglettni örlaganna sam- einast fjölskyldan á ný sextán árum síðar og það „þiðnar og vorar og fyrirgefningin verður möguleg“, eins og Benedikt orð- ar það. ■ Fjölskylduharmleikur: Vetrarævintýri að vori SUMARÆVINTÝRI „Þetta er alvöru Shakespeare á sokkabuxunum. Loksins. Slíkt hefur ekki sést í íslensku leikhúsi allt of lengi“, segir leikstjórinn Benedikt Erlingsson. BENEDIKT ERLINGSSON Shakespeare heilsaði upp á hann í draumi og þeir ræddu uppfærsluna. William Shakespeare FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI G L Æ S I B Æ – S Í M I 5 5 2 0 9 7 8 Opnum í dag í Glæsibæ Mikið úrval af glæsilegum vörum Opnunartilboð SÆNGURFATAVERSLUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.