Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2003, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 09.05.2003, Qupperneq 39
40 rað/auglýsingar Wesak-hátíðin 2003 Afmælishátíð Buddha Helgustu dagar ársins frá sjónarhóli Hvíta Bræðralagsins. Hefur ekkert með trúarbrögð að gera. Verður haldin í húsakynnum Hómópataskólans Ármúla 44, 3. hæð, gengið inn frá Grensásvegi. Helgina 9.-11. mai nk. Föstudag kl. 20 til 22 Laugardag kl. 13 til 17+ Sunnudag kl. 13 til 17+ Efni Opnun og hreinsun. Erindi, tónlist, miðlun og háar hugleiðslur - lokun. Aðgangseyrir fyrir hvern dag kr. 1.000. Kr. 2.000 fyrir tvo daga, kr. 2.500 fyrir alla dagana. Pantið/kaupið miða fyrir fram eða komið tímanlega. Húsið lokað þegar athöfnin hefst. Karl Þorsteinsson Simar: 553-6537 og 695-9917. Kennarar – kennarar – kennarar Auglýsing frá Seljalandsskóla Í Rangárþingi eystra eru hin fögru Eyjafjöll með fossum og fljótum, klettum og jöklum og þar blása líka vindar um skörð. Þar byrjar sumarið fyrr en annars staðar á landinu. Og þar er Seljalandsskóli með sína 20-25 nem- endur í 1.-7. bekk. Nú vill svo til að þar hafa losnað kennarastöður sem e.t.v. bíða akkúrat eftir þér. Væri ekki ráð að kynna sér hlutina og hringja nú eða koma og kíkja á aðstæður? Við félags- heimilið Heimaland stendur skólinn og þar eru einnig íbúðir fyrir kennara sem leigðar hafa verið á einstaklega góðum kjörum. Við í Seljalandsskóla erum einkum að leita eftir kennur- um fyrir almenna kennslu í yngri deild, sérkennslu í ensku og hand- og myndmennt. Þá mætti heimilisfræðin gjarnan fylgja. Upplýsingar gefa Guðjón Árnason skólastjóri í síma 898 1129 og 487 8915 eða Elvar Eyvindsson formaður skóla- nefndar í síma 487 8720 eða í síma 899 1776. Tónstofa Valgerðar Hátúni 12 • 105 Reykjavík • Sími 561 2288 • 862 2040 • tonsvj@mmedia.is Innritun nemenda fyrir skólaárið 2003-2004 stendur yfir til 15. maí nk. Nemendur á biðlista eru beðnir um að staðfesta umsóknir sínar. Tónstofan er tónlistarskóli þar sem nemendur með sérþarfir hafa forgang. Markmið kennslu og þjálfunar í Tónstofunni falla undir meginmarkmið sem skilgreind eru í aðalnámskrá tónlistarskóla. Sérstaða þeirra felst hins vegar í einstaklings- miðuðum áföngum og kennsluaðferðum. Verkfræðingur umferðarmál Óskað er eftir verkfræðingi til starfa við umferðarrann- sóknir og umferðarskipulag í Reykjavík, sérstaklega við hermun umferðar. Unnið verður með nýtt og fullkomið hermilíkan. Viðkomandi mun fá þjálfun í starfi og í framhaldinu verður lögð áhersla á að hann verði í góðum faglegum tengslum við aðila innanlands og erlendis. Viðkomandi mun starfa við mótun umferðarmannvirkja borgarinnar í hópi sérfræðinga innan Umhverfis- og tæknisviðs Reykjavíkurborgar. Leitað er að ungum verkfræðingi, sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni. Lögð verður áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum, en um leið lipurð, samviskusemi og hæfileika til hópsam- starfs. Í boði er góð starfsaðstaða, metnaðarfullt og faglegt vinnuumhverfi, tækifæri til starfsþróunar og fjölskyldu- vænt starfsumhverfi. Í samræmi við stefnu borgaryfirvalda skulu karlar og konur hafa jafnan rétt til stöðuveitinga. Að öðru jöfnu skal það kynið sem er í minnihluta á vinnustað ganga fyrir um stöðuveitingu. Skriflegar umsóknir skulu sendar til: Skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, 105 Reykjavík, fyrir 19. maí nk., merktar: „Verkfræðingur – umferðarmál“ Nánari upplýsingar veita: Pétur Kr. Pétursson (peturkp@rvk.is) og Magnús Haraldsson (magnus.haraldsson@rvk.is) í síma 563 2300. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deili- skipulagsáætlunum og breytingum á deili- skipulagsáætlunum í Reykjavík: Skúlatúnsreitur eystri, Vélamiðstöðvar- reitur. Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Skúlatúni, Borgartúni, Höfðatúni og Skúlagötu. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 16. 04. 03 var samþykkt að auglýsa á ný, deili- skipulagstillögu að framangreindum reit með nokkrum breytingum. Tillagan var áður auglýst frá 14. nóv. til 12. des., 2001 með athuga- semdafresti til 31. des. 2001. Tillagan er í meginatriðum eins og sú tillaga sem áður var auglýst. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á norðurhluta reitsins (norðan lóðanna við Skúlagötu) verði heimilt að byggja nýbyggingar sem að jafnaði skulu vera 4-6 hæðir. Heimilt er þó að byggja þar eina Turnbyggingu sem má vera allt að 16 hæðir. Á suðurhluta reitsins er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja 1-2 hæðir ofan á húsin við Skúlagötu 59 og 3-4 hæðabyggingar á lóðum aftan við húsin við Skúlagötu. Bíla- stæðakrafa er 1 stæði á hverja 40 fm húsnæðis auk 75 bílastæða fyrir stofnanir Reykjavíkur- borgar að Skúlatúni 2 og Borgartúni 3. Land- notkun á reitnum er miðsvæði og M5 samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001- 2024 og því fyrst og fremst gert ráð fyrir blandaðri atvinnustarfsemi s.s. fjármála-, hátækni- og þekkingarfyrirtækjum, rann- sóknarstarfsemi, hóteli og þjónustu tengdri slíkri starfsemi. Breytt tillaga gerir ráð fyrir m.a., að á norðurhluta reitsins verði heimilt að byggja bílgeymslu ofanjarðar. Við það eykst nýtingar- hlutfall á norðurhluta reitsins lóðinni úr 1,5 í 1,93. Á tillögunni er nú einnig sýndur möguleiki á að byggja inndregna hæð ofan á Höfðatún 12 í staðinn fyrir byggingu á baklóð sem sam- kvæmt deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir að verði fjarlægð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Suður-Mjódd, flettiskilti ÍR Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Suður- Mjóddar, á horni Breiðholtsbrautar og Skógar- sels/Stekkjarbakka. Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að flettiskilti, sem áður hafði verið samþykkt við bifreiðastæði við Álfabakka, verði staðsett í brekkufót vestan við undirgöng undir Breiðholtsbraut, rétt utan við gatnamót Breiðholtsbrautar og Skógarsels/ Stekkjarbakka á borgarlandi. Skilmálar: Innan afmarkaðs svæðis er heimilt að reisa tölvustýrt flettiskilti með þremur myndflötum ofan á steyptum sökkli. Stærð hvers myndflatar má vera allt að 6,4m x 4,3m. Hæð skiltis má vera allt að 8,5m frá núverandi landi. Skiltið skal staðsetja minnst 35m frá miðlínu Breiðholts- brautar og 62m frá miðlínu Skógarsels. Vanda skal frágang við fót skiltis. Með þessari tillögu er heimil frávik frá samþykkt um skilti í lögsögu Reykjavíkur gr. 6.7 og 7.2 sbr. gr. 9.1. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.15 og fimmtu- daga til 18.00, frá 09.05. 2003 - til 20.06. 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér til- lögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 20. júní 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 9. maí 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.