Fréttablaðið - 09.05.2003, Page 43
29 ÁRA „Ég hef enn eitt ár til að
vera ung og vitlaus. Það er
ágætt,“ segir Nanna Kristín
Magnúsdóttir leikkona sem er 29
ára í dag. Og hún ætlar svo sann-
arlega að halda upp á daginn því
hún þarf ekkert að leika í kvöld.
„Ég lít svo á að örlögin hafi ætl-
að mér að halda upp á daginn og
ég byrja með því að fara í
„brunch“ með Selmu vinkonu
minni. Líklega á Gráa köttinn,“
segir afmælisbarnið sem lætur
ekki þar við sitja. „Í kvöld fer ég
svo út að borða með kærastanum
mínum; hann ræður ferðinni en
ég vona að hann bjóði mér í
sushi í Aðalstræti,“ segir Nanna
sem vill ekki gefa upp nafn
kærastans að svo stöddu. Sam-
bandið er enn á því stigi. Í kvöld
verður svo partí fyrir fjölskyld-
una og nánustu vini. Það verður
haldið heima hjá Nönnu á Báru-
götunni. „Við verðum nú ekki
lengi að enda kosninganótt á
morgun og fólk verður að vera
vel úthvílt fyrir þau hátíðahöld.“
Nanna segir gott að eldast.
Hún þroskist og upplifi hlutina á
nýjan og annan hátt en áður. Nóg
sé að gera í leiklistinni en Nanna
er fastráðin við Þjóðleikhúsið og
leikur þar í Veislunni og Rauða
spjaldinu. Þá er hún að fara að
æfa nýtt leikrit eftir Bjarna
Jónsson sem heitir Vegurinn
brennur: „Upphaflega átti það að
heita Laugavegurinn brennur en
svo brann Laugavegurinn og þá
var nafninu breytt,“ segir Nanna
sem jafnframt er einn af stofn-
endum Vesturports og þar er í
mörg horn að líta. „Nú erum við
að undirbúa bíómynd sem Ragn-
ar Bragason ætlar að gera með
okkur. Við sköpum persónurnar
sjálf, hvert fyrir sig án þess að
vita hvað hinir eru að gera, og
svo púslar Ragnar þessu saman
með söguþræði. Þetta er hálf-
gerður spuni í handritsgerð,“
segir afmælisbarnið og heldur
áfram að halda upp á daginn.
eir@frettabladid.is
44 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Ást í Hollywood: 1.þáttur: - Auguþeirra mætast. 2.þáttur: -Varir
þeirra mætast. 3.þáttur: - Lögfræðingar
þeirra mætast.
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
Afmæli
NANNA KRISTÍN
MAGNÚSDÓTTIR
■ leikkona er 29 ára í dag. Hún ætlar
að fagna í allan dag og byrja í „brunch“
með Selmu Björnsdóttur vinkonu sinni á
Gráa kettinum. Í kvöld er það sushi með
kærastanum.Upplýsingar í síma 561 8585 og á gauilitli.is
Allt þetta er innifalið:
Yogaspuni 6 sinnum í viku, vikuleg vigtun,
fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn
með mataruppskriftum, matardagbókum og
leiðbeiningar varðandi fæðuval, frír einkaþjálfari í
tækjasal, vatnsbrúsi, vegleg verðlaun.
Gaui litli í sumarskapi
Í boði eru morgun- og kvöldtímar.
Frír prufutími.
16 vikna hörkuaðhald
Fjórir mánuðir á verði tveggja.
Bónusverð 14.500 kr.
Ung og vitlaus
í ár í viðbót
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
Gott að eldast og þroskast og upplifa hlutina á annan hátt en áður.
13.30 Hildur María Björnsdóttir, Vest-
urbergi 100, Reykjavík, verður
kvödd frá Laugarneskirkju.
13.30 Paul Oddgeirsson, Goðheimum
10, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni.
13.30 Sigurbjörn Sigurbjörnsson,
Gránufélagsgötu 37, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju.
13.30 Sólveig Sigurðardóttir, Skjóli við
Kleppsveg, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju.
14.00 Gissur Gíslason frá Þóroddsstöð-
um, Miðnesi, verður jarðsunginn
frá Útskálakirkju.
14.00 Helgi Unnar Egilsson, Brekkustíg
29B, Njarðvík, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
14.00 Ólafur Bjarnason frá Hænuvík,
Stekkum 23, Patreksfirði, verður
jarðsunginn frá Patreksfjarðar-
kirkju.
15.00 Stefán Svavars, Kópavogsbraut
1b, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju.
Þóranna Rósa Jensdóttir lést í
Vancover 5. maí.
Anna Sæmundsdóttir, Merkurgötu 3,
Hafnarfirði, er látin. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Aðalsteinn Thorarensen, fyrrverandi
kennari, lést 6. maí.
Lúðvík Guðjónsson, Hraunbæ 54,
Reykjavík, lést 5. maí.
Sigríður Narfheiður Jóhannesdóttir,
Tjarnargötu 22, Keflavík, lést 6. maí.
■ Jarðarfarir
■ Andlát
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
En... en af hverju ,
Egill?
Elskarðu mig ekki
lengur!?
Jú, Beta mín,
ég geri það!
En við höfum vaxið
hvort frá öðru!
Vaxið hvort
frá öðru?
Hvað meinarðu?
Þegar við kynntumst
varstu 65 kíló...
Núna ertu 145 kíló...
Trúðu mér, við höfum
vaxið hvort frá öðru!
Vá! Þetta var móðgun
í toppklassa! Hefði
ekki getað gert það
betur sjálfur!
Engar áhyggjur!
Þú ert ennþá
kóngurinn!