Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 43
29 ÁRA „Ég hef enn eitt ár til að vera ung og vitlaus. Það er ágætt,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona sem er 29 ára í dag. Og hún ætlar svo sann- arlega að halda upp á daginn því hún þarf ekkert að leika í kvöld. „Ég lít svo á að örlögin hafi ætl- að mér að halda upp á daginn og ég byrja með því að fara í „brunch“ með Selmu vinkonu minni. Líklega á Gráa köttinn,“ segir afmælisbarnið sem lætur ekki þar við sitja. „Í kvöld fer ég svo út að borða með kærastanum mínum; hann ræður ferðinni en ég vona að hann bjóði mér í sushi í Aðalstræti,“ segir Nanna sem vill ekki gefa upp nafn kærastans að svo stöddu. Sam- bandið er enn á því stigi. Í kvöld verður svo partí fyrir fjölskyld- una og nánustu vini. Það verður haldið heima hjá Nönnu á Báru- götunni. „Við verðum nú ekki lengi að enda kosninganótt á morgun og fólk verður að vera vel úthvílt fyrir þau hátíðahöld.“ Nanna segir gott að eldast. Hún þroskist og upplifi hlutina á nýjan og annan hátt en áður. Nóg sé að gera í leiklistinni en Nanna er fastráðin við Þjóðleikhúsið og leikur þar í Veislunni og Rauða spjaldinu. Þá er hún að fara að æfa nýtt leikrit eftir Bjarna Jónsson sem heitir Vegurinn brennur: „Upphaflega átti það að heita Laugavegurinn brennur en svo brann Laugavegurinn og þá var nafninu breytt,“ segir Nanna sem jafnframt er einn af stofn- endum Vesturports og þar er í mörg horn að líta. „Nú erum við að undirbúa bíómynd sem Ragn- ar Bragason ætlar að gera með okkur. Við sköpum persónurnar sjálf, hvert fyrir sig án þess að vita hvað hinir eru að gera, og svo púslar Ragnar þessu saman með söguþræði. Þetta er hálf- gerður spuni í handritsgerð,“ segir afmælisbarnið og heldur áfram að halda upp á daginn. eir@frettabladid.is 44 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR Ást í Hollywood: 1.þáttur: - Auguþeirra mætast. 2.þáttur: -Varir þeirra mætast. 3.þáttur: - Lögfræðingar þeirra mætast. Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni Afmæli NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR ■ leikkona er 29 ára í dag. Hún ætlar að fagna í allan dag og byrja í „brunch“ með Selmu Björnsdóttur vinkonu sinni á Gráa kettinum. Í kvöld er það sushi með kærastanum.Upplýsingar í síma 561 8585 og á gauilitli.is Allt þetta er innifalið: Yogaspuni 6 sinnum í viku, vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn með mataruppskriftum, matardagbókum og leiðbeiningar varðandi fæðuval, frír einkaþjálfari í tækjasal, vatnsbrúsi, vegleg verðlaun. Gaui litli í sumarskapi Í boði eru morgun- og kvöldtímar. Frír prufutími. 16 vikna hörkuaðhald Fjórir mánuðir á verði tveggja. Bónusverð 14.500 kr. Ung og vitlaus í ár í viðbót NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR Gott að eldast og þroskast og upplifa hlutina á annan hátt en áður. 13.30 Hildur María Björnsdóttir, Vest- urbergi 100, Reykjavík, verður kvödd frá Laugarneskirkju. 13.30 Paul Oddgeirsson, Goðheimum 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni. 13.30 Sigurbjörn Sigurbjörnsson, Gránufélagsgötu 37, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju. 13.30 Sólveig Sigurðardóttir, Skjóli við Kleppsveg, verður jarðsungin frá Háteigskirkju. 14.00 Gissur Gíslason frá Þóroddsstöð- um, Miðnesi, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju. 14.00 Helgi Unnar Egilsson, Brekkustíg 29B, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 14.00 Ólafur Bjarnason frá Hænuvík, Stekkum 23, Patreksfirði, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðar- kirkju. 15.00 Stefán Svavars, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. Þóranna Rósa Jensdóttir lést í Vancover 5. maí. Anna Sæmundsdóttir, Merkurgötu 3, Hafnarfirði, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðalsteinn Thorarensen, fyrrverandi kennari, lést 6. maí. Lúðvík Guðjónsson, Hraunbæ 54, Reykjavík, lést 5. maí. Sigríður Narfheiður Jóhannesdóttir, Tjarnargötu 22, Keflavík, lést 6. maí. ■ Jarðarfarir ■ Andlát FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M En... en af hverju , Egill? Elskarðu mig ekki lengur!? Jú, Beta mín, ég geri það! En við höfum vaxið hvort frá öðru! Vaxið hvort frá öðru? Hvað meinarðu? Þegar við kynntumst varstu 65 kíló... Núna ertu 145 kíló... Trúðu mér, við höfum vaxið hvort frá öðru! Vá! Þetta var móðgun í toppklassa! Hefði ekki getað gert það betur sjálfur! Engar áhyggjur! Þú ert ennþá kóngurinn!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.