Fréttablaðið - 09.05.2003, Síða 45
Fátt er um annað meira rætt enþá ákvörðun Gísla Marteins
Baldurssonar að taka viðtal við
Davíð Oddsson í kynningarþætti
sem birtist í RÚV. Gísli Marteinn
var fyrir skömmu kosinn vinsæl-
asti fjölmiðlamaður Íslands í
könnun sem gerð var á vegum
Fréttablaðsins og Sjálfstæðis-
menn augljóslega að notfæra sér
vinsældir Gísla. Ofarlega á þeim
lista var einnig Egill Helgason
spjallþáttastjórnandi. Nýtt afl
virðist hafa fengið sömu hug-
mynd og Sjálfstæðismenn því
þeir fóru fram á það við Egil að
hann gegndi svipuðu hlutverki í
áróðursmynd sinni. Egill mun
hins vegar hafa þverneitað á
þeim forsendum að það sam-
ræmdist engan veginn stöðu hans
á hinum sjálfstæða fjölmiðli,
Skjá einum.
Sjálfstæðismenn hafa veriðmanna duglegastir við að
benda á nauðsyn þess að fjölmiðl-
ar gæti hlutleysis. Í því sambandi
rifja menn upp brottrekstur
pistlahöfundarins Illuga Jökuls-
sonar af Rás 2 um árið og reyna
menn að sjá fyrir sér viðbrögð úr
Valhöll ef Eva María Jónsdóttir
hefði verið í svipuðu hlutverki og
Gísli Marteinn, sem spyrill í
áróðursþætti Samfylkingarinnar
á notalegu spjalli við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur. Spekúlantar
leyfa sér að efast um að Eva
María ætti afturkvæmt til stofn-
unarinnar úr fæðingarleyfi.
46 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Þetta er stöðuhækkun,“ segirJón Sæmundur Sigurjónsson,
hagfræðingur og fyrrum alþingis-
maður, sem hefur verið gerður að
skrifstofustjóra almannatrygg-
ingaskrifstofu heilbrigðisráðu-
neytisins. Áður starfaði hann þar
sem sérfræðingur. „Ég lít á þetta
sem klapp á öxlina fyrir vel unnin
störf. Ég varð hoppandi kátur og
bauð konunni út að borða af þessu
tilefni,“ segir hann.
Jón Sæmundur er frá Siglufirði
þar sem Sigurjón faðir hans rak
Siglufjarðarprentsmiðju. Þar við
ysta haf voru gefnar út Tarsan-
bækur á íslensku og síðar mynda-
blöð með öllum helstu hasarhetjum
heimsins: „Pabbi byrjaði að gefa
Tarsan út árið 1936 og hélt því lengi
áfram. Gaf út þrjár útgáfur sem
saman eru nú vinsælar hjá söfnur-
um. Faðir minn er enn fjallhress
enda verða karlar í minni ætt 103
ára. Hann neitar að fara á elliheim-
ili því þau séu bara fyrir gamal-
menni,“ segir nýi skrifstofustjór-
inn. Jón Sæmundur var um árabil
þingmaður Alþýðuflokksins og
formaður Tryggingaráðs en hefur
síðan unnið í heilbrigðisráðuneyt-
inu. ■
Persónan
JÓN SÆMUNDUR
SIGURJÓNSSON
■ hefur verið skipaður skrifstofustjóri í
heilbrigðisráðuneytinu. Hann lítur á
stöðuhækkunina sem klapp á öxlina fyrir
vel unnin störf.
Hoppandi
kátur
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Stefán Jón Hafstein hyggst ekki bjóða
sig fram á heimsvísu.
Autt húsnæði er ögrun. Þaðfannst að minnsta kosti stöll-
unum Ragnheiði Pálsdóttur, Sig-
rúnu Hrólfsdóttur og Elínu Hans-
dóttur. Þær opnuðu Búðina,
Laugavegi 12a, í fallegu verslun-
arhúsnæði með innréttingum frá
því fyrir stríð. „Það er alltaf eitt-
hvað sorglegt við húsnæði sem
stendur autt. Við hugsuðum til
þess með hryllingi að einhver
mínímalistinn kæmi og hreinsaði
út úr húsinu,“ segja þær Sigrún og
Elín sem standa vaktina á meðan
Ragnheiður er í hagfræðiprófi
uppi í háskóla.
Þær fóru hugsa um hvað hægt
væri að gera. Niðurstaðan var að
gefa hönnuðum færi á að koma
verkum sínum á framfæri. „Það
er engin föst lína. Við horfum á
einstaklinginn og viljum hafa fjöl-
breytni.“ Markmiðið er að koma
afurðum skapandi fólks á fram-
færi. „Það er mikil sköpun og
gerjun allt í kringum okkur og
okkur fannst vanta farveg fyrir
þetta.“ Hver sem er getur komið
með sitt og þær velja úr það sem
hentar búðinni og taka það í um-
boðssölu. „Við erum svona lítið
gróðurhús. Það er voða mikill ylur
hérna.“ Þær segjast hugsa þetta
sem upplýsingamiðstöð og í smíð-
um er heimasíða þar sem hönnuð-
ir verða kynntir.
Búðin er bara nokkurra daga
gömul og þær stöllur segja við-
brögðin frábær. „Fólk hefur kom-
ið og hugsað: „já einmitt“ og farið
svo heim að búa til hluti.“
Það er gaman að skoða í búð-
inni. Ólíklegustu hlutir saman
komnir. „Við viljum skapa
stemmningu í kringum þetta.
Hafa þetta lifandi miðstöð.“ ■
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Í Dubai í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum.
L. Paul Bremer.
30 ára.
JÓN SÆMUNDUR SIGURJÓNSSON
Faðir hans gaf út Tarsan á Siglufirði
- í þrígang.
VORSALA
30% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
FÖSTU- LAUGARDAGS
RÝMUM FYRIR
SUMARVÖRUNNI
Mikill taugatitringur mun núvera innan Flugmálastjórn-
ar vegna niðurstaðna í stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðun-
ar. Miðvikudaginn 30. apríl voru
starfsmenn stofnunarinnar boð-
aðir til fundar um árangurs- og
þróunaráætlun. Þegar áætlunin
hafði verið rædd var starfs-
mönnum sagt frá því að von
væri á „neikvæðum“ niðurstöð-
um frá Ríkisendurskoðun. Þeim
var jafnframt sagt að aldrei
væri bent á neitt jákvætt í slík-
um skýrslum. Eins og kunnugt
er bíður skýrslan birtingar þar
til eftir alþingiskosningar.
Fréttiraf fólki
Fréttiraf fólki
Verslun
■ Búðin er fjölbreytt stemmningsverslun
þar sem ungir hönnuðir fá tækifæri til
að kynna og selja verk sín.
Gróðurhús
fyrir hönnuði
ÍSLENSK SKÖPUN
Sigrún Hrólfsdóttir og
Elín Hansdóttir hafa
stofnað búðina Búð-
ina, sem er vettvang-
ur þeirra sem eru að
skapa heima hjá sér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T