Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 8

Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 8
Að mati leiðarahöfundar norska dagblaðsins Aftenposten leikur enginn vafi á því að mark- miðið með hryðjuverkaárásunum í Sádí-Arabíu hafi verið að koma höggi á Bandaríkin. Allt bendi til þess að hryðjuverkasamtökin al- Kaída standi á bak við árásirnar. Það sýni að ekki hafi tekist að lama starfsemi samtakanna þrátt fyrir umfangsmiklar endurbætur í öryggismálum um heim allan. Leiðarahöfundur veltir fyrir sér tilgangi árásanna. Hann bend- ir á að ekki sé ástæða til að ætla að þetta muni verða til þess að Bandaríkin hætti afskiptum sín- um af Miðausturlöndum eða leggi niður vopnin í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þvert á móti muni öfgafyllstu stuðningsmenn George W. Bush nú sannfærast enn frekar um það að beita þurfi miskunnarlausum aðferðum til þess að berjast gegn hryðjuverka- samtökum. „Þegar hryðjuverk eru framin verður það alltaf til þess að styrkja öfgasinna og veikja málstað hinna hófsömu.“ Í leiðara danska dagblaðsins Berlingske Tidende er lögð áhersla á mikilvægi þeirrar ákvörðunar Bandaríkjanna að flytja hersveitir sínar frá Sádí- Arabíu. Þar með hafi verið fjar- lægður einn helsti ásteytingar- steinn hryðjuverkasamtakanna al-Kaída í stríðinu gegn Banda- ríkjunum. Leiðarahöfundur veltir fyrir sér framtíð stjórnmálasambands Bandaríkjanna og Sádí-Arabíu. Hann ítrekar að Bandaríkin verði að beita sádíarabísku kon- ungsfjölskylduna auknum þrýst- ingi þar sem hún styðji alþjóð- lega öfgahópa, sjái í gegnum fingur sér við hryðjuverkasam- tök og haldi þjóð sinni í heljar- greipum. Ef það eigi við rök að styðjast að yfirvöld í Sádí Arabíu hafi verið vöruð við árásunum en ekkert aðhafst bendi það til þess að breyting sé að verða á sam- bandi ríkjanna tveggja. Í því felist von um það að lýðræðisleg- ar umbætur séu á næsta leyti. Leiðarahöfundur Politiken er ekki síður harðorður í garð sádi- arabískra ráðamanna. Hann seg- ir konungsfjölskylduna bera í einu og öllu ábyrgð á þeim póli- tíska, félagslega og efnahagslega vanda sem landið er statt í. Hún hafi auk þess um árabil stutt við bakið á íslömskum öfgahópum og þar með kynnt undir alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Vakin er athygli á því að Bandaríkin hafi um áratugaskeið haldið verndarhendi yfir yfir- völdum í Sádí-Arabíu. Engu að síður hafi konungsfjölskyldunni tekist að beina reiði þegna sinna vegna þess ástands sem ríkir í landinu að Bandaríkjunum og vestrænum gildum. Þetta hafi bandarísk yfirvöld sætt sig við í þeirri trú að konungsfjölskyldan stuðlaði að stöðugleika í Miðaust- urlöndum. Úr leiðurum ■ Leiðarahöfundar Norðurlandanna velta fyrir sér hvaða áhrif hryðjuverka- árásirnar í Sádí Arabíu muni hafa á samband konungsfjölskyldunnar og bandarískra yfirvalda. 10 17. maí 2003 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. KJÖR „Úrskurður kjaradóms um launahækkanir þingmanna og ráðherra er móðgun við kjósend- ur,“ segir Finnbogi Bjarnason, 75 prósent öryrki. Á kjördag birtist aug- lýsing frá Finn- boga sem hann greiddi úr eigin vasa. Í auglýsing- unni minnir hann kjósendur á að laun fyrirmanna hækkuðu fyrir fjórum árum, dag- inn eftir kosningar. Nú hækkuðu laun þeirra fjórum mánuðum fyr- ir kosningar. Finnboga fannst um of verið að treysta á skammtíma- minni kjósenda og vildi með auglýs- ingunni minna fólk á þessar hækkanir. Eins og allir vita hækkuðu launin aftur dag- inn eftir kosning- ar. Finnbogi er næst elstur fimmt- án systkina og hafði alla tíð unnið hart fyrir sínu á meðan hann hafði heilsu til . En árið 1986 byrjuðu vandræðin. Finn- bogi smitast af dætrum sínum sem voru með hlaupabólu. Hlaupabólan fór í lungu Finnboga og var hann af þeim sökum á sjúkrahúsi í rúman mánuð og þar af í viku í öndunarvél, hann var um tíma nær dauða en lífi. Þá tók við margra vikna endurhæfing. Frá þeim tíma hefur margt gengið á og hefur Finnbogi farið í hjarta- þræðingu, fengið ígerð í olnboga og verið skorinn vegna þrengsla í ósæðum niður í fætur. Jónína, kona Finnboga, hefur tvívegis fengið brjóstlos sem hefur háð henni við vinnu. Finnbogi var ríkisstarfsmaður í 16 ár, í byrjun voru laun hans sæmileg en fylgdu ekki launa- þróun hjá einkaaðilum. Finnbogi hætti hjá ríkinu og fór tvívegis út í rekstur með konu sinni. Í báðum tilfellum gekk reksturinn ekki sem skyldi. Þau hafa reynt margt til að standa í skilum, til að mynda frystingu lána hjá íbúðalánasjóði, lán hjá ættingjum og vinum. Nú er staðan sú að þau hjónin eru að missa húsið og stefna í gjaldþrot. Mánaðarleg inn- koma Finnboga eu tæplega níu- tíu þúsund krón- ur. Úr söfnunar- sjóði lífeyris- réttinda fær hann 5.557 krónur. Af þeirri upphæð er svo tekinn skattur þannig að eftir standa 3.495 krónur. Um 44.000 krónur fær hann frá Tryggingastofnun og 40.000 fær hann frá Starfsmannafélagi ríkis- stofnanna. „Það eru margir sem hafa það miklu verra en ég og mér finnst þjóðin ekki getað lokað augunum fyrir þeirri fátækt sem finnst ansi víða í okkar þjóðfélagi. Nú eru Ís- lendingar með ríkari þjóðum heims og margir sem hafa það mjög gott en aftur á móti fyrir finnst fátækt hjá allt of mörgum,“ segir Finnbogi. hrs@frettabladid.is Ísland í bítið Edda Magnúsdóttir skrifar Ég hef árangurslaust reynt að násambandi við dagskrárgerðar- fólk morgunþáttarins Ísland í bítið. Bæði hefur það verið til að hrósa þættinum og koma með athuga- semd. Mig langar til að hrósa fréttamanninum Ingu Lind fyrir framúrskarandi fréttaflutning. Hún er að mati okkar fólksins í sveitinni ein sú besta sem sést hef- ur á skjánum. Þórhallur og Jóhanna eru oft á tíðum mjög skemmtileg en eiga það til að detta í fáránlega hluti eins og að kalla stjórn, aðra en Íhald og Framsóknarflokk, drul- luköku. Þau ummæli voru einmitt viðhöfð í þættinum síðastliðinn miðvikudag. Að mínu mati eru þau ansi bláleit. Jóhanna, þessi glæsi- lega og fallega kona, veit greinilega sínu viti en mannasiði kann hún ekki. Á ég sérstaklega við frammíköllin sem hún viðhefur við viðmælendur sína. ■ Móðgun við kjósendur Finnbogi Bjarnason auglýsti í Fréttablaðinu. Hann minnti kjósendur á tvær síðustu launa- hækkanir þingmanna. Daginn eftir að auglýs- ingin birtist hækkuðu laun fyrirmannanna aftur. ■ Bréf til blaðsins Bætiflákar Eigum marga forystumenn „Samfylkingin leysir öll sín mál með lýðræðislegum hætti. Við búum svo vel að eiga marga öfluga forystumenn og við viljum nýta krafta þeirra allra. Það er svo flokksmanna að ákveða nákvæmlega hvert hlutverk hvers og eins er. Þeim málum hefur verið vel skipað hingað til og svo verður örugglega áfram,“ segir Karl Th. Birgisson, framkvæmda- stjóri Samfylkingarinnar. Í kjölfar kosninganna hefur Samfylkingin verið að koma forystusveitinni í fast horf. Menn spyrja hvort ekki sé rétt að af- greiða málið í lýðræðislegri kosningu. Konungsfjölskyldan dregin til ábyrgðar Jakob Falur Garðarsson aðstoðarmaður samgönguráðherra Tvöfaldur verðmunur á leiðum Við gerð Sundabrautar er mikilvægt að saman fari hagkvæmt leiðaval með tilliti til kostnaðar, arðsemi, auk- ins umferðaröryggis og styttingar í ferðatíma. Eins að leiðin falli vel að umhverfinu. Nú eru þrír valkostir til skoðunar; það er há bitabrú eða botngöng á leið 1 og land- mótunarleið á leið 3. Stofnkostnaður leiðanna og arðsemi er mjög mismunandi, allt frá 6,9 milljörðum króna og 14% arðsemi í tæpa 14 milljarða króna og 7% arðsemi. Dýrasta leiðin er sjö milljörðum dýrari en sú ódýrasta. Sú upphæð dugar í allt að tíu mislæg gatnamót! Sam- kvæmt nýsamþykktri samgönguáætlun á að ráðast í þessa miklu framkvæmd. Unnið er að umhvefismati. Þegar það liggur fyrir verður hægt að velja leiðina – í sátt við alla landsmenn og náttúruna. Árni Þór Sigurðsson formaður samgöngunefndar Reykjavíkurborgar Kostnaður ekki eina sjónarmiðið „Ég tel afar mikilvægt að hraða gerð Sundabrautar sem er eitt þýðingarmesta og umfangsmesta samgöngu- mannvirki á höfuðborgarsvæðinu. Meirihlutinn í borg- arstjórn hefur lagt þunga áherslu á að lega brautarinnar verði í samræmi við skipulagsáætlanir og verði stuðn- ingur við þá framtíðarsýn svæðisskipulags höfuðborgar- svæðisins að styrkja og efla miðborg Reykjavíkur sem landskjarna. Það er okkar mat að samgönguyfirvöld verði einnig að sýna því sjónarmiði skilning en horfa ekki eingöngu í kostnað við mismunandi leiðir.“ Sundabraut enn ekki heimilisföst Skiptar skoðanir ■ Af Netinu Enn ekkert gosminjasafn „Nú, þrjátíu árum eftir Heima- eyjargosið, er enn ekkert gosminjasafn komið upp“ AF EYJAFRETTIR.IS Leyna launahækkun stórhvela „Kjaradómur er gott dæmi um bananalýðveldi. Á sjálfan kjör- daginn hækkaði hann laun stór- hvela ríkisins langt umfram aðra og heldur niðurstöðunni leyndri fram yfir lokun kjörstaða. Vafa- laust hefur dómurinn talið, að kjósendur væru ekki hæfir til að frétta af niðurstöðunni áður en þeir greiddu atkvæði. Það er sennilega rétt mat, en það er ekki hlutverk dómsins að fram- kvæma slíkt mat á hæfni kjós- enda.“ JÓNAS KRISTJÁNSSON Á JONAS.IS Land Rover Defender 90 tdi • County/ Diesel árgerð 1999, 7 manna. • Ný 32" heilsársdekk á álfelgum. • Ný tímareim, dráttarkrókur. • Kastarar. • Ekinn 93000. • 100% lán. • 1.590 þ. yfirtaka. Gríptu tækifærið - 100% lán Bíllinn er til sýnis og sölu hjá BR Bíldshöfða 10 | sími 587 8888 www.bilasalarvk.is Að Bjarga Byggð Þórgunnur Jónsdóttir skrifar: Valdhafarnir prúðu vildu enga bið; vatnsorkuna selja fyrir lítið, úrskurði Skipulagsstofnunar snéru við, þó flestum skattborgurum þætti það skrýtið. Sú vinna í þágu vísindanna var vanþakklátt starf; til málamynda fór virkjunin í matið. Þau kýldu leyfið í gegn þó kúnninn færi í hvarf og kræktu í Alcoa eftir Hydro handapatið. Og böðlast ótrauð áfram við að bjarga byggð, þó brjóti hart gegn náttúrunnar óði; finnst þeim sín pólitíska framtíð vera tryggð með því að fórna okkar dýra fjársjóði. Frá Austurströnd mun fólk og fiskur hverfa; fátækir verða þeir sem landið erfa. ENN LIGGUR EKKI FYRIR HVAR FYRIRHUGUÐ SUNDABRAUT MUN LIGGJA. ■ Mánaðarleg innkoma Finn- boga er tæp- lega níutíu þús- und krónur. FINNBOGI BJARNARSON Eftir að Finnbogi missti heilsuna hefur hallað undan fæti í fjármálunum. AUGLÝSING FINNBOGA Finnbogi minnti kjósendur á tvær síðustu launahækkanir fyrirmanna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.