Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 29
LAUGARDAGUR 17. maí 2003 23
JÓHANN EGGERT OG UNNUR
Eiga bát bæði á Íslandi og í Danmörku, en
ætla að selja þann sem er hér heima og
einbeita sér að siglingum þar sem betur
viðrar.
Bátur í stað-
inn fyrir
sumarbústað
Niðri við smábátahöfn Snarfaravoru hjónin Jóhann Eggert
Jóhannsson og Unnur Guðmunds-
dóttir að leggja að landi á bát sín-
um Mími. „Þetta heyrir til vor-
verkanna,“ segja þau hjón, sem
hafa átt bátinn í þrjú ár, en bátinn
sjósettu þau fyrir viku. „Við erum
heilmikið að vinna í honum núna,
bera á timbrið, athuga gúmbátana
og slökkvitækin og athuga allan
öryggisbúnað,“ segir Unnur.
„Þetta er okkar aðaláhugamál
og kemur í staðinn fyrir sumar-
bústað,“ segja þau hjón. „Við eig-
um reyndar líka bát í Danmörku,
sem við keyptum á síðasta ári.
Hann er í Bandholmen, og í fyrra
sigldum við bæði til Svíþjóðar og
Noregs og erum að fara í aðra
svipaða siglingu núna í byrjun
júní. Við búum í bátnum þar.
Hann er bæði stærri og skemmti-
legri en þessi.“
Unnur segir ekki nærri því
jafngaman að eiga bát á Íslandi
og í Danmörku, þar sé veðrið
auðvitað miklu betra og meira
hægt að nýta farkostinn. „Hér
heima förum við á skak og fáum
okkur í soðið,“ segir Jóhann, „og
svo fara Snarfarafélagar í hóp-
siglingar sem er auðvitað mjög
gaman. En í Danmörku er þetta
meira ævintýri.“
Jóhann segist hvergi smeykur
við að sigla í sænska skerjagarðin-
um, því hann sé með afar góð sigl-
ingatæki um borð. Unnur hlær og
segir frá því að siglingatækin í
bátnum séu í tölvuformi og Jóhann
hafi einhvern tíma verið búinn að
heita því að snerta aldrei á slíku
tæki. „Svo var hann ekki nema tvo
daga að læra á tölvuna,“ segir hún
stolt og bendir á að Jóhann, sem er
vélstjóri, hafi líka farið í Stýri-
mannaskólann fyrir tveimur árum
til að bæta við sig réttindum. ■
VER‹ Á‹UR VER‹ NÚ
BOR‹STOFUBOR‹ 180X90 39.000,- 23.400,-
BOR‹STOFUBOR‹ 200X90 49.000,- 29.400,-
HRINGBOR‹ 130X130-170 59.000,- 35.400,-
SÓFABOR‹ 130X70 25.000,- 15.000,-
INNSKOTSBOR‹ 19.000,- 11.400,-
HLI‹ARBOR‹ „MOON” 15.000,- 9.000.-
HLI‹ARBOR‹ 150X45 25.000,- 15.000,-
TÖLVUSKÁPUR 96X93X171 69.000,- 41.400,-
SKENKUR 165X50X90 59.000,- 35.400,-
SKENKUR 210X50X90 69.000,- 41.400,-
GLERSKÁPUR 106X48X205 79.000,- 47.400,-
GLERSKÁPUR – 2 HUR‹IR 99.000,- 59.400,-
GLERSKÁPUR – 3 HUR‹IR 139.000,- 83.400,-
SJÓNVARPSSKÁPUR 79.000,- 47.400.-
BÓKASKÁPUR 39.000,- 35.400,-
H
R
IN
G
D
U
EÐ
A KOM
D
U
S E M F
Y
R
S
T
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
40% AFSLÁTTUR AF PRINCESS-HÚSGAGNALÍNUNNI
Opi›:
laugardag kl. 10–16
sunnudag kl. 13–16
fia› er eitthva› pínulíti› konunglegt vi›
PRINCESS-húsgagnalínuna
– nema ver›i›!
P
RI
NCES
S
H
Ú
S
G
A
G N A L
Í N
A
N40%
afsláttur
Veiðimenn bíða gjarnan meðóþreyju eftir 1. maí, því þá geta
þeir keypt sér veiðileyfi í Elliða-
vatni og rennt fyrir bleikju. Margir
þeirra koma daglega eftir vinnu og
sýna ótrúlega þrautseigju og þolin-
mæði við veiðimennskuna. Þegar
blaðamann bar að garði voru þó að-
eins tveir menn við veiðar. Annar
þeirra, Eymar Kruger, sagðist vera
nýgræðingur í veiðimennskunni.
„Ég hef reyndar komið hingað
nokkrum sinnum áður, en ég er
ekki einn af þeim sem mæta dag-
lega,“ segir hann. „Ég hef enn ekk-
ert orðið var, enda var ég bara rétt
að byrja. En þetta er frábært sport
og skemmtilegt að komast út í nátt-
úruna á vorin,“ segir Eymar.
Á öðrum stað stóð maður rúm-
lega hálfur upp úr vatninu og
sveiflaði flugustöng. „Ég er búinn
að fá fjórar tveggja punda bleikjur,
sem er ágætt,“ segir hann, kveðst
heita Bjarni Sveinsson og vera sjó-
maður. „Ég kemst vegna vinnunnar
ekki í veiðina eins oft og ég vildi, en
ef ég hefði tækifæri til myndi ég
koma að minnsta kosti annan hvern
dag. Þetta er slíkt „kikk“,“ segir
hann. ■
BJARNI SVEINSSON
Var búinn að taka fjórar bleikjur á flugu.
Veiðimennskan
dásamlegt „kikk“
EYMAR KRUGER
Beitti maðki, en hafði enn ekki orðið var,
enda nýbyrjaður þegar blaðamann bar að.
Þegar skólunum lýkur streymaunglingarnir með garðverkfæri
út á opin svæði í höfuðborginni og
hefjast handa við að hreinsa, snyrta
og gróðursetja. Unglingavinna á
borð við þessa er alls óþekkt í öðr-
um borgum.
Þórólfur Jónsson, deildarstjóri
garðyrkjudeildar Reykjavíkur-
borgar, segir að undirbúningur fyr-
ir vorið hafi í rauninni hafist í vetur
þegar menn fóru að klippa og
grisja, en nú standi aðallega yfir
sláttur og áburðargjöf.
„Svo bíðum við bara eftir að
krakkarnir mæti, sem eru auðvitað
aðalvinnuaflið,“ segir Þórólfur.
„Það má búast við því strax á mánu-
daginn að krakkarnir streymi út í
beðin til að hreinsa og gróðursetja á
opnum svæðum borgarinnar.“
Um er að ræða um það bil 600
ungmenni á aldrinum 18-20 ára hjá
Garðyrkjudeildinni og rúmlega
3.000 unglinga hjá Vinnuskólanum.
„Þar eru krakkarnir á aldrinum 14-
16 ára,“ segir Þórólfur. ■
VIÐ SLÁTT
Grassláttur er merki um að sumarið sé á
næsta leiti. Nú þegar er farið slá grasið í
borginni þótt maí sé aðeins hálfnaður.
Vorboðarnir
í unglinga-
vinnunni