Fréttablaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 28 Íþróttir 14 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD TÍMAMÓT Fimmtugur skóli HULDUFÓLK Eru álfar kannski menn? MÁNUDAGUR 19. maí 2003 – 113. tölublað – 3. árgangur bls. 38bls. 19 ÍÞRÓTTIR KR-ingar sigurstranglegri bls. 14 KYNNING Í dag verður opin kynning á lokaverkefnum nemenda í tölvun- arfræðideild Háskólans í Reykja- vík. Kynningin verður á Hótel Loft- leiðum og stendur frá kl. 9 fyrir há- degi til 15. 45. Henni verður fram haldið á morgun og miðvikudag. Lokaverkefni kynnt SÖFNUN Landssöfnun Regnborga- barna er formlega hleypt af stokk- unum í húsnæði félagsins í Hafnar- firði í dag klukkan 11 fyrir hádegi. Söfnunin mun í fyrstu einkum bein- ast að fyrirtækjum í landinu og mun það fyrsta afhenda 500.000 króna ávísun til Regnbogabarna við þetta tækifæri. Verndari söfnunar- innar er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands. Regnboga- börn safna BASAR Á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund verður haldinn basar sem hefst klukkan 13:00 í dag. Þar verða til sölu munir sem heimilisfólkið hefur unnið. Basarinn verður í nýju handavinnustofunni á fjórðu hæð, í austurhluta aðalbyggingar Grundar. Basar á Grund FÓTBOLTI Nýliðar Þróttar og Íslands- meistarar KR eigast við í lokaleik fyrstu umferðar Íslandsmótsins í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Laugardalsvelli. 1. umferð lýkur STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Norðaustan 3-8 m/s. Léttir til þegar líða tekur á morguninn. Hiti 5 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 10-15 Skúrir 7 Akureyri 8-13 Rigning 7 Egilsstaðir 6-11 Súld 7 Vestmannaeyjar 5-10 Hálfskýjað 8 ➜ ➜ ➜ ➜ + + STJÓRNARMYNDUN „Ég held að allir séu sammála um að þetta þurfi að klára í þeirri viku sem nú fer í hönd. Að þingið geti komið saman í vikunni og allt falli í fastar skorður,“ segir Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokks- ins. Fastlega má gera ráð fyrir að Framsóknarflokkur og Sjálfstæð- isflokkur ljúki stjórnarmynd- unarviðræðum í vikunni og lands- menn fái litið nýja ríkisstjórn. Einar Oddur K r i s t j á n s s o n , þingmaður Sjálf- s t æ ð i s f l o k k s , tekur undir með Guðna og segir enda enga ástæðu til að dorma lengi yfir þessu. Hins vegar gefur hann lítið fyrir spurn- ingar um hvernig raðast í ráð- herrastólana. „Hingað til hefur engum tekist að sjá spilin hjá Dav- íð Oddssyni og eiginlega tíma- eyðsla að velta því fyrir sér hvern- ig það allt fer.“ Guðni segir liðna viku hafa far- ið í gagnaöflun, yfirferð á kosn- ingafyrirheitum, efnahagsstöðu og þegar það sé komið í hús fari menn að ræða stóru málin – hvern- ig mörkuð verði stefna til næstu ára. „Ekki er enn farið að ræða býtti milli flokkanna á ráðuneyt- um né hverjir sitji í hvaða stól,“ segir varaformaðurinn og veit lítið hvað sig sjálfan varðar. „Ég gæti vel hugsað mér að vera áfram í Landbúnaðarráðuneytinu en það er líka gott fyrir menn að breyta til, þá verða þeir ekki mosagrónir og kynnast fleiri hliðum.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins úr innsta hring Sjálfstæð- isflokksins er ekki eins mikilla breytinga að vænta á ráðherraliði og margir telja, en hugleiðingar manna ganga út á að þrír ráðherr- ar flokksins kunni að vera valtir í sessi: Sturla Böðvarsson, Tómas Ingi Olrich og Sólveig Pétursdóttir – sem menn tala um sem hugsan- legan forseta þingsins. Heimildar- menn í Sjálfstæðisflokknum segja allt eins geta farið svo að Davíð sitji út kjörtímabilið þrátt fyrir orðróm annars efnis. Guðni Ágústsson býst fastlega við því að ekkert muni ná að trufla þetta tilhugalíf: Össur muni ekki koma hlaupandi á síðustu stundu að kirkjunni og stöðva hjónavígsl- una með því að hrópa: Nei! „Það er hans draumur,“ segir Guðni en á ekki von á að Össuri verði að ósk sinni og sér enga meinbugi á ráða- hagnum. jakob@frettabladid.is Stjórnarmyndun á lokasprettinum Davíð Oddsson forsætisráðherra heldur spilunum þétt að sér í stjórnarmyndunarviðræðum en varaformaður Framsóknarflokks telur víst að ný ríkisstjórn verði mynduð í þessari viku. Mikil vinna var í gangi um helgina. GUÐNI ÁGÚSTSSON Býst fastlega við því að sitja áfram í ríkis- stjórn og þótt Landbúnaðarráðuneytið sé honum kært segir hann einnig gott fyrir menn að breyta til. „Þá verða menn ekki mosagrónir.“ SALA „Tilfinning manna er að salan gangi vel, en það er ómögulegt að segja nokkuð til um það fyrr en líða tekur á vikuna, segir Gunnar Kvaran, framkvæmdastjóri út- breiðslusviðs SÁÁ. Gunnar segir að með breyttu þjóðfélagi hafi komið upp það vandamál að fólk hafi ekki tiltækt reiðufé. „Menn hafa hreinlega ekki á sér þúsund krónur nema inni á reikningi. Við höfum reynt að koma til móts við það með því að leigja posa og ég reikna með að við höfum yfir að ráða 30-40 pos- um. Það er hins vegar fjarri því að vera nóg.“ Hann segir að í framtíðinni verði menn að hugsa þessa sölu upp á nýtt með breyttum háttum manna. „Við erum með helmingi fleiri posa í notkun nú en í fyrra en þeir þyrftu að vera langtum fleiri,“ segir Gunnar Kvaran. Sölumenn eru um það vil 400 tals- ins á Stór-Reykjavíkursvæðinu, allir sjálfboðaliðar. ■ Álfasala SÁÁ gengur ágætlega: Skortur á posum hamlar sölu ÁLFASALA SÁA Breytt þjóðfélag veldur því að menn eiga ekki tiltækt reiðufé. Því eru sölumenn að hluta til með posa en þeir þyrftu að vera mun fleiri. BOLTINN FARINN AÐ RÚLLA Það hafa væntanlega margir kæst um helgina þegar Íslandsmótið í fótbolta hófst. Úrslitin í Kaplakrika réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Skagamenn jöfnuðu þremur mínútum fyrir leikslok og gerðu harða hríð að marki FH-inga. Óvæntustu úrslitin voru væntanlega í Grindavík þar sem nýliðar Vals fóru með sigur af hólmi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Úthafskarfi: Veiðin er nánast engin VEIÐAR „Það er lítið um að vera hérna og veiðin er nánast engin“, segir Þórður Magnússon, skip- stjóri á Þerney RE 101 sem er á úthafskarfaveiðum á Reykjanes- hrygg. „Þetta er alls ekki gott mál og það eru margir búnir að gefast upp.“ Þórður segir að eftir því sem skipunum fækki minnki lík- urnar á því að fiskurinn finnist. „Það verður engin úthafskarfa- vertíð með þessu áframhaldi,“ bætir Þórður við en segist þó reikna með að halda leitinni að karfanum eitthvað áfram. ■ Veðrið í vikunni: Spáir róleg- heitaveðri VEÐRIÐ Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegheitaveðri næstu daga. Vind mun líklega lægja í dag og í Reykjavík mun sjást til sólar af og til, einna helst síðdegis í dag og á morgun. Veðurspá næstu daga gerir ráð fyrir dálítilli súld norðanlands á þriðjudag en stöku skúrum sunn- anlands. Það verður bjart með köflum en þokubakkar við strönd- ina á miðvikudag. Það er svo útlit fyrir rigningu sunnan- og vestan- lands á fimmtudag en á austan- verðu landinu á föstudag. Útlit er fyrir smá vætu víðast hvar á laug- ardag. Hiti verður á bilinu 5 til 15 stig, hlýjast inn til landsins. ■ „Hingað til hefur eng- um tekist að sjá spilin hjá Davíð Oddssyni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.