Fréttablaðið - 23.05.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 23.05.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 24 Leikhús 24 Myndlist 24 Bíó 28 Íþróttir 18 Sjónvarp 30 KVÖLDIÐ Í KVÖLD DÓMSMÁL Sýknaðir af brottkasti TÓNLIST Komin á fullt í tónlistina FÖSTUDAGUR 23. maí 2003 – 117. tölublað – 3. árgangur bls. 28bls. 6 ÍÞRÓTTIR Frábær árangur Guðmundar bls. 18 MÁLÞING Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri heldur mál- þing um lýðræði og kynja- og byggðasjónarmið í samvinnu við Jafnréttisstofu og Jafnréttisráð. Fundurinn fer fram í Sólborg, Há- skólanum á Akureyri, og hefst klukkan 9. Lýðræði, lands- byggð og kynjamál STJÓRNMÁL Ný ríkisstjórn tekur við völdum á ríkisráðsfundi í dag. Um er að ræða fjórða ráðuneyti Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Ríkisstjórnarskipti KEPPNI Ungfrú Ísland verður útnefnd á Broadway í kvöld. Femínistafélag Íslands opnar sýninguna Afbrigði af fegurð í Síðumúla 12 klukkan 20.30. Fegurð og femínistar FÓTBOLTI Tveir leikir fara fram í efstu deild karla á Íslandsmótinu í fótbolta í kvöld. Víkingar taka á móti Haukum á Víkingsvelli og Breiðablik fær Keflavík í heimsókn á Kópavogsvelli. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15. Tveir leikir í 1. deild STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V REYKJAVÍK Norðlæg eða breytileg átt og bjart að mestu. Hiti 8 til 13 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-5 Léttskýjað 9 Akureyri 3-5 Skýjað 8 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 6 Vestmannaeyjar 3-5 Hálfskýjað 10 ➜ ➜ ➜ ➜ + + STJÓRNARMYNDUN Páll Magnússon varð mörgum á óvart fyrir valinu sem næsti félagsmálaráðherra. Það er að tillögu Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins. Kosið var um tillögu for- mannsins og var ekki einhugur um val ráðherra. Aðrir ráðherrar Framsóknar halda embættum sínum. Nýr þingflokksformaður verður kosinn á mánudag. Davíð Oddsson kynnti breyting- ar á ráðherraliði sínu í Valhöll í gærkvöldi. Af sex ráðherrum flokksins verða þrír nýir. Tveir hinna nýju verða hins vegar ekki ráðherrar fyrr en síðar á kjörtíma- bilinu. Sturla Böðvarsson verður áfram samgönguráðherra, Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðher- ra. Eini nýi ráðherrann, sem strax sest í ráðherrastól, er Björn Bjarna- son, oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna. Hann tekur við dóms- og kirkjumálaráðuneytinu af Sólveigu Pétursdóttur, sem verður varaforseti Alþingis. Hún mun síð- an taka við embætti forseta Alþing- is af Halldóri Blöndal eftir tvö ár. Sólveig sagðist vera sátt við niður- stöðuna. Hún sagðist ekki líta á þetta sem vantraust á hana. „Það er alveg ljóst að menn vildu sjá ákveðnar breytingar,“ sagði Sól- veig. „Ég fagna því sérstaklega að við sjáum fjölgun kvenna í ráð- herrastólum.“ Tómas Ingi Olrich verður áfram menntamálaráðherra, en aðeins til áramóta. Þá mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir taka við því emb- ætti. Tómas Ingi mun hins vegar verða sendiherra í París. Hann sagðist vera sáttur við þessa mála- lyktan og Þorgerður Katrín sagðist alls ekki hafa átt von á þessu. „Mér finnst þetta afskaplega mikil áskorun og ögrun, að taka við menntamálaráðuneytinu,“ sagði Þorgerður Katrín. 15. september 2004, þegar Dav- íð Oddsson víkur sem forsætisráð- herra fyrir Halldóri Ásgrímssyni, fá sjálfstæðismenn umhverfismála- ráðuneytið. Sigríður Anna Þórðar- dóttir tekur við því embætti. Hún sagðist ekki hafa átt von á þessu. „Ég tel að þetta sé mjög skemmtilegt verkefni og margt áhugavert sem liggur fyrir,“ sagði Sigríður Anna. „Umhverfismálin eru vaxandi málaflokkur og skipta gríðarlega miklu máli. Ég er svo sannarlega ánægð að fá að taka við þeim.“ Nánar bls. 4 HAMFARIR „Það sem er efst í huga er tilhugsunin um að komast á vettvang og tryggja að allur bún- aður fari með. Við getum ekki sagt að við séum fullir tilhlökkun- ar heldur er tilfinningin kvíða- blandin. Sér í lagi þegar ekkert er vitað um aðstæður og öryggis- mál,“ sagði Ásgeir Böðvarsson, einn þeirra sautján manna sem skipa Íslensku alþjóðabjörgunar- sveitina. Meðlimir sveitarinnar biðu í gærkvöldi eftir að ákvörðun yrði tekin um hvort sveitin verði send til Alsír til að taka þátt í leitarað- gerðum og björgun í kjölfar jarð- skjálfta sem hefur kostað á átt- unda hundrað manns lífið. Utan- ríkisráðuneytið, í samráði við Slysavarnarfélagið Landsbjörg, bauð alsírskum yfirvöldum aðstoð og hafði um það bein samskipti við sendiráð Alsír í Stokkhólmi. Meðal sérhæfðs útbúnaðar sem björgunarsveitin íslenska hefur yfir að ráða eru hljóðleitartæki og myndavél til notkunar í hrundum byggingum. „Við erum vissulega lítil sveit á heimsmælikvarða. Það sem hins vegar gerir okkur sterk- ari er hin tæknilega leit sem við erum sérhæfðir í,“ segir Ásgeir. Alþjóðabjörgunarsveitin er mönnuð sjálfboðaliðum. „Það sem skiptir okkur máli er að gera okk- ar besta og stöndum við klárir. Það er þakklátt starf að bjarga manns- lífum og hvert mannslíf skiptir máli,“ segir Ásgeir að lokum. Meira á bls. 2 Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin í viðbragðsstöðu: Sautján Íslendingar tilbúnir AFMÆLI bls. 4 Þetta er ferlegt FEGURÐARSAMKEPPNI bls. 36 Dæmir í Kanada ÁSGEIR BJÖRNSSON VIÐ HLJÓÐLEITARTÆKI Alþjóðabjörgunarsveitina skipa menn úr björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík, Hjálparsveit skáta og slökkviliði höfuð- borgarsvæðis. Jafnframt er einn læknir frá Landspítala-háskólasjúkrahúsi. TILVONANDI RÁÐHERRAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem tekur við menntamálaráðuneytinu um áramótin, og Sigríður Anna Þórðardóttir, sem tekur við um- hverfismálaráðuneytinu, eftir rúmt ár óska hvor annarri til hamingju. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Árni Magnússon verður ráðherra Tillögu Halldórs Ásgrímssonar um ráðherra var samþykkt. Sumir þingmenn fóru sárir heim. Sólveig út fyrir Björn Bjarnason. Þorgerður Katrín tekur við menntamálaráðuneyti. Sigríður Anna Þórðardóttir fær umhverfisráðuneytið. Tómas Ingi Olrich verður sendiherra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.