Fréttablaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 2
2 23. maí 2003 FÖSTUDAGUR
„Jú, svo sannarlega. Þegar ég dreg
andann finn ég angan sumarsins.“
Framsóknarflokkurinn notaði umhverfisráðuneytið
sem skiptimynt í stjórnarmyndunarviðræðum. Siv
Friðleifsdóttir hefur verið umhverfisráðherra
flokksins til þessa.
Spurningdagsins
Siv, ert þú ekki lengur hluti af um-
hverfinu?
■ Lögreglufréttir
Júróbíll
VOLVO V40 W/G 04/98.
Ekinn 116 þ. km. Vél 2000 cc. Sjálfskiptur.
Verð 1.250 þ. www.toyota.is
„Diggi-loo diggi-ley. Alla tittar på mej.“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár!
Norsk-íslenski síldarstofninn:
Síldin er mætt í Síldarsmuguna
SJÁVARÚTVEGSMÁL Þokkaleg síld-
veiði hefur verið í flotvörpu í
Síldarsmugunni en síldin gefur
sig ekki í nót þar sem hún stend-
ur djúpt. Jón Kjartansson SU er
á heimleið með fullfermi, 1500
tonn eftir rúma þrjá sólarhringa
á veiðum. Skipið var væntanlegt
til heimahafnar á Eskifirði í
nótt. Um 15 skip voru í gær að
veiðum nyrst í Síldarsmugunni
þangað sem er um tveggja sólar-
hringa stím frá Austfjarðahöfn-
um. Færeyskt rannsóknaskip
fann síld syðst í Síldarsmugunni.
Hólmaborg SU er á þeim slóðum
en afli þar er svipaður og norðar.
Um hálfan annan sólarhring tek-
ur að sigla frá nyrsta punkti
Síldarsmugunnar til hins syðsta.
Íslendingar ráða 110 þúsund
tonna kvóta sem stjórnvöld
ákváðu einhliða vegna þess að
norsk stjórnvöld hvikuðu ekki
frá þeirri kröfu að þeir fengju
stærri hlut af kvótanum úr
norsk-íslensku síldinni.
Þess er beðið að norsk-ís-
lenska síldin snúi aftur í ís-
lenska lögsögu þar sem hún
hafði á árum áður vetursetu.
Síldin gaf Íslendingum þá gríð-
arlegar tekjur en hvarf á sjö-
unda áratugnum og hefur síðan
ekki komið að neinu marki inn í
íslenska lögsögu. ■
Missti handleggi:
Bæturnar
hækkaðar
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur fjöl-
skyldufaðir á að fá greiddar 16,6
milljóna króna bætur frá Orku-
veitu Reykjavíkur fyrir að hafa
misst báða handleggi í vinnu-
slysi.
Maðurinn greip um háspennu-
línu sem hann var að vinna við í
ársbyrjun. Hann fékk gífurlegan
rafmagnsstraum og missti báða
handleggi. Maðurinn þarf í dag
aðstoð við nánast allt daglegt líf.
Hæstiréttur hækkaði með
dómi sínum bætur til mannsins
um 1,6 milljónir króna frá því
sem Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði dæmt honum. ■
FUNDU ÞÚSUND OLÍUMÁLVERK
Ungum erlendum ferðamanni sem
kom til Seyðisfjarðar í gærmorg-
un var vísað aftur til baka. Hafði
hann hvorki atvinnu- né dvalar-
leyfi og í bíl mannsins voru hátt í
þúsund olíumálverk sem talið er
að hann hafi ætlað að selja hér á
landi. Þá fannst eitt gramm af
hassi í fórum mannsins.
TEYGJUBYSSA GEGN HERMÖNNUM
Eitt palestínskt barn særðist alvarlega í
skothríð ísraelskra hermanna.
Abbas hittir Hamas:
Sex börn
særðust
PALESTÍNA, AP Sex palestínsk börn
særðust, þar af eitt alvarlega, í
skothríð Ísraela á Vesturbakkan-
um og Gasasvæðinu í gær. Þau
höfðu kastað steinum að ísraelsk-
um skriðdrekum þegar árásirnar
voru gerðar.
Mahmoud Abbas, forsætisráð-
herra Palestínu, ætlar að funda
með Hamas-liðum og fá þá til að
hætta árásum á Ísraela. Þetta
verður fyrsti fundur Abbas með
skæruliðahreyfingunni síðan
hann tók við embætti fyrir mán-
uði síðan. Svo gæti farið að
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti heimsæki Mið-Austurlönd
þegar ferð hans um Evrópu lýkur
í næsta mánuði. ■
Heilu fjölskyldurnar
grafnar í rústum
Hundruð manna fórust þegar snarpur jarðskjálfti skók norðurströnd Alsír. Sjúkrahús eru
yfirfull af slösuðu fólki og enn er leitað að lífsmarki í rústum. Evrópulönd hafa sent sérþjálfaða
björgunarmenn á staðinn til að aðstoða heimamenn.
ALSÍR, AP/BBC Björgunarmenn leita
enn að lífsmarki í rústum bygg-
inga sem hrundu til grunna þegar
snarpur jarðskjálfti skók norður-
strönd Alsír. Meira en 700 manns
létu lífið í skjálftanum og yfir
fimm þúsund manns slösuðust.
Jarðskjálftinn, sem mældist
6,7 stig á Richter-skala, átti upp-
tök sín skammt frá þorpinu
Thenia, um 60 kílómetra austur af
Algeirsborg. Hátt í tíu eftir-
skjálftar fylgdu í kjölfarið. Aðal-
skjálftans varð vart alla leið til
suðurstrandar Spánar.
Þorp og bæir skammt frá upp-
tökunum urðu verst úti í skjálft-
anum. Sjúkrahús í nágrenni
Thenia eru yfirfull og læknar og
hjúkrunarfólk reyna að sinna
slösuðum undir berum himni.
Tugum líka hefur verið raðað á
jörðina fyrir utan sjúkrahúsin.
Óttast er að heilu fjölskyldurnar
liggi grafnar í rústum heimila
víðs vegar á svæðinu.
Mikil skelfing greip um sig
meðal íbúa Algeirsborgar þegar
skjálftinn reið yfir. Fjöldi bygg-
inga hrundi til grunna og tugþús-
undir manna þustu út á götur
borgarinnar. Rafmagn fór af í
fjölmörgum hverfum og símalín-
ur rofnuðu. Símakerfi landsins
hafa margsinnis hrunið vegna
álags þar sem fólk reynir í ör-
væntingu sinni að ná sambandi
við vini og ættingja.
Fjölmörg Evrópuríki hafa boð-
ist til að rétta Alsíringum hjálpar-
hönd. Frakkar, Þjóðverjar og Spán-
verjar hafa þegar sent sérþjálfaða
björgunarmenn og hunda af stað
til þess að aðstoða heimamenn við
að leita að fórnarlömbum í rústum
bygginga. Alþjóða Rauði krossinn
og Rauði hálfmáninn í Alsír hafa
haft yfirumsjón með hjálparstarfi
og flutt slasaða á sjúkrahús.
Jarðskjálftinn er sá öflugasti
og mannskæðasti sem riðið hef-
ur yfir í Alsír í rúma tvo ára-
tugi.
Árið 1980 létust 2.500 manns í
tveimur skjálftum skammt frá
borginni Al Asnam í norðvestur-
hluta landsins.
Talið er að jarðskjálftinn hafi
átt upptök sín á misgengi á mót-
um Evrasíu- og Afríkuflekans. ■
JÓN KJARTANSSON SU
Á heimleið með fullfermi af síld. Hér má
sjá skipið að veiðum.
LEITAÐ AÐ LÍFSMARKI
Björgunarmenn leita að lífsmarki í húsarústum í bænum Reghaia í Boumerdes-héraði, um
30 kílómetra frá Algeirsborg.
HEIMILI HRUNIÐ TIL GRUNNA
Alsírskur karlmaður situr fyrir framan ónýtt hús í bænum Reghaia í Boumerdes-héraði, þar
sem jarðskjálftinn átti upptök sín.
Sala á Hitaveitu Dalamanna í uppnámi:
Orkubússtjóri skilur
andstæðinga sölu
ORKUMÁL „Við erum tilbúnir til að
kaupa á ákveðnu verði en ef menn
vilja eiga veituna sjálfir þá er það
hið besta mál,“ segir Kristján
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Orkubús Vestfjarða, um það bak-
slag sem komið er varðandi kaup-
in á Hitaveitu Dalamanna. Gerð
höfðu verið drög að kaupsamningi
þegar heimamenn risu gegn
áformum sveitarstjórnar Dala-
byggðar og kröfðust þess að hætt
yrði við söluna. Orkubúsmenn
ætluðu að greiða 135 milljónir
króna fyrir veituna og áformuðu
að taka við rekstri hennar síðasta
virkan dag júnímánaðar. Kristján
Orkubússtjóri segir vissulega
slæmt að fá bakslag í þessa samn-
inga.
„Við höfum lagt í svolítinn
kostnað við þessa samninga og
það er slæmt að svona skuli nú
vera komið,“ segir Kristján.
Hann segir að Dalamenn hafi
enga ástæðu til að agnúast út í
Orkubúið.
„Við viljum ekki eiga neinn
þátt í þessum deilum. Ég hef góð-
an skilning á skoðun þeirra sem
vilja eiga hitaveituna áfram. En
þá verða fjármál þeirra að ganga
upp,“ segir Kristján.
Hann segist eiga von á erindi
frá Dalamönnum um framleng-
ingu á samningsdrögunum. ■
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Samið hafði verið um kaup á Hitaveitu
Dalamanna en heimamenn
stöðvuðu áformaða sölu.