Fréttablaðið - 26.05.2003, Page 6
6 26. maí 2003 MÁNUDAGUR
■ Bandaríkin
Veistusvarið?
1Árni Magnússon félagsmálaráðherraer nýr þingmaður. Hvað starfaði hann
áður en hann var kjörinn á þing?
2Stúlkurnar í dúettinum t.A.T.u.vöktu mikla athygli í Riga þótt ekki
tækist þeim að sigra í Eurovision. Hvað
heita stúlkurnar?
3Dorrit Moussaieff er ekki fyrsta for-setafrú Íslendinga sem er af erlendu
bergi brotin. Hver var hin?
Svörin eru á bls. 39
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
IR
2
12
66
05
/2
00
3
Lagadeild
Við skipulagningu laganáms við HR var tekið
mið af laganámi við marga af virtustu háskólum
í Evrópu og Bandaríkjunum. Námið er hagnýtt
og nútímalegt en byggir um leið á traustum
fræðilegum grunni.
www.ru.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní
„Líflegar umræður í tímum, kraftmiklir nemendur og
framúrskarandi kennarar eru einkenni laganáms í HR.“
Erna Mathiesen, lagadeild HR,
stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík
Suðurnesjastúlkan Ragnhildur Steinunn er Ungfrú Ísland árið 2003:
„Þetta kemur alltaf á óvart“
FEGURÐARSAMKEPPNI Á laugardag
var fegurðardrottning Suðurnesja,
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
kjörin Ungfrú Ísland 2003 við hátíð-
lega athöfn á Broadway. Hún er 22
ára háskólanemi á fyrsta ári í
læknadeild þar sem hún lærir
sjúkraþjálfun. Hún vinnur í Spari-
sjóðnum í Keflavík í sumar og hefur
átt sama kærastann í 7 ár.
„Þetta kemur alltaf á óvart,“
svarar Ragnhildur Steinunn að-
spurð um árangurinn. „Það er aldrei
hægt að spá til með úrslitin í svona
keppnum. Þetta er mjög afstætt og
maður reynir að vera maður sjálfur
og vonast til þess að vera týpan sem
dómnefndin er að leita að.“
Ragnhildur hefur ekki tekið þátt
í keppni af þessu tagi áður en hefur
þó verið boðið að taka þátt á hverju
ári síðustu fjögur árin. Hún lét loks-
ins undan þrýstingi og sér líklegast
ekki eftir því. „Núna er ég orðin 22
ára og búin að mynda mínar skoðan-
ir og sátt við sjálfa mig. Ég hefði
ekki viljað fara í þessa keppni
yngri. Ég ákvað bara að grípa tæki-
færið núna.“
Kærasti Ragnhildar er knatt-
spyrnumaðurinn Haukur Ingi
Guðnason. Hafa þau verið í sambúð
frá því að hún var 15 ára. Auk þess
að leika knattspyrnu með Fylki
leggur hann stund á sálfræðinám í
Háskóla Íslands.
Í næsta mánuði fer Ragnhildur
út í tvær vikur til þess að kynnast
hinum stúlkunum sem keppa í Miss
Europe næsta september. Enn sem
komið er hefur ekki verið ákveðið
hvert þær fara.
Í öðru sæti í keppninni varð
Tinna Alavis og Regína Diljá Jóns-
dóttir varð í því þriðja. ■
RAGNHILDUR STEINUNN
varð líka stigahæst í símakosningu Stöðvar
2 – „Það var mjög ánægjulegt að einhver
hluti þjóðarinnar sé sammála að einhverju
leyti. Mér fannst það æðislegt og þakka
öllum þeim sem kusu mig.“
EUROVISION Sigurlag Tyrkja í
Eurovision-keppninni hefur verið
kært. Kæran er frá nokkrum ein-
staklingum sem telja lagið vera
stolið. Sérnefnd á vegum
Eurovision-keppninnar kemur til
með að rannsaka málið.
Framlag Íslands til Eurovision-
keppninnar í ár, „Open Your Heart“,
fékk 81 stig og hafnaði í 8.-9. sæti
ásamt Spáni. Birgitta Haukdal steig
fyrst á stokk og var mjög örugg á
sviðinu í Riga í Lettlandi.
Lag Tyrklands, „Every Way that
I Can“, fór með sigur úr bítum með
167 stig. Það er í fyrsta skiptið sem
þjóðin á sigurlagið.
Belgía hafnaði óvænt í öðru sæti
en rússneski lesbíudúettinn t.A.T.u.
hafnaði í því þriðja. Mjótt var á
mununum á efstu þremur sætunum
og urðu úrslit ekki ljós fyrr en síð-
asta þjóðin, Slóvenía, las upp úrslit
úr símakosningu landsins.
Bretar höfnuðu óvænt í neðsta
sæti með engin stig en það er versti
árangur þeirra í keppninni frá upp-
hafi.
Lag Tyrklands var sungið af
einni þekktustu söngkonu landsins,
Sertab Erener, sem selt hefur rúm-
lega fjórar milljónir platna um heim
allan.
„Mér fannst Birgitta standa sig
alveg rosalega vel, ég hefði viljað
sjá hana aðeins ofar,“ segir Helga
Guðrún Hinriksdóttir Eurovision-
aðdáandi sem rekur sína eigin
heimasíðu tileinkaða keppninni á
slóðinni www.simnet.is/cactus/-
esc/main.html. „Ég gæti trúað því
að hún hefði endað ofar ef hún hefði
verið aftar í röðinni. Það er samt al-
veg ómögulegt að segja því tyrk-
neska lagið var líka snemma í röð-
inni. Það er a.m.k. ekki kostur að
vera fyrstur.“
Fyrir keppnina í fyrra spáði
Helga Guðrún rétt til um úrslitin.
Hún segir keppnina í ár hafa verið
mun óljósari og hafði hún gefið
þýska laginu atkvæði sitt fyrir
keppni.
Á næsta ári verður keppnin með
breyttu sniði og henni skipt í tvennt.
„Ég held að þetta verði þannig að
tólf lönd komast pottþétt áfram á
laugardagskvöldið. Á föstudags-
kvöldinu verður undankeppni fyrir
öll önnur lönd sem eru í sjónvarps-
ráðinu, EBU.“
Árangur Birgittu í ár tryggir Ís-
lendingum beint þátttöku á úrslita-
kvöldinu.
biggi@frettabladid.is
BIRGITTA
Átti það erfiða hlutskipti að ríða á vaðið í ár en stóð sig með mikilli prýði. Lagið „Open
Your Heart“ fékk 81 stig og hafnaði í 8.-9. sæti ásamt lagi Spánar.
SERTAB ERENER
Lag Tyrklands, „Every Way that I Can“, vann
með 167 stig. Íslendingar voru virtust
nokkuð hrifnir af laginu og gáfu því 3 stig.
Tyrkir voru hrifnari af Birgittu og gáfu
henni 8 stig.
Tyrkneska lagið stolið?
Birgitta Haukdal hafnaði í 8.-9. sæti með framlag Íslands í sönglagakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. Lagið fékk fullt hús stiga frá Möltu og Noregi. Bretar fengu ekki stig í keppninni.
Stemning á Húsavík, heimabæ Birgittu:
„Grilllykt yfir bænum“
EUROVISION Það voru 204 einstak-
lingar sem söfnuðust saman á
Fosshótel Húsavík þegar mest
var til þess að fylgjast með
gengi Húsvíkingsins Birgittu
Haukdal í Eurovision.
„Stemningin var gríðarlega
góð,“ segir Þórhallur Harðarson
hótelstjóri. „Það var mikið
klappað þegar lagið var búið.
Fólk var mjög spennt og mikið
fagnað þegar verið var að gefa
stigin. Menn voru alveg furðu
lostnir að hún hafi ekki farið
hærra. Menn voru sigurvissir í
salnum. Það eru allir rosalega
stoltir af henni að hún hafi náð
inn á topp 10. Mér heyrðist það
samt á flestum að þeir hafi ver-
ið að búast við fimmta eða sjötta
sæti. Það var ekki bara fjör hér
því það voru allir á Húsavík að
fylgjast með, það lá alveg grill-
lykt yfir bænum.“
Eftir keppnina hófst ball með
sveiflukónginum Geirmundi
Valtýsson sem lék mörg þekkt
Eurovision-lög langt fram eftir
kvöldi. ■
BIRGITTU FAGNAÐ
Mikið var fagnað á Fosshótel Húsavík
þegar lag Birgittu fékk 12 stig frá Möltu og
Noregi.
M
YN
D
: A
R
N
G
RÍ
M
U
R
AR
N
AS
O
N
Símakosningin:
Um 10
þúsund ógild
atkvæði
EUROVISION Rúmlega 22 þúsund
atkvæði bárust Landssímanum á
laugardagskvöldið í símakosn-
ingunni sem ákvað stigagjöf Ís-
lendinga í Eurovisionkeppninni
í ár. Aðeins 12.300 þeirra voru
gild þar sem hin bárust ekki inn-
an fimm mínútna tíma-
markanna. Áhuginn var gífur-
legur og töluvert var um frávís-
anir sem skiluðu sér þannig að
einstaklingar náðu ekki í gegn.
Talsmaður Landsímans segir að
símalínurnar hafi þolað álagið
vel.
Símtalið kostaði 100 kr. og
rann ágóðinn til Barnaspítala
Hringsins. Að þessu sinni söfn-
uðust því um 800-900 þúsund
krónur. Í forkeppninni í febrúar
söfnuðust 2,8 milljónir en þá
voru símalínur opnar allan dag-
inn. ■
SPRENGJUMANNS LEITAÐ Banda-
rískir sprengjusérfræðingar hófu
í gær rannsókn á skólastofunni í
Yale-háskóla þar sem sprengja
sprakk á fimmtudag. Lögreglan
leitar nú að manni sem sást yfir-
gefa stofuna skömmu áður en
sprengjan sprakk.