Fréttablaðið - 27.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
LEIKLIST
Grease
í uppnámi
FÓTBOLTI
Með klærnar
alls staðar
ÞRIÐJUDAGUR
27. maí 2003 – 120. tölublað – 3. árgangur
bls. 16 bls. 13
MIÐ-AUSTURLÖND
Sharon og
Abbas funda
bls. 6
Tónleikar
Graduale Nobili
TÓNLEIKAR Graduale Nobili heldur
tónleika í Langholtskirkju klukkan
20:00. Tónleikarnir eru liður í und-
irbúningi kórsins fyrir tónleika og
keppnisferð til Finnlands í júní þar
sem hann, ásamt Kammerkór Lang-
holtskirkju, tekur þátt í kórakeppn-
inni í Tampere.
Forsetar valdir
ALÞINGI Þing hefst klukkan 13:30. Í
dag verða forsetar þingsins valdir
og skipað verður í nefndir. Einnig
draga þingmenn um sætaskipan.
Myndaðir
málshættir
LJÓSMYNDASÝNING Myndaðir máls-
hættir heitir ljósmyndasýning sem
nú stendur yfir í Caffé Kúlture í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu.
Þetta er sýning á lokaverkefnum
útskriftarnema í ljósmyndun við
Iðnskólann í Reykjavík. Sýningin
stendur til 6. júní og er hún opin á
afgreiðslutíma kaffihússins.
Þriðja umferð hefst
FÓTBOLTI Tveir leikir eru í kvöld í
Landsbankadeild kvenna og hefjast
þeir klukkan 20:00. Breiðablik, sem
er í öðru sæti deildarinnar eftir
fyrstu umferð, tekur á móti KR á
Kópavogsvelli og Þróttur/Haukar,
sem reka lestina eftir aðra umferð,
fá Stjörnuna í heimsókn á Ásvöllum.
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
NJÓSNIR Ib Árnason Riis,
gagnnjósnari Breta á Íslandi á
stríðsárunum, hyggst senda
bresku leyniþjónustunni erindi á
næstu dögum.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Riis, sem nú er 88 ára og býr í
Kaliforníu, að hann hafi fengið
bandarískan öldungardeildarþing-
mann í lið með sér vegna þess að
honum þyki mjög ómaklega að
æru sinni vegið í skjölum sem
Breska þjóðskjalasafnið gerði op-
inber í síðustu viku. Í skjölunum
kennir breska leyniþjónustan,
MI5, Riis um það þegar Þjóðverjar
sökktu 24 skipum úr skipalestinni
PQ17 í Norður-Atlantshafi í byrjun
júlí árið 1942. Í skjölunum er hann
sagður hafa lekið of miklum upp-
lýsingum til nasista í tveimur
skeytum sem hann sendi frá Ís-
landi.
„Þetta er algjörlega rangt, þeir
eru að ljúga þessu um mig,“ segir
Riis. „Alltaf þegar ég sendi skeyti
var fulltrúi bresku leyniþjónust-
unnar við hliðina á mér. Í þessu til-
viki hafði ég ekki hugmynd um
hvaða upplýsingar ég var að senda
því þær voru dulkóðaðar.“
Í skjölunum er haft eftir breska
leyniþjónustumanninum R.J. Reed
að Riis hafi lekið þremur mjög
mikilvægum atriðum um skipa-
lestina, en hann hafi bara átt að
leka einu.
„Það eina sem ég get sagt er að
það hefur einhver innan leyniþjón-
ustunnar gert mistök,“ segir Riis.
Í skjölunum er einnig gefið í
skyn að Riis hafi ekki verið jafn
mikill „and-nasisti“ og Bretarnir.
Þegar blaðamaður Fréttablaðsins
las þetta fyrir Riis varð honum
mikið niðri fyrir og það eina sem
hann sagði var: „Guð minn góð-
ur.“ ■
Gagnnjósnari Breta á Íslandi hyggst senda bresku leyniþjónustunni erindi:
Fær aðstoð bandarísks þingmanns
REYKJAVÍK Suðvestan 3-8
m/s. Skýjað með köflum
og skúrir. Hiti 5 til 12 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 8
Akureyri 3-8 Skýjað 9
Egilsstaðir 3-8 Skúrir 10
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 10
➜
➜
➜
➜
+
+
SKOÐANAKÖNNUN Miklar breytingar
hafa orðið á fylgi stjórnar og
stjórnarandstöðu samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins
sem gerð var á sunnudaginn.
Samkvæmt könnuninni fengi
stjórnin aðeins 30 þingmenn sam-
anborið við 34 í kosningunum.
Stjórnarandstaðan fengi 33 þing-
menn en fékk 29. Athyglisvert er
að Sjálfstæðisflokkurinn mælist
nú með 29,8% fylgi eða tæpum 4%
minna fylgi en hann fékk í kosn-
ingunum.
„Það er ekki ólíklegt að það
hafi einhver áhrif á afstöðu fólks
að Davíð Oddsson sé að hverfa úr
stóli forsætisráðherra,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður sjálfstæðismanna. „Ég
man nú ekki eftir skoðanakönnun
svona skömmu eftir kosningar og
ég á því mjög erfitt með að lesa í
þetta. Þessar niðurstöður koma
mér samt mjög á óvart.“
Framsóknarflokkurinn mælist
hins vegar með 17,7%, sem er ná-
kvæmlega það sama og hann fékk
í kosningunum. Samkvæmt skoð-
anakönnuninni fær Framsóknar-
flokkurinn hins vegar aðeins 11
þingmenn samanborið við 12 í
kosningunum. Fækkun þing-
manna skýrist af því að flokkur-
inn fær ekki jafnmarga uppbótar-
þingmenn nú og hann gerði 10.
maí.
Samfylkingin mælist stærsti
flokkur landsins, með rúmlega
35% fylgi og 23 þingmenn. Flokk-
urinn fékk hins vegar 31% í kosn-
ingunum og 20 þingmenn.
„Ég túlka þessa niðurstöðu sem
staðfestingu á mikilli óánægju al-
mennings við að þeir sem töpuðu
þessum kosningum með afgerandi
hætti skuli eigi að síður vera
áfram í ríkisstjórn,“ segir Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar. „Öll lýðræðisleg
lögmál hníga að því að skilaboð
kosninganna séu túlkuð sem ein-
dregin ósk um að Sjálfstæðis-
flokkurinn hverfi úr ríkisstjórn-
inni. Það gerði hann ekki og ég
verð sjálfur var við djúpstæða
óánægju með það.“
Líkt og Samfylkingin bætir
Frjálslyndi flokkurinn töluvert
við sig og fær 8,9% og 5 þingmenn
samanborið við 7,4% og 4 þing-
menn í kosningunum. Vinstri
grænir tapa fylgi en halda jafn-
mörgum þingmönnum. Þeir mæl-
ast nú með 7,8% og 5 þingmenn en
fengu 8,8% í kosningunum.
Úrtakið í könnuninni í fyrradag
var 800 manns og tóku 84% að-
spurðra afstöðu. Spurt var: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið
yrði til kosninga nú?
trausti@frettabladid.is
Forseti Íslands:
Aldrei jafn
margir ungir
þingmenn
ALÞINGI Alþingi var sett í gær. Í
setningarræðu sinni sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
að aldrei fyrr í sögu þingsins
hefðu jafn margir ungir þing-
menn komið til þings.
„Nú hefur þjóðin sent til þings
yngri kynslóð en hér hefur sést
um áraraðir,“ sagði Ólafur Ragn-
ar. „Kynslóð sem komist hefur til
vits og þroska á tíma alþjóðavæð-
ingar og upplýsingabyltingar sem
kennd er við alheimsnetið, fóstruð
í samfélagi þar sem sjónvarp er
sterkast miðla, nam frásögn í
myndum áður en hún lærði að
lesa. Kynslóð sem man ekki annað
Ísland en sjálfstætt og sterkt.“
„Það verður fróðlegt að fylgj-
ast með því hvaða áhrif þessi nýja
kynslóð hefur á störf þingsins,
umræðuna í landi okkar, lýðræðis-
skipan og stefnuþróun. Ég óska
hinu unga fólki allra heilla og býð
það sérstaklega velkomið til
ábyrgðarstarfa.“
Nánar bls. 11
Stjórnin fengi 30 þingmenn
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins mælist Sjálfstæðisflokkurinn með tæpum 4% minna en
í kosningunum. Samfylkingin er stærst með 23 þingmenn. Framsóknarflokkurinn stendur í stað.
ÞJÓÐLEG Í UPPHAFI ÞINGS
Dagný Jónsdóttir, nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, er einn af fulltrúum ungu kynslóðarinnar á Alþingi.
Dagný, sem er 27 ára gömul, kom til þings klædd íslenskum þjóðbúningi. Yngsti þingmaðurinn er Birkir Jón Jónsson, sem er 23 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
1
7
,7
%
2
9
,8
%
8
,9
%
3
5
,3
%
7
,8
%
Skoðanakönnun 25. maí
Úrslit kosninganna