Fréttablaðið - 27.05.2003, Síða 18
FUNDIR
20.00 Zen-fyrirlestur í Gerðubergi
þar mun Zen-meistarinn Jakusho
Kwong-Roshi fara ofan í kjölinn á hinni
nýútkomnu bók „No Beginning No
End“. Roshi les einn valinn kafla og svar-
ar spurningum áheyrenda um Zen iðk-
un.
20.00 Aðalfundur Alliance
française verður í húsakynnum Alliance
française, Hringbraut 121, 3. hæð.
20.00 Kynningarfundur í tilefni af
útkomu bókarinnar Garðverkin eftir
Stein Kárason. Í bókinni má finna hag-
nýt ráð um ræktunarstörf í görðum,
gróðurhúsum og sumarbústaðalöndum.
Fundurinn er haldinn í Þingsal 1 á Hót-
el Loftleiðum.
20.30 Kynningarfundur á visthópa-
starfi Landverndar. Fundurinn er hald-
inn í Foldasafni í Grafarvogskirkju.
LEIKLIST
20.00 Söngvaseiður eftir þá Rich-
ard Rodgers og Oscar Hammerstein
er sýndur í Þjóðleikhúsinu. Það er Litli
leikklúbburinn og Tónlistarskóli Ísa-
fjarðar sem setja sýninguna upp í leik-
stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur.
20.00 Leikrit eftir Sigtrygg Magna-
son, Herjólfur er hættur að elska, sýnt
í Leiksmiðju Þjóðleikhússins.
TÓNLIST
20.00 Lúðrasveit Reykjavíkur er
með tónleika í Borgarleikhúsinu.
20.00 Graduale Nobili heldur tón-
leika í Langholtskirkju. Stjórnandi kórs-
ins er Jón Stefánsson.
SÝNINGAR
Hrafnhildur Sigurðardóttir sýnir lág-
myndir, textílverk og myndverk unnin
með tölvutækni í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu. Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 1. júní. Listasafn ASÍ, Freyjugötu
41 er opið frá 13.00 til 17.00 alla daga
nema mánudaga.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar
Helgadóttur.
Ljósmyndasýningin Myndaðir máls-
hættir stendur nú yfir í Caffé Kúlture í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu, gegnt
Þjóðleikhúsinu. Þetta er sýning á loka-
verkefnum útskriftarnema í ljósmyndun
við Iðnskólann í Reykjavík. Sýningin
stendur til 6. júní og er hún opin á af-
greiðslutíma kaffihússins.
„ÓRÓ“ nefnist vorsýning sex mynd-
listarnema á öðru ári í Listaháskóla Ís-
lands sem haldin verður í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar þessa helgi og
næstu helgi. Opnunartími er frá kl. 14-
17.
Yfirlitssýning á rússneskri ljósmynd-
un stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Verk-
in eru frá miðri nítjándu öld til dagsins í
dag og bera glöggt vitni um þær breyt-
ingar sem hafa átt sér stað í rússneskri
ljósmyndun.
Sýning á höggmyndum eftir Örn
Þorsteinsson stendur yfir á Kjarvals-
stöðum. Sýningin teygir sig um ganga
Kjarvalsstaða og umhverfis húsið.
18 27. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
MAÍ
Þriðjudagur
Í kvöld mun kórinn GradualeNobili halda tónleika í Langholts-
kirkju. Tónleikarnir eru liður í und-
irbúningi ferðar sem kórinn fer í til
Finnlands ásamt Kammerkór Lang-
holtskirkju í júní. Í ferðinni tekur
kórinn þátt í kórakeppni í Tampere
auk þess sem hann heldur tónleika í
Meilahti-kirkjunni og dómkirkj-
unni í Helsinki.
Graduale Nobili hefur getið sér
gott orð að undanförnu og hefur
meðal annars verið tilnefndur til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna og
hlotið verðlaun í alþjóðlegum kóra-
keppnum. Kórinn er skipaður 24
stúlkum á aldrinum 18 til 24 ára,
sem áður hafa sungið í Graduale-
kór Langholtskirkju. Stjórnandi
kórsins er Jón Stefánsson. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 20.00. ■
MUMMI
Ég er skelfilegur kaffisvelgur.Menn halda því reyndar fram
að kaffi sé þunglyndisvaldur – en
ég hafna þeirri kenningu alfarið.
Og besta kaffið er á Hótel Borg –
á þriðjudagskvöldum. Ég er í
strákagrúbbu, litlum karlrembu-
klúbbi, sem hittist þar reglulega.
Og þá fæ ég mér sviss mokka sem
er gúrme-deildin í kaffinu. Topp-
urinn á vikunni.
Besta kaffiðí bænum
Collector 33
Rafmagnssláttuvél
1000W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
Euro 45
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Silent 45 Combi
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Verð: 17.900 Verð: 34.900 Verð: 44.900
Hágæða sláttuvélar
Vetrarsól - Askalind 4 - Kópavogi - Sími 564 1864
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
S
E
T
R
I
Ð
Eðalstúlkur
halda tónleika
GRADUALE NOBILI
Kórinn heldur tónleika í kvöld kl.
20 í Langholtskirkju. Graduale
Nobili heldur til Finnlands í júní
og eru tónleikarnir í kvöld liður í
undirbúningi ferðarinnar.
■ TÓNLEIKAR
■ TÓNLIST
Lúðrasveit Reykjavíkur fagn-ar sumarkomu með tónleik-
um í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Tónleikarnir eru þeir þriðju í
vetur, en hljómsveitin hefur
verið mjög iðin við tónleikahald.
Tónleikarnir eru sérstakir að
því leyti að finnski harmóniku-
leikarinn Tatu Antero Kantoma
leikur með hljómsveitinni. Að
Lúðrasv