Fréttablaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 13
■ ■ FUNDIR
09.15 Ráðstefna Workability
International Europe og Samtaka um
vinnu og verkþjálfun (SVV) á Grand
Hótel fram á föstudag.
13.00 Félagsfundur Menntar hald-
inn í stofu 201 í Odda, Háskóla Ís-
lands.
20.00 Átak gegn stríði boðar til
fundar í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10.
Heimsvaldastefnan og baráttan gegn
henni og starfshættir og skipulag í bar-
áttunni gegn heimsvaldastefnu og stríði.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Ofleikur býður í leikhús í
Iðnó. Alls eru 150 sæti og fyrstir koma
fyrstir fá. Leikhópurinn Ofleikur var val-
inn úr framhaldsskólunum og er sam-
einað leikfélag MH, MR, Kvennó og
Versló. Leikstjóri hópsins er Jón Gunnar
Þórðarson.
20.00 Sýningin Allir á svið sýnd í
Þjóðleikhúsinu á stóra sviðinu. Verið er
eftir Michel Frayn.
20.00 Lokasýning á leikritinu
Sellofon í Nasa við Austurvöll. Leikrit-
ið er einleikur eftir Björk Jakobsdóttur.
20.00 Verkið Plómur eftir Önnu
Rósu Sigurðardóttur sýnt í Tjarnarbíói.
Verkið er einleikur og er leikstjórn í
höndum Helenu Ólafsdóttur og tónlist
er samin og flutt af Rósu Guðmunds-
dóttur.
■ ■ TÓNLIST
20.00 fyrstu útskriftartónleikar
Nýja Söngskólans – Hjartansmál, í
tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð.
Þá munu útskrifast Anna Klara Ge-
orgsdóttir sópran og Sævar Kristins-
son baritón. Meðleikari á tónleikun-
um er Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
21.00 Guðrún Gunnarsdóttir
syngur vinsælustu lög Ellýjar Vilhjálms-
dóttur í Salnum, Kópavogi. Þetta eru
fjórðu tónleikar Guðrúnar þar sem hún
syngur lög Ellýjar og eru þetta einnig út-
gáfutónleikar á disk með upptökum frá
fyrstu tónleikunum.
23.00 Upprisuhátíð á Grand
Rokk. Þar munu Ísar Logi Arnarsson,
Worm Is Green, Funk Harmony Park, Dj
Richard og Exos og Haukur spila.
Stuðmenn spila á Players í Kópa-
vogi.
80’s kvöld á Leikhúskjallaranum.
Dúettinn Acoustic skemmtir á Ara í
Ögri fram eftir kvöldi.
Sýning á verkum
Matthew Barney í
Nýlistasafninu Sýn-
ingin samanstendur
af skúlptúrum og á
henni eru einnig
sýndar kvikmyndir
eftir hann.
Sýningin “Afbrigði af fegurð“ verður
opnuð á Prikinu. Það er Femínistafélag
Íslands sem stendur fyrir henni.
Stóra norræna fílasýningin í sýning-
arsal Norræna hússins. Á sýningunni
eru verk eftir dönsku listamennina Peter
Hentze, Thomas Winding og Pernelle
Maegaard. Victoria Winding hefur séð
um gerð fræðslutexta.
Sýning Claire Xuan í Ljósmynda-
safni Íslands við Tryggvagötu. Listakon-
an kynnir þar myndverk sín og ljós-
myndir og fimmtu ferðdagbók sína, Ís-
land.
Sýning í Listasafni Íslands á úrvali
verka í eigu safnsins. Um sumarsýningu
safnsins er að ræða.
Hrafnhildur Sigurðardóttir sýnir lág-
myndir, textílverk og myndverk unnin
með tölvutækni í Listasafni ASÍ við
Freyjugö tu. Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 1. júní. Listasafn AS, Freyjugötu
41, er opið frá 13.00 til 17.00 alla daga
nema mánudaga.
Ljósmyndasýningin Myndaðir máls-
hættir stendur nú yfir í Caffé Kúlture í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu, gegnt
Þjóðleikhúsinu. Þetta er sýning á loka-
verkefnum útskriftarnema í ljósmyndun
við Iðnskólann í Reykjavík. Sýningin
stendur til 6. júní og er hún opin á af-
greiðslutíma kaffihússins.
„ÓRÓ“ nefnist vorsýning sex mynd-
listarnema á öðru ári í Listaháskóla Ís-
lands sem haldin verður í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar þessa helgi og
næstu helgi. Opnunartími er frá kl. 14-
17.
Björg Guðmundsdóttir er með sína
fyrstu einkasýningu í Gallerí Tukt, Hinu
Húsinu, Pósthússtræti 3-4. Björg tileink-
ar börnum leikskólans Laufásborgar
verkin sem eru innblásin af litum og
leikjum þeirra.
Yfirlitssýning á rússneskri ljósmynd-
un stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Verk-
in eru frá miðri nítjándu öld til dagsins í
dag og bera glöggt vitni um þær breyt-
ingar sem hafa átt sér stað í rússneskri
ljósmyndun.
Sýning á höggmyndum eftir Örn
Þorsteinsson stendur yfir á Kjarvals-
stöðum. Sýningin teygir sig um ganga
Kjarvalsstaða og umhverfis húsið.
Veronica Österman frá Finnlandi er
með málverkasýningu í Listhúsi Ófeigs,
Skólavörðustíg 5. Sýningin er opin virka
daga 10-18 og laugardaga 11-16.
28. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 31
MARS
Miðvikudagur
Í Norræna húsinu stendur yfirsýning sem ber nafnið Stóra
norræna fílasýningin. Sýningin er
ætluð öllum aldurshópum en börn
eru boðin sérstaklega velkomin á
hana.
Á sýningunni eru verk eftir
dönsku listamennina Peter
Hentze, Thomas Winding og Vict-
oriu Winding
Við myndirnar má einnig finna
ýmsan fróðleik, jafnt sannan sem
ímyndaðan, sem tekinn er saman
af Pernelle Maegaard.
Markmið listamannanna er að
sýna fílinn í allri sinni dýrð, leika
sér með myndlíkingar og þær hug-
myndir sem hann stendur fyrir.
Þrátt fyrir stærð sína hafa fílar
löngum verið tákn hins barnslega
og sakleysisins. Þeir tengjast jafn-
framt draumum barna um ævin-
týralegt sirkuslíf og framandleika
frumskóga Afríku og Asíu.
Þegar börnin hafa skoðað sýn-
inguna eiga þau kost á að gefa sínu
eigin ímyndunarafli lausan taum-
inn í litlu vinnustofunni og skapa
sinn eigin fíl. ■
EINN FÍLANNA
Stóra norræna fílasýningin stendur nú yfir í
Norræna húsinu. Sýningin samanstendur
af málverkum, myndböndum og sögupp-
lestrum. Hún er opin alla daga nema
mánudaga og stendur til 17. ágúst.
Fíllinn í allri
sinni dýrð
■ MYNDLIST
RAFTÓNLISTAR-
MENNIRNIR
Næstu tvö kvöld mun raf-
tónlistin rísa upp á Grand
Rokk. Tónleikunum er
ætlað að gefa góða yfir-
sýn yfir það sem er að
gerast í raftónlist í dag.
Margir af efnilegustu raf-
tónlistarmönnum Íslands
koma fram.
Upprisa raftónlistar
Raftónlist verður í hávegumhöfð á Grand Rokk næstu tvö
kvöld. Á tónleikunum tveimur
munu Ísar Logi Arnarson, Worm
Is Green, Funk Harmony Park, Dj
Richard, Exos & Haukur, Adrone,
Sk/um, Ruxpin og Exos koma
fram.
„Við ákváðum að slá saman
tvennum tónleikum til að fólk
gæti fengið almennilega yfirsýn
yfir það sem er að gerast í raftón-
list á Íslandi. Það má líka segja að
tónleikahald hjá raftónlistar-
mönnum hafi legið niðri að undan-
förnu. Sérstaklega tónleikar þar
sem aðeins raftónlist heyrist, við
erum meira í því að hita upp fyrir
rokkböndin,“ segir Exos, skipu-
leggjandi tónleikanna.
Af fjölda tónlistarmannanna
sem fram koma má merkja að
þrátt fyrir að lítið hafi farið fyrir
raftónlistinni að undanförnu er
hún hvergi nærri dauð. Svo virð-
ist sem mikil gróska sé þar sem
flestir ef ekki allir sem fram
koma eru að gefa út plötu eða á
leiðinni að gefa út plötu. Það má
því búast við nýrri og ferskri tón-
list á Grand Rokk næstu tvö
kvöld. Tónleikarnir byrja um
23.00 bæði kvöldin og standa fram
eftir nóttu. ■
■ TÓNLIST
SCACCO
skápur og vinnuborð á hjólum
sem stækkar í 2 – 8 manna
matarborð.
Scacco er í senn skápur á
hjólum, með hillu/grindum,
vinnu- og matarborð, allt eftir
því hvað hentar þér! Auðvelt
er að breyta honum í matar-
borð fyrir allt að 8 manns.
Hilla og grindur eru færanleg-
ar, bremsur eru á hjólum.
Kaffiboð ef.
Grettisgötu 64
(v. Barónsstíg)
s. 562-1029 og
899-3034 (Einar)