Fréttablaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 24 Leikhús 24 Myndlist 24 Bíó 28 Íþróttir 22 Sjónvarp 30 KVÖLDIÐ Í KVÖLD PERSÓNAN Skrifar ævisögu síðdegis FÓLK Á von á barni FÖSTUDAGUR 30. maí 2003 – 122. tölublað – 3. árgangur bls. 31 bls. 38 FRÉTTIR Lifði af árás nasista bls. 6 Sá mesti í 19 ár SÓLMYRKVI Hringsólmyrkvi mun eiga sér stað í nótt. Myrkvinn er svokall- aður þegar tunglið færist allt fyrir sólu, en mun þó ekki ná að hylja hana alla. Myndast þá ljósrönd allt kringum tunglið. Myrkvinn mun sjást frá klukkan 03.45 til 04.31 á Ís- landi. Myrkvinn er sá mesti hér- lendis síðan 1986 en síðast sást hringmyrkvi héðan árið 1793. Vináttulandsleikur HANDBOLTI Íslendingar mæta Dönum í vináttulandsleik í handbolta í kvöld. Viðureignin fer fram í Íþróttamiðstöðinni Austurbergi. Flautað er til leiks kl. 18.30. Þróun Evrópu- samskipta FUNDIR Evrópusamtökin boða til op- ins fundar um þróun Evrópuum- ræðunnar á Íslandi í Iðnó, (2. hæð) klukkan 12.00. Aðalræðumaður er Jónas Kristjánsson ritstjóri. Metalhátíðin Sólmyrkvi TÓNLEIKAR Harðkjarnahljómsveit- irnar Forgarður Helvítis, Cadaver- ous Condition, Sólstafir, Shiva og Myrk halda tónleika á Grand Rokk. Hefjast þeir kl. 23.00 og standa til 02.00. STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V BORGARSTJÓRN Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarfulltrúi hefur tekið við hlutverki oddvita borg- arstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins af Birni Bjarnasyni. „Við höfum byggt upp ákveð- inn grunn í okkar vinnu og mun- um að sjálfsögðu halda áfram að byggja ofan á hann,“ segir Vil- hjálmur. „Björn Bjarnason sem oddviti lagði ákveðinn grunn sem við vorum öll sammála um,“ seg- ir Vilhjálmur. „Þótt oddvitaskipti verði breytir það því ekki að við munum halda áfram að vinna á svipuðum nótum og við höfum gert.“ Vilhjálmur bætir þó við að nýjum einstaklingi fylgi breyttar áherslur og viðhorf þó engar stórar stefnubreytingar verði. Vilhjálmur segist vilja leggja enn frekar áherslu á velferðar- og fjölskyldumál auk skipulags- og umhverfismála. „Þessi mál hafa mjög mikla þýðingu hvað varðar alla íbúa- og atvinnuþróun í borg- inni,“ segir Vilhjálmur. Hann seg- ir Sjálfstæðisflokkinn tilbúinn til þess að starfa í meirihluta í borg- arstjórn ef til þess kæmi. „Við munum leggja okkur fram um að vinna faglega og mál- efnalega að hagsmunamálum borgarbúa,“ segir Vilhjálmur. „Það er okkar leiðarljós að þeim málum sé sinnt vel.“ ■ Nýr oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn: Velferðar- og skipulagsmál á oddinn bls. 22 ÍÞRÓTTIR Vill leika fyrir Nígeríu bls. 26 TÓNLIST Strengirnir strengdir REYKJAVÍK Austan 3-8 m/s og skýjað með köflum. Vindur eykst seinnipartinn Hiti 7 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Bjart 12 Akureyri 3-8 Léttskýjað 11 Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 11 Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 14 ➜ ➜ ➜ ➜ + + FJÁRSVIK Sveinbjörn Kristjánsson, aðalféhirðir Landssíma Íslands, virðist hafa eignast mikla fjár- muni á síðustu vikum. Meðal þess sem lögreglan rannsakar nú eru greiðslur sem Bankastræti 12, rekstrarfélag veitingahússins Priksins, reiddi af hendi á síðustu vikum. Fyrirtækið hefur verið í mikl- um greiðsluvanda og hafði eigandi hússins hótað að bera reksturinn út. Framan af var Ragnar Orri Benediktsson í forsvari fyrir fé- lagið gagnvart húseigandanum en um áramótin kom Sveinbjörn að- algjaldkeri fram í dagsljósið sem forsvarsmaður. Vangoldin leigu- gjöld námu tæpri milljón króna og hvorki gekk né rak þar til seinni partinn í apríl þegar Sveinbjörn greiddi leiguna í skugga hótana um útburð. Í stað þess að greiða 900 þúsund krónur greiddi hann 1,9 milljónir króna en hringdi síð- an og bað um að milljónin yrði bakfærð. Eigandi Bankastrætis 12, sem hýsir Prikið, staðfesti við Fréttablaðið í gær að hann hefði látið lögreglu í té allar upplýsing- ar um viðskiptin við Sveinbjörn. Annað dæmi um betri fjárhag Priksins er að um síðustu helgi buðu Sveinbjörn og Ragnar starfsfólki Priksins til London þar sem haldin var árshátíð. Ferðin er talin hafa kostað verulegar fjár- hæðir. Hópurinn lagði upp á fimmtudegi en daginn eftir var Sveinbjörn hnepptur í gæsluvarð- hald. Ragnar Orri sneri heim frá London í skyndingu á laugardeg- inum og var handtekinn nokkrum dögum síðar. Til rannsóknar er hvort nýtilkomna fjármuni, sem notaðir voru til að greiða leigu og árshátíð, megi rekja til Símans. Rannsóknin, sem í upphafi náði til ársins 1999, teygir því anga sína fram á þennan dag. Gæsluvarðhald fjórmenning- anna sem taldir eru tengjast Landssímamálinu rennur út í næstu viku. „Málið er á algjöru frumstigi og ég get ekki sagt neitt um það. Það er óljóst á þessari stundu hvert rannsókn muni beinast,“ segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislög- reglustjóra, um rannsókn á meint- um fjársvikum. rt@frettabladid.is Gjaldkerinn eignaðist skyndilega peninga Lögreglan rannsakar fjármálaumsvif aðalgjaldkera Símans í síðustu viku. Margra mánaða vangöldin húsaleiga á Prikinu og útburði hótað. Greiddi milljón of mikið. VÆNGJASLÁTTUR Í PAPPAKASSANUM Andamamma kunni illa við sig í kassanum en var þeim mun ánægðari þegar hann var opnaður og Reykjavíkurtjörn blasti við í sólskininu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Andafjölskylda á röltinu: Í sjálfheldu á Vesturgötu FUGLAR Andamamma varð frelsinu fegin þegar henni var sleppt út á Reykjavíkurtjörn ásamt níu ung- um sínum. Fjölskyldan var komin í sjálf- heldu í auðu húsnæði við Vestur- götuna þegar Ingi Þór Sigurjóns- son, Erla Margrét Ottósdóttir og Matthildur Ingadóttir komu henni til bjargar. Þau veittu öndinni athygli þar sem hún var á vappi á Vestur- götuni og eltu hana inn í húsasund og áfram inn í stóran sal þar sem ungarnir voru allir saman komnir. „Stóra spurningin er auðvitað hvað þessi andafjölskylda var að vilja lengst upp í bæ,“ segir Ingi Þór, sem fangaði öndina eftir heil- mikinn bægslagang og kom henni ofan í pappakassa. Að því loknu var gengið fylktu liði niður að tjörn þar sem kassinn var opnað- ur og kunnuglegar slóðir blöstu við fiðurfénu. ■ PRIKIÐ Eigandinn ætlaði að bera rekstraraðila Priks- ins út en þá komu skyndilega peningar. ■ Í stað þess að greiða 900 þús- und krónur greiddi hann 1,9 milljónir króna. VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Nýr oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn segir engar stórar stefnu- breytingar á döf- inni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.