Fréttablaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 6
8 30. maí 2003 FÖSTUDAGUR
■ Innlent
Uppskrift að stjórnmálamanni
Það hefur lengi verið umhugsun-
arefni að stjórnmálamenn skuli
ekki lengur komast upp á horn-
skák kjósenda nema þeir hafi
kjörþokka, fótógenískt andlit og
fyrirsagnakjaft.
Kristján Kristjánsson, prófessor.
Morgunblaðið, 28. maí.
Leikbræðralagið
Vandamál félagsins er að núver-
andi stjórnendur geta ekki rekið
leiklistarstarfsemi félagsins sem
þeir eru kjörnir og ráðnir til.
Sigurður Karlsson, varaformaður Leikfélags
Reykjavíkur. Morgunblaðið, 28. maí.
Heilbrigðisvottorð frá Popptíví
Niðurstaða mín er sú að heim-
sókn þeirra Popptívímanna á
ríkisráðsfundinum hafi sýnt
fram á að okkur sé ekki alls
varnað.
Ögmundur Jónasson alþingismaður, um gildi
þess að ætla ekki hverjum manni hið versta.
DV, 28. maí.
Orðrétt
SÝKNA Eiginkona Atla Helgasonar
var sýknuð af fjárkröfu Birgis
Arnar Birgissonar í Héraðsdómi
Reykjaness á miðvikudag. Birgir
Örn er faðir Einars
Arnar, sem var
myrtur af Atla
Helgasyni í nóvem-
ber 2000.
Birgir Örn gerði
þá kröfu, fyrir
hönd þrotabús Atla
Helgasonar, að
kaupmála Atla og
eiginkonunnar sem
gerður var í lok júlí
árið 2000 yrði rift.
Jafnframt krafðist
Birgir Örn þess að henni yrði gert
að greiða honum fyrir hönd þrota-
bús Atla Helgasonar tæplega
þrjár milljónir króna.
Birgir Örn byggði mál sitt á því
að um gjöf væri að ræða, ekki eig-
inlegan kaupmála, þar sem fast-
eign Atla og eiginkonu hans hafi
verið gerð að séreign hennar en
ábyrgð á áhvílandi veðskuldum
væri eigi að síður áfram sameigin-
leg. Að auki gerði Birgir Örn fjár-
kröfu á hendur eiginkonunni.
Birgir Örn telur henni bera að
greiða í þrotabúið þann hluta sem
hann ætti að eiga hefði kaupmál-
inn ekki komið til.
Lögmaður eiginkonunnar segir
að þegar hún og Atli hófu sambúð
hafi hún verið fjárhagslega vel
stæð en Atli ekki. Hún hafi selt
íbúð sína og átt söluvirði hennar
nánast óskipt, auk bíls og hluta-
bréfa. Hins vegar hafi Atli staðið
uppi með skuldir vegna sambúðar-
slita. Vegna þessa og fjölskylduað-
stæðna, en hvort áttu þau eitt barn
úr fyrri sambúð, hafi það verið
eðlileg og sjálfsögð ráðstöfun að
þau gerðu með sér kaupmála áður
en þau gengu í hjúskap. Með kaup-
málanum hafi henni verið tryggt
að við hugsanlegt andlát eða skiln-
að héldi hún þeirri eign sem hún
átti við upphaf sambúðar þeirra.
Héraðsdómi Reykjaness
dæmdi eiginkonunni í hag og
sýknaði hana af kröfum Birgis
Arnar. Birgi Erni er gert að greiða
henni 300 þúsund krónur í máls-
kostnað.
hrs@frettabladid.is
FLÖSKUMJÓLKIN
Um þrjár bragðtegundir verður að ræða
auk bragðlausrar mjólkur: kakó, vanillu og
jarðarberja.
Valkostur í stað gos-
drykkja:
Mjólk í
flöskum
MJÓLK Mjólkursamsalan undirbýr
sölu á mjólk í flöskum á ný eftir
36 ára hlé. Nýja drykkjarmjólkin
er fitulaus og án bragðefna en
einnig verður hún framleidd með
þremur bragðtegundum. Mjólkin
kemur á markaðinn í 320 ml plast-
flöskum.
„Mjólkurneyslan hefur aðal-
lega verið bundin við heimilin
þegar mjólkurglas er við hönd-
ina,“ segir Baldur Jónsson, mark-
aðsstjóri Mjólkursamsölunnar. Að
sögn Baldurs hefur gosdrykkja-
neysla aukist mjög mikið á síð-
ustu árum, sérstaklega meðal
ungs fólks. „Við erum að bjóða
annan valkost fyrir þennan ald-
urshóp.“
Mjólk hefur verið afgreidd
með ýmsum hætti til viðskipta-
vina í gegnum tíðina. Í upphafi
mjólkursölu snemma á síðustu öld
var mjólkin aðeins seld úr stórum
brúsum og mjólkinni var ausið í
ílát sem viðskiptavinir komu
sjálfir með. Endurnýtanlegar
glerflöskur komu næstar á mark-
aðinn og voru notaðar þar til fern-
urnar leystu þær af hólmi á sjö-
unda áratugnum.
Mjólkurflöskurnar koma á
markaðinn snemma í næstu viku. ■
AUSCHWITZ
Gyðingur og Arabi sameinast í bæn fyrir
þeim sem létust í Auschwitz.
Ísraelar og Palestínu-
menn:
Saman í
Auschwitz
HEIMSÓKN Hópur sem samanstend-
ur af 120 aröbum frá Palestínu og
130 gyðingum frá Ísrael heimsótti
Auschwitz, gamlar útrýmingar-
búða nasista í Póllandi.
Þessi heimsókn setti enda-
punktinn á sameiginlegt ferðalag
háttsettra arabar og gyðinga, en
tilgangur þess var að reyna að
vekja stjórnmálamenn til um-
hugsunar um leiðir til friðar. Hóp-
urinn er sammála um að eina leið-
in fyrir araba og gyðinga að lifa
saman sé gagnkvæmur skilningur
á mismunandi uppruna og menn-
ingu trúflokkana.
Hápunktur heimsóknarinnar í
Auschwitz var þegar hópurinn
sameinaðist í friðarsöng á hebr-
esku. ■
DÓMSMÁL Nefnd um dómarastörf
segir það ekki hlutverk Dóm-
stólaráðs Íslands og dómsmála-
ráðuneytis að taka afstöðu til
kæru Þórhalls Ölvers Gunnlaugs-
sonar á hendur ríkissaksóknara
vegna meints meinsæris í
svokölluðu Leifsgötumáli.
Þórhallur telur ríkissaksókn-
ara hafa skotið undan gögnum
sem stönguðust á við kenningar
saksóknarans um sekt Þórhalls í
manndrápsmáli á Leifsgötu sum-
arið 1999. Þórhallur var dæmdur
í 16 ára fangelsi.
„Skal yður bent á að Hæstirétt-
ur tekur ákvörðun um endurupp-
töku mála, hvorki dóms- og kirkju-
málaráðuneyti, dómstólaráð né
nefnd um dómarastörf,“ segir í
svari til Þórhalls þar sem honum
er bent á að beiðni um endurupp-
töku skuli stíluð til Hæstaréttar en
send ríkissaksóknara.
„Það er engin efnisleg afstaða
tekin til kærunnar eða beiðni
minnar um að nýr saksóknari
verði skipaður til að fara yfir
málið – eins og mér skilst að ráð-
herra hafi lagaheimild til að gera.
Annað hvort er hér um hreinan
útúrsnúning að ræða eða menn
eru að reyna að firra sig því að
blanda sér í málið,“ segir
Þórhallur, sem bíður nú ákvörð-
unar Hæstaréttar. ■
LITLA-HRAUN
Nefnd um dómarastörf vísar á Hæstarétt varðandi beiðni um endurupptöku morðmáls á
Leifsgötu. Þórhallur Ölver Gunnlaugsson var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir morðið.
Nefnd um dómarastörf:
Vísað á Hæstarétt með
upptöku Leifsgötumáls
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Eðlilegt þótti að Linda Sigrún héldi eigninni sem hún átti við upphaf hjúskapar hennar og
Atla.
Eiginkona Atla var
sýknuð af fjárkröfu
Eiginkona Atla Helgasonar var sýknuð af fjárkröfu Birgis Arnar Birgis-
sonar. Hann er faðir Einars Arnar, sem Atli Helgason myrti í október
2000. Birgir Örn gerði þá kröfu að kaupsamningi Lindu og Atla yrði rift
og henni gert að greiða þrotabúi Atla tæpa þrjár milljónir króna.
■
Með kaupmál-
anum hafi
henni verið
tryggt að við
hugsanlegt
andlát eða
skilnað héldi
hún þeirri eign
sem hún átti
við upphaf
sambúðar
þeirra.
HRAFNINN BÍÐUR Sú stund
nálgast að borgaryfirvöld leggi
endanlega blessun yfir fram-
kvæmdir á lóð Hrafns Gunn-
laugssonar í Laugarnesi. Á fundi
skipulagsfulltrúa fyrir viku var
málinu þó enn frestað á meðan
aflað er umsagna hverfisstjóra
og umhverfisstjóra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T