Fréttablaðið - 31.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Bíó 26
Íþróttir 10
Sjónvarp 28
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
MYNDLIST
Íslenskir fossar
til Feneyja
GOÐSÖGN
Lýsir
sem viti
LAUGARDAGUR
31. maí 2003 – 123. tölublað – 3. árgangur
bls. 16 bls. 20
HNEFALEIKAR
Írarnir ekki
að leika sér
bls. 10
Hátíð hafsins
HÁTÍÐAHÖLD Hátíð hafsins verður
haldin við Reykjavíkurhöfn í dag
og á morgun í tilefni Hafnardags-
ins og Sjómannadagsins. Skipulögð
dagskrá hefst klukkan 10 báða dag-
ana og stendur fram eftir degi.
Bergman
í Hafnarfirði
KVIKMYNDIR Kvikmyndasafn Íslands
sýnir myndina Ansiktet eftir Ing-
mar Bergman frá 1958 í samvinnu
við Kirkjulistahátíð í Reykjavík.
Myndin er sýnd í Bæjarbíói í Hafn-
arfirði klukkan 16.
Barist við Dani
HANDBOLTI Íslendingar etja öðru
sinni kappi við Dani í vináttulands-
leik í handbolta. Leikurinn fer fram
í Smáranum í Kópavogi og hefst
klukkan 16.
Miðað á Íran
FUNDUR Erindi sem nefnist Hvers
vegna Bandaríkin og Bretland miða
á Íran verður flutt í MÍR-salnum
við Vatnsstíg. Tony Hunt frá
Communist League í Bretlandi, ný-
kominn frá Mið-Austurlöndum,
fjallar um stjórnmál í Íran og lönd-
unum við Kaspíahaf í kjölfar
stríðsins í Írak og arfleifð bylting-
arinnar í Íran 1979. Fundurinn
hefst klukkan 17.
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
HÁTÍÐ „Sjómannadagurinn og jólin
eru þeir einu tímapunktar á árinu
sem litlu krakkarnir vita að pabb-
inn er heima,“ segir Birgir Björg-
vinsson, gjaldkeri Sjómanna-
félags Reykjavíkur.
Hátíð hafsins er um helgina í
tengslum við sjómannadaginn á
morgun. Birgir segir að búið sé að
ferðamannavæða sjómannadag-
inn, en upp úr standi minningar-
athöfn fyrir sjómenn, sjómanna-
dagsmessa og knattspyrnumót í
Laugardalnum með tilheyrandi
uppskeruhátíð á Broadway um
kvöldið. „Svo mun sjávarútvegs-
ráðherra klappa sjómönnum á
kollinn í ræðu við höfnina. Þá verð
ég annars staðar. Sjómenn eru
hættir að gleyma þessum laga-
setningum trekk í trekk,“ segir
hann.
Meðal þess sem verður á seyði
á Hátíð hafsins er skemmtisigl-
ing, leiktæki og lúðrasveit, auk
þess sem poppsveitin Írafár treð-
ur upp við höfnina. Þá verður at-
riði úr söngleiknum Með fullri
reisn sýnt við höfnina um miðjan
sjómannadaginn. ■
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á morgun:
Krakkarnir vita að pabbi er heima
bls. 18
ÚTSKRIFT
Listrænn
stúdent
bls. 38
VERÐLAUN
Varði
titilinn
REYKJAVÍK Austan 3-8 m/s
og skýjað með köflum.
Vindur eykst seinnipartinn.
Hiti 7 til 15 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Bjart 12
Akureyri 3-8 Léttskýjað 11
Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 11
Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 14
➜
➜
➜
➜
+
+
VIÐSKIPTI Yfir 20 milljónir króna í
vörslugjöldum eru taldar vera í
vanskilum hjá þrotabúi Japis sem
tekið var til gjaldþrotaskipta í fyrir
ári síðan. Það voru þeir Árni Þór
Vigfússon og
Kristján Ra Krist-
jánsson sem sátu í
stjórn Japis
ásamt Páli Kr.
Pálssyni þegar
gjaldþrotið reið
yfir í júní 2001.
Páll Kr. var
stjórnarformaður en Kristján Ra
fór með prókúru fyrir félagið.
Kristján Ra lýsti því í viðtali við
Morgunblaðið föstudaginn 13. júlí
2001 að eignarhlutur Skjáseins í
Japis væri meira virði en 82 millj-
óna króna. Hann sagði að velta Jap-
is hefði verið 300 milljónir króna
árið 2000 en veltan yrði 500 millj-
ónir króna árið 2001. 11 mánuðum
síðar var Japis lýst gjaldþrota.
„Áætlanir gera ráð fyrir hagnaði á
næsta ári hjá Japis,“ sagði Kristján
Ra við Morgunblaðið í júlí 2001.
Hálfum mánuði eftir þetta viðtal
hætti Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Japis, störfum og
Kristján Ra tók við sem fram-
kvæmdastjóri.
Samkvæmt kröfulýsingu Stein-
gríms Þormóðssonar, skiptastjóra
Japis, nema kröfur í búið rúmum
126 milljónum auk dráttarvaxta.
Þar af eru kröfur frá Tollstjóra
vegna vörslugjalda rúmar 20 millj-
ónir króna. Fram kom hjá skipta-
stjóra að einungis hafi tekist að
innheimta um 10 prósent af
útistandandi kröfum Japis, sem
samkvæmt viðskiptayfirliti voru
30 milljónir króna. Skiptastjóri seg-
ir að bókhaldi hafi ekki verið lokað
vegna ársins 2001 og erfitt og tíma-
frekt hafi verið að komast til botns
í því. Ársreikningi var ekki skilað.
Páll Kr. Pálsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Japis, segir að
það komi honum á óvart ef vörslu-
gjöld séu ógreidd. Hann segir að
þegar fyrirséð var að ekki væri
hægt að bjarga rekstrinum hafi
hann falið lögfræðingi sínum að
kanna hve mikið væri ógreitt af
vörslugjöldum og látið ganga frá
greiðslu þeirra. „Sú skuld sem gef-
in var upp var greidd,“ segir Páll
Kr.
Hann var spurður um það hvort
hann hafi vitað af bókhaldsóreiðu
og því að ársreikningi hefði ekki
verið skilað.
„Þeir voru aldrei miklir ná-
kvæmnismenn. En við sáum aldrei
ástæðu til að efast um heilindi
þeirra og það kom manni svakalega
á óvart að þeir skyldu lenda í þess-
um málum nú,“ segir Páll Kr.
rt@frettabladid.is
Tollstjóri telur að
tugmilljónir vanti
Kristján Ra Kristjánsson var framkvæmdastjóri Japis sem varð gjaldþrota og Árni Þór Vigfússon
var stjórnarmaður. 126 milljóna króna gjaldþrot. Skiptastjóri á erfitt með að botna í bókhaldinu.
Í HEIMSREISU Á AUSTURVELLI
Ljósmyndasýningin „Jörðin séð frá himni“ hefur verið sett upp á Austurvelli. Á sýningunni er fjöldi ljósmynda eftir Yann Arthus-Bertrand og
eiga þær það allar sammerkt að vera teknar úr lofti. Myndirnar eru teknar víðs vegar um heiminn og eru nokkrar þeirra teknar á Íslandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Veðrið um helgina:
Rigningarspá
í kortunum
HELGARVEÐRIÐ „Það er komin rign-
ingarspá í kortin hjá okkur,“ seg-
ir Þorsteinn Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands. Að
hans sögn er útlit fyrir vætu um
allt land í dag. Mest mun rigna
sunnan- og austanlands en norð-
vestanlands verður líklega úr-
komulítið.
Veðrið á morgun ætti þó að
verða aðeins skárra. Þá dregur úr
úrkomu og er jafnvel útlit fyrir
að sjáist til sólar vestanlands.
Frekar hlýtt verður í veðri og má
víða búast við 10-13 stiga hita,
líklega hlýjast suðvestanlands. ■
REYKLAUSI DAGURINN ER Í DAG!
„Sú skuld
sem gefin
var upp var
greidd.