Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 1
SAMKEPPNI Í fyrri hluta frum-
skýrslu Samkeppnisstofnunar
vegna meints samráð olíufélag-
anna þriggja, Skeljungs, Olís, og
Olíufélagsins hf., kemur fram að
félögin þrjú hafi haft samráð
vegna útboðs dóms-
málaráðuneytisins,
Landhelgisgæslunn-
ar og Norðuráls.
Dómsmálaráðuneyt-
ið bauð út kaup á
eldsneyti vegna lög-
reglunnar og Land-
helgisgæslunnar. Fé-
lögin þrjú eru sögð
hafa sammælst um
að Olíufélagið myndi
bjóða 0,95 króna af-
slátt af lítra, Olís 0,85 krónu afslátt
og Skeljungur 0,77 krónu afslátt.
Ráðuneytið hafnaði öllum tilboð-
unum og héldust því viðskipti við
undirstofnanir þess óbreytt.
Samkeppnisstofnun fann við
húsleitina fyrir jólin 2001 skjal
sem talið er til vitnis um sam-
komulag félaganna þriggja. Því er
lýst í skýrslunni að forstjóri Skelj-
ungs hafi aðspurður sagt að félög-
in þrjú hefðu ekki gert neinn
samning vegna útboðsins heldur
„eingöngu talað um það mál“. Þá
er vitnað til Gunnars Karls Gunn-
arssonar, aðstoðarforstjóra Skelj-
ungs, sem kveðst ekki muna til
þess að hafa séð umrætt minnis-
blað sem stílað var á hann og
framkvæmdastjóra Olís. Þórólfur
Árnason, þáverandi markaðsstjóri
Olíufélagsins, framsendi skjalið í
tölvupósti til Gunnars Karls og
Jóns Halldórssonar. Samkeppnis-
stofnun náði afriti af þeim tölvu-
pósti, dagsettum 11. desember
1996 klukkan 12.12, sem nefndur
var „Fundur okkar þriggja í dag“.
Gunnar Karl staðfesti sam-
kvæmt skýrslunni að hafa átt fund
með fulltrúum hinna tveggja olíu-
félaganna en kvaðst „ekki minnast
þess að neinar tillögur hafi verið
settar fram á þessum fundum eða
ákvarðanir teknar“.
Haft er eftir framkvæmda-
stjóra markaðssviðs stórviðskipta
hjá Skeljungi í þessu sambandi:
„Nokkur önnur útboð voru rædd
meðal félaganna en ekki varð nið-
urstaða í þeim viðræðum.“
Til enn frekari rökstuðnings
því að samráð hafi átt sér stað
vegna dómsmálaráðuneytisins er
vísað til bréfs forstjóra Olís þar
sem hann vitnar beinlínis til sam-
ráðs vegna dómsmálaráðuneytis-
ins í samhengi við skiptisölu
vegna Járnblendifélagsins.
Skýrslan segir mótbárur eða út-
skýringar Skeljungs vegna þessa
máls vera „ótrúverðugar og í mót-
sögn við skýr gögn“.
Fréttablaðið mun á morgun
halda áfram að vitna í frum-
skýrslu Samkeppnisstofnunar.
rt@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 14
Sjónvarp 24
DAGURINN Í DAG
FÖSTUDAGUR
18. júlí 2003 – 162. tölublað – 3. árgangur
FUNDAÐI
MEÐ SHELL
Sendinefnd núver-
andi meirihluta-
eigenda Skeljungs
fór til London síð-
ustu vikuna í maí
til fundar við
Shell. Benedikt Jó-
hannesson stjórnarformaður segir Skelj-
ungsforstjóra hafa hringt í Kauphöllina
vegna tilkynningarinnar en ekki þekkt um-
fang viðskiptanna. Talið að Shell hefði get-
að selt á genginu 18 í stað 12. Sjá bls. 8
ÓLÖGMÆT TILRAUN Ólafur Hauks-
son, talsmaður Iceland Express, segir við-
brögð Icelandair við úrskurði Samkeppnis-
ráðs ólögmæta tilraun til að halda viðskipt-
um. Icelandair brást við úrskurði sam-
keppnisráðs um brot á samkeppnislögum
með því að lækka lægstu verð á ferðum til
London og borga á meginlandi Evrópu, en
engir vildarpunktar hljótast nú af ferð-
unum. Málið verður ekki rannsakað frekar,
segir yfirmaður samkeppnissviðs. Sjá bls. 2
STUDABAKER VERST Bandaríkjamað-
urinn Toby Studabaker, sem sakaður er um
hafa numið á brott tólf ára gamla breska
stúlku, fullyrðir að samband þeirra hafi ekki
verið kynferðislegt. Sjá bls. 2
bíó o.fl.
í föðurleit ● sharon stone
Arnold Schwarzenegger:
▲
SÍÐUR 18 og 19
Tortímandi í
kvenmannsklóm
■
Samkeppnis-
stofnun náði
afriti af þeim
tölvupósti,
dagsettum 11.
desember
1996 klukkan
12.12, sem
nefndur var
„Fundur okkar
þriggja í dag“.
VEÐRIÐ Í DAG
sálin og sólin í eina sæng
Guðmundur Jónsson:
▲
SÍÐA 22
Vítamínsprauta
í sveitaböllin
Veðrið í dag verður með ólíkindum gott
um allt land. Tuttugu stiga hitamúrinn ætti
að falla víða í innsveitum, einkum á aust-
urhluta landsins. Sjá nánar bls. 6
Hommar og lesbíur hita upp fyrir Hinsegin
daga með styrktartónleikum á skemmti-
staðnum Nasa í kvöld. Þar verður meðal
annars flutt þemalag Hinsegin daga, Ég er
það sem ég er. Sjá nánar:
KALIFORNÍA, AP Níu manns létu lífið
og hátt í 45 slösuðust þegar
Bandaríkjamaður á níræðisaldri
ók á ofsahraða í gegnum útimark-
að í Santa Monica í Kaliforníu.
Fimmtán manns eru enn í lífs-
hættu.
Maðurinn ók stjórnlaust í gegn-
um mannfjöldann með þeim af-
leiðingum að fólk kastaðist upp í
loftið, sölutjöld eyðilögðust og
varningur dreifðist um allt.
Að sögn sjónarvotta var bíllinn
á mikilli ferð þegar hann nálgaðist
markaðinn. „Það var eins og felli-
bylur kæmi niður götuna,“ sagði
kona sem varð vitni að atvikinu.
Átta manns, þar á meðal þriggja
ára gömul stúlka, voru úrskurðað-
ir látnir á staðnum. Miðaldra karl-
maður lést á sjúkrahúsi.
Að sögn lögreglu bar ökumað-
urinn því við að hann hefði ekki
getað stöðvað bifreiðina. „Hann
heldur því fram að hann hafi
hugsanlega stigið á bensíngjöfina
í stað hemlanna,“ sagði lögreglu-
foringinn James T. Butts. Ekkert
bendir til þess að maðurinn hafi
verið undir áhrifum áfengis eða
lyfja og ættingjar hans og vinir
segja hann fullfrískan á líkama og
sál.
Ökumaðurinn var látinn laus að
lokinni yfirheyrslu. Ekki liggur
fyrir hvort hann verður ákærður
fyrir manndráp. Fjölskylda hans
hefur sent frá sér afsökunar-
beiðni vegna atviksins. ■
Maður á níræðisaldri varð níu manns að bana:
Ók á ofsahraða í gegnum útimarkað
SUMARSTEMMNING Á AUSTURVELLI Mikið af fólk lagði leið sína um miðbæ Reykjavíkur í góða veðrinu í gær. Tónlistarfólk lék lög
og var haft á orði að stemmningin væri „eins og í útlöndum“. Áfram er spáð hlýindum um mest allt land næstu daga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Höfðu samráð um
tilboð til lögreglunnar
Frumskýrsla Samkeppnisstofnunar lýsir samráði olíufélaganna vegna útboðs dómsmálaráðu-
neytisins. Forstjóri Skeljungs þrætti fyrir samning en viðurkenndi að „talað hefði verið um það“.
Óvæntur fundur:
Dínamít í
ræsi
LÖGREGLA Mikið magn af dínamíti
fannst í ræsi á Bláfjallaveginum
síðdegis í gær. Að sögn varð-
stjóra lögreglunnar í Reykjavík
bendir allt til þess að um sé að
ræða dínamítið sem stolið var úr
geymslu á Hólmsheiði aðfara-
nótt 4. júlí síðastliðins. Ekki er
þó ljóst hvort allt efnið er fundið.
Lögreglan og sprengjusérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar unnu
að því að fjarlægja dínamítið af
vettvangi fram á kvöld. Mikillar
varkárni var gætt við verkið
enda mikil sprengihætta.
Það var starfsfólk kvikmynda-
gerðarfyrirtækisins Pegasus
sem fann dínamítið. Það var við
tökur á auglýsingu og rak augun
í poka sem svo reyndist inni-
halda dínamít. Strax var kallað á
lögreglu sem vinnur enn að rann-
sókninni á stuldinum á Hólms-
heiði. ■
matur o.fl.
svínalundir ● vín vikunnar
Elín María Björnsdóttir:
▲
SÍÐA 16 og 17
Sterk og ljúf-
feng ostakaka
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
6
4
4
8
Skelltu þér á
pylsu og kók
Fljótt og gott
í NestiStærsta
útsalan
Nýtt kortatímabil
SKELFILEG AÐKOMA
Gular ábreiður voru lagðar yfir líkin á
meðan vettvangsrannsókn fór fram.