Fréttablaðið - 18.07.2003, Page 4
4 18. júlí 2003 FÖSTUDAGUR
Var rétt af Samkeppnisráði að
banna Flugleiðum að undirbjóða
Iceland Express?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig á helst að fjármagna Ríkisút-
varpið?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
44,5%
55,5%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
KARLAR
lið L U J T mörk stig
1. Fylkir 10 6 1 3 15:8 19
2. Þróttur 10 6 0 4 18:13 18
3. Grindav. 10 6 0 4 16:16 18
4. KR 10 5 2 3 12:12 17
5. KA 10 4 2 4 16:14 14
6. ÍBV 10 4 1 5 16:15 13
7. Valur 10 4 0 6 13:17 12
8. FH 10 3 3 4 14:15 12
9. ÍA 10 2 5 3 11:12 11
10. Fram 10 2 2 6 13:22 8
Fram 2-3 KA
ÍA 0-0 FH
Rændi pabba sínum:
Krafði
mömmu um
lausnargjald
MALASÍA, AP Tvítugur háskólanemi
frá bænum Tampoi í Malasíu hef-
ur verið ákærður fyrir að ræna
föður sínum og krefja móður sína
um sem svarar rúmri einni millj-
ón íslenskra króna í lausnargjald.
Jacob Jebaraj var handtekinn
ásamt fimm félögum sínum. Pilt-
unum er gefið það að sök að hafa
rænt 53 ára gömlum föður
Jebaraj og haldið honum föngnum
í heilan sólahring þar til eiginkona
hans greiddi þeim lausnargjald.
Sakborningarnir sex eiga allir
yfir höfði sér dauðarefsingu eða
lífstíðarfangelsi verði þeir fundn-
ir sekir. ■
Félagsmálaráðherra:
Fundar með
Valgerði
JAFNRÉTTI Árni Magnússon félags-
málaráðherra mun á mánudag
hitta Valgerði Bjarnadóttur, fram-
kvæmdastýru Jafnréttisstofu.
Valgerður var formaður Leikfé-
lags Akureyrar, en Héraðsdómur
Norðurlands eystra komst að
þeirri niðurstöðu að leikfélagið
hefði brotið jafnréttislög við ráðn-
ingu leikhússtjóra. Valgerður hef-
ur sagt af sér sem formaður leik-
félagsins.
Ráðherra vill ekki tjá sig um
málið þar til fundurinn hefur far-
ið fram. ■
VIÐSKIPTI Allt útlit er fyrir að Sam-
son muni krefjast lækkunar á
kaupverði Landsbankans í ljósi
þess að afskriftir hafa orðið á
eignasafni bankans síðustu þrjá
ársfjórðunga. Samningur Björg-
ólfs Guðmundssonar, Björgólfs
Thors Björgólfssonar og Magnús-
ar Þorsteinssonar við ríkið um
kaup á bankanum felur í sér fyrir-
vara um að kaupverð geti lækkað
um allt að 700 milljónum, komi í
ljós að eignir hafi verið ofmetnar
af hálfu ríkisins. Samkvæmt
stöðu bankans þremur ársfjórð-
ungum eftir að hann var metinn
eru afskriftir það miklar að Sam-
son mun krefjast endurskoðunar
á lokagreiðslu sem berast á í des-
ember.
„Ljóst er að afskriftir á síðari
helmingi ársins 2002 og fyrsta
ársfjórðungi þessa árs voru meiri
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í ljósi
þessa má vænta að á endurskoð-
unarákvæðið muni reyna,“ segir
Halldór Jón Kristjánsson Lands-
bankastjóri um málið.
Um tveir þriðju hlutar ríflega
12 milljarða króna söluverðsins
hafa þegar verið greiddir og er
Samson eigandi 45,8 prósenta
hlutafjár. Til mælinga á afskrift-
um var sett saman vísitala út frá
eignasafni bankans og verður hún
væntanlega höfð til viðmiðunar
um lækkun. Á blaðamannafundi á
gamlársdag gáfu Björgólfsfeðgar
til kynna áhuga þess efnis að nota
hugsanlegan afslátt í hlutafjár-
kaup í bankanum. Ekkert er hins
vegar ákveðið um það. ■
VIÐSKIPTI Í frumskýrslu Sam-
keppnisstofnunar vegna meints
samráðs olíufélaganna þriggja
kemur fram að stjórnendur Olíu-
félagsins hf. staðfestu við Sam-
keppnisstofnun að samráð hafi
verið viðhaft um tilboð vegna
eldsneytiskaupa ÍSALS. Fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
s t ó r n o t e n d a
Skeljungs stað-
festi einnig við
S a m k e p p n i s -
stofnun „að sam-
ráð hafi verið
milli olíufélag-
anna um gerð
tilboða í þessu útboði ÍSAL í anda
þess samstarfs sem gilti um
ÍSAL“. Í skýrslunni er því lýst að
sá starfsmaður Olíufélagsins sem
gerði ÍSAL tilboð hafi vitað að
samráð var milli félaganna og að
tilboð Olíufélagsins væri ekki
lægst. Skeljungur sendi Olís fax
með tilboðum félaganna þriggja.
Það olli uppnámi innan Olís.
„Ég hef ekkert um þetta mál að
segja,“ segir Samúel Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri fjárfest-
inga- og áhættustýringarsviðs
Olís, um skýrslu Samkeppnis-
stofnunar þar sem því er lýst að
fjármálastjóri Olís hafi sent út
tölvupóst þar sem hann lýsti undr-
un sinni á því að Skeljungur
skyldi senda verðsamráðið á faxi
og lýsti því að „það væri alltof
varasamt“.
Kristinn Björnsson, fráfarandi
forstjóri Skeljungs, vildi sem
minnst segja um frumskýrsluna.
„Þetta er fyrri hluti skýrslunn-
ar sem barst til okkar í janúar.
Okkur vantar seinni hlutann og
höfum því ekki svarað enn. Við
viljum sjá niðurstöðuna í heild
sinni,“ segir Kristinn.
Hann segir að skýrslan sé ein-
hliða frá Samkeppnisstofnun sem
í meginatriðum sé að komast að
rangri niðurstöðu. Guðmundur
Sigurðsson, forstöðumaður sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofnun-
ar, vildi ekki tjá sig neitt um efni
skýrslunnar sem hann sagði vera
trúnaðarmál.
Hann segir að ekki liggi ljóst
fyrir hvenær skýrslan verði gerð
opinber.
Hann segir að stefnan sé að
klára málið fyrir áramót. Í ljós
verði að koma hvort það takist.
Um síðustu áramót hafi fyrri hluti
frumathugunar verið sendur til
olíufélaganna. „Nú er unnið að
seinni hluta skýrslunnar sem
verður skilað í haust. Síðan fá ol-
íufélögin tíma til andsvara. Málið
verður vonandi tekið til úrskurðar
fyrir lok ársins,“ segir Guðmund-
ur.
rt@frettabladid.is
VETTVANGSRANNSÓKN
Mikil eyðilegging blasti við á götunni þar
sem sprengjan sprakk og í fyrstu var erfitt
að átta sig á því hvar sprengingin átti upp-
tök sín.
Öflug sprenging:
Þrír fórust
RÚSSLAND, AP Að minnsta kosti
þrír fórust og átján særðust þegar
öflug flísasprengja sprakk
skammt frá lögreglustöð í borg-
inni Khasavyurt í Dagestan. Á
meðal fórnarlambanna var hátt-
settur lögreglumaður, barnshaf-
andi kona og fimm ára stúlku-
barn. Tólf voru fluttir á sjúkrahús
og eru þrír þeirra taldir í lífs-
hættu.
Að sögn yfirvalda var sprengj-
an föst við vélhjól og fyllt með
rám og boltum. Fjöldi bygginga
og ellefu ökutæki urðu fyrir
skemmdum af völdum sprenging-
arinnar.
Innanríkisráðherra Dagestan
segist telja að herskáir múslímar
hafi staðið á bak við tilræðið. ■
Mannæta ákærð:
Fórnar-
lambið með
í ráðum
ÞÝSKALAND, AP Þýskur karlmaður
um fertugt hefur verið ákærður
fyrir að myrða annan mann, hluta
líkið í sundur og éta það. Verknað-
urinn var framinn með samþykki
fórnarlambsins.
Saksóknarar hafa myndband
sem sýnir sakborninginn stinga
manninn, skera líkið í búta og
frysta hluta þess.
Lögreglan komst á spor hins
grunaða þegar hann auglýsti á
internetinu eftir manni sem vildi
láta drepa sig og éta.
Maðurinn á yfir höfði sér lífs-
tíðarfangelsi verði hann fundinn
sekur. ■
RÍKISÁBYRGÐ „Eftirlitsstofnunin
lætur öll mál sem ekki eru sáraein-
föld í þennan farveg. Þetta er flók-
ið mál og margþætt. Ég held að all-
ir hafi reiknað með að það færi
þennan veg,“ segir Geir H. Haarde
fjármálaráðherra um þá ákvörðun
Eftirlitsstofnunar EFTA að taka til
rannsóknar frumvarp um ríkisá-
byrgð til handa Íslenskri erfða-
greiningu vegna uppbyggingar
lyfjatæknifyrirtækis hér á landi.
„Þetta er eðlilegur hluti af
þessu ferli,“ segir Geir og vísar til
þess að sérstaklega sé tekið fram í
yfirlýsingu Eftirlitsstofnunarinn-
ar að það að ábyrgðin sé tekin til
rannsóknar hafi enga þýðingu á
niðurstöðu málsins. Ennfremur
hafi önnur íslensk mál verið tekin
til rannsóknar hjá Eftirlitsstofnun-
inni. Þar bendir Geir á frumvarp
viðskiptaráðherra um endur-
greiðslur vegna kvikmyndafram-
leiðslu.
Eftirlitsstofnunin rannsakar
meðal annars hvort ábyrgð á lán-
inu feli í sér almennan rekstrar-
styrk frekar en stuðning við rann-
sóknir. Fjármálaráðherra vildi
ekkert tjá sig um þetta atriði þeg-
ar það var borið undir hann og
kvaðst ekki vilja ræða það efnis-
lega. ■
GEIR H.
HAARDE
Ekki eins-
dæmi að ís-
lensk frum-
vörp séu tek-
in til rann-
sóknar hjá
Eftirlitsstofn-
un EFTA.
Fjármálaráðherra um rannsókn EFTA á
deCODE-ábyrgð:
Eðlilegur hluti ferlisins
SAMSON
Ákvæði í kaupsamningi um Landsbankann segir að kaupverð skuli endurskoðað ef afföll
eru umfram það sem áætlað var af ríkinu.
Afskriftir meiri en gert var ráð fyrir:
Krefjast lækkunar
Landsbankaverðs
SAMKEPPNISSTOFNUN
Unnið er hörðum höndum að skýrslu um meint samráð olíufélaganna um verð á elds-
neyti. Skýrslan lýsir því afdráttarlaust að samráð hafi verið viðhaft.
ÍSAL
Félagið bauð út eldsneyti en olíufélögin
þrjú höfðu náið samráð um tilboð.
Olíufélögin staðfestu
samráð um ÍSAL
Kristinn Björnsson vill sjá niðurstöðuna í heild sinni áður en Sam-
keppnisstofnun verður svarað.
„Við viljum
sjá niðurstöð-
una í heild
sinni.
MÖRG INNBROT Að sögn lögregl-
unnar hafa óvenju mörg innbrot
verið framin í Reykjavík undan-
farið. Aðafaranótt fimmtudags
var brotist inn í fimm bíla auk
þess sem sjónvarpi var rænt á
kennarastofu Laugarnesskóla.
■ Lögreglufréttir