Fréttablaðið - 18.07.2003, Qupperneq 6
6 18. júlí 2003 FÖSTUDAGUR
■ Írak
Veistusvarið?
1Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísra-els, heimsótti Noreg í vikunni. Hvað
heitir starfsbróðir hans þar í landi?
2Forstjóri Norðurljósa hefur ýmislegtvið starfsemi Ríkisútvarpsins að at-
huga. Hvað heitir maðurinn?
3Trumbusveitin Appap Papii skemmtigestum í Alþjóðahúsinu í gær. Frá
hvaða landi er sveitin?
Svörin eru á bls. 28
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
8
5
1
6
Tölum saman
fia› er ód‡rara en flú heldur!
flegar flú hringir úr heimilissímanum.
15 mínútna símtal innanlands á kvöldin
og um helgar kostar innan vi› 20 krónur
15 20/ kr.mín
- á kvöldin og um helgar
AÐALRITARI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Kofi Annan gaf út formlega yfirlýsingu að
loknum fundi með aðstoðarutanríkisráð-
herra Mjanmar, Khin Maung Win.
Kofi Annan:
Styður
Suu Kyi
BANDARÍKIN , AP Kofi Annan, aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna, hefur
farið fram á það við leiðtoga Mj-
anmar að þeir láti Aung San Suu
Kyi, leiðtoga stjórnarandstæð-
inga, tafarlaust lausan úr haldi.
Annan útilokar ekki að Samein-
uðu þjóðirnar grípi til refsiað-
gerða gegn Mjanmar til að þrýsta
enn frekar á herforingjastjórnina.
Slíkar aðgerðir verða þó fyrst að
hljóta samþykki öryggisráðsins,
að sögn Annan.
Suu Kyi var handtekinn 30.maí
síðastliðinn ásamt fjölda annarra
stjórnarandstæðinga. Bandaríkin
hafa þegar samþykkt að beita Mj-
anmar viðskiptaþvingunum til að
þrýsta á um að föngunum verði
veitt frelsi. ■
DÓMSMÁL „Dómurinn hefur ekkert
verið ræddur í okkar hópi ennþá,
fólk er í orlofi. Við eigum vissu-
lega eftir að ræða úrskurð Mann-
réttindadómstólsins þegar við
komum saman aftur,“ segir Mark-
ús Sigurbjörnsson, varaforseti
Hæstaréttar, um dóm Mannrétt-
indadómstóls Evrópu. Í dómnum
segir að Hæstiréttur hefði brotið
gegn Mannréttindasáttmálanum
um réttláta máls-
meðferð. Hæsti-
réttur sneri við
sýknudómi Héraðs-
dóms í sakfellingu í
máli manns sem
ákærður var ásamt
öðrum fyrir lík-
amsárás á veitinga-
staðnum Vegas árið
1997, sem leiddi til
dauða fórnar-
lambsins.
Í dómnum kemur fram að
málsmeðferðin hafi ekki verið
réttlát þar sem sakborningur og
vitni voru ekki kölluð fyrir dóm-
inn. Íslenska ríkið var dæmt til að
greiða 700 þúsund í miskabætur
til mannsins, sem dæmdur var í
rúmlega tveggja ára fangelsi og
þurfti að sitja af sér um eitt og
hálft ár, og til greiðslu 1,2 millj-
óna í máls- og þýðingarkostnað.
„Ég get ekkert sagt um málið á
þessu stigi,“ segir Guðrún Er-
lendsdóttir, forseti Hæstaréttar.
„Miðað við dóm Mannréttinda-
dómstólsins þarf að fá sakborn-
inga og vitni til skýrslutöku fyrir
Hæstarétti ef breyta á sýknudómi
í sakfellingu. Annað hefur verið
gert ef sönnunarfærslan þykir
vera röng. Þá hefur héraðsdómur-
inn verið ómerktur og málinu vís-
að heim. Í þessu máli hefði átt að
koma til álita annað hvort að fá
vitni og sakborninga fyrir dóminn
eða vísa málinu heim í hérað. Það
þarf ekki að breyta lögunum,
heimildirnar eru fyrir hendi, í ein-
hverjum tilvikum þyrfti að at-
huga breytt vinnubrögð,“ segir
Hilmar Ingimundarson, lögmaður
þess dæmda fyrir Héraðsdómi og
Hæstarétti. Magnús Thoroddsen
flutti mál mannsins fyrir Mann-
réttindadómstólnum.
hrs@frettabladid.is
KONGÓ, AP Leiðtogar tveggja
helstu uppreisnarhópanna í
Kongó hafa verið skipaðir í emb-
ætti varaforseta í nýrri bráða-
birgðaríkisstjórn sem ætlað er að
binda endi á nærri fimm ára langt
borgarastríð.
Jean-Pierre Bemba, leiðtogi
Kongósku frelsishreyfingarinnar,
og Azarias Ruberwa, leiðtogi
Kongósku lýðræðishreyfingarinn-
ar, voru lengi vel svarnir óvinir.
Þeir munu gegna embætti vara-
forseta ásamt tveimur öðrum.
Undir forystu Joseph Kabila, for-
seta, er nýju stjórninni ætlað að
leggja drög að lýðræðislegum
kosningum sem fara eiga fram
innan árs.
Stjórnarinnar bíður einnig það
erfiða verkefni að binda endi á
ættbálkaerjur í norðausturhluta
landsins. Alþjóðlegt friðargæslu-
lið hefur verið sent til Ituri-hér-
aðs til að stöðva blóðbaðið en síð-
ast í gær var tilkynnt um það að
yfir 80 manns hefðu látist í átök-
um Lendu og Hema vígamanna í
bænum Chomia.
Áætlað er að borgarastríðið í
Kongó hafi kostað um þrjár millj-
ónir mannslífa. Stríðsglæpadóm-
stóllinn í Haag ætlar að rannsaka
meinta stríðsglæpi í Ituri-héraði. ■
HÆSTIRÉTTUR
Hilmar Ingimundarson lögfræðingur segir að í einhverjum tilvikum þurfi Hæstiréttur að
athuga breytt vinnubrögð.
■
Miðað við dóm
Mannréttinda-
dómstólsins
þarf að fá sak-
borninga og
vitni til skýrslu-
töku fyrir
Hæstarétti ef
breyta á sýknu-
dómi í sakfell-
ingu.
Hæstiréttur mun
ræða dóminn
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu verður ræddur í Hæstarétti og
hvaða áhrif hann mun hafa á störf Hæstaréttar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FLÓTTAMANNABÚÐIR
Áætlað er að borgarstríðið í Kongó hafi kostað um þrjár milljónir mannslífa. Hundruð þús-
unda manna hafa orðið að flýja heimili sín vegna átakanna.
Skref í átt til friðar í Kongó:
Svarnir óvinir mynda
nýja ríkisstjórn
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
24°C léttskýjað
22°C léttskýjað
26°C létskýjað
31°C léttskýjað
30°C heiðskírt
30°C skýjað m. köflum
31°C skýjað m. köflum
27°C heiðskírt
27°C heiðskírt
28°C skýjað m. köflum
24°C skýjað
28°C skýjað og skúrir
LaugardagurÍ dag
Sunnudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
NÚ EÐA ALDREI
Veðrið í dag verður
áfram með ólíkin-
dum gott um allt
land. Tuttugu stiga
hitamúrinn ætti að
falla víða í innsveit-
um, einkum á aust-
urhelmingi landsins.
Það er því mjög erfitt
að benda á einhvern
einn stað þar sem
veðrið verður best.
Nú er um að gera að
njóta veðurblíðunnar
því svo gæti farið að
breyting verði seint
um helgina, a.m.k. á
Norðurlandi. Mæli
eindregið með að
fólk grípi tækifærið
og haldi garðveislur.
Ef ekki nú, þá aldrei.
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Gola
Gola
Gola
Gola
Gola
Strekkingur
Gola
Gola
Gola
SADDAM TALAR Hvatt er til
áframhaldandi heilags stríðs gegn
Bandaríkjaher á upptöku sem
eignuð er Saddam Hussein, fyrr-
um forseta Íraks, og var dreift í
gær. Þá voru 35 ár frá því Baath,
flokkur Saddams, tók völdin í Írak
með byltingu. Lítið var um árásir
á Bandaríkjamenn í gær.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.65 -0,58%
Sterlingspund 123.95 -0,29%
Dönsk króna 11.73 0,17%
Evra 87.22 -0,19%
Gengisvísitala krónu 124,11 0,35%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 154
Velta 1.644 milljónir
ICEX-15 1.499 -0,15%
MESTU VIÐSKIPTIN
Skeljungur hf. 41.335.000
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 38.110.967
Bakkavör Group hf. 36.111.757
MESTA HÆKKUN
Tryggingamiðstöðin hf. 2,70%
Pharmaco hf. 0,48%
MESTA LÆKKUN
Skeljungur hf. -1,34%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -1,12%
Og fjarskipti hf. -0,75%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 9021,6 -0,8%
Nsdaq*: 1695,6 -3,0%
FTSE: 4056,6 -0,5%
NIKKEI: 9489,9 -2,4%
S&P*: 982,4 -1,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00