Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 16
matur o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Svínalundir
fylltar með
fetaosti
Svínalundir eru alltaf vinsælar ágrillið. Í því veðri sem leikur við
landsmenn núna er tilvalið að skella
einni lund fylltri fetaosti á með grill-
uðum kartöflubátum.
Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson,
kokkur á Hótel Holti, gefur hér góða
uppskrift sem ekki tekur langan tíma
að hrista fram úr erminni eftir að úr
vinnu er komið.
Væn svínalund er fyllt með feta-
osti. Ostinum er gott að koma fyrir
með því að skera með oddhvössum
hlut í lundina miðja og troða með
fingri á eftir.
Hún er krydduð með salti og pipar
og pensluð með olíu og timian. Síðan
er hún steikt á báðum hliðum í 10-12
mínútur. Baldur Hafsteinn bendir á
að varast verði að steikja lundina of
lengi því þá verði hún þurr.
Með þessu segir Baldur Hafsteinn
að gott sé að hafa kartöflubáta,
skorna niður og penslaða upp úr olíu
og paprikudufti. Létt salat er síðan
borið fram með herlegheitunum. ■
Elín María Björnsdóttir, umsjónar-maður Brúðkaupsþáttarins Já á
Skjá Einum, er mikill matgæðingur.
Upphaldsmaturinn hennar er veru-
lega góð steik. „Ég er voða mikil kjöt-
manneskja og borða þá lambakjöt með
mismunandi meðlæti,“ segir Elín.
Aðspurð segist hún drekka rauðvín
með steikinni og þá helst Montes Alpha
eða Rosemount Shiraz. „En ég drekk
náttúrlega ekki núna,“ segir Elín, sem
á von á barni í byrjun október.
Hvað eftirrétt varðar er ljúffeng
jarðarberjaostakaka í miklu uppá-
haldi hjá Elínu. Hún segist margoft
hafa bakað slíka köku fyrir vini og
vandamenn, ávallt við stórgóðar und-
irtektir. ■
Faxe Premium fæst nú í ferðatösku-pakkningum í Ríkinu. Taskan inni-
heldur 12 stykki af 33 cl dósum og er
hentug til ferðalaga innanlands. Bjór-
taskan er með handfangi og henni
fylgir lok fyrir dósirnar. Hún hentar
því vel þeim sem vilja skella sér í úti-
legu um helgina og vilja ekki verða
uppiskroppa með bjórinn.
Faxe-taskan hentar reyndar fleir-
um en íslenskum útilegumönnum því
hún er sérstaklega vinsæl hjá Dönum
sem skreppa til Þýskalands að kaupa
sér ódýran bjór. Þeim þykir passlegt
að taka eina eða tvær töskur af Faxe.
Þessi verslunarmáti er hálfskrítinn
þar sem Faxe er danskur bjór. En þar
sem hann er ódýrari í Þýskalandi en í
Danmörku leggja Danir þetta á sig.
Faxe-brugghúsið í Danmörku á sér
sögu frá árinu 1901 þegar Conrad og
Nikoline Nielsen stofnuðu ásamt fjöl-
skyldu sinni brugghúsið Faxe í bæn-
um Faxe á Sjálandi sem átti að sjá
heimamönnum fyrir góðum bjór. Í dag
er Faxe eitt stærsta brugghús Norður-
landa og Faxe mest útflutti bjór á
Norðurlöndum.
Á heimamarkaði hefur Faxe áunnið
sér virðingu kröfuharðra danskra
neytenda og hefur Faxe verið í farar-
broddi með nýjungar, voru t.d. fyrstir
til að kynna bjór í dósum fyrir Dönum
snemma á áttunda áratug síðustu ald-
ar og hófu herferð þar sem þeir
kynntu sig sem framleiðendur fyrir
dönsku þjóðina meðan aðrir voru
framleiðendur fyrir hina konunglegu
dönsku hirð.
Verð á einni dós af Faxe í verslun-
um ÁTVR er kr. 119 og Faxe ferða-
taskan með 12 dósum kostar því kr.
1.428. ■
FAXE-FERÐATASKA
Hentug í útileguna.
Faxe-ferðatöskur í Ríkinu:
Ein taska af bjór
ELÍN MARÍA BJÖRNSDÓTTIR
Elín er mikill matgæðingur. Hún bakar ljúffengar jarðarberjaostakökur.
Uppáhaldsmaturinn:
Steik og
ljúffeng ostakaka
BALDUR HAFSTEINN Á HOLTINU
„Svínalundir eru fljótlegar í matreiðslu og
herramannsmatur fylltar með fetaosti.“