Fréttablaðið - 18.07.2003, Síða 17
ótroðnar slóðir...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
14
07
06
/2
00
3
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
www.utilif.is
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
Þeir sem fara
High Peak - Dakota
Frábært fjölskyldutjald. Stórt fortjald sem
opnast á tvo vegu. Létt og fyrirferðarlítið.
Auðvelt í uppsetningu.
Verð: 3ja manna 24.990 kr.
4ra manna 29.990 kr.
5 manna 34.990 kr.
...nota alvöru útbúnað
og nýta sér ráð sérfræðinga.
High Peak Sonic
Góður fjölskyldupoki fyrir
sumar, vor og haust.
Mesta kuldaþol -10°C.
Þyngd 2,1 kg.
Verð áður 6.990 kr.
Tilboð 5.990 kr.
Meindl Malaysia
Léttir og liprir gönguskór,
góðir í útileguna.
Verð áður 12.990 kr.
Tilboð 9.990 kr.
High Peak
Tvöföld vindsæng
með velúráferð.
Stærð 137x188 cm.
Verð áður 3.990 kr.
Tilboð 2.990 kr.
FÖSTUDAGUR 18. júlí 2003
Vín frá Suður-Afríku hafa notiðmikilla vinsælda undanfarin
ár og er meginástæðan sú að
þessi vel gerðu vín eru á afar
hagstæðu verði. Einn af betri
framleiðendum landsins er Bon
Courage, sem hefur verið stjórn-
að í tvær aldir af afkomendum
franskra innflytjenda. Hér á
landi fást nokkur vín frá þessum
framleiðanda í ÁTVR.
Hvítvínið Bon Courage
Sauvignon Blanc fæst í flestum
vínbúðum og kostar 990 kr. Það
er ferskt og létt með sætum und-
irtón og hentar vel með
kjúklingaréttum, skelfiski hvers
konar og reyktum laxi.
Rauðvínið Bon Courage Shiraz
fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og
kostar 1.190 kr. Þetta er mikið
vín með ríkulegu bragði af berj-
um og hentar sérlega vel með
steikum, gröfnu lambakjöti,
lambakjötspottréttum og kröft-
ugum ostum.
Einnig tilvalið með hvers kon-
ar grilluðu og bragðmiklu kjöti. ■
Verðið á íslensku grænmeti er ílágmarki þessa dagana, að
sögn Aðalsteins Guðmundssonar,
sölustjóra hjá Sölufélaginu. Því er
tilvalið að nýta sér það að búa til
gómsætt salat úr íslensku græn-
meti. „Á markað er einnig að
koma nýtt blómkál, gulrætur og
spegilkál. Erlent grænmeti er
einnig flutt inn en það eru fram-
boð og eftirspurn sem stjórna
verðinu,“ segir Aðalsteinn.
Í sumar hafa skilyrði til rækt-
unar verið mjög góð og því er
grænmetið fyrr á ferðinni en
venjulega. Kínakál kom fyrir
skömmu en Aðalsteinn segir að
hámark framboðs á íslensku
grænmeti verði um mánaðarmót-
in næstu og þá verði allar tegund-
ir komnar í búðirnar. ■
ÍSLENSKT
GRÆNMETI Á
MARKAÐ
Hámark fram-
boðsins verður
um mánaðamótin
en þá verða allar
tegundir komnar
á markað.
Íslenskt grænmeti:
Tómatar og
gúrkur á góðu verði
Vín vikunnar:
Bon Courage
VÍN VIKUNNAR
Bon Courage framleiðir
úrvalsvín. bæði rauð og hvít.