Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 18
Eftir 12 ára bið er þriðjamyndin um Tortímandann
loksins kominn á hvíta tjaldið.
Lengi vel var óvíst hvort af
framleiðslu myndarinnar yrði,
sérstaklega eftir að ljóst var að
James Cameron, sem leikstýrði
fyrstu tveimur myndunum af
mikilli röggsemi, yrði ekki með í
þetta skiptið. Auk þess neitaði
Linda Hamilton að fara með
hlutverk Sarah Connor í þriðja
skiptið og Edward Furlong, sem
sló í gegn í hlutverki sonar henn-
ar, John Connor, í Terminator 2:
Judgement Day, var rekinn úr
hlutverkinu vegna persónulegra
vandamála.
Framleiðendur myndarinnar
létu þessi skakkaföll ekki á sig
fá. Ráðinn var leikstjórinn Jon-
athan Mostow, sem hafði vakið
athygli fyrir tryllinn Breakdown
með Kurt Russell í aðalhlutverki
og kafbátamyndina U-571.
Í stað Furlong var Nick Stahl,
sem stóð sig vel í hlutverki ást-
manns Marisa Tomei í myndinni
In the Bedroom, fenginn í hlut-
verk John Connor. Auk þeirra
var ungstirnið Claire Danes ráð-
ið til leiks, en hún á m.a. að baki
myndina Rómeó og Júlía eftir
Baz Luhrmann.
Arnold Schwarzenegger er
sem fyrr í hlutverki tortímand-
ans. Ferill hans hefur verið á
nokkurri niðurleið síðan Term-
inator 2 sló í gegn og því ekki úr
vegi fyrir hann að reyna að end-
urvekja vinsældir sínar með
þriðju myndinni.
Söguþráður Terminator 3:
Rise of the Machines er á þann
veg að nú eru liðin tíu ár frá
þeim atburðum sem áttu sér
stað í Terminator 2: Judgement
Day. John Connor, framtíðar-
leiðtogi andspyrnuhreyfingar
mannfólksins gegn vélunum, er
óbreyttur verkamaður. Móðir
hans, Sarah Connor, er látin og
þrátt fyrir hetjulega baráttu
þeirra í annarri myndinni náðu
þau ekki að koma í veg fyrir að
gervigreindarfyrirtækið Sky-
Net yrði sett á laggirnar.
Til þess að koma í veg fyrir
að Connor verði andspyrnuleið-
togi sendir SkyNet tortímanda
úr framtíðinni til að gera út af
við hann. Þessi nýi kvenkyns
tortímandi, T-X, sem er leikinn
af fyrirsætunni fyrrverandi
Kristanna Loken, er mun öfl-
ugri en fyrirrennarar hans. Til
að vernda Connor sendir and-
spyrnuhreyfingin vélmennið T-
101 (Schwarzenegger) úr fram-
tíðinni og í hönd fer æsileg bar-
átta um framtíð mannkyns. ■
Red Dragon
Þriðja og besta myndin um mesta
illmenni kvikmyndanna, Hannibal
Lecter. Anthony Hopkins snýr aftur
sem mannætan ógurlega…
Góð mynd fyrir grillveisluna!
Tvöfaldur diskur –
stútfullur af frábæru
aukaefni!
2.399
bíó o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um kvikmyndir
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bio@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Terminator 3: Rise of the Machines:
Schwarzenegger
í kvenmannsklóm
Disney-kvikmyndaframleið-andinn er þegar farinn að
skipuleggja framhald myndarinn-
ar Pirates of the
Caribbean.
Myndin fór
beint á toppinn
á bandaríska að-
sóknarlistanum
á dögunum og
hefur hlotið
góða dóma gagnrýnenda. Johnny
Depp, Orlando Bloom og Keira
Knightley hafa öll samþykkt að
leika í framhaldinu.
Ofurmennið Christopher Reeveer á leið til Ísraels þar sem
hann mun hitta þá sem komist
hafa lífs af úr sprengjuárásum
Palestínumanna.
Reeve, sem lam-
aðist er hann féll
af hestbaki árið
1995, ætlar að
stappa stálinu í
þá sem hlotið
hafa svipuð örlög og hann og
hvetja þá til að halda áfram að
lifa lífinu þrátt fyrir líkamleg
meiðsli. Reeve, sem er fimmtug-
ur, ætlar einnig að nota ferðina
til að ræða við sérfræðing í
taugalækningum hjá Weizman-
stofnuninni.
Þrátt fyrir að „aðeins“ fimm árséu liðin frá síðasta leik-
stjórnarverkefni Terrence
Malick hefur
hann nú ákveðið
að stýra mynd-
inni Che. Myndin
fjallar um ævi
byltingarsinnans
Che Guevara og
fer Benicio Del
Toro með aðal-
hlutverkið. Leikstjórinn Steven
Soderbergh er einn af framleið-
endum myndarinnar. Malick lét á
sínum tíma líða 20 ár á milli
myndanna Days of Heaven, sem
hann gerði árið 1978 og The Thin
Red Line.
Leikarinn Will Smith ætlar aðtaka að sér hlutverk í nýrri
kvikmynd sem er byggð á sann-
sögulegum atburð-
um. Fjallar hún um
bandarískan millj-
ónamæring sem eitt
sinn bjó á salerni
lestarstöðvar ásamt
ungum syni sínum.
Í KVIKMYNDAHÚSUM ÞESSA VIKUNA
Morgunblaðið DV IMDb Empire Rottentomatoes Meðaltal
(af 4) (af 4) (af 10) (af 5) (af 5) (af 10)
Nói Albínói 3 1/2 3 1/2 7.7 X X 8,3
Respiro 3 1/2 3 7.4 X 83% Fersk 8
Phone Booth 3 3 7.6 4 73% Fersk 7,6
The Matrix Reloaded X 2 7.4 4 75% Fersk 7
Hulk 2 3 6,3 4 61% Fresk 6,58
Identity 3 3 7.0 2 66% Fersk 6,5
Dark Blue 2 1/2 3 6.5 3 56% Rotin 6,37
En La Puta Vida 2 1/2 2 1/2 6.6 X X 6,37
Töfrabúðingurinn X X 5.8 X X 5,8
Anger Management 2 1/2 X 6.0 3 42% Rotin 5,6
Jet Lag X X 5,6 X 57% Rotin 5,6
Agent Cody Banks 2 1/2 X 5.4 X 42% Rotin 5,3
Hollywood Ending 2 2 6.3 X 47% Rotin 5,25
Bringing Down the House X 2 5.9 2 35% Rotin 4,6
How to Lose a Guy... X 1 1/2 6.2 3 39% Rotin 4,6
Charlie’s Angels 2 1 1/2 2 5,6 2 38% Rotin 4,43
The Lizzie McGuire Movie 2 1 1/2 5.1 X 38% Rotin 4,3
2 Fast 2 Furious 1 1/2 2 5.0 X 32% Rotin 4,2
Dumb and Dumberer 2 X 3.9 2 11% Rotin 3,5
Skógarlíf 2 X X 5.1 1 21% Rotin 3
Kangaroo Jack 2 X 2.8 X 8% Rotin 2,9
TERMINATOR 3
Fyrsta Terminator-myndin var gerð árið
1984. Hún festi Arnold Schwarzenegger í
sessi sem alþjóðlega hasarmyndahetju.
Terminator 3: Rise of the Machines:
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 7,6/10
Rottentomatoes.com - 74%=Fresh
Los Angeles Times - 4 stjörnur af 5
Leikkonan Diane Lane er búin að trú-lofast kærasta sínum, leikaranum
Josh Brolin. Lane, sem var tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Un-
faithful, var áður gift leikaranum
Christopher Lambert. Á hún með honum
eina dóttur. Brolin var giftur leikkon-
unni Alice Adair og á með henni tvö
börn.