Fréttablaðið - 18.07.2003, Page 19
árita 22 ferðalög ásamt því að syngja og leika
nokkur lög af plötunni
Skeifunni Kringlunni
laugardag kl. 14:00föstudag kl. 17:00
sunnudag kl. 14:00
Smáralind
laugardag kl. 15:00
í Hagkaupum
22 ferðalög
kk & maggi eiríks
Lagalisti
Ó, nema ég
Suður um höfin
Ég er kominn heim
Sestu hérna hjá mér ástin mín
Flökku Jói
Heyr mitt ljúfasta lag
Einu sinni á ágústkvöldi
Ó, Jósep, Jósep
Mikið var gaman af því
Nú liggur vel á mér
Komdu inn í kofann minn
Kötukvæði
Ó, María, mig langar heim
Litla flugan
Sveitaball
Í kjallaranum
Ljúfa Anna
Anna í Hlíð
Þórsmerkurljóð
Komdu í kvöld
Viltu með mér vaka
Ég veit þú kemur
lagatextar og
gítargrip fylg
ja með
1.999kr
FÖSTUDAGUR 18. júlí 2003 19
Hin 17 ára gamla Amanda By-nes fer með aðalhlutverkið í
gamanmyndinni What a Girl
Wants. Við hlið hennar leikur
hinn geðþekki breski leikari Col-
in Firth, sem er m.a. þekktur
fyrir hlutverk sitt sem Mark
Darcy í hinni vinsælu Bridget
Jones’ Diary.
Söguþráður myndarinnar er í
stuttu máli sá að Daphne er ung
amerísk stelpa sem hefur alist
upp hjá hippalegri mömmu sinni
síðan hún man eftir sér. Þegar
hún verður 19 ára ákveður hún
að fara til Englands, þar sem
faðir hennar (Colin Firth) býr, til
að reyna að mynda samband við
hann.
Þegar hún kemur þangað
kemur í ljós að hann er þekktur
stjórnmálamaður sem vegna
starfsins þarf mikið að umgang-
ast annað fólk. Daphne verður
því að reyna að passa inn í það
sem er ætlast til af honum á
meðan hún er að kynnast föður
sínum, takast á við hina dóttur
hans og halda sinni eigin ímynd.
Með önnur hlutverk í mynd-
inni fara Kelly Preston (eigin-
kona John Travolta), Tom
Harper, Anna Chancellor og Jon-
athan Pryce.
Leikstjóri er Dennie Gordon,
sem leikstýrði síðast myndinni
Joe Dirt. ■
Leikkonan Sharon Stone fermeð gestahlutverk í þremur
þáttum lögfræðidramans The
Practice, sem verða sýndir í
Bandaríkjunum í haust.
David E. Kelley, höfundur þátt-
anna, vill ekkert láta uppi um
hvers konar persónu Stone mun
leika. „Það er hluti af fléttu þátt-
anna sem við viljum ekki að
áhorfendur fái að vita strax,“
sagði Kelley. Hann bætti því við
að hugsanlega muni Stone leika í
fleiri þáttum.
Stone er þekktust fyrir hlut-
verk sitt í tryllinum Basic Instinct
sem kom út árið 1992. Hún fékk á
sínum tíma Óskarstilnefningu
sem besta leikkonan fyrir hlut-
verk sitt í Casino. ■
STONE
Sharon Stone sló í gegn í Basic Instinct.
Sharon Stone:
Leikur í
The Practice
Í LUNDÚNUM
Daphne fer til Englands til að
heimsækja föður sinn og lendir
þar í ýmsum ævintýrum.
What a Girl Wants:
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 5,4/10
Los Angeles Times - 3 stjörnur af 5
Rottentomatoes.com - 37%=rotten
What a Girl Wants:
Daphne kynnist föður sínum
Mynd um Katharine Hepurn í uppsiglingu:
Cate Blanchett leikur Hepurn
Martin Scorsese ætlar aðgera mynd um stórstjörn-
una Katharine Hepurn. Með
hlutverk hennar fer ástralska
leikkonan Cate Blanchett. Það er
vel við hæfi að gera ævi stór-
leikkonunnar skil á hvíta tjald-
inu þar sem hún vann svo marga
stórsigra á 20. öldinni. Katharine
Hepurn lést fyrir skömmu, 96
ára að aldri. Stuttu síðar kom
ævisaga hennar út og það er
óhætt að segja að þar sé að finna
efnivið í kvikmynd.
„Það er varla hægt að finna
leikkonu á lífi sem ekki elskar og
dáir Hepurn og kvikmyndir henn-
ar,“ sagði Blanchett í viðtali við
BBC. Hún sagði Hepurn hafa ver-
ið mikla fyrirmynd sína í starfi.
Í myndinni um Hepurn munu
einnig Leonardo DiCaprio, Kate
Beckinsale og Gwen Stefani úr
hljómsveitinni No Doubt fara með
hlutverk. Enn hefur ekki verið gef-
ið upp hvenær tökur á myndinni
hefjast.
Scorsese á margar stórmyndir
að baki, en nú síðast leikstýrði
hann myndinni Gangs of New
York. Cate Blanchett hefur leikið í
mörgum stórmyndum undanfarið,
m.a. Lord of the Rings. Hún sló
fyrst í gegn svo um munaði í
myndinni Elizabeth, sem sagði frá
ævi Elísabetar fyrstu Englands-
drottningar. ■
KATHARINE HEPURN
Sést hér í kvikmyndinni On Polden Pond með Henry Fonda. Hún fékk sín fjórðu
Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í myndinni.
CLAUDIA CARDINALE
Ítalska leikkonan var að vonum ánægð þeg-
ar hún hlaut Gullna eplið í Stuttgart á dög-
unum. Verðlaunin hlaut hún fyrir framlag
sitt til evrópskrar kvikmyndagerðar. Verð-
launin eru veitt til evrópskra leikara ár hvert.