Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 28
45 ÁRA Það er frábært að vera orðinn
fullorðinn,“ segir afmælisbarn dags-
ins, Mummi í Götusmiðjunni, sem er
45 ára í dag. „En þegar ég lít í spegil
blasir alltaf við mér unglingurinn
Mummi, ekki af því ég líti svo vel út,
heldur af því mér líður bara þannig.
Þetta er eitthvað fyrir þerapistana
að kíkja á,“ segir hann kampakátur,
og undirstrikar að hann sé þó löngu
búinn með gelgjuna og að ekki örli á
gráum fiðringi.
Afmælisdagurinn verður ein
samfelld gleði hjá Mumma. „Ég
byrja daginn snemma norður í
Svartá í Húnavatnssýslu. Þar verð
ég í nýju vöðlunum mínum með
bambusinn úti í á, en vöðlurnar gaf
ég sjálfum mér í afmælisgjöf.
Þarna er ég í frábærum félagsskap
valinkunnra manna, meðal annars
tengdapabba.“
Þegar veiðitímanum lýkur í
Húnavatnssýslunni liggur leið
Mumma til Reykjavíkur. „Það
verður gífurlegt kapphlaup að
komast í bæinn, (á löglegum hraða
að sjálfsögðu!), því stórvinir mínir,
Örvar Daði og Freyja, eru að gifta
sig klukkan fjögur.“ Mummi segist
vita til þess að konan hans, Marsi-
bil Sæmundsdóttir, sé að skipu-
leggja eitthvert leyniafæmli, en
vill ekki tjá sig frekar um það.
Hinsvegar á ég annað afmæli 21.
júní sem mér þykir ennþá vænna
um,“ segir hann. „21. júní síðastlið-
inn átti ég 11 ára edrú afmæli, og
það er miklu merkilegra,“ segir
hann ánægður. Annars segist
Mummi ekki vera mikill veislumað-
ur. Það er hins vegar aldrei að vita
nema hann haldi ræðustúf í brúð-
kaupsveislunni.
„Eða einhver úr strákaklúbbn-
um, ég væri vís með að missa eitt-
hvað út úr mér sem væri ekki við-
eigandi.“ ■
28 18. júlí 2003 FÖSTUDAGUR
Strákur bauð ljóshærðri kærustusinni m&m. Hún tók glöð við
namminu en henti öllu brúna m&m-inu.
Strákurinn spurði forviða hvers vegna
hún hefði gert þetta. „Ég er með ofnæmi
fyrir súkkulaði,“ sagði hún.
■ Jarðarfarir
■ Hreyfingin mín
Með súrmjólkinni
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Kjell Magne Bondevik.
Sigurður G. Guðjónsson.
Grænlandi.
Afmæli
GUÐMUNDUR TÝR
ÞÓRARINSSON
■ betur þekktur sem Mummi í Götu-
smiðjunni, á afmæli í dag. Hann heldur
daginn hátíðlegan með vinum sínum
sem eru að gifta sig.
Veldu náttúruliti
frá Íslandsmálningu
Nýtt afl á málningarmarkaði
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Allar Teknos vörur skv. ISO 9001 gæðastaðli.
w w w . i s l a n d s m a l n i n g . i s
ÍSLANDS MÁLNING
akrýlHágæða
málning
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Lit
la
pr
en
t
Er komin tími
til að mála?
13.30 Sigurrós Sigurðardóttir, Hrafn-
istu, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
13.30 Sigurþór Júníusson, Grenilundi 8,
Garðabæ, veður jarðsunginn frá
Garðakirkju.
14.00 Sigríður Guðbjörg Sigurðardótt-
ir, Vífilsdal, Hörðudalshreppi,
verður jarðsungin frá Snóksdal.
JÓJÓ OG KALLI
Jójó fær hér afhenta fyrstu geisladiskana,
tekna upp á götunni, sem hann mun selja
í Austurstræti.
Tók upp
disk í
Austurstræti
GÖTUTÓNLIST „Þessi diskur er tek-
inn upp í Austurstræti,“ segir
maðurinn sem vill ekki ganga
undir neinu öðru nafni en Jójó,
eða réttara sagt Alþýðugötulista-
maðurinn Jójó.
„Margir ættu að kannast við
mig með gítarinn í Austurstræti.
En ég spilaði líka með Bruce
Springsteen á sínum tíma á Strik-
inu. Ég er sá trúbador og nú er ég
kominn með disk sem ég mun
selja sjálfur. Fólk verður bara að
spyrja um hann.“
Jójó fékk fyrstu eintökin af-
hent frá sínum helsta stuðnings-
manni, Karli Hjaltested á Grand
Rokk, en diskurinn er kallaður
Óður til norðursins og Jójó segir
þetta ekki eiga að vera neinn met-
söludisk að hætti Bubba eða KK
enda Jójó sáttur við Austurstræti
sem sína tónleikahöll:
„Ég er meira að segja með
skriflegt leyfi frá lögreglunni.
Þeir þekkja mig. Bara af góðu,
sjáðu til en ég er þekktur fyrir
gleði og mikinn húmor. Er hálfur
varnarliðsmaður og í raun restin
af Marshall-aðstoðinni,“ segir
Jójó og hlær. ■
Þar til fyrir skömmu var ég númest í því að opna augun bara
og hreyfði mig sem minnst,“ segir
Sverrir Stormsker tónlistarmaður
en það breyttist þegar hann fjár-
festi í eldra húsi með stórum
garði. „Nú er ég að koma mér upp
matjurtagarði og smíða stúdíó og
vinna í endurbætum á húsinu. Svo
ég er að smíða og djöflast í mold-
inni. Er moldríkur í fyrsta skipti á
æfinni. Finn líka svoldið fyrir því
núna að ég hef eiginlega hreyft
mig of mikið. Eða of lítið kannski
í gegnum tíðina. En þetta er rosa-
lega gaman og algjör óhæfa hvað
maður er skyndilega orðinn heil-
brigður.“ ■
Ferðamenn geta borðað frítt áBlönduósi á morgun í boði
bæjarstjórnarinnar á staðnum.
Eru ókeypis máltíðir hluti af há-
tíðarhöldum Blönduóssbúa, sem
þeir nefna Matur og menning, en
þar sýna heimamenn allt það
besta sem í þeim býr og framleitt
er á svæðinu. Ókeypis veisluborð-
ið verður einmitt hlaðið afurðum
úr bænum og nærliggjandi sveit-
um. Hátíðin verður sett í dag þeg-
ar Jóna Fanney Friðriksdóttir
bæjarstjóri ríður fánum skreytt í
fararbroddi hestamanna inn í bæ-
inn. Á veisluborðinu verður þetta
(ókeypis):
• Nætursaltaður fiskur í
pestosmjöri frá Norðurósi.
• Marineraðar eðalrækjur með
suðrænum ávaxtakeim frá
Særúnu.
• Húnvetnsk marineruð og lét-
treykt lambasteik beint af grill-
inu.
• Alvöru skonsur með hangikjöti
og osti frá Vilko.
• Vöfflur með sultu og rjóma frá
Vilko.
„Hér verður mikið fjör með
dansleikjum og öllu sem fylgir
svona hátíðum. En við ætlum að
byrja með því að heiðra lögregl-
una á staðnum og veita henni við-
urkenningu fyrir að bæta mann-
lífið hér,“ segir Jóna Fanney bæj-
arstjóri. „Við erum í 2 1/2 tíma
fjarlægð frá höfuðborginni og það
er vel þess virði að aka þennan
spöl fyrir allt sem hér verður í
boði.“
Hátíðin á Blönduósi hefst í dag
og lýkur á sunnudag. Kræsingarn-
ar á veisluborðinu verða hins vegar
aðeins ókeypis á laugardaginn. ■
MUMMI Í GÖTUSMIÐJUNNI
Segist vera dæmigerður krabbi og þurfa að
eiga hlýlegt og notalegt heimili þar sem
hann getur hlaðið batteríin.
Örlar ekki á gráum fiðringi
JÓNA FANNEY FRIÐRIKSDÓTTIR
Vel þess virði að aka 250 kílómetra úr Reykjavík til Blönduóss – þó ekki væri nema kræs-
inganna vegna.
Matur
■ Bæjarstjórnin á Blönduósi býður
ferðamönnum ókeypis að snæða af sæl-
keraborði á staðnum á laugardaginn. Þá
halda heimamenn hátíð sem þeir nefna
Matur og menning.
Frítt að borða
á Blönduósi