Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 30
Hrósið 30 18. júlí 2003 FÖSTUDAGUR
Berglind er fædd í Reykjavík enflutti árs gömul til Bretlands
þar sem hún bjó til sex ára aldurs.
Þaðan lá leiðin á Seltjarnarnesið
þar sem hún hefur búið með hléum
síðan. Foreldrar Berglindar eru
Katrín Sveinsdóttir kírópraktor og
Gunnar Pétur Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Búseta og Junior
Achivement á Íslandi.
„Ég fór ekki að læra efnafræði
fyrr en í menntaskóla og gekk
námið vel,“ segir Berglind. „Ég
ákvað svo að fara í undankeppni
fyrir Ólympíuleikana og það gekk
svona glimrandi. En efnafræði-
áhuginn var ekki sérstaklega mik-
ill fyrir,“ segir hún brosandi.
Ólympíukeppnin var í tveimur
hlutum, verklegum hluta sem gilti
40% og fræðilegum hluta sem gilti
60%.
„Verklegi hlutinn felst í tveim-
ur tilraunum sem taka marga
klukkutíma. Við þurfum að búa til
allskonar efni og rannsaka inni-
haldið,“ segir hún og telur að flest-
ir geti lært efnafræði. „Þetta er
auðvitað stærðfræði, en líka lest-
ur.“
Berglind á eitt ár eftir í MR, en
í sumar vinnur hún á Bæjarskrif-
stofum Seltjarnarness fyrir utan
að þjálfa 6-11ára krakka í frjálsum
íþróttum og skúra. Áhugamálin
tengjast íþróttum en Berglind hef-
ur æft frjálsar frá því hún var ung
að aldri. „Svo hef ég verið sjálf-
boðaliði hjá skiptinemasamtökun-
um AFS, því ég fór sjálf til Banda-
ríkjanna sem skiptinemi árið 2000.
Það var stórkostlegt ævintýri.“
Þar fyrir utan er Berglind mik-
ið með vinum sínum og hefur gam-
an af ferðalögum og útivist.
„Stefnan er svo tekin á frekara
nám að stúdentsprófi loknu, en ég
stefni ekki að því að fara í efna-
fræði, heldur læknisfræði,“ segir
Berglind. ■
Persónan
BERGLIND GUNNARSDÓTTIR
■ nemi í MR, náði níunda besta árangri
í verklegum hluta 35. Ólympíukeppninn-
ar í efnafræði. Keppnin var haldin í Aþ-
enu í Grikklandi 5. - 14. júlí síðastliðinn,
en keppendur voru 232 frá 59 löndum.
... fær Björk fyrir að auka ekki á
vanda ríkissjóðs með því að taka
fæðingarorlof.
Fréttiraf fólki
Efnafræði í bland við íþróttir
Ölstofan er einn vinsælastibarinn í miðbæ Reykjavíkur.
Þar safnast saman rjóminn úr ís-
lenskum fjölmiðlum, leikhúsum
og athafnalífi. Hin svokallaða 101
elíta er þarna
og fær góða
þjónustu frá
starfsfólki
Kormáks og
Skjaldar en
það eru pilt-
arnir sem ráku
samnefnda
fatabúð á
Skólavörðu-
stígnum á sínum tíma. En staður
þessi, Ölstofan, var áður homma-
barinn Mannsbar, og því ekki
gert ráð fyrir að stúlkur þyrftu
að þyrpast á salernið um helgar.
Svo um hverja helgi myndast svo
langar raðir að margar skærustu
kvenstjörnur Íslands neyðast til
að halda í sér út nóttina eða
hreinlega fara á næsta bar til að
komast á klósettið.
Kínverska sendiráðið keyptisem kunnugt er gömlu höfuð-
stöðvar Vinnuveitendasambands-
ins í Garðastræti. Þar hefur við-
skiptanefnd sendiráðsins aðsetur
og stendur nú fyrir miklu jarð-
raski á stórri baklóðinni. Ætla
Kínverjarnir að byggja tennisvöll
í garðinum en til þess þurfa þeir
að reisa háa girðingu við
garðsendann svo tennisboltarnir
fljúgi ekki yfir á Suðurgötu. Hafa
nágrannar vissar áhyggjur af
þessari girðingu og væntanlegu
tennisspili Kínverjanna og leitað
fulltingis Byggingafulltrúans í
Reykjavík. Hann vill hins vegar
stíga varlega til jarðar í þessu
máli. Tæpast sé við hæfi að
banna kínverskum gestum að
spila tennis í eigin garði.
■ Leiðrétting
Vegna veðurblíðunnar að undanförnu skal
tekið fram að stuttbuxur fara kvenfólki mis-
jafnlega vel.
BERGLIND GUNNARSDÓTTIR
Gengur vel í efnafræði, en stefnir í læknis-
fræði að stúdentsprófi loknu.
Halldís Halldórsdóttir, hús-freyja á Bíldhóli á Skógar-
strönd, saumar föt á hesta. Heyrir
það til nýmæla:
„Ég er fátækur sauðfjárbóndi
og þetta er ágætt með búskapn-
um,“ segir Halldís sem þegar hef-
ur saumað mörg hundruð yfir-
hafnir á hross úr flísefni. Yfir-
hafnirnar eru til að halda hita á
hrossunum þótt náttúran segi svo
um að það eigi þau að gera sjálf.
„Að sjálfsögðu halda hross á sér
hita sjálf ef maðurinn væri ekki
að svita þau svona. Það er þá sem
ég kem inn í dæmið,“ segir hús-
freyjan á Bíldhóli.
Flískápur Halldísar eru fram-
leiddar í ýmsum litum en sjálf
segir hún að grasgrænu kápurnar
séu að komast í tísku. Svart og
rautt sé einnig vinsælt: „Þetta er
með gjörð og spennum og fellur
vel að hrossinu. Kaupendur geta
svo fengið þetta merkt nafni sínu
eða nafni hestsins. Ég hef séð
hross velta sér í þessu án þess að
nokkuð færi úrskeiðis. Þá er ég
nýbyrjuð að framleiða yfirhafnir
fyrir keppnishesta en þær ná al-
veg fram að eyrum og falla þétt
að hálsi. Keppnismönnum finnst
gott að hafa þetta til að halda hita
á hrossunum þegar beðið er eftir
að koma fram í keppni. Þá henta
yfirhafnirnar vel þegar verið er
að flytja hross í kerrum,“ segir
Halldís sem býr með 350 fjár á
Bíldhóli ásamt eiginmanni sínum.
Auk fjárins eru þau með mörg
hross og geta haft þau velklædd
ef þannig viðrar.
„Ég byrjaði á þessu fyrir fjór-
um árum og allt hefur gengið
framar vonum. Saumastofuna er
ég með hérna heima hjá mér á
Skógarströndinni og líkar vel. Þá
er ég einnig farin að framleiða
eyrnahlífar úr flísi á reiðhjálma
svo knapar þurfi ekki að vera með
húfur undir hjálminum,“ segir
Halldís sem einnig gengur í flís-
kápum þegar hún þarf að halda á
sér hita.
eir@frettabladid.is
VEL KLÆTT HROSS
Yfirhafnirnar af Skógarströndinni seljast vel um allt land.
Saumakona
■ Halldís Halldórsdóttir, húsfreyja á
Bíldhóli á Skógarströnd, saumar yfirhafnir
á hross heima hjá sér og selur víða um
land. Segir saumaskapinn góða aukabú-
grein fyrir fátækan sauðfjárbónda.
Saumar föt á hesta
Fréttablaðið óskar eftir blaðberum í eftirtalin hverfi
Fréttablaðið — dreifingardeild
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík – sími 515 7520
Virkir dagar
101-11 Frakkastígur
Laugavegur
Skúlagata
101-37 Garðastræti
Hólatorg
Kirkjugarðsst.
Suðurgata
Túngata
104-18 Álfheimar
230-18 Eyjavellir
Freyjuvellir
Heimavellir
Norðurvellir
Álsvellir
Óðinsvellir
Helgar
101-11 Frakkastígur
Laugavegur
Skúlagata
101-23 Marargata
Unnarstígur
Ægisgata
Öldugata
101-25 Bakkastígur
Mýrargata
Norðurstígur
Nýlendugata
Ægisgata
101-26 Aragata
Eggertsgata
Oddagata
Suðurgata
104-24 Skipasund
Sæviðarsund
105-36 Hverfisgata
Laugavegur
107-12 Fornhagi
Kvisthagi
Neshagi
110-15 Fiskakvísl
Laxakvísl
Reyðarkvísl
110-16 Seiðakvísl
Silungakvísl
Sílakvísl
Árkvörn
190-02 Akurgerði
Aragerði
Heiðargerði
Kirkjugerði
Tjarnargata
Vogagerði
Ægisgata
190-03 Brekkugata
Fagridalur
Hofgerði
Hvammsd.
Hvammsgata
Leirdalur
Suðurgata
200-03 Kópav.br.
Meðalbraut
Skjólbraut
200-14 Huldubraut
Marbakkabr.
210-41 Engimýri
Fífumýri
Krókamýri
Langamýri
220-01 Drangagata
Flókagata
Herjólfsgata
Klettagata
Langeyrarv.
Skerseyrarv.
230-07 Háteigur
Smártún
Vesturgata
Vörðubrún
230-08 Bakkavegur
Bergvegur
230-08 Birkiteigur
Greniteigur
Kirkjuvegur
Vesturbraut
Vesturgata
230-14 Austurgata
Baldursgata
Básvegur
Framnesv.
Hafnargata
Heiðarvegur
Hrannargata
Suðurgata
Vatnsnesv.
Víkurbraut
230-15 Austurbraut
Faxabraut
Hringbraut
Hólabraut
Njarðargata
Sólvallagata
230-16 Brekkubraut
Hringbraut
Mánagata
Sólvallagata
Vatnsnesv.
Ásabraut
230-18 Eyjavellir
Freyjuvellir
Heimavellir
Norðurvellir
Álsvellir
Óðinsvellir
230-19 Heiðarbrún
Hrauntún
Hátún
Langholt
Tjarnargata
230-21 Aðalgata
Hringbraut
Kirkjuteigur
Melteigur
230-22 Blikabraut
Háaleiti
Sunnubraut
250-03 Gauksst.vegur
Gerðavegur
Melabraut
Skólabraut
Sunnubraut
600-05 Byggðavegur
Goðabyggð
Hrafnagilsstr.
Vanabyggð
600-06 Barrlundur
Beykilundur
Grenilundur
Kjarrlundur
Lerkilundur
Reynilundur
600-18 Hamarsstígur
Helgam.str.
Hlíðargata
Holtagata
Lögbergsgata
Þingvallastr.
Þórunnarstr.
600-22 Aðalstræti
Búðarfjara
Duggufjara
Naustafjara
600-31 Hringteigur
Miðteigur
Mosateigur
Skálateigur
Einnig
vantar
okkur
fólk á
biðlista
Það virðist vera sama hversuhátt við hengjum fánann, hon-
um er alltaf stolið,“ segir Ingunn
Mýrdal en hún rekur, ásamt
mömmu sinni og systur, eina
homma- og lesbíukaffihúsið á Ís-
landi, Kaffi Cozy í Austurstræti:
„Ég er sjálf búin að elta fólk í tví-
gang sem rífur fánann niður en
við erum búnar að tapa yfir 5 fán-
um.“
Kaffi Cozy opnaði
fyrir ári síðan en þær
mæðgur, Ingunn Mýr-
dal, Ásta B. Vilhjálms-
dóttir og Maggý Mýr-
dal, ákváðu nú fyrir
skömmu að breyta
kaffihúsinu í griðar-
stað homma og lesbía.
Þann eina sinnar teg-
undar á Íslandi fyrir
utan Spotlight:
„Spotlight er meira
svona skemmtistaður,“
segir Ingunn en hún er
lesbía: „Ég er eina
lesbían af okkur
mæðgunum.“
Ingunn segir fólk
hafa tekið breytingu
staðarins mjög vel og
gagnkynhneigða gesti
ekki fælst burt:
„Ég hef heldur ekki
orðið fyrir neinum fordómum og
sýnist Íslendingar vera orðnir
mjög opnir og umburðarlyndir.“ ■
Fána homma
og lesbía stolið
Samkynhneigð
■ Mæðgurnar á Kaffi Cosy hafa breytt
staðnum í eina kaffihús homma- og les-
bía. Þær ætlla að hengja nýja fánann
hærra upp en þá fyrri.
INGUNN MÝRDAL
Á myndina vantar Ástu B. Vilhjálmsdóttur og Maggý Mýr-
dal, tvær af mæðgunum sem reka homma- og lesbíu-
kaffihúsið Kaffi Cozy. Þetta er eina kaffihúsið sinnar teg-
undar á Íslandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SIGRÍÐUR MARÍA
Fyrrverandi slöngudansmær nuddar fyrir
vestan.
Nudd
í vinnunni
ÍSAFJÖRÐUR „Ætli vestfirskar konur
séu ekki bara allt öðru vísi en aðr-
ar,“ segir Sigríður María Gunn-
arsdóttir sem nýlega hlaut styrk
frá félagsmálaráðherra til að
stunda vinnustaðanudd á Ísafirði.
Hugmyndin þykir frumleg fyrir
vestan: „Ég rek nuddstofu hér í
bænum en nú ætla ég af stað og
heimsækja vinnustaði og nudda
fólk þar. Korter á hvern starfs-
mann,“ segir Sigríður María sem
nuddað hefur Ísfirðinga í þrjú ár
en starfaði hér á árum áður sem
slöngudansmær og kom þá meðal
annars fram með hljómsveitinni
B.G. og Ingibjörg. „Þetta er aðal-
lega vöðvaslakandi nudd. Fólk er
orðið svo stirt og sérstaklega þeir
sem sitja daglangt við tölvur. Sá
sem er alltaf með hægri höndina á
músinni lendir í því að vinstri öxl-
in lyftist upp. Hann verður skakk-
ur,“ segir Sigríður María. ■