Fréttablaðið - 18.07.2003, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Sérfræðingur
frá Veiðimanninum
20% afsláttur
af öllum veiðivörum
veitir ráðgjöf í Húsasmiðjunni Smáratorgi,
kl. 12-18 í dag, föstudaginn 18. júlí.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
21
76
6
07
/2
00
3
Sjáðu
Terminator
1 og 2 á DVD
áður en þú
upplifir
Terminator 3
Tilkynning
Mig langar að tilkynna hér meðtil Kauphallar Íslands og ann-
arra sem vilja vita það, að ég keypti
mjög stórt innlent olíufélag í gær.
Ég ákvað að kýla á það, átti leið
framhjá, veðrið var gott, það var
einhver púki í mér og það vildi svo
til að ég var með fjársterka aðila á
bak við mig, þannig að ég keypti
draslið.
AUÐVITAÐ er maður dálítið seinn
að tilkynna þetta. Viðurkenni það.
Sérstaklega þykir mér það miður
með tilliti til þess að mér hefur ver-
ið tjáð að það sé áralöng hefð fyrir
því í olíubransanum að vera snöggur
að tilkynna hluti. Einhver sagði mér
að fyrir tilkynningar um verð og
þess háttar væri höfð sérstök fax-
vél. Undir eins og menn fá verðhug-
mynd um bensín eða olíu geta menn
sent tölurnar fljótt og örugglega til
hinna olíufélaganna. Slíkt er til fyr-
irmyndar. Mér þykir leitt að slík
vinnubrögð skyldu ekki hafa verið
viðhöfð nú.
ER það kannski þetta, hin mikla
samkennd, sem gerir það að verkum
að ég vil fara inn í þennan geira?
Hið ljúfa og góðlátlega samkeppn-
isumhverfi? Ég veit það ekki. Það er
ekki ólíklegt. Það er óneitanlega
mjög fallegt þegar samkeppnisaðilar
eru góðir vinir og geta talað saman.
Einn er með verðhugmynd. Er
kannski í vafa um hvort það sé góð
verðhugmynd. Hann getur alltaf
hringt í félaga sína á hinum olíufé-
lögunum og borið hugmyndina undir
þá. Þeir ræða saman og fara yfir
stöðuna. Ekkert laumuspil. Opin um-
ræða. Það er þetta sem er svo heill-
andi. Að geta starfað saman í sam-
keppninni.
ÞETTA SIÐLEYSI með að draga
það að tilkynna kaupin, sem sumir
vilja kalla svo, en ég vísa alfarið til
föðurhúsanna, er auðvitað á ákveð-
inn hátt leiðinlegt mál. Ég er samt
nokkuð viss um að aðrir munu sjá
það með tímanum að það var óhjá-
kvæmilegt. Það var vesen á ljósrit-
unarvélinni og svo var liðið í gjald-
eyrisdeildinni að slóra, og svo fram-
vegis. En allt þetta kom ekki að sök.
Á meðan ég beið eftir því að geta til-
kynnt um kaupin, þá notaði ég nefni-
lega tímann og seldi. Raunar seldi
ég það mikið að ég á ekki þetta olíu-
félag lengur. Tilkynni það hér með
líka. ■
hefur fengið nýtt og glæsilegt útlit og býðst nú betur búinn en áður.
Öflugar vélar, tölvustýrð spólvörn, þriggja punkta bílbelti og höfuðpúðar
fyrir alla farþega. Flex-7 sætakerfið gerir þér kleift að breyta bílnum
eftir þínu höfði á svipstundu. Zafira er glæsilegur án þess að slá af
öryggiskröfum.
Einstaklega rúmgóðar innréttingar en þó nett útlit gera Opel Zafira
að hinum fullkomna fjölskyldubíl.
Komdu, skoðaðu og prófaðu!
Opel Zafira
Öflugar vélar í boði:
• 1,8 ltr. 125 hestöfl• 2,0 ltr. sjálfskipt dísilvél
7 mann
a
Nýtt útlit – meira öryggi
Nú hefur fjölskyldan enn fleiri ástæður til
þess að fá sér splunkunýjan Opel Zafira.
-Þýskt eðalmerkiSævarhöfða 2a · sími 525 9000 · bilheimar@bilheimar.is · www.bilheimar.is
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
5
7
5