Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 4
4 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hvaða lið Landsbankadeildarinn-
ar fellur í 1. deild?
Spurning dagsins í dag:
Ertu sátt(ur) við breytingarnar á fyrir-
komulagi Íslandsmótsins í handbolta?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
23%
9%
Valur
36%Fram
KA
25%
7%
Grindavík
Þróttur
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Fréttu af hrefnuskurði í grennd við hvalaskoðun:
Hvalaskoðunarbáti snúið við
HVALVEIÐAR Formaður Hvalaskoðun-
arsamtaka Íslands hefur sent frá
sér fréttatilkynningu þar sem frá
því er sagt að hvalaskoðunarbátn-
um Hafsúlunni hafi verið snúið við
nálægt Garðsskaga við suðvestur-
odda Faxaflóa þegar upplýsingar
bárust um að hvalveiðiskipið Njörð-
ur KÓ væri þar í grennd að gera að
nýveiddri hrefnu. Það voru skip-
verjar um borði í Gesti sem létu
áhöfn Hafsúlunnar vita af staðsetn-
ingu Njarðar KÓ. Um borð í Gesti
voru myndatökumenn frá World
Television en þeir náðu myndum af
því þegar hrefnan var skorin.
Að sögn Gísla Víkingssonar hjá
Hafrannsóknastofnun hafa hval-
veiðibátar haldið sig frá þeim svæð-
um þar sem hvalaskoðun er stund-
uð. Hafrannsóknastofnun hefur
fengið upplýsingar frá fyrirtækjun-
um um hvar skoðunin fari helst
fram en eitt fyrirtækjanna óskaði
eftir því að hvalveiðarnar færu ekki
fram í Faxaflóa. Hafrannsókna-
stofnun lýsti því yfir að ekki væri
unnt að verða við þeirri kröfu en
hafa veiðibátarnir engu að síður
haldið sig frá þeim svæðum þar
sem hvalaskoðun er algeng. ■
Vöxturinn hafinn
og verðbólga minni
EFNAHAGSMÁL Vöxtur efnahags-
lífsins verður 5,5% á ári að með-
altali til ársins 2006 að mati
Landsbankans. Bankinn kynnti
hagspá sína á morgunverðar-
fundi í gær. Hagvöxturinn mun
að mati bankans valda minni
þenslu en fyrri spár hafa gert ráð
fyrir. Yfirskrift spárinnar var:
Meiri vöxtur – minni þensla. For-
maður bankaráðs Landsbankans,
Björgólfur Guðmundsson, túlk-
aði yfirskriftina yfir á mál
heilsueflingar sem meiri vöðva
og minni fitu í vexti efnahagslífs-
ins. Bankinn gerir ráð fyrir að
verðbólgan fari ekki af stað að
neinu marki og verði á bilinu 2-
3% á tímabilinu. Hagvöxturinn
verður töluverður á þessu ári og
er vaxtarskeiðið fyrr á ferð en
menn höfðu gert ráð fyrir.
Björn Rúnar Guðmundsson,
hagfræðingur Greiningardeildar
Landsbankans, segir ýmsa þætti
vinna gegn þenslu á komandi
hagvaxtarskeiði. Staðan í efna-
hagslífinu sé önnur en hún var
við upphaf síðasta vaxtarskeiðs
árið 1995. Þá hafi uppsöfnuð fjár-
festingarþörf verið mikil og hlut-
fall launa af heildartekjum launa
og fjármagns lægra en nú. Við
þetta bætist að skuldir heimila
hafi vaxið og dregið úr hættu á
ofþenslu. Kaupmáttaraukningin
sem óhjákvæmilega fylgi hag-
vextinum muni vegna skuldsetn-
ingarinnar ekki renna til neyslu
og fjárfestingar í sama mæli og
ella.
Í spánni er gert ráð fyrir því
að launahlutfallið haldi aftur af
launahækkunum. Komi skatta-
loforð ríkisstjórnarflokkanna til
framkvæmda muni það einnig
draga úr líkum á launahækkunum
umfram þol hagkerfisins.
Spá Landsbankans er til ársins
2010. Bankinn gerir ráð fyrir að
hagvöxtur nái hámarki árið 2005
og verði þá 7,3%. Gert er ráð fyr-
ir að hagvaxtarskeiðið endi árið
2006 og 1,5% samdráttur verði
árið 2007.
Landsbankinn gerir ekki ráð
fyrir að Seðlabankinn þurfi að
hækka vexti jafn mikið og í síð-
ustu þenslu, en að stýrivextir
verði 8% þegar þeir verða hæstir.
Björn segir raungengið vissulega
verða hátt, en þó ekki þannig að
það eigi að vera útflutningsgrein-
um og samkeppnisgreinum inn-
anlands veruleg hindrun. Þá gerir
bankinn ráð fyrir að atvinnuleysi
verði meira en í síðustu upp-
sveiflu.
haflidi@frettabladid.is
Fyrirhugað laxeldi í
Seyðisfirði:
Fari í um-
hverfismat
SKIPULAG Umhverfisráðuneytið
hefur snúið ákvörðun Skipulags-
stofnunar þess efnis að eldi á
laxi, silungi og þorski í sjókví-
um í Seyðisfirði þurfi ekki að
fara í umhverfismat.
Í úrskurði umhverfisráðu-
neytisins segir að líklegt sé að
framkvæmdin kunni að hafa í
för með sér umtalsverð um-
hverfisáhrif. Því fellir ráðu-
neytið ákvörðun Skipulagsstofn-
unar úr gildi og fyrirskipar að
framkvæmdin skuli fara í um-
hverfismat. ■
Kópavogur kaupir:
Ríkið selur
við Kópa-
vogshæli
SKIPULAGSMÁL Kópavogsbær
keypti í gær af ríkinu rúmlega 13
hektara landspildu við Þinghól úr
landi Kópavogshælis fyrir 260
milljónir króna. Nokkrar húseign-
ir fylgdu með spildunni.
Að því er kemur fram í frétta-
tilkynningu mun Landspítali – há-
skólasjúkrahús áfram eiga nokkr-
ar lóðir og hús á svæðinu. Þar
verður meðal annars áfram rekin
líknardeild.
Minnihluti Samfylkingarinnar
í bæjarstjórn Kópavogs sagðist í
yfirlýsingu fagna því að bærinn
eignaðist landið en gagnrýndi
vinnubrögð meirihluta Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks
fyrir að kaupin hafi ekki verið
lögð fyrir bæjarstjórn. Málið hafi
aðeins einu sinni verið rætt laus-
lega í bæjarráði:
„Hér er um 260 milljóna króna
fjárfestingu að ræða sem ekki er í
fjárhagsáætlun bæjarins árið
2003 og því er eðlilegt að um mál-
ið sé fjallað í bæjarstjórn áður en
samningar eru undirritaðir,“
sögðu fulltrúar Samfylkingar. ■
Meintur skattsvikari:
Þagði fyrir
dómi
DÓMSMÁL Hálffimmtugur maður
hefur verið ákærður fyrir að hafa
stungið 5,7 milljónum króna undan
virðisaukaskatti.
Ríkislögreglustjóri segir mann-
inn hafa framið brotin í sjálfstæðri
atvinnustarfsemi sinni á árunum
1995 til 2002. Hann hafi gefið út
sölureikninga án þess að hafa
skráð virðisaukaskattsnúmer, van-
rækt að skila virðisaukaskatts-
skýrslum og ekki staðið skil á inn-
heimtum virðisaukaskatti.
Maðurinn tjáði sig ekki um sak-
arefnið við þingfestingu málsins í
Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðju-
dag en lýsir afstöðu sinni næst
þegar málið verður tekið fyrir. ■
HVALVEIÐAR
Hafsúlunni var snúið við þegar upplýsingar
bárust um að hvalveiðiskipið Njörður KÓ
væri þar í grennd að gera að nýveiddri
hrefnu.
VIÐ KÓPAVOGSHÆLI
Kópavogur hefur keypt land við Kópa-
vogshæli.
NÝR BORGARLÖGMAÐUR
Borgarráð samþykkti í gær að
ráða Vilhjálm H. Vilhjálmsson í
stöðu borgarlögmanns. Hjörleif-
ur Kvaran, fráfarandi borgarlög-
maður, hefur verið ráðinn til
Orkuveitu Reykjavíkur. Vilhjálm-
ur hefur frá árinu 1980 verið
sjálfstætt starfandi lögmaður.
ÍR-HÚSIÐ Á ÁRBÆJARSAFN
Borgaryfirvöld hafa ákveðið að
gamla íþróttahús ÍR, sem stóð á
horni Túngötu og Hofsvallagötu,
verði flutt á Árbæjarsafn. Kostn-
aðaráætlun vegna flutnings húss-
ins og uppsetningar á Árbæjar-
safni er um 6 milljónir króna.
ÁLYKTA UM ORKUÖFLUN FYRIR
NORÐURÁL
Á fundi borgarráðs í gær var lýst
yfir ánægju með þær viðræður
sem nú standa yfir milli Orku-
veitu Reykjavíkur og Hitaveitu
Suðurnesja við Norðurál um
orkuöflun vegna stækkunar fyr-
irtækisins. Í ályktun borgarráðs
segir: „Það er mjög mikilvægt
fyrir höfuðborgarsvæðið að af
þessum framkvæmdum verði til
að auka hagvöxt og styrkja at-
vinnulífið.“
■ Borgarmál
SPÁÐ Í HAGVÖXTINN
Bjart er yfir efnahagslífinu og vöxtur fram undan. Að mati Landsbankans er margt sem
bendir til þess að neikvæð áhrif vaxtar verði minni en í síðustu uppsveiflu.
Hagvaxtarskeiðið er hafið, fyrr en vænta mátti. Samkvæmt langtímaspá
Landsbankans verður verulegur hagvöxtur til ársins 2007. Skilyrði í efna-
hagslífinu eru góð og líkur á þenslu minni en fyrri spár gerðu ráð fyrir.
Bæjarráð Akraness á faraldsfæti vegna orkuleysis:
Jákvæðir straumar um álversstækkun
ÁLVER „Raunhæft mat er að þetta
er enn ekki búið. Það eru enn já-
kvæðir straumar í kringum það að
menn treysti sér til að afhenda
næga orku í tíma,“ segir Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi,
um þann lífróður sem nú er róinn
til þess að útvega næga orku til
þess að álver Norðuráls megi
stækka. Bæjarráð Akraness hefur
undanfarið verið á faraldsfæti og
hitt forráðamenn Landsvirkjunar,
Orkuveitu Reykjavíkur og Hita-
veitu Suðurnesja í leit sinni að
orku til að hægt verði að standa
við samninga sem stjórnvöld hafa
gert við Norðurál. Skagamenn
höfðu einnig óskað eftir fundi með
hreppsnefnd Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps sem féllst á að hitta
bæjarráð í síðustu viku. Nú hefur
hreppsnefndin frestað fundinum
þar til í október þar sem nefndin
vill fyrst eiga fund með Lands-
virkjunarmönnum.
Gísli segir að ef Orkuveitunni
og Hitaveitu Suðurnesja takist að
útvega orkuna ljúki baráttunni.
„Við treystum því miðað við
þau viðbrögð sem við höfum
fengið að allir séu að leggjast á
árarnar til að gera þetta að veru-
leika. Ég er hóflega bjartsýnn á
að það takist. En ég er aldrei ör-
uggur fyrr en allt er klárt,“ segir
Gísli.
Hann segist eiga von á því að á
allra næstu vikum muni liggja fyr-
ir hvort orkuöflun takist eða babb
komi í bátinn.
„Norðuráli verður þá væntan-
lega lítið að vanbúnaði. Fjármögn-
un vegna stækkunar álversins
hangir á því að orkan sé til staðar,“
segir Gísli. ■
NORÐURÁL
Bæjarstjóri Akraness er hóflega bjartsýnn á
að það takist að útvega næga orku til
stækkunar álversins.
Marijúana:
Sjúklingar
hafna efninu
OTTAWA, AP Nokkrir kanadískir sjúk-
lingar sem keypt hafa marijúana í
apótekum til að lina þjáningar sínar
segja að efnið sé „ógeðslegt“ og
krefjast þess að fá endurgreitt.
Heilbrigðisyfirvöld í Kanada
hófu að selja marijúana í lækninga-
skyni í júlí. Er það ætlað sem
verkjalyf fyrir fólk sem þjáist af
sjúkdómum á borð við alnæmi,
krabbamein og MS. Efnið, sem selt
er gegn lyfseðli í apótekum lands-
ins, er ræktað neðanjarðar í gamalli
námu í Manitoba.
Talsmaður yfirvalda segir að
ekki standi til að verða við óskum
óánægðra neytenda um endur-
greiðslu. ■
Fiskur úr sjó:
Aukning í
ágúst
FISKAFLI Heildarafli íslenskra fiski-
skipa í ágúst var rúmum 40.000
tonnum meiri en í sama mánuði á
síðasta ári, 135.000 tonn í stað
93.000 tonna. Þar munar mestu um
að kolmunnaaflinn jókst um 36.000
tonn á milli ára.
Afli á síðasta fiskveiðiári var þó
talsvert minni en árið áður. Alls bár-
ust tæplega 2,2 milljónir tonna á
land fiskveiðiárið 2002 til 2003 en
næsta fiskveiðiár á undan nam afl-
inn um 1,9 milljónum tonna. ■
SEX INNBROT Í BÍLA Nokkuð var
um innbrot í bíla í Reykjavík
mánudag og aðfaranótt þriðju-
dags. Alls var brotist inn í sex
bíla og þar stolið útvörpum og
geislaspilurum. Fjöldi innbrota
var í meira lagi en venja er til en
þó fráleitt einsdæmi.
MEÐ ÞVÍ ALLA RÓLEGASTA Ef
undan eru skilin innbrot í bíla í
Reykjavík var afskaplega rólegt
hjá lögreglu á höfuðborgarsvæð-
inu aðfaranótt þriðjudags. Í
Reykjavík höfðu menn á orði að
nóttin væri með því rólegasta
sem þeir myndu eftir.
■ Lögreglufréttir