Fréttablaðið - 02.10.2003, Page 39
FIMMTUDAGUR 2. október 2003
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
100 milljónir króna.
Frjálslyndi flokkurinn og
Vinstri grænir.
Aðalsteinn Víglundsson.
Snorri Már Skúlason, sem erflestum kunnur úr sjónvarps-
þættinum Íslandi í dag, hefur tekið
við starfi kynningarfulltrúa á
Þjóðminjasafni Íslands: „Ég byrj-
aði að vinna í dag og líst ljómandi
vel á mig. Það á að fara að opna
safnið aftur eftir fimm ára hlé og
það er gríðarlegur hugur í mönn-
um. Það er stöðugt verið að vinna
hérna stórmerkilegt starf sem
þarf að koma á framfæri við al-
menning og mitt hlutverk verður
að vinna að ímyndar- og kynning-
armálum,“ segir Snorri, sem finnst
nýja starfið skemmtileg áskorun.
„Ég er sagnfræðingur að mennt
og hér sameina ég háskólamennt-
un mína og reynslu af fjölmiðlum.
Eftir að mér var sagt upp í vor
ákvað ég að hvíla mig um stund á
fjölmiðlum og fannst því tilvalið að
koma hingað. Ég lít á þetta sem
tímabundið verkefni en það á að
opna safnið aftur á sumardaginn
fyrsta og það verða mikil tímamót
í sögu safnamála á Íslandi. Hér er
gríðarlegur hugur í mönnum og þó
safnið hafi verið lokað fyrir al-
menningi hefur verið mikil starf-
semi í gangi á Þjóminjasafninu.
Fjölmiðlabakterían lætur mann
þó ekkert í friði og ég reikna með
að hún láti á sér kræla einhvern
tímann seint á næsta ári aftur. En
eftir átta ára törn í daglegum út-
varps- eða sjónvarpsþáttum er
kærkomið að taka sér hlé. Áhorf-
endur áttu skilið að fá hvíld frá
mér og ég frá sjónvarpinu. Eins og
vinur minn sagði við mig þá er ég
ekki lengur að fást við Ísland í dag
heldur Ísland í gær. ■
Þingseta Sigurlínar MargrétarSigurðardóttur, hins heyrnar-
lausa þingmanns Frjálslynda
flokksins, hefur
skapað nokkur úr-
lausnarefni sem
starfsmenn þings-
ins hafa þurft að
ganga í, meðal ann-
ars að setja upp
búnað og aðstöðu
fyrir táknmáls-
túlka svo Sigurlín geti tekið full-
an þátt í umræðum á þingi. Þetta
starf virðist ekki hafa náð yfir í
dómkirkjuna því þegar þingmenn
komu þar saman á þingsetning-
unni í gær var enga túlka þar að
finna heldur fékk Sigurlín í hend-
urnar útprent af boðskap prests-
ins. Sumum þótti reyndar sem
stólræðan tæki mið af því að
bæði Frjálslyndir og Samfylking
hafa kallað eftir aðskilnaði ríkis
og kirkju.
Á dögunum birtist á forsíðuSéð og heyrt mynd af Jóni
Ársæli sjónvarpsmanni og tækni-
manni hans í Sjálfstæðu fólki á
Stöð 2. Sem væri ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að þeir
eru í faðmlögum og skælbrosandi
og margir virðast hafa misskilið
fyrirsögnina algerlega og haldið
að Jón Ársæll væri að koma út úr
skápnum. Það er hins vegar al-
gjör misskilningur og þótt fyrir-
sögnin sé eilítið óljós er Jón Ár-
sæll hamingjusamlega giftur
sinni konu, Steinunni Þórarins-
dóttur. Bara eins og alltaf.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Gljúfrasteinn er í Mosfellsdal en
Dvergasteinn á Seyðisfirði.
Guðbergur Bergsson rithöf-undur á sér eina ósk:
„Að ég ætti margar óskir óupp-
fylltar,“ segir Guðbergur. „Ann-
ars eru óskirnar bestar óuppfyllt-
ar því uppfyllt ósk er endalok
óskarinnar og þá er allt búið.“
Fréttiraf fólki
■ Eina ósk
Tímamót
SNORRI MÁR SKÚLASON
■ Hefur tekið sér hvíld frá fjölmiðla-
starfinu um tíma en hefur tekið við nýju
starfi sem kynningarfulltrúi Þjóðminja-
safnsins.
Úr Íslandi í dag í Ísland í gær
SNORRI
MÁR
SKÚLASON
Sagnfræðing-
ur og fjöl-
miðlamaður
kann vel við
sig í nýja
starfinu.