Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2003, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 05.10.2003, Qupperneq 38
Foreldrar Sýnum ábyrgð Áfengi má ekki selja, veita eða afhenda ungmennum undir 20 ára aldri. 38 5. október 2003 SUNNUDAGUR Auðvitað veit enginn nákvæmlegahvað framtíðin ber í skauti sér. Árni Bergmann rithöfundur þykist þó vita hvað bíður sín. „Ég þarf að skrifa smá pistil fyrir Stúdentaleikhúsið sem ætlar að setja upp leikritið 1984 sem byggt er á samnefndri sögu George Orwell,“ segir Árni. „Ég var beðinn um að velta því fyrir mér hvað lifði af þeirri sögu í dag þar sem hún er skrifuð á allt öðrum tímum. Til dæm- is ætla ég að velta mér upp úr því hvað hefur orðið af hinum fræga stóra bróður sem þar er á hverjum vegg.“ Orwell skrifaði þá merku bók árið 1948 og sneri öftustu stöfunum ein- faldlega við. Sú bók og aðrar stað- leysubókmenntir hafa fylgt Árna í nokkur ár, þar sem hann hefur kennt bókmenntanemum Háskóla Íslands sögu þeirrar greinar í nokkur ár. „Þetta námskeið byrjaði þannig að þegar árið 1984 gekk í garð fékk ég áhuga á því að rýna ofan í þessa bók og sögu þessarar bókmennta- greinar. Um þessa staði sem ekki eru til, eða ekki til ennþá. Þetta er skrýtið fyrirbæri að fram að alda- mótunum 1900 eru staðleysusögur um heima sem ekki eru til frekar bjartsýnar og eru að lýsa vonum manna. Eftir það eru þessar sögur að lýsa með ýmsum hætti við hvað menn eru hræddastir á þessum tíma. Saga þessarar greinar er því ekki lengur saga hinna fögru hug- mynda, heldur saga óttans.“ Árni bendir einnig á að margt sem fyrst hafi birst á síðum slíkra bóka sem skáldskapur hafi síðar orðið að veruleika, eins og „lífrænt fitl“ eins og hann orðar það og aukið eftirlit innan þjóðfélaga. Árni hefur þó ekki sagt skilið við staðleysurnar því í komandi viku hyggst Árni byrja á nýjustu bók Margaret Atwood sem fjallar um ótíðindi eftir stórslys. Nemendur Árna í rússneskum bókmenntum í Háskólanum getasvo hlakkað til þess klárað verður að fara yfir feril Tolstoj og hafist handa á að kryfja feril Tsjekov. „Annars langar mig mest í haust- litaferð til Þingvalla,“ segir Árni hálfdreymandi í lokin. „Ég er bara að bíða eftir haustlitunum, þeir hljóta að fara sýna sig næstu daga. Það er einhver mestu fríðindi sem Íslendingar geta státað sig af, að geta labbað um í haustlitunum.“ biggi@frettabladid.is Vikan sem verður ÁRNI BERGMANN ■ Ætlar að sökkva sér enn og aftur ofan í bókina 1984 eftir George Orwell, vonast svo eftir haustlitunum. Fréttiraf fólki Aftur til ársins 1984 ■ Hugleiðingin „Hina leyndu uppsprettu húmorsins er ekki að finna í gleðinni, heldur í sorginni. Það er enginn húmor á himnum.“ Mark Twain, bandarískur rithöfundur, 1835-1910. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Robin Cook. Magnús Gunnarsson. Nói albinói. Brosið Það er von hann brosi. Flest geng- ið í haginn með ævintýralegum hætti og peningar ekki lengur vandamál. Og þá er hægt að brosa svo um munar. Hver á brosið? (Magnús Þorsteinsson í Samson.) OPIÐ KL 11.00-22.00 Föstudag og Laugardag frá 10.00-18.00 Kaffihúsið við stíginn RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 ENDURNÝJUN OG VIÐHALD E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 Hesthús! Nýtt 12 hesta hús í Hafnarfirði til sölu. Hlaða og haug- hús undir stíum, hitaveita, kaffistofa og gott gerði. Langtímalán. Upplýsingar í síma 898 3165. Til sýnis í dag sunnud. 5. okt. kl. 16-18, að Sörlaskeiði 17, beint á móti Íshestum við veginn að Kaldárseli. Sjá einnig www.centrum.is/leikir/hesthus Mist Hálfdanardóttir, 15 ára, Hagaskóla Þegar fólk er tilbúið tilþess andlega.“ Sindri Eldon, 17 ára, Borgarholtsskóla Sko, það eru voðaflókin og skrýtin lög um þetta allt sam- an. Það vita náttúru- lega allir að svona lög sem takmarka eitt- hvað eru ekkert að virka. Þeir sem vilja komast í kynlíf, áfengi og fíkniefni verða sér úti um það á hvaða aldri sem er.“ Dagbjört Hákonardóttir, 19 ára, Menntaskólinn við Hamrahlíð Það er afskaplegaeinstaklingsbund- ið. Bresk lög miða við sextán ára aldurinn og mér finnst það ágætis viðmið. Það verða að vera lög til þess að eldra fólk notfæri sér ekki börn.“ Atli Þór Árnason, 15 ára, Hvassaleitisskóla Það fer bara algjör-lega eftir þroska fólks. Það ætti ekki að vera bundið við neinn aldur og fólk byrjar bara þegar það er tilbúið til þess.“ Lárétt: 1 stærstan, 7 drykkjumennina, 8 óreiða, 9 hluti af danmörku, 11 átt, 12 telur rétt, 15 ekki, 16 tveir eins, 17 staður á norður- landi. Lóðrétt: 1 hæg suða, 2 fæði, 3 menntasetur, 4 mæla, 5 kofi ...., 6 dýrategund, 10 kær- leikar, 13 dýr, 14 slæm, 15 keyri. Lausn: Stef leitar nú að höfundi lags-ins Bruggverksmiðjan springur í loft upp en viðkom- andi á inni peninga frá Dan- merku. Þar er þetta lag víst í spilun og Stef, sem sér um höf- undarréttarmál fyrir íslenskt tónlistarfólk, situr uppi með ávísun frá frændum vorum Dön- um sem höfunudur lagsins á að fá. Mikil leit stendur yfir og hef- ur verið hringt í marga af helstu tónlistarmönnum landsins en þeir vita ekki hver eða hverjir sömdu þetta lag. Viðkomandi höfundur er beð- inn að hafa samband beint við Stef en allar ábendingar eru vel þegn- ar og hægt að senda tölvubréf á hvar@frettabladid.is ■ Ég hef aldrei eldað svona stórtkjötstykki eins og löpp og bök sem fólk er svo hrifið af. Ég vil miklu frekar elda eitthvað góm- sætt eins og indverskan veislu- kjúkling með alls kyns gúmme- laði,“ segir Ragnheiður Eiríksdótt- ir hjúkrunarfræðingur. Hún segir mann sinn á hinn bóg- inn vera mikið fyrir bök og lappir og hann sjái um þá hlið elda- mennskunnar. „Ef ég ætla að gera eitthvað ægilega fínt hef ég mun meiri ánægju af að elda eitthvað sem þarf að hafa fyrir eins og lí- banskan mat sem er í ógurlega miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir hún og bætir við að heimilisfólkið hjálpist við að sneiða niður græn- metið og aðstoða. „Mér finnst það samt alltaf voða gott þegar maður- inn minn tekur sig til og eldar löpp eða bak með öllu tilheyrandi eins og brúnni sósu, Ora grænum og rabbabarasultu frá ömmu,“ segir Ragnheiður og hlær hjartanlega. Hún minnist þess að þegar hún var lítil stelpa á Sauðárkróki hafi alltaf verið farið til langömmu á Hofsósi í mat í hádeginu á sunnu- dögum. „Þá var alltaf langömmu- læri, kraumað í gegn með öllu til- heyrandi og klukkan fjögur var boðið upp á súkkulaði og kökur. Maður fór ekki svangur heim þann daginn,“ segir Ragnheiður. Á æskuheimilinu var ekki eldað í hádeginu á sunnudögum heldur á laugardags- eða sunnudagskvöld- um. „Þar var ekki mikið um klass- ískan hefðbundinn mat. Það var aldrei neitt fast, frekar einhverjir spennandi fiskréttir og kjötréttir sem ekki voru hefðbundnir.“ Á heimili Ragnheiðar eru skiptar skoðanir á mat svo ekki sé meira sagt. Eiginmaðurinn er mikið fyrir venjulegan íslenskan heimilismat á meðan hún heldur sig við indverskt og framandi. Hún viðurkennir að eftir að hún hóf búskap hafi hún sæst við ým- islegt sem henni hefði ekki dottið í hug að setja inn fyrir sinn munn áður. „Mér finnst oft gott að fá hjá honum bjúgu með uppstúfi og kartöflumús eða eitthvað því líkt,“ segir Ragnheiður Eiríks- dóttir, sem hefur komist að raun um að bæði lappir og bök og ann- ar heimilismatur er fjarri því eins vondur og hann var í minning- unni. ■ Leitað að höfundi 17 8 9 10 12 13 15 16 14 17 2 3 4 5 11 6 Lárétt: 1mestan,7alkana,8ólag,9láland,11 sa,12trúir, 15ei,16 ll,17krafla. Lóðrétt: 1mall,2el,3skólar, 4tala,5anan,6 nagdýr, 10ástir, 13úlf, 14ill,15ek. Ung ráð ■ Unga fólkið býr oft yfir opnum og skemmtilegum skoðunum um hin ýmsu málefni. Kynlíf? RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR Fékk langömmusteik á Hofsósi í hádeginu þegar hún var lítil. Sunnudagssteikin RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR ■ Hún hefur verið lítið fyrir hefðbundinn heimismat og eldar helst eitthvað sem krefst langrar eldamennsku og natni. Þeim stundum fjölgar þó að hún gleðjist yfir að fá bjúgu og uppstúf, svo ekki sé minnst á læri og hrygg. Elda aldrei lappir og bök ÁRNI BERGMANN Kennir rússneskar bókmenntir í Háskóla Íslands. Frægt er orðið að Brimkló mis-skildi upptökutíma á Popp- punkti í síðustu viku og mætti ekki þegar taka átti upp viður- eign hljómsveitarinnar gegn Pöp- um. Um tíma leit út fyrir að Brimkló yrði ekki með í þættin- um en nú eru allir sáttir. Í vik- unni verður líklega tekinn upp þáttur með Pöpum og Brimkló.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.