Fréttablaðið - 15.10.2003, Page 2
2 15. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
„Ég sakna samvinnuhugsjónarinn-
ar í íslensku viðskiptalífi sem SÍS
byggði hugmyndafræði sína á.“
Vinstri grænir hafa lýst áhyggjum yfir því að KEA
sé hætt að versla á Akureyri. Jón Bjarnason er
þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.
Spurningdagsins
Jón, ertu farinn að sakna SÍS?
Átök líkleg á lands-
fundi Samfylkingar
Líklegt er að átök verði um ýmis embætti á landsfundi Samfylkingar í
lok mánaðarins. Niðurstaða í kosningum verður mælikvarði á styrk
Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
STJÓRNMÁL Talið er líklegt að Stef-
án Jón Hafstein, formaður fram-
kvæmdastjórn-
ar Samfylking-
ar, fái mótfram-
boð á landsfundi
Samfylkingar-
innar sem hefst
31. þessa mánað-
ar. Stefán Jón
hefur sjálfur í
hyggju að bjóða
sig fram til
áframhaldandi
starfa og segist hafa fengið mikla
hvatningu til þess frá ýmsum for-
ystumönnum flokksins að undan-
förnu.
„Ég hef ekki orðið var við nein-
ar væringar og ég veit að ég hef
mikilvægan stuðning úr ýmsum
áttum því ég hef verið í sambandi
við margt fólk í undirbúningi fyr-
ir landsfundinn. Ég hef fundið að
fólk sem er víða í forystu hefur
áhuga á því að ég haldi áfram og
hef ekki hugleitt annað en að gefa
kost á mér verði farið fram á það;
og ég stefni að því,“ segir Stefán
Jón. „Ef einhver hefur áhuga á því
að bjóða sig fram hef ég ekkert
við það að athuga og finnst það
fullkomlega eðlilegt.“
Ekki þarf að gefa kost á sér til
kjörs í framkvæmdastjórn fyrr
en á landsfundinum sjálfum og er
talið að ef einhver bjóði sig fram
gegn Stefáni Jóni verði það ekki
tilkynnt fyrr en á allra síðustu
stundu.
Stefán Jón telst til stuðnings-
manna Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur innan Samfylkingar-
innar en litið verður til niðurstöðu
kosninga í framkvæmdastjórn
sem mælikvarða á styrk hennar
innan flokksins og möguleika
hennar á að fella Össur Skarphéð-
insson eftir tvö ár.
Stefán Jón segir að fjárhagsleg
staða Samfylkingarinnar hafi stað-
ið flokknum fyrir þrifum en að nú
horfi betur í þeim efnum. Innan
skamms munu aðildarfélög Sam-
fylkingarinnar skila fulltrúalistum
á landsfund til skrifstofu flokks-
ins, en einungis fulltrúar hafa at-
kvæðisrétt í kosningum þótt starf
fundarins sé öllum stuðnings-
mönnum Samfylkingarinnar opið.
Meginþema landsfundarins
verður markalínan á milli mark-
aðshagkerfis og velferðarþjón-
ustu en að auki fara fram málstof-
ur um Evrópumálin. Þá verður
málstofa um auðskiptingu og það
hvernig börn festist í fátækt og
eins verður haldin málstofa um
tækifæri ungs fólks til atvinnu og
menntunar.
thkjart@frettabladid.is
Tillaga um afnám veiðibanns:
17 þingmenn vilja hefja veiðar
STJÓRNMÁL Átján þingmenn hafa
lagt fram þingsályktunartillögu um
að banni umhverfisráðherra við
rjúpnaveiði verði hnekkt.
Fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar er Gunnar I. Birgisson, Sjálf-
stæðisflokki, en fjórtán sjálfstæðis-
menn standa að tillögunni. Þrír sam-
flokksmenn umhverfisráðherra;
þau Birkir Jón Jónsson, Þórarinn E.
Sveinsson og Kristinn H. Gunnars-
son, eru meðflutningsmenn að til-
lögunni ásamt Guðjóni A. Kristjáns-
syni, Frjálslynda flokknum.
Alls standa því sautján stjórnar-
þingmenn að tillögunni og því ljóst
að þingmeirihluti stendur ekki að
baki ákvörðun umhverfisráðherra
um veiðibann nema til komi veru-
legur stuðningur frá stjórnarand-
stöðunni.
Gunnar I. Birgisson segist
nokkuð viss um að ályktunin verði
samþykkt en að umhverfisráð-
herra séu gefnir ýmsir valmögu-
leikar til þess að grípa til aðgerða
til þess að vernda stofninn, t.d. að
takmarka veiðitíma og leggja á
tímabundið sölubann. Gunnar seg-
ist ekki vera hrifinn af því að sett
verði á sölubann og telur heppi-
legra að notast sé við önnur úr-
ræði. „Það er mikill urgur í samfé-
laginu út af þessu máli,“ segir
Gunnar. „Menn verða að fá að
skjóta sér rjúpu í jólamatinn.“ ■
Sundabraut:
„Eyjaleið“
arðbærust
SAMGÖNGUMÁL Á fundi borgarráðs í
gær var afhent svar við fyrirspurn
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, odd-
vita sjálfstæðismanna, þar sem
hann spurðist fyrir um framgang
mála vegna undirbúnings á lagn-
ingu Sundabrautar.
Í svari borgarverkfræðings kom
fram að verið væri að ljúka mats-
skýrslu um umhverfisáhrif þeirra
lausna sem verið hafa á teikniborð-
inu. Í svarinu kemur fram að talið
er að svokölluð „Eyjaleið“ sé arð-
bærasta framkvæmdin. Kostnaður
við þá leið er sagður vera 7,8 millj-
arðar króna en sparnaður við fram-
kvæmdina 16,5 milljarðar. ■
SKILRÍKI SKOÐUÐ
Ísraelskur hermaður skoðar skilríki
fólks utan Ramallah.
Ísraelsher:
15 vísað
á brott
JERÚSALEM, AP Ísraelskar hersveitir
réðust inn í flóttamannabúðir á
landamærum Gaza-strandarinnar
og Egyptalands í annað skipti í
vikunni í gær og leituðu að jarð-
göngum sem Ísraelar segja
Palestínumenn nota til að smygla
vopnum inn í landið. Um svipað
leiti fyrirskipaði herinn að 15
Palestínumönnum yrði vísað frá
Vesturbakkanum til Gaza-strand-
arinnar fyrir þátttöku í baráttu
gegn Ísraelum.
Saeb Erekat, sem á sæti í
palestínsku heimastjórninni, for-
dæmdi brottvikninguna sem afar
hættulegt skref. Brottvikningin
er einungis sú þriðja sem herinn
hefur fyrirskipað. ■
ÆTLAÐI AÐ SMYGLA FÍKNIEFN-
UM Lögreglan á Selfossi hafði
afskipti af konu sem hafði ætl-
að að fara með fíkniefni á Litla-
Hraun síðastliðinn föstudag.
Hún var með í fórum sínum
tæplega 60 grömm af hassi og
lítilræði af amfetamíni eða
kókaíni. Hún var handtekin og
yfirheyrð en sleppt að því
loknu.
HRAÐAKSTUR Lögreglan á Sel-
fossi tók fimm ökumenn fyrir
of hraðan akstur í gær.
STUTT VIÐ SADDAM
Stuðningsmenn Saddams kölluðu slagorð
honum til stuðnings og veifuðu seðlum
með andlitsmynd hans.
Tillaga um Írak:
Enn deilt
SÞ, AP Bandaríkjastjórn þrýstir á
um að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna greiði atkvæði um ályktunar-
tillögu sína varðandi Írak áður en
vikan er úti. Samkvæmt ályktuninni
ber framkvæmdaráði Íraks að til-
greina dagsetningu almennra kosn-
inga innan tveggja mánaða. Í henni
er þó ekkert tekið fram um hvenær
heimamenn eigi að fá völdin í sínar
hendur. Kofi Annan, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, lýsti vonbrigðum
með ályktunartillöguna. Þjóðverjar
segjast munu leggja til breytingar á
ályktuninni en bandarískir embætt-
ismenn segja mjög ólíklegt að þeir
sætti sig við slíkt. ■
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður:
Ráðherra svari fyrir sýkingar
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir,
alþingismaður Samfylkingar, hef-
ur lagt fram fyrirspurn á Alþingi
til heilbrigðisráðherra um sýking-
arhættu á sjúkrahúsum.
Jóhanna segir tilefni fyrir-
spurnar sinnar vera frétt Frétta-
blaðsins á mánudag um að Har-
aldur Briem sóttvarnarlæknir
telji sýkingarhættu vera inn-
byggða í stóru sjúkrahúsin vegna
hönnunar þeirra. Haraldur ritaði í
Læknablaðið um málið.
„Hver eru viðbrögð ráðherra
við þeirri skoðun sóttvarnarlæknis
um að strax verði að ráðast í bygg-
ingu nýs Landspítala vegna smit-
hættu í núverandi byggingum?
Hvernig hyggst ráðherra bregðast
við þeirri könnun yfirlæknis á
smitsjúkdómadeild sem sýnir að
auknar sýkingar megi rekja til
þess að salernis- og hreinlætisað-
staða sé ófullnægjandi? Verður
það kannað nánar sem fram kom
hjá sóttvarnarlækni í Læknablað-
inu að ætla megi að spítalasýking-
ar kosti Íslendinga hundruð millj-
óna króna á ári hverju? Hve mörg
sýkingartilvik hafa komið upp á
sjúkrahúsum á síðastliðnum fimm
árum, sem landlæknir metur að
hafi verið alvarleg?“ spyr Jóhanna
í fyrirspurn sinni. ■
■ Lögreglufréttir
STEFÁN JÓN OG INGIBJÖRG
Stefán Jón telst til stuðningsmanna Ingibjargar Sólrúnar.
„Ég hef
fundið að fólk
sem er víða í
forystu hefur
áhuga á því
að ég haldi
áfram.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
„Hve mörg sýkingartilvik hafa komið upp á sjúkrahúsum á síðastliðnum fimm árum, sem
landlæknir metur að hafi verið alvarleg?“ spyr Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður í fyrir-
spurn sem hún beinir til Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T Eimskip:
Fundur hjá
nýrri stjórn
ATHAFNALÍF Stjórnarfundur í Eim-
skipafélaginu stóð langt fram eftir
kvöldi í gær. Þetta var fyrsti
vinnufundur nýrrar stjórnar fé-
lagsins undir forystu nýs stjórnar-
formanns.
Búist var við að stjórnarfundur
tæki ákvörðun um að Magnús yrði
starfandi stjórnarformaður á með-
an nýir eigendur hrintu í fram-
kvæmd helstu breytingum sem
þeir hafa í hyggju í rekstrinum.
Annar stjórnarfundur verður
haldinn á föstudaginn. Eftir þessa
tvo fundi má gera ráð fyrir að
meginstefna nýrrar stjórnar verði
orðin skýr. ■
GUNNAR I. BIRGISSON
Vill fella veiðibann á rjúpu.