Fréttablaðið - 15.10.2003, Page 15
Í dag er runnin upp 15. októbereitt árið enn. Í huga þeirra
fjölmörgu Íslendinga sem sækj-
ast eftir að upplifa og taka þátt í
íslenskri náttúru og njóta þess
besta sem hún gefur er þessi
dagur venjulega sérstakur.
Margir eru í fríi frá vinnu, taka
daginn snemma og eru farnir úr
húsi löngu áður en blöðin berast
inn um lúguna. Aðrir hugsa með
tilhlökkun til komandi vikna.
Þetta árið er þó allt á annan veg.
Dagurinn er vissulega sérstakur
en nú með neikvæðum for-
merkjum. Umhverfisráðherra
hefur bannað veiðar á vinsæl-
ustu veiðibráð landsins, rjúp-
unni. Í stað þess að vera á leið á
veiðislóð eða með hugann uppi á
heiðum sitja veiðimenn brúna-
þungir yfir blaðinu heima.
Skotveiðifélag Íslands (SKOT-
VÍS) hefur lagst eindregið gegn
banni ráðherrans og telur að ekki
hafi verið þörf á svo róttækum
aðgerðum enda rjúpnastofninn
ekki í hættu. Vísindamenn, m.a.
dr. Arnór Þórir Sigfússon og
Arnþór Garðarsson, hafa tekið
undir sjónarmið félagsins. Veiði-
stjórnunarsvið Umhverfisstofn-
unar (áður veiðistjóraembættið),
sem lögum samkvæmt er um-
hverfisráðherra til ráðgjafar um
vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og villtum spendýrum,
ásamt Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, lagðist einnig gegn bann-
inu.
Sátt náðist
Árið 2002 náðist sátt um að-
gerðir til verndar rjúpunni milli
skotveiðimanna, Náttúrufræði-
stofnunar Íslands og umhverfis-
ráðherra. Aðgerðir þessar lutu
að því að stytta veiðitímabil
rjúpunnar, sem þá hefði orðið
frá 25. október til 12. desember
(í stað 15. okt til 22. des) árin
2003-2007. Friðaða svæðið hér á
suðvesturhorninu yrði stækkað,
en það hefur þegar verið gert.
Þá ætlaði umhverfisráðherra að
leggja fram lagafrumvarp sem
bannaði sölu rjúpna árin 2003-
2008. Ástæða þess var sú að í
ljós hefur komið að 10-14%
veiðimanna veiða 50-60% þeirra
rjúpna sem skotnar eru. Með
sölubanni myndi draga verulega
úr veiðum þessara manna. Það
er skoðun félagsins, sem og ann-
arra sem að þessum málum
koma, að rjúpnaveiði eigi að
vera tómstundagaman fjöldans
en ekki atvinnuvegur fárra. Sátt
þessi hefði náð fram að ganga ef
umhverfisnefnd Alþingis hefði
ekki lagst gegn lagafrumvarpi
ráðherra. Þar sem sölubannið
náði ekki fram að ganga óskaði
umhverfisráðherra nú í sumar
eftir tillögum Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, sem lagði til
friðun í 5 ár. Ráðherra ákvað að
fylgja ráðum Náttúrufræði-
stofnunar, gegn ráðgjöf Veiði-
stjórnunarsviðs Umhverfis-
stofnunar, og friða rjúpuna
næstu 3 ár. Ráðherrann hefur
opinberlega fullyrt að ef Alþingi
hefði samþykkt bann við sölu
rjúpna hefði ekki verið ráðist í
þær friðunaraðgerðir sem nú
eru orðnar að veruleika. Vera
má að umhverfisnefnd Alþingis
hafi ekki áttað sig á afleiðingun-
um af því að hafna frumvarpi
ráðherrans. Hafa þeir þingmenn
sem í henni sátu, sem og aðrir
þingmenn, tækifæri til að bæta
úr á yfirstandandi þingi með því
að taka málið upp að nýju.
Áskorun
Ljóst er að umrædd breyting
á lögum nær vart fram að ganga
svo fljótt að hægt verði að hefja
veiðar á því rjúpnaveiðitímabili
sem undir venjulegum kringum-
stæðum hæfist í dag og hefði
hafist innan 10 daga skv. sátt
þeirri sem tekist hafði. Hins
vegar gæti ráðherra ákveðið, í
ljósi þess að stofninum er ekki
bráð hætta búin, að leyfa veiðar
þetta tímabil með tilteknum tak-
mörkunum í samræmi við tillög-
ur Veiðistjórnunarsviðs Um-
hverfisstofnunar og SKOTVÍS.
Það þyrfti ekki að taka ráðherr-
ann nema nokkra daga að hrinda
slíkri breytingu í framkvæmd.
Tillögur SKOTVÍS og Veiði-
stjórnunarsviðs Umhverfis-
stofnunar voru í grófum drátt-
um þessar: Stytting veiðitíma,
veiðibann á tilteknum dögum
s.s. sunnudögum og miðviku-
dögum, áróður og tilmæli um að
hver veiðimaður stilli veiðum í
hóf og friðun á stórum svæðum.
Með þessum aðgerðum telur
SKOTVÍS að ná mætti fram
verulegum árangri enda hefur
orðið viðhorfsbreyting meðal
veiðimanna til magnveiða.
Undirritaður skorar á um-
hverfisráðherra að beita sér
strax fyrir afléttingu bannsins
og heimila veiðar með ákveðn-
um takmörkunum. Þá skora ég á
Alþingi Íslendinga að beita sér í
málinu; taka aftur upp frum-
varp umhverfisráðherra og
samþykkja sölubann á rjúpu til
ársins 2008 svo hægt verði að
stunda sjálfbærar og hóflegar
veiðar úr stofninum. ■
15MIÐVIKUDAGUR 15. október 2003
KVENFÉLAGASAMBAND
ÍSLANDS
Myndasýning á stóra tjaldinu:
Myndefni frá Kvenfélagasambandi Íslands, Lifandi landbúnaði,
Bændasamtökum Íslands, Hjálparstarfi kirkjunnar og Landsvirkjun.
Tekið á móti leikskólabörnum úr Kópavogi
Brugðið á leik: Línudans sýndur og kenndur
Samsöngur að sveitasið: “Ég og þú – byggjum brú”
Lag tileinkað konum dagsins kennt og svo sungið af viðstöddum.
Og svo öll þessi gömlu góðu...!
Þjóðlagadjass
Hljómsveitin Mór úr Eyjafirði
HÁTÍÐARDAGSKRÁ:
Setning
Sigríður Bragadóttir, formaður Lifandi landbúnaðar
Alþjóðadagur dreifbýliskvenna – hvað á það nú að þýða?
Anna Margrét Stefánsdóttir, verkefnisstjóri
Dagskrá í Vetrargarði Smáralindar 15. október 2003
Frá kl.13.00
13.15
14.00
14.30
15.45
16.00
16.05
Fjallkonan er fögur sem forðum!
Kvenfélagasamband Íslands sýnir fram á það.
Íslenska þjóðin helgar konum í dreifbýli landsins
15.október.
Yfirlýsing forseta Íslands
Fugl dagsins (leyninúmer!)
Mótekja
Hljómsveitin Mór, úr Eyjafirði, flytur íslensk þjóðlög í djassbúningi
Hér er líf mitt, líttu á
Dagur í lífi dreifbýliskonu – færður í mál og myndir
Sprett úr Spori!
Menningin varðveitt í sveitunum:
Danshópurinn Sporið, úr Borgarfirði
Lokaorð
Helga Guðmundsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Íslands.
16.15
16.30
16.40
16.45
17.00
17.10
17.25
Ég er sjálfsagt ekki eini Akurnes-ingurinn sem ekki getur orða
bundist yfir þeim ósmekklegu og
tilhæfulausu ásökunum sem Har-
aldur og Sturlaugur Sturlaugssynir
urðu fyrir frá þingmanni Frjáls-
lynda flokksins í Suðurkjördæmi,
Magnúsi Þór Hafsteinssyni, í
Fréttablaðinu 13. okt. sl. um að þeir,
ásamt fjölskyldum sínum, hefðu
brugðist trausti bæjarbúa með sölu
á HB hf. til Brims. Ég vann í all-
mörg ár hjá HB hf. og þekki þá
bræður vel, þeirra metnað og ein-
arðan vilja til að halda fyrirtækinu
á Akranesi. Sameining innan Brims,
á sínum tíma, var gerð til að draga
úr ákveðinni hættu sem steðjaði að
fyrirtækinu og tryggja að það yrði
hér áfram á Akranesi. Sú ákvörðun
var hárrétt að mínum dómi og hefur
haft jákvæð áhrif á atvinnulífið hér
á Skaganum. Haraldur Böðvarsson
hf. hefur ætíð verið í fremstu röð
sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrir-
tækja hér á landi. Samstarfið innan
Brims hefur ekki verið til að draga
úr því, nema síður sé.
Hvað þingmanninum gengur til
með því að ráðast að einstaklingum
og fjölskyldum þeirra með með jafn
alvarlegum ásökunum og hann
gerði í Fréttablaðinu er með öllu
óskiljanlegt.
Ég skora á þingmann Frjáls-
lynda flokksins í Suðurkjördæmi,
Magnús Þór Hafsteinsson, að biðja
þá bræður, fjölskyldur þeirra,
starfsmenn HB hf. og Akurnesinga
almennt afsökunar.
Þær sviptingar sem hafa orðið á
fjármála- og fyrirtækjamörkðum
síðustu vikur eru hins vegar þess
eðlis að nú þurfa menn að standa
saman að því að tryggja það að ef til
þess kemur að Brimi verði skipt
upp og selt, þá verði HB hf. áfram
hér á Akranesi. ■
Umræðan
ÍVAR PÁLSSON
■ lögfræðingur og varaformaður SKOTVÍS
skrifar um rjúpnaveiðibann.
Magnús Þór
biðjist afsökunar
15. október 2003
Umræðan
ELÍNBJÖRG
MAGNÚSDÓTTIR
■ sérhæfður fisk-
vinnslumaður og
fyrrum starfsm. HB
hf., skrifar um HB á
Akranesi og Magnús
Þór Hafsteinsson.