Fréttablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 40
24 15. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
HÁSKALEIKUR
Tyrkneski markvörðurinn Rüstü Recber
reynir að sparka í boltann í leik Tyrklands
og Englands í undankeppni EM. Brotið er
eitt það versta sem sést hefur á knatt-
spyrnuvelli um áraraðir.
Fótbolti
Evrópska knattspyrnusambandið:
Rannsakar slagsmál leikmanna
FÓTBOLTI Evrópska knattspyrnu-
sambandið, UEFA, mun rann-
saka sjónvarpsupptöku af átök-
um sem urðu á milli leikmanna
Tyrklands og Englands í und-
ankeppni Evrópumótsins á laug-
ardag. Nokkrir leikmenn gætu
átt yfir höfði sér kæru og leik-
bann fyrir atganginn, þar á með-
al Emile Heskey, framherji
Liverpool. UEFA segir hins veg-
ar ekkert til í þeim fréttaflutn-
ingi að bæði lið verði dæmd úr
leik á Evrópumótinu í Portúgal á
næsta ári.
Uppþotið hófst þegar tyrk-
neski varnarmaðurinn Alpay sló
til David Beckham, landsliðsfyr-
irliða Englands, þegar liðin
gengu til búningsklefa í hálfleik.
Fyrr í leiknum hafði Alpay vegið
að Beckham eftir að sá síðar-
nefndi klúðraði vítaspyrnu. Í
kjölfarið braust út uppþot milli
leikmanna og eru Tyrkirnir með-
al annars sakaðir um að hafa
haft uppi kynþáttafordóma um
þeldökka leikmenn Englands og
þeir ensku fyrir að slá í átt til
mótherjanna. Wayne Rooney á
meðal annars að hafa gefið
Alpay kjaftshögg.
Pierluigi Collina reyndi hvað
hann gat að stilla til friðar og að
lokum kallaði hann Alpay og
Beckham á sinn fund og reyndi
að róa báða niður.
„Vegna þessarar heimskulegu
framkomu ræddum við ekkert
um leikinn heldur slagsmálin,“
sagði Rüstü Recber, markvörður
Tyrklands, eftir leik. Leiknum
lauk með markalausu jafntefli
og tryggðu Englendingar sér
sæti á EM í Portúgal. ■
FÓTBOLTI Búast má við að að minnsta
kosti þrír Íslendingar af ellefu hugi
sér til hreyfings eftir þetta tímabil
í norsku úrvalsdeildinni.
Tryggvi Guðmundsson hefur
þegar tilkynnt stjórn Stabæk að
hann ætli ekki að leika áfram með
félaginu en samningur hans rennur
úr eftir tímabilið. Tryggvi ætlar að
leita á önnur mið. „Það er alltaf eitt-
hvað í sigtinu en ekkert sem hægt
er að nefna á þessari stundu,“ sagði
Tryggvi en tók þó fram að það væri
ekki innan Noregs. „Ég ætla sunnar
því mig langar til að prófa eitthvað
stærra.“
Samningar Jóhanns B. Guð-
mundssonar og Helga Sigurðssonar
renna út um áramót.
Helgi vill komast burt frá Lyn og
vonast til að geta reynt fyrir sér í
öðru landi, þó ekki Íslandi. „Um-
boðsmaður minn er búinn að vera í
sambandi við nokkur félög erlendis
en ég get ekki gefið þau upp að svo
stöddu,“ sagði Helgi.
Jóhann, sem er nýkominn úr að-
gerð, segist ekki vita hvert fram-
haldið verði: „Það er allt opið og ég
vona að ég geti verið áfram hér úti.
Ef ég kem aftur heim er aðeins eitt
lið sem kemur til greina,“ segir Jó-
hann, sem er uppalinn hjá Keflavík.
Davíð Þór Viðarsson á tvö ár eft-
ir af samningi sínum við Lilleström
og veit ekki til annars en að hann
verði áfram í Noregi. Hann er að
jafna sig eftir ökklabrot og nýtir
tímann til að klára stúdentspróf frá
Verslunarskóla Íslands.
Gylfi Einarsson, samherji Dav-
íðs, á eitt ár eftir af samningi sín-
um. Þar sem hann tók á sig 11%
launalækkun á tímabilinu er
ákvæði í samningum, sem gildir til
áramóta, sem gefur honum tæki-
færi á að fara frítt frá Lilleström.
Gylfi segist hafa hug á því að reyna
fyrir sér annars staðar en í Noregi
en eins og markaðurinn er í dag er
erfitt að komast lengra. „Ég myndi
ekki slá hendinni á móti góðu til-
boði,“ sagði Gylfi.
Hannes Þ. Sigurðsson á eitt ár
eftir af samningi sínum við Víking í
Stafangri. Hann ætlar þó að íhuga
sín mál vel enda hefur hann lítið
fengið að leika. „Ég er ekki sáttur
við hve lítið ég hef fengið að
spreyta mig,“ sagði Hannes.
Landsliðsmarkvörðurinn Árni
Gautur Arason ætlar frá Rosen-
borg eftir sex ára dvöl þar. Hann
hefur verið orðaður við Sturm Graz
í Austurríki og segir það enn inni í
myndinni þótt þjálfaraskipti hafi
orðið þar í síðasta mánuði.
Andri Sigþórsson og Ólafur
Stígsson eiga ár eftir af samningi
sínum við Molde. Andri hefur ekk-
ert leikið á þessu tímabili vegna
meiðsla á hné og er óvissa með
framhaldið hjá honum. „Læknarnir
eru í raun búnir að afskrifa mig,“
segir Andri.
„Ég býst ekki við að verða hérna
áfram, sama hvernig fer,“ sagði
Bjarni Þorsteinsson, leikmaður
Molde. Félagið hefur boðið Bjarna
nýjan samning sem er mun lakari
en sá sem hann hefur. „Ég hef
áhuga á að fara í skóla í Danmörku
og finna félag sem ég get leikið
með,“ sagði Bjarni en einnig er
möguleiki á því að hann komi heim
til Íslands eftir tímabilið.
Njarðvíkingurinn Óskar Örn
Hauksson samdi við Sogndal til
tveggja ára en honum er heimilt að
endurskoða samninginn ef honum
líkar ekki vistin í Noregi.
Ríkharður Daðason leikur með
Fredrikstad í norsku 1. deildinni og
samdi við liðið út þetta tímabil. Rík-
harður mun endurskoða samning-
inn eftir tímabilið en takist
Frederikstad að tryggja sér sæti í
úrvalsdeildinni má búast við að
hann verði þar áfram. Fredrikstad
er í efsta sæti 1. deildar þegar þrjár
umferðir eru eftir.
Haraldur Ingólfsson hefur stað-
ið sig vel með Raufoss í 1. deild-
inni. Hann er þó á heimleið á ný og
leikur með Skagamönnum í Lands-
bankadeildinni á næsta ári.
kristjan@frettabladid.is
obh@frettabladid.is
HANDBOLTI Fimm leikir fara fram í
Remax-deild kvenna í handbolta í
kvöld. Topplið Vals fær sameinað
lið KA/Þórs í heimsókn að Hlíðar-
enda. Valsstúlkur eru ósigraðar í
deildinni og hafa tíu stig á toppn-
um, tveimur meira en Íslands-
meistarar ÍBV. KA/Þór hefur tvö
stig eftir sex leiki.
Á Seltjarnarnesi tekur
Grótta/KR á móti FH. Liðin eru um
miðja deild en Grótta/KR hefur
leikið einum leik færra en Hafnar-
fjarðarliðið. Víkingur mætir
Stjörnunni í Víkinni, og Haukar fá
botnlið Fylkis/ÍR í heimsókn.
Eyjastúlkur sækja Fram heim.
Framstúlkum hefur ekki gengið
sem skyldi og eru í þriðja neðsta
sætinu með tvö stig. ■
ALPAY OG HESKEY
Alpay og Heskey áttu margt óupp-
gert áður en þeir gengu til búnings-
klefa í landsleik Tyrklands og Eng-
lands á laugardag. Leikmönnum lið-
anna lenti saman og gætu þeir átt
yfir höfði sér leikbann.
DAVÍÐ ÞÓR VIÐARSSON
Hann er að jafna sig eftir ökklabrot og nýt-
ir tímann til að klára stúdentspróf frá Versl-
unarskóla Íslands.
BJARNI ÞORSTEINSSON
Er trúlega á heimleið eftir að hafa leikið
með Molde.
ÍSLENSKIR LEIKMENN
Í NOREGI:
Davíð Þór Viðarsson
-á tvö ár eftir af samningi sínum.
Gylfi Einarsson
-á eitt ár eftir en vill komast að annars
staðar.
Tryggvi Guðmundsson
-ætlar að reyna fyrir sér sunnar í Evrópu.
Jóhann B. Guðmundsson
-vill vera áfram í Noregi.
Helgi Sigurðsson
-vonast til að komast að annars staðar en
í Noregi.
Árni Gautur Arason
-gæti verið á leið til Sturm Graz í Austur-
ríki.
Hannes Þ. Sigurðsson
-á eitt ár eftir af samningi sínum.
Bjarni Þorsteinsson
-er trúlega á heimleið.
Andri Sigþórsson
-hefur ekkert leikið og óvissa með fram-
tíðina.
Ólafur Stígsson
-á eitt ár eftir af samningi sínum.
Óskar Örn Hauksson
-samdi til tveggja ára.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON
Ætlar ekki að leika með Stabæk á næsta
ári en samningur hans rennur út um ára-
mót. Vill reyna fyrir sér sunnar í Evrópu.
HELGI SIGURÐSSON
Ætlar einnig að reyna að komast til annars
lands en Noregs.
Tryggvi og Helgi
á leið frá Noregi
Tryggvi Guðmundsson og Helgi Sigurðsson gætu verið á leið frá
Noregi. Bjarni Þorsteinsson fer til Danmerkur eða heim til Íslands.
Læknar búnir að afskrifa mig, segir Andri Sigþórsson.
Remax-deild kvenna:
Valur mætir KA/Þór