Fréttablaðið - 15.10.2003, Síða 41
25MIÐVIKUDAGUR 15. október 2003
hvað?hvar?hvenær?
12 13 14 15 16 17 18
MARS
Miðvikudagur
Almennur hluti 1b
Almennur hluti 2a
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
Í
S
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
www.isisport.is
Aðrir viðburðir í október
Málþing um íþróttalögfræði Rvk. 17. okt.
Þjálfari 1b - Sund Rvk. 18. okt.
Þjálfari 1b – Almennur hluti Ak. 18. okt.
Þjálfari 1b – Almennur hluti Þórsh./Raufarh. 25. okt.
Þjálfari 1b - Badminton Rvk. 31. okt.
Knattspyrna 1. stig Ak. 31. okt.
Knattspyrna 1. stig Rvk. 31. okt.
Þjálfari 1c – Almennur hluti Rvk. 31. okt.
Fjármálaráðstefna ÍSÍ 2003 Rvk. 31. okt.
Reiðmennska og reiðþjálfun fatlaðra Sauðárkr. 31. okt.
Helgina 24. – 26. október verður Þjálfari 1b – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Lágmarksaldur þátttakenda er 16 ár. Þeir þurfa að hafa lokið Almennum hluta 1a.
Námskeiðið sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er
ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla um þroskaferli barna, þ.e.
vaxtarþroska og hreyfiþroska. Einnig er fjallað um undirstöðuatriði kennslufræði, mikilvægi rétt
mataræðis, fyrstu viðbrögð við íþróttameiðslum og fleira.
Helgina 24. – 26. október verður Þjálfari 2a – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Lágmarksaldur þátttakenda er 18 ár. Þeir þurfa að hafa lokið fyrsta þjálfarastigi (almennum hluta) og
hafa sex mánaða starfsreynslu frá því að því stigi var lokið (staðfest af viðkomandi íþróttafélagi). Þá
þurfa þátttakendur að hafa lokið skyndihjálparnámskeið. Á þessu námskeiði verður haldið áfram með
starfsemi líkamans með sérstaka áherslu á hraða- og viðbragðsþjálfun. Einnig verður farið yfir skipulag
þjálfunar, sálarfræði og siðfræði íþrótta.
Verð á hvort námskeið er kr. 8.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is
eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 22. október.
Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru
gjaldgengir á Almennan hluta 1b.
Þeir sem hafa lokið ÍÞF102, ÍÞG1x2 í
framhaldsskóla og Skyndihjálpar-
námskeiði eru gjaldgengir á Almennan
hluta 2a.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar
fæst metin til eininga í
framhaldsskólum samkvæmt
aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar má finna á
www.isisport.is
LEIKIR
18.30 Fram og ÍBV keppa í Fram-
húsinu í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta.
19.15 Grótta/KR og FH leika á Sel-
tjarnarnesi í RE/MAX-deild kven-
na í handbolta.
19.15 Valur fær KA/Þór í heim-
sókn í Valsheimilið í RE/MAX-
deild kvenna í handbolta.
19.15 Víkingur keppir við Stjörn-
una keppa í Víkinni í RE/MAX-
deild kvenna í handbolta.
20.00 Haukar mæta Fylki/ÍR að
Ásvöllum í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta.
SJÓNVARP
17.45 Mótorsport 2003 á Sýn. Ítar-
leg umfjöllun um íslenskar akst-
ursíþróttir.
18.15 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World)
á Sýn.
18.45 Bein útsending frá síðari leik
Liverpool og Olimpija Ljubljana
í 1. umferð UEFA-bikarkeppninnar
á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
22.50 Handboltakvöld á RÚV.
FÓTBOLTI „Alpay getur ekki leikið
með tyrkneska landsliðinu undir
þessum kringumstæðum,“ sagði
landsliðsþjálfarinn Senol Gunes við
sjónvarpsstöðina CNN-Turk. Hann
bætti því við að sér fyndist Alpay
ekki eiga skilið gagnrýnina sem
hann fær frá fjölmiðlum. „Við verð-
um að skilja út undan leikmann sem
breytti rangt, en jafnframt þakka
leikmanni sem hefur þjónað lands-
liðinu í tíu til fimmtán ár.“
Alpay Özalan hefur verið í
sviðsljósinu eftir framkomu sína
gagnvart David Beckham í leik
Tyrkja gegn Englendingum á
laugardag. Alpay leikur með
Aston Villa og hugsa enskir hon-
um þegjandi þörfina þegar hann
leikur að nýju á fótboltavöllum
þar í landi.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn
fékk frí frá æfingu hjá Aston Villa
í gærmorgun og er talið ólíklegt
að hann leiki með liðinu í ná-
grannauppgjörinu við Birming-
ham City á laugardag.
David O’Leary, framkvæmda-
stjóri Villa, hefur einnig gefið
leikmönnum fyrirmæli um að tjá
sig ekki um mál Tyrkjans. ■
ALPAY ÖZALAN
Wayne Rooney fylgist með þegar Alpay
Özalan skallar frá marki Tyrkja.
Aston Villa:
Landsliðsferli
Alpay lokið?
FÓTBOLTI Íslendingaliðið Lokeren
mætir Manchester City í dag í síð-
ari leik liðanna í fyrstu umferð
UEFA-bikarsins í knattspyrnu.
Lokeren stendur ágætlega að vígi
því Manchester City vann fyrri
leikinn á Englandi 3-2.
Íslendingarnir fjórir, Rúnar
Kristinsson, Arnar Grétarsson,
Arnar Þór Viðarsson og Marel
Baldvinsson, verða líklega allir í
leikmannahópi Lokeren.
Liverpool fær Olimpija Ljublj-
ana frá Slóveníu í heimsókn en
fyrri leiknum lauk með jafntefli,
1-1. Liverpool er talið mun sigur-
stranglegra en slóvensku leik-
mennirnir eru á öðru máli.
„Leikmennirnir eru kannski á
góðum launum en það skiptir
engu máli þegar á hólminn er
komið,“ sagði Mladen Rudonja,
framherji Olimpija. „Leikmenn
verða að leika með hjartanu og
þeir hafa ekki sama hjartalag og
við.“
Þjálfari Olimpija tekur í sama
streng: „Ef við lékum vikulega við
Liverpool værum við með tuttugu
stiga forystu í deildinni. Við för-
um til Englands til að vinna og
ætlum áfram í keppninni.“
Michael Owen getur ekki leikið
með Liverpool í kvöld vegna
meiðsla en hann skoraði í fyrri
leik liðanna.
Spænska stórveldið Barcelona
gerði jafntefli við FKM Puchov,
sem er í neðsta sæti slóvakísku
deildarinnar. Sömu sögu er að
segja af Parma, sem gerði 1-1
jafntefli við Metalurh Donetsk frá
Úkraínu.
Valencia fær AIK frá Svíþjóð í
heimsókn en spænska liðið sigraði
í fyrri viðureigninni með einu
marki gegn engu. AIK sló Fylki út
úr forkeppni UEFA-bikarsins.
Helgi Sigurðsson og félagar í
Lyn fá PAOK frá Grikklandi í
heimsókn. Lyn vann fyrri leikinn
og skoraði Helgi eina mark leiks-
ins.
Molde, lið Ólafs Stígssonar,
Bjarna Þorsteinssonar og Andra
Sigþórssonar, tekur á móti Leiria
en portúgalska liðið vann fyrri
leikinn 1-0.
Árni Gautur Arason verður lík-
lega ekki í leikmannahópi Rosen-
borgar sem mætir Ventspils. ■
MICHAEL OWEN
Leikur ekki með Liverpool í kvöld á
móti Olimpija Ljubljana. Fyrri leikur-
inn endaði með jafntefli.
Leikmenn Olimpija
óttast ekki Liverpool
Flestum viðureignum í fyrstu umferð UEFA-bikarsins lýkur í kvöld. Owen ekki með
gegn Olimpija. Íslendingaliðið Lokeren mætir Manchester City. Lyn á góða
möguleika á að komast áfram.
FÓTBOLTI Unglingurinn Wayne
Rooney ætlar að hefja viðræður
við stjórn Everton um nýjan fimm
ára samning fyrir lok árs. Rooney,
sem verður átján ára í þessum
mánuði, skrifaði undir nýjan
samning við Everton í febrúar á
þessu ári sem gildir til ársins 2006.
Stjórn Everton vill halda sem
fastast í leikmannninn enda hefur
hann leikið frábærlega og er orð-
inn, þrátt fyrir ungan aldur, fasta-
maður í enska landsliðinu. Hann
var orðaður við Chelsea fyrir
skömmu og þá var hann metinn á
30 milljónir punda.
Rooney er yngsti leikmaðurinn
sem hefur spilað með enska lands-
liðinu og varð yngstur til að skora í
sigurleik gegn Makedóníu.
Billy Kenwright, eigandi Ev-
erton, lýsti því yfir fyrir skömmu
að hann vildi halda í Rooney sama
hversu hátt boð hann fengi í leik-
manninn.
„Ég gleymi peningunum þegar
ég sé strákinn í bláa búningnum,“
sagði Kenwright. „Rooney á
heima í Everton og hann er ekki
til sölu.“ ■
WAYNE ROONEY
Rooney hefur staðið sig frábærlega með Everton síðan hann skoraði sitt fyrsta deildar-
mark á Goodison Park í fyrra. Markið batt enda á 30 leikja sigurgöngu Arsenal.
Stjórn Everton:
Vill nýjan samning
við Rooney
FÓTBOLTI „Við ætlum að reyna að
komast áfram í milliriðil,“ sagði
Guðni Kjartansson, þjálfari U-19
landsliðs karla, sem keppir við
Moldóva, Hollendinga og Ísraela
í undankeppni Evrópumóts
landsliða. Leikið verður í
Kisínev, höfuðborg Moldavíu.
„Þetta er nokkuð reyndur hóp-
ur en þarna eru samt eru þó
nokkuð margir á yngra ári sem
geta leikið með á næsta ári. Það
er svolítið óvenjulegt.“
Guðni reiknar með að Hol-
lendingar verði með sterkasta
liðið. „Hollendingar eru bara
sterk knattspyrnuþjóð. Ísraelar
eru svolítið spurningarmerki. Við
höfum spilað við þá áður og
stundum eru þeir með mjög öfl-
ugt lið. Moldóvana þekkjum við
minna.“
Íslendingar léku tvo æfinga-
leiki við Skota í vor, unnu einn en
gerðu jafntefli í hinum. „Við
þekkjum alveg okkar leikmenn
og vitum að þeir hafa styrkleika
til að standa sig. Það er það sem
skiptir máli,“ sagði Guðni Kjart-
ansson. ■
Evrópukeppni U-19 liða karla:
Ætlum að reyna
að komast áfram