Fréttablaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 2
2 26. október 2003 SUNNUDAGUR Jú, þeir þurfa bara að sýna það oftar og meira í verki. Hrafn Jökulsson er forseti Hróksins, en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að tefla fram mörgum út- lendingum í liði sínu. Spurningdagsins Hrafn, eru Íslendingar ekki nógu góðir? Stjórnin heldur sjó Stjórnarflokkarnir halda sínu í nýrri skoðanakönnun. Dósent í stjórn- málafræði segir að svo virðist sem stjórnarflokkunum hafi tekist að sannfæra sína kjósendur um að þeir haldi vel á sínum málum. SKOÐANAKÖNNUN Stjórnarflokkarn- ir halda sínu og rúmlega það í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs- ins á fylgi flokkanna. Fylgi þeirra er mjög svipað og það var í al- þingiskosningunum 10 maí. Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, segir að þessi niðurstaða komi ekki á óvart. „Ég held að stjórnarandstaðan hafi ekki verið að skora nein s n i l l d a r m ö r k það sem af er þessu kjörtíma- bili,“ segir Bald- ur. „Ríkisstjórn- in hefur haldið þokkalega sjó.“ Í könnuninni mælist Sjálf- stæðisflokkurinn með ríflega 35% fylgi, sem er 1,5% meira en flokk- urinn fékk í kosningunum. Fram- sóknarflokkurinn stendur nánast í stað, en hann fær 17,9% í skoðan- ankönnuninni en fékk 17,7% í kosningunum. Samfylkingin tapar mestu fylgi í könnuninni, 2,6% miðað við síðustu könnun. Flokkurinn mælist nú með 28,4%. Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn eru á svipuðu reki. Frjálslyndir bæta töluverðu við sig miðað við kosningarnar. Flokkurinn nýtur stuðnings 9,4% þjóðarinnar miðað við skoðanakönnunina en fékk 7,4% í kosningunum. Vinstri grænir mælast líkt og Framsókn- arflokkurinn með nánast sama fylgi og í kosningunum. Flokkur- inn nýtur stuðnings 9% þjóðarinn- ar miðað við könnunina, sem er 0,2% minna en hann fékk í kosn- ingunum. Baldur segir að gagnrýni stjórnarandstöðunnar á ríkis- stjórnina í kjölfar öryrkjadóms- ins og öll umræða hennar um svikin kosningaloforð stjórnar- flokkanna virðist ekki hafa áhrif á afstöðu almennings. Það segi ekki endilega að stjórnarandstaðan sé veik heldur frekar að stjórninni hafi tekist að sannfæra sína kjós- endur um að hún haldi vel á sínum málum. „Það er kannski athyglisvert að öryrkjadómurinn hafi engin áhrif en báðir aðilar túlka dóminn að ákveðnu marki sem sigur fyrir sinn málstað. Það kannski skýrir þetta.“ Baldur segir að fróðlegt verði að fylgjast með þróun á fylgi flokkanna á næstunni, sérstak- lega á næsta ári þegar stokkað verði upp í ríkis- stjórninni og Davíð Oddsson víkur úr for- sætisráðherra- stólnum fyrir Halldóri Ás- grímssyni. Úrtakið í k ö n n u n i n n i , sem gerð var í gær, var 800 manns sem skiptist hlutfallslega jafnt milli kynja og landshluta. Um 67% aðspurðra tóku afstöðu. trausti@frettabladid.is Flugvirkjar og Tækniþjónustan: Deilan virðist í hnút ATVINNUMÁL „Það þokaðist lítið í samkomulagsátt,“ sagði Þórir Einarsson ríkissáttasemjari eftir að fundi flugvirkja og Tækniþjón- ustunnar lauk síðdegis í gær eftir sjö tíma törn. Annar fundur hefur verið boðaður seinnipartinn í dag. Kristján Kristinsson, sem sit- ur í samninganefnd flugvirkja, sagðist ekki vera of bjartsýnn á framhaldið. „Það þokaðist ósköp lítið á þessum fundi. Þó má segja að ekki beri mjög mikið á milli að mínu viti. Það er vitaskuld túlk- unaratriði en það þarf ekki að teygja sig mjög langt til að aðilar verði sáttir.“ Kristján segir þennan samning ekki ósvipaðan þeim sem var gerður við flugvirkja Flugfélags Íslands fyrir skömmu. „Í megin- atriðum er um svipaðan samning að ræða. Hins vegar höfum við að- eins aðrar áherslur og á þeim strandar málið. Hins vegar ber að geta þess að það eru ekki margir félagsmenn innan okkar raða og auðvelt verður að klára málið ef sættir nást.“ ■ HORFST Í AUGU Tvíburabræðurnir Mohamed og Ahmed Ibrahim, sem áður voru samvaxnir á höfði, sjást í fyrsta sinn. Egypskir síamstvíburar: Sjást í fyrsta sinn DALLAS, AP Egypsku tvíburarnir Mohamed og Ahmed Ibrahim horfðust í fyrsta sinn í augu á sjúkrahúsi í Dallas á föstudag. Tvíburarnir, sem eru tveggja ára gamlir, fæddust samvaxnir á höfði en voru aðskildir með skurðaðgerð fyrr í þessum mán- uði. Bræðurnir eru báðir taldir úr lífshættu, en ástand þeirra er þó ennþá alvarlegt. Bati Mohameds hefur verið hraðari en bróður hans og telja foreldrar tvíbur- anna að hann hafi þekkt bróður sinn er þeir sáust í fyrsta sinn. Ahmed var í móki þegar þessi fyrsti fundur bræðranna átti sér stað. ■ HALLDÓR OG DAVÍÐ Baldur Þórhallsson segir að gagnrýni stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórnina í kjölfar öryrkja- dómsins og öll umræða hennar um svikin kosningaloforð stjórnarflokkanna virðist ekki hafa áhrif á afstöðu almennings. BALDUR ÞÓRHALLSSON Niðurstaða könnunar- innar kom ekki á óvart. ÞRÓUN FYLGIS FLOKKANNA Kosningar Ágúst* Október* B 17,7% 13,1% 17,9% D 33,7% 40,6% 35,2% F 7,4% 8,3% 9,4% S 31,0% 31,4% 28,4% U 8,8% 6,0% 9,0% *Skoðanakönnun Fréttablaðsins Brautskráning frá Há- skóla Íslands: Rektor vill umræðu um skólagjöld SKÓLAMÁL Við brautskráningu stúdenta við Háskóla Íslands í gær bað Páll Skúlason útskriftar- nemendur að hugleiða hvort þeir héldu að þeir hefðu verið betri nemendur við háskólann ef þeir hefðu greitt hærri skólagjöld. Í ræðu sinni sagði Páll að þessi spurning væri mikilvæg þegar umræða um skólagjöld bæri á góma og þar sem skóla- gjöld væru ein leið til að bæta kennslu, nám og rannsóknir við háskólann hljóti að þurfa að íhuga vandlega kosti hennar og galla. Páll segir að starfið innan háskólans hafi aldrei verið eins öflugt, fjölbreytt og skapandi og um þessar mundir og af þeim ástæðum sé þörfin fyrir meira fé brýn. ■ RÚSSLAND, AP Grátandi ættingjar biðu enn áhyggjufullir við kola- námu í suðurhluta Rússlands í gærkvöld en óvíst var um afdrif 13 af 46 námuverkamönnum sem lok- uðust niðri í námunni fyrir helgi. Vatn flæddi inn í námugöngin á fimmtudag og lokaði mennina inni á 800 metra dýpi. Björgunarsveitir höfðu í gærkvöld náð upp 33 mönn- um en þeir höfðu þá mátt dúsa innilokaðir í tæpa tvo sólarhringa, matarlausir í svartamyrkri. Björg- un þeirra var tímafrek en þeir voru fluttir upp úr námunni með sérstakri lyftu sem aðeins tekur þrjá í hverri ferð. Mennirnir voru fluttir á sjúkrahús en þeir voru mjög kaldir og þrekaðir. Námuverkamennirnir voru í nokkrum hópum og er 13 manna enn leitað. Lífslíkur þeirra fara ört þverrandi, að sögn björgunar- manna. ■ Námuslys í Rússlandi: Þrettán saknað HÓLPINN Námuverkamaður veifar til viðstaddra þeg- ar björgunarmenn koma með hann upp úr kolanámunni eftir tæplega tveggja sólar- hringa innilokun. Óvíst er um afdrif 13 námuverkamanna en búið var að bjarga 33 úr prísundinni í gærkvöld. Alltaf ód‡rast á netinu Breytanlegur farseðill! Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 22 35 0 1 0/ 20 03 Rannsóknin á morði Önnu Lindh: Lög brotin STOKKHÓLMUR Lögmaður sænska landlæknisembættisins segir að lögreglan í Stokkhólmi hafi brot- ið lög þegar hún aflaði sannana gegn meintum morðingja Önnu Lindh. Lögreglan þurfti að fá DNA- sýni úr manninum, meðal annars til að bera saman við morðvopnið og fatnað sem fannst skammt frá morðstaðnum, og voru sýnin feng- in úr lífsýnabanka í Huddinge- sjúkrahúsinu. Bankinn hefur að geyma lífsýni þriggja milljóna íbúa. Ströng lög gilda um bankann og má aðeins nota sýni úr honum til að finna og greina ákveðna sjúkdóma. ■ RÍKISSÁTTASEMJARI Fundi Tækniþjónustunnar og flugvirkja á Keflavíkurflugvelli lauk án árangurs. Annar fundur verður í dag. „Ég held að stjórnarand- staðan hafi ekki verið að skora nein snilldarmörk. Kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu: Stefnu- breyting SUÐUR-KÓREA, AP Norður-Kóreu- stjórn sagðist í gær reiðubúin að íhuga tilboð George W. Bush Bandaríkjaforseta um tryggingu fyrir öryggi landsins gegn því að hætt verði við kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Þetta er kúvending í stefnu Norður-Kóreu, sem hing- að til hefur hafnað tilboði Banda- ríkjamanna með þeim orðum að það væri vart pappírsins virði. Þá er skammt síðan Norður-Kórea hótaði að sýna mátt sinn á sviði kjarnorkuvopna. Deilan um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu og meinta kjaornurkuvopnaeign hefur staðið í rúmt ár. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI SKOTIN NIÐUR Apache-þyrla sveimar yfir brennandi flaki Black Hawk-þyrlunnar sem skotin var nið- ur með heimatilbúinni árásareldflaug. Einn maður særðist. Þyrla skotin niður í Írak: Einn slasaður BAGDAD, AP Að minnsta kosti einn maður særðist þegar bandarísk Black Hawk-herþyrla var skotin niður í gær skammt utan við Tíkrít í Írak. Þyrlan var skotin niður með heimatilbúinni eldflaug og brot- lenti hún skammt utan við borg- ina. Bandaríkjamenn neita að tjá sig nokkuð um atvikið en þeir hafa ítrekað varað við hættunni sem stafar af þúsundum árásar- eldflauga sem þeir segja að enn séu í höndum stuðningsmanna Saddams Husseins. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.