Fréttablaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 23
23SUNNUDAGUR 26. október 2003 Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar Heims- ferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu og bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Sértilboð á glæsilegu 4 stjörnu hóteli, rétt við kastalann í hjarta Prag. Helgarferð til Prag 6. nóv. frá 29.950.- Glæsilegt 4 stjörnu hótel Verð kr. 29.950.- Flugsæti til Prag, 6. nóv., Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.950.- Flug og hótel í 3 nætur, helgarferð 6. nóv. m.v. 2 í herbergi á Pyramida, glæsilegt 4 stjörnu hótel. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800,- Hrein Fjárfesting ehf., Dalbraut 3, 105 Rvk., s: 567 7773 - og um kvöld og helgar s:893 6337 www.rainbowsystem.com R A I N B O W T I L B O Ð TILBOÐ 1 KR. 186.000 TILBOÐI Ð GILDIR T IL 1. NÓV. 2 003 1. 2. TILBOÐ 2 KR. 159.000 - Rainbow-ryksuga -Hnífasett -Rakatæki Rainbow-ryksuga Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra: Mótmæli mín beinast að þvíhróplega óréttlæti þegar feðrum eru meinuð eðlileg sam- skipti við börn sín. S.M.F.A. stendur fyrir Samsæri Mæðra, Féló og Alþingis. Forsjárlausir feður búa sumir við afskaplegt misrétti og ekki síður börn þeirra, sem fá ekki að njóta eðlilegra samvista við föður sinn. Kerfið er þessum mönnum afar andsnúið og ég hvet þá til að halda áfram sinni réttinda- baráttu. Við erum komin afar langt í jafnréttismálum, en í þessu tilviki eigum við afar langt í land. Ég er svo heppinn að vera giftur og hafa börnin hjá mér alla daga ársins.“ ■ Sigríður Ásthildur Andersen lögfræðingur: Þær eru náttúrlega orðnar ansi þreytandi þessar enda-lausu óskir kröfugerðahópanna. Það er alveg furðulegt hvað mörgum finnst sjálfsagt að láta aðra greiða fyrir áhugamál sín. Ætli það heyri ekki til undantekninga að ráð- ist sé í verkefni án þess að menn renni á einhverjum tíma- punkti hýru auga til skattfjár almennings, og þá á ég ekki við brýn velferðarverkefni svo sem aðstoð við þá sem eru hjálparþurfi. Og það er hvimleitt hversu freklega skatt- borgarar eru krafðir um framlög í þessi verkefni. Þannig snúa til dæmis sumir bara upp á sig hneykslaðir ef einhver vogar sér að gagnrýna 7 milljarða króna útgjöld fyrir enn eitt tónlistarhúsið. Kröfur um útgjöld í ótrúlegustu áhuga- mál eru svo gjarnan rökstuddar með vísan til mannréttinda. Æ, þetta er orðið frekar fúlt.“ ■ Magnús Kjartansson tónlistarmaður: Ég mótmæli því að verið sé að níðast á börnum með sér-þarfir með því að setja foreldrum þeirra stólinn fyrir dyrnar. Þetta er í framhaldi af umræðunni um að þau fái ekki greiðslu eða örorkubætur eða aðstoð frá Trygginga- stofnun jafnvel þó að það vanti hálfan heilann í börnin. Hættum að vera með stofnanir á vegum ríkisins sem telja sitt helsta markmið að flækjast fyrir fólki sem þarf á þeim að halda! Þetta er vandmeðfarið en ég þekki þetta örlítið á eigin skinni. Þegar það er orðið margra daga vinna og þarf samsæri foreldra, jafnvel lækna og stoðtækjasmiða og sér- fræðinga að fá spelkur eða önnur stoðtæki fyrir börn sem á þurfa að halda, fyrir utan aðra aðstoð, þá er eitthvað orð- ið bogið við samfélagið. Á meðan skiptir ekki máli fyrir aðra hvort eitthvað kostar 41 milljarða eða 42 milljarða. Þá er bara spurning um eitthvert samkomulag og „hand- shake“. Milljarðurinn þar virðist milljón hins vinnandi manns.“ ■ FRÉTTAB LAÐ IÐ /ALD A LÓ A FRÉTTAB LAÐ IÐ /ALD A LÓ A FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.