Fréttablaðið - 26.10.2003, Síða 33
33SUNNUDAGUR 26. október 2003
Málverk vikunnar
Málverk vikunnar er eftirhinn umdeilda Helga Þor-
gils Friðjónsson (f. 1953), Fiskar
sjávar, og er frá árinum 1995.
Verkið keypti Listasafn Íslands
árið 1998 á 750.000 krónur en það
er 220x200 sentimetrar á stærð.
Myndmál Helga Þorgils hefur
alla tíð verið mjög persónulegt
en þó með mikilvægum skírskot-
unum til sögulegra og menning-
arlegra tákna. Undanfarin ár
hefur samband mannsins við um-
hverfi sitt einnig orðið æ fyrir-
ferðarmeira í verkum hans. Þó
að myndefni Helga Þorgils eigi
sér raunverulegar fyrirmyndir
er samhengið yfirleitt annað en
við eigum að venjast og oft leyn-
ast spaugilegar þverstæður á
myndfletinum þegar að er gáð. Í
málverkum hans sjáum við til
dæmis yfirleitt fólk eða dýr í for-
grunni en landslag í bakgrunni,
pensilskriftin er án átaka og yfir-
borðið slétt og áferðarfallegt,
auk þess sem teikningin hefur
ávallt skipað veglegan sess í
verkum hans.
Helgi Þorgils Friðjónsson hóf
feril sinn sem myndlistarmaður
um miðjan áttunda áratuginn og
hefur hann unnið með margs
konar miðla, til dæmis teikning-
ar, grafíkverk, bækur og skúlpt-
úra unna í leir. Það er hins vegar
málverkið sem hefur ætíð skipað
stærstan sess í myndsköpun
Helga Þorgils og
hefur hann átt
mikilvægan hlut
að máli við endur-
nýjun málverksins
í íslenskri mynd-
list. ■
FISKAR SJÁVAR
Myndefni Helga Þor-
gils á sér yfirleitt
raunverulegar fyrir-
myndir en samhengið
ef til vill annað en við
eigum að venjast.
Spaugilegar þverstæður
McCarthy að hætta að nota orða-
lagið „flokksbundnir kommúnist-
ar“ því að slíkt væri ekki hægt að
sanna, og nota þess í stað orð eins
og „laumukommar“ eða „rússa-
dindlar“.
McCarthyismi og nornaveiðar
Með dyggum stuðningi J. Edg-
ar Hoover hóf McCarthy nú
kommúnistaofsóknir sínar af full-
um krafti, og allt í einu varð það
lífshættulegt að hafa einhvern
tímann umgengist kommúnista.
Leikritaskáldið Lillian Hellman
var sett á svartan lista og í at-
vinnubann vegna þess að sambýl-
ismaður hennar, reyfaraskáldið
og handritshöfundurinn Dashiell
Hammett, var kommúnisti. John
Melby, starfsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, sem átti óaðfinnan-
lega feril að baki og var saklaus af
allri vinstrivillu, missti vinnuna
af því að hann hafði átt í ástar-
sambandi við Lillian Hellman –
sem aftur hafði saurgast af sam-
búð sinni með kommúnista.
Það var skopmyndateiknarinn
Herbert L. Block (Herblock) við
Washington Post sem fann upp á
því að kalla starfsaðferðir
McCarthys einfaldlega McCart-
hyisma – en þessar „nornaveið-
ar“ í nútímanum breiddu út ótta
og skelfingu, þannig að Banda-
ríkjamenn fyrir hálfri öld óttuð-
ust kommúnista meira en þeir
óttast hryðjuverkamenn nú á
tímum.
McCarthyisminn skaðaði
gagnnjósnastarfsemi BNA
Starfsmenn alríkislögreglunnar
eins og Robert Lamphere, sem
unnu að gagnnjósnum, voru skelf-
ingu lostnir yfir athæfi McCarthys.
„Nornaveiðar McCarthys gerðu
mikið ógagn,“ sagði Lamphere,
„vegna þess að hann var að eltast
við eitthvað sem enginn fótur var
fyrir. Vissulega voru njósnarar að
störfum í Bandaríkjunum á þess-
um tíma, en þeir voru ekki allir í
utanríkisráðuneytinu. Vandamálið
var að McCarthy laug til um allar
upplýsingar sem hann sagðist hafa
undir höndum og laug til um allar
tölur sem hann lagði fram. Hann
lagði fram ákærur á hendur sak-
lausu fólki. McCarthyisminn stór-
skaðaði gagnnjósnir Bandaríkj-
anna gegn Sovétríkjunum vegna
þess að nornaveiðar hans vöktu
mikla andúð meðal þjóðarinnar. Og
allan tímann gerði Hoover allt sem
hann gat til að hjálpa honum.“
Seildist of langt
Sem betur fer stóðu nornaveið-
ar McCarthys ekki lengi yfir. Árið
1953, fyrir hálfri öld, var hann á
hátindi ferils síns. Ári síðar hafði
hann orðið uppvís að of mörgum
mistökum, og hann hafði seilst of
langt inn í valdahring Bandaríkj-
anna, þegar hann hugðist leggja til
atlögu við ímyndaða kommúnista í
bandaríska hernum. Fjölmiðlar
snerust gegn honum og hann varð
áhrifalaus.
2. maí árið 1957 dó Joseph R.
McCarthy úr bráðri lifrarbólgu.
Það voru fjölmiðlar sem hófu
hann á stall, og það voru fjölmiðlar
sem steyptu honum af stalli. Enn
þann dag í dag á McCarthy eigi að
síður marga aðdáendur sem sjá í
honum verndardýrling Bandaríkj-
anna gegn hinum illa dreka komm-
únismans. Nornaveiðar að hætti
hans hafa verið stundaðar víða um
lönd, og viðgangast sums staðar
jafnvel enn þann dag í dag, þótt
hálf öld sé liðin frá því að norna-
veiðarinn frá Wisconsin reið um
héruð.
thrainn@frettabladid.is
LEONARD BERNSTEIN
Hinn frægi stjórnandi var talinn kommúnisti.