Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 6
6 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR ■ Lögreglufréttir ■ Kárahnúkar GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 72.87 -0.19% Sterlingspund 127.66 0.04% Dönsk króna 12.08 -0.33% Evra 89.88 -0.28% Gengisvísitala krónu 124,56 -0,02% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 255 Velta 6.301 milljónir ICEX-15 2.067 -0,34% Mestu viðskiptin Fjárf.f. Straumur hf. 1.109.695.524 Grandi hf. 765.728.847 Bakkavör Group hf. 354.383.962 Mesta hækkun Medcare Flaga hf. 1,61% Jarðboranir hf. 1,55% Kögun hf. 1,54% Mesta lækkun Grandi hf. -1,50% Marel hf. -1,47% Eimskipafélag Íslands hf. -1,35% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.110,2 -0,2% Nasdaq* 1.914,2 -0,5% FTSE 4.354,2 0,5% DAX 3.847,6 -0,5% NK50 1.282,7 -0,0% S&P* 1.073,7 -0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir bandaríski hjúkrunar-fræðingurinn sem hefur játað að hafa drepið 30–40 sjúklinga? 2Hvað heitir báturinn sem sökk ámánudag við Hafnarberg? 3Hvaða kvikmynd var valin besta jóla-mynd allra tíma? Svörin eru á bls. 58 LUNDÚNIR, AP Kviðdómur í Lundún- um fann Ian Huntley sekan um að hafa í ágúst á síðasta ári myrt tvær tíu ára gamlar stúlkur, Holly Wells og Jessicu Chapman, í bæn- um Soham í Englandi. Huntley, sem var húsvörður í skóla stúlkn- anna, hlaut tvo lífstíðardóma. Kærasta Huntleys, Maxine Carr, var sýknuð af ákærum um aðild að morðunum en dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að hindra framgang réttvís- innar með því að halda upplýsing- um leyndum fyrir lögreglunni. Huntley lýsti sig saklausan af ákærum um morð en játaði að hafa reynt að hindra framgang réttvísinnar. Hann hélt því fram að Wells hefði drukknað í baðkari heima hjá honum og Chapman hefði kafnað þegar hann var að reyna að róa hana. Hann viður- kenndi að hafa keyrt með líkin út fyrir bæinn, kastað þeim í skurð og brennt þau. Carr játaði að hafa logið að lögreglunni til að vernda kærasta sinn. Huntley og Carr voru sakfelld með ellefu atkvæðum gegn einu eftir að dómari féllst á að sam- þykkja úrskurð sem byggðist á niðurstöðu tíu eða fleiri kviðdóm- ara. Kviðdómurinn hafði í þrjá daga reynt að komast að sam- hljóða niðurstöðu. ■ Höfðar meiðyrðamál gegn forsætisráðherra Jón Ólafsson kaupsýslumaður hefur höfðað mál gegn Davíð Oddssyni vegna ummæla sem ráð- herra lét falla í fjölmiðlum um Jón og meint skattsvik hans. Jón segir Davíð hafa vegið að mann- orði sínu og sjálfsvirðingu með ummælunum og krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. MÁLSHÖFÐUN Jón Ólafsson kaup- sýslumaður hefur höfðað mál gegn Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra vegna ummæla sem Davíð hefur látið falla í fjölmiðl- um um sölu Jóns á eigum sínum á Íslandi. Forsætisráðherra var birt stefna í gærmorgun en málið verður þingfest fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur 13. janúar. Jón Ólafsson krefst þess að ummæli forsætisráðherrans í Ríkisútvarpinu 21. nóvember og Morgunblaðinu daginn eftir verði dæmd dauð og ómerk. Í báðum tilfell- um ræddi for- sætisráðherra um meint skatt- svik Jóns Ólafs- sonar og rann- sókn yfirvalda á þeim og að- komu kaup- þings Búnaðar- banka að sölu eigna Jóns. Þá krefst Jón þess að forsætisráð- herra verði dæmdur til greiðslu sektar í ríkissjóð fyrir ummælin og þær aðdróttanir um skattsvik og þjófnað sem í þeim felast. Miskabótakrafa Jóns hljóðar upp á þrjár milljónir króna en að auki krefst hann 350 þúsunda króna úr hendi Davíðs til að standa straum af birtingu dóms- orðs í þremur dagblöðum. Í stefnunni segir meðal ann- ars að Jón Ólafsson hafi um nokkurt skeið sætt skattrann- sókn en deilt sé um hvort Jón eigi að telja fram og greiða skatta af tekjum og eignum sín- um á Íslandi eða erlendis. Sú deila hafi hvorki verið leidd til lykta af skattayfirvöldum né heldur dómstólum og ekki hafi verið gefin út ákæra á hendur Jóni, hvorki fyrir skattsvik né þjófnað. Því síður hafi hann ver- ið dæmdur fyrir slíka háttsemi. Með ummælum sínum hafi for- sætisráðherra vegið að mannorði og sjálfsvirðingu Jóns. Þá segir að í ljósi menntunar forsætisráðherra og stöðu hans og áhrifa í íslensku samfélagi verði að gera ríkari kröfur til hans um að hann gæti að sann- leik orða sinna. „Það er einfaldlega ekki hægt að sitja þegjandi lengur undir þessum málflutningi og það sýn- ir einnig einkennilegan skilning á viðskiptum að halda því fram að sala á eignum dragi úr hugs- anlegri greiðslugetu. Verði nið- urstaða í deilum mínum við skattayfirvöld sú að mér beri að greiða aukna skatta á Íslandi mun ég að sjálfsögðu hlíta þeim úrskurði. Af minni hálfu hefur enginn þjófnaður átt sér stað og ég hef hvorki verið ákærður né dæmdur fyrir skattalagabrot af neinu tagi. Forsætisráðherra má einfaldlega ekki komast upp með orðbragð og framkomu af þessu tagi,“ segir Jón Ólafsson. Davíð Oddsson forsætisráð- herra svaraði ekki skilaboðum Fréttablaðsins. the@frettabladid.is ÓHAPP Í NÝBYGGINGU Litlu munaði að illa færi þegar fjöldi þaksperra sem verið var að reisa í nýbyggingu runnu til og féllu á gólfið. Einn maður varð fyrir sperrunum og féll niður með þeim. Hann hlaut minniháttar áverka og fékk að fara heim að lokinni læknisskoðun. 600 TONNA BOR Risabor kemur til Reyðarfjarðar í dag. Borinn, sem er 600 tonn og 120 metra langur, er sá stærsti sem komið hefur til landsins. Hann verður notaður til heilbora 50 kílómetra göng við Kárahnjúkavirkjun. Borinn var síðast notaður til að bora göng undir Queens-hverfi í New York. Borinn veðrur fluttur í áföngum upp á virkjunarsvæðið í kvöld og nótt. JÓN ÓLAFSSON Ekki hægt að sitja undir þessu lengur. DAVÍÐ ODDSSON Svarar ekki. „Og maður hefur þá tilfinningu að þar með sé auðvelt að skjóta undan fjármunum þannig að ríkisvaldið eigi miklu erfiðara ef skattaálagn- ing verður í samræmi við skatt- rannsókn að ná til sín þeim fjár- munum sem þarna eru á ferðinni. Þetta hafði allt þann brag að þarna væri verið að kaupa og selja þýfi í mínum huga.“ Ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra: RÚV 21. nóvember 2003 „Forsætis- ráðherra má einfaldlega ekki komast upp með orð- bragð og framkomu af þessu tagi. FÓRNARLÖMB HUNTLEYS Ian Huntley var fundinn sekur um að hafa myrt Holly Wells og Jessicu Chapman. Húsvörðurinn Huntley fundinn sekur um morð á tveimur stúlkum: Hlaut tvo lífstíðardóma Morgunblaðið 22. nóvember 2003 „Þann sama dag sem skattrann- sóknarstjóri skilar af sér rann- sókn sem snýst um grunsemdir um að það blasi við að maður nokkur sé mesti skattsvikari Ís- landssögunnar stendur þessi banki fyrir því að losa hans eignir héðan.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.