Fréttablaðið - 18.12.2003, Page 28
tíska o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tiska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Gleðileg jól
Tíska • Gæði • Betra verðSími 5 88 44 22 • www.hm.is
Hársport
Allt fyrir hárið og föt í stíl
10% afsláttur af nýjum fötum
Kjóll áður kr. 8.900 nú kr. 6.900
Buxur áður kr. 7.900 nú kr. 7.100
Toppur áður kr. 3.900 nú kr. 3.500
Hraunbæ 102, s. 567 3530
Opið 9-18 mán -mið. 9-20 fim og fös - 10-16 laugardaga
Prinsessan
verslun í Mjódd, s. 567 4727
www.prinsessan.is
J ó l a k j ó l a r
og drengjaspariföt
Brúðarkjólaleiga Katrínar í Mjódd
Síðkjólar í úrvali - Sala og leiga
Nýir brúðarkjólar frá: Amanda Wyatt. D’Zage,
Maggi Sotero. Mori Lee og Sincerity væntanlegir.
Útsala á eldri kjólum.
HEF HAFIÐ STÖRF
Á HÁRGREIÐSLUSTOFUNNI
SALON REYKJAVÍK
Bíð alla gamla og nýja viðskiptavini velkomna.
Karen Haraldsdóttir
Hárgreiðslumeistari.
Álfheimum 74 - Glæsibær - Sími: 568 5305
Áramótagreiðslur:
Gamaldags og glæsilegt
Gamlárskvöld er rétti tíminn tilað skarta sínu fegursta, draga
fram síðkjólinn sem alltaf annars
er allt of fínn og leyfa dramatík-
inni að ráða svolítið. Rétta hár-
greiðslan getur gert gæfumuninn
en þær sem klikkuðu á því að
panta sér tíma á stofu í tíma þurfa
ekki að örvænta. Við fengum hár-
greiðslukonur frá Hárhönnun til
að sýna okkur tvær einfaldar hár-
greiðslur sem gefa hátíðlegt yfir-
bragð. Þetta á að vera hægt að
gera heima og hér gildir bara að
prófa sig áfram.
Við komum inn á stofuna á
annasömum degi og í miðri jóla-
ösinni. Haft er uppi á tveimur
ungum fyrirsætum og hafist
handa. Hárgreiðslan tekur ekki
langan tíma, enda fjöldi viðskipta-
vina sem þarf sína þjónustu.
„Við ætlum að gera svolítið
gamaldags og rómantíska
greiðslu,“ segir Olga Björg Más-
dóttir hárgreiðslumeistari sem
rekur stofuna Hárhönnun. „Við
ætlum að breyta aðeins til frá
háum og mjóum greiðslum sem
hafa verið svo áberandi undanfar-
ið og reyna að fá meiri mýkt í
þetta.“ Olga segir að hártískan í
dag sé mjög breið. „Það er áfram
sídd í hárinu en við sjáum áhrif
frá pönki, sjöunda og níunda ára-
tugnum. Hárið getur verið slétt
eða liðað.“
Byrjað er á því að þvo hár fyr-
irsætanna. Svo er það blásið eftir
að settir hafa verið Aveda olíu-
dropar sem mýkja hárið og gefa
glans. Hárið er svo sléttað með
sléttujárni. „Það er mikilvægt að
setja vax í hárið strax í upphafi
svo það verði viðráðanlegt,“ seg-
ir Olga.
Byrjað er á að túbera í rótina,
allan hnakkann og aðeins til hlið-
ar. „Það er betra að túbera meira
en minna. Þetta á að halda uppi
greiðslunni og það er alltaf hægt
að greiða túberinguna úr,“ segir
Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir, sem
sér um að greiða ljóshærðu fyrir-
sætunni. Hún tekur tvo lokka frá
sitt hvoru megin. Síðan rúllar
hún hárinu upp að aftan eins og
pylsu og festir niður með hár-
spennum. Lokkana til hliðar not-
ar hún til að vefja utan um snúð-
inn. Útkoman er greiðsla sem er í
senn glæsileg og hæfilega kæru-
leysisleg. Það er svo undir hverj-
um og einum komið hversu mikla
vinnu þeir leggja í að laga hárið
til. „Þetta má alveg vera smá
úfið,“ segir Þórhildur Ýr og úðar
lakki yfir greiðsluna að lokum.
Olga notar svipaða aðferð til
að greiða dökkhærðu fyrirsæt-
unni, túberar hárið mjög mikið
undir og í rótina, rúllar upp hár-
inu og festir að lokum niður með
hárspennum. „Aðalatriðið er að
nota efni í hárið til að geta mótað
það,“ segir hún. „Það er líka gott
að túbera aðeins í toppinn til að
fá fyllingu.“
Fyrirsæturnar voru síðan
farðaðar létt á stofunni, með
Aveda snyrtivörum, en förðun-
arfræðingurinn Kristín Hákon-
ardóttir segist vilja hafa útlit
þeirra sem náttúrulegast. Olga
mælir með því að nota gamla
kamba eða hárskraut til að lífga
upp á greiðslur. „Það er tilvalið
að kíkja í skartgripaskrínið
hennar ömmu eða í Spútnik og
finna eitthvað fallegt. Því þótt
stelpur séu með gamaldags
greiðslu þurfa þær ekki endi-
lega að vera í dragfínum kjól-
um, þær geta jafnvel verið í
gallabuxum. Það er einmitt
þetta sambland ólíkra hluta sem
er svo skemmtilegt.“ ■
S: 551 6688
Njóttu
lífsins
HÁRGREIÐSLAN TEKUR EKKI LANGAN TÍMA
Lögð er áhersla á að hún sé einföld og fljótleg.
FYRIRSÆTURNAR EFTIR GREIÐSLU
Voru einnig farðaðar með Aveda snyrtivörum.
FYRIRSÆTURNAR FYRIR GREIÐSLU
Nauðsynlegt er að hafa dálitla sídd í
hárinu fyrir þessa hárgreiðslu.
TVEIR LOKKAR ERU TEKNIR
FRÁ TIL HLIÐANNA
Og hárinu rúllað upp eins og pylsu
að aftan.
HÁRIÐ ER MÓTAÐ MEÐ HÖNDUNUM
Mikilvægt er að nota vax áður en
hafist er handa.
HÁRSKRAUT
Nú er um að gera að
lífga upp á hár-
greiðsluna með
skrauti af einhverju
tagi. Þá er sniðugt að
lauma fallegu hár-
skrauti í pakkann hjá
ungu dömunni. Þetta
fjaðraskraut fæst í
Búðinni.