Fréttablaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 02.01.2004, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 2. janúar 2004 Bandaríska sjónvarpsstöðinCBS ætlar að framleiða nýja glæpaþætti sem kallast CCAT: Career Criminal Apprehension Team. Munu þeir fjalla um sérsveit sem reynir að handsama góðkunn- ingja lögreglunnar áður en þeir fremja enn einn glæpinn. J.P Donahue og Kevin Polay, sem eru báðir fyrrverandi lögfræðingar, eru handritshöfundar þáttanna. CBS er þekkt fyrir framleiðslu vinsælla glæpaþátta á borð við CSI: Crime Scene Investigation og CSI: Miami. ■ Earl Hindman, sem er þekktast-ur fyrir að leika Wilson, ná- granna Tims Allen í þáttunum vin- sælu Home Improvement eða Handlaginn heimilsfaðir, er látinn 61 árs að aldri. Banameinið var lungnakrabbamein. Wilson gaf heimilsföðurnum oft- ar en ekki góð ráð í þáttunum yfir girðinguna á milli húsanna. Það sem er aftur á móti merkilegast við per- sónuna er að andlit hennar sást aldrei allt í mynd, heldur huldi girð- ingin yfirleitt neðri hluta þess. ■ CSI MIAMI Framleiddir af CBS eins og nýju þættirnir, CCAT: Career Criminal Apprehension Team. Nýir glæpaþættir í vinnslu HULIÐ ANDLIT Hindman í hlutverki Wilson ræðir við heimilsföðurinn yfir girðinguna. Andlitslausi ná- granninn látinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.