Fréttablaðið - 05.01.2004, Blaðsíða 1
LÖGREGLUMÁL Hópur ungra manna
réðist til inngöngu í hús við Flóka-
götu rétt fyrir klukkan tvö í fyrri-
nótt. Mennirnir, sem voru fimm til
átta talsins, voru vopnaðir exi,
kylfum og skammbyssu, sem
síðar kom í ljós að var eftirlíking.
Lögreglan handtók mann um
tvítugt á heimili hans um kvöld-
matarleytið í gær eftir að ábend-
ingar bárust. Hann hefur játað
árásina og að sögn Óskar Sigurðs-
sonar rannsóknarlögreglumanns
liggur fyrir hverjir voru með hon-
um að verki. Átti hann von á að
mennirnir yrðu handteknir fljót-
lega, en þegar blaðið fór í prentun
var enn verið að leita að þeim.
Gestir voru á heimilinu þegar
innrásin var gerð. Mennirnir réð-
ust að fólkinu, börðu og höfðu í
hótunum. Virtust þeir vera að
leita að manni sem ekki var í íbúð-
inni. Að því búnu létu þeir sig
hverfa. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins greip um sig mikil skelf-
ing meðal fólksins vegna innrás-
arinnar en enginn þeirra slasaðist
alvarlega.
Árás mannanna svipar til að-
ferða sem handrukkarar nota
gjarnan. Óskar segir ekkert benda
til, á þessu sigi málsins, að árásin
tengdist fíkniefnum.
Karl Steinar Valsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn segir þróunina
vera að færast á alvarlegt stig ef
skotvopn eru notuð til að ógna
fólki. „Það er erfitt að henda reið-
ur á hvort um er að ræða alvöru-
vopn. Við höfum ekki fundið mik-
ið af skotvopnum í aðgerðum okk-
ar við fíkniefnaheiminn.“
Karl Steinar segir ekki treysta
sér til að segja til um hvort að-
gerðum handrukkara sé að fjölga.
„Við fáum ekki að vita um öll þau
tilfelli sem eiga sér stað. Hluti af
ógnuninni felst í að fórnarlömb
láti yfirvöld ekki vita.“
Síðastliðið haust réðist hópur
ungra manna inn í íbúð í Selja-
hverfi. Mennirnir brutu allt og
brömluðu og börðu íbúa með golf-
kylfu. Karl Steinar segir um ein-
angruð tilfelli að ræða. Erfitt sé
að tengja húsbrot af þessu tagi
saman. „Sum hver eru þræl-
alvarleg. Í grunninn finnst mér
þetta sýna ótrúlega siðblindu og
virðingarleysi. Hvað fer í gegnum
huga þessara einstaklinga sem
ráðast inn á heimili og leggja
hendur á fólk, er ómögulegt að
segja til um. Eins og það birtist
okkur eru gerendur í allflestum
tilfellum karlmenn á aldrinum 20
til 30 ára.“
Sjá nánar bls. 2
kolbrun@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 19
Sjónvarp 24
MÁNUDAGUR
ÞRETTÁNDAGLEÐI Kveikt verður í
þrettándabrennu á Gufunessvæðinu
klukkan 20 í kvöld. Klukkan 19.50 verður
farin blysför frá Gylfaflöt að brennunni.
Álfakóngur, álfadrottning og aðrar kynja-
verur taka þátt í göngunni.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VANTAR VEÐRIÐ Það er eiginlega ekk-
ert veður á landinu. Vindurinn rétt bærist,
stöku dropar falla úr lofti og hitinn hvorki
fugl né fiskur. Varið ykkur hins vegar á
hálkunni. Sjá síðu 6.
góð ráð ● markaður í uppsveiflu
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Dómkirkjan í
uppáhaldi
Sigurður A. Magnússon:
5. janúar 2004 – 4. tölublað – 4. árgangur
● brandari sem fór yfir strikið
Britney Spears:
▲
SÍÐA 22
Giftist æskuvini
á fylliríi
● stórtónleikar í salnum
Jónas Ingimundarson:
▲
SÍÐA 23
Rótarý opnar
Salinn
góð ráð ● bílasala 2004
Fólk vanmetur
sögu bílsins
bílar o.fl.
Kristmundur Árnason:
▲
SÍÐA 20
ENGIN LÖG BROTIN Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra þvertekur fyrir það að
ríkið sé að brjóta lög á sjúklingum með því
að endurgreiða þeim ekki útlagðan kostn-
að vegna sérfræðiþjónustu. Enginn samn-
ingur sé í gildi. Sjá síðu 2
VALDAFLUTNINGUR UNDIRBÚ-
INN Stefnt er að því að öll völd í Írak verði
komin í hendur heimamanna fyrir 30. júní.
Fjölmörg álitamál þarf að leysa sem m.a.
varða stjórnskipulag í Írak og lagalega stöðu
bandaríska hernámsliðsins. Sjá síðu 6
LENT Á MARS Bandaríska könnunar-
farið Spirit lenti á Mars í gær. Farið hefur
þegar sent frá sér fjölda mynda sem sýna
grýtt og eyðilegt landslag. Spirit er ætlað að
aka um plánetuna í leit að vísbendingum
um skilyrði til lífs. Sjá síðu 4
HÆTT VIÐ NIÐURRIF Eigendur Aust-
urbæjar, gamla Austurbæjarbíós, hafa boðið
Húsfriðunarnefnd húsið til sölu. Mikil styr
hefur staðið um framtíð hússins. Sjá síðu 2
GEORGÍA Lögfræðingurinn Mikhail
Saakashvili vann yfirburðasigur í
forsetakosningunum sem fram
fóru í Georgíu í gær, ef marka má
útgönguspár erlendra eftirlits-
manna. Saakashvili er talinn hafa
fengið hátt í 86% greiddra
atkvæða.
Skömmu eftir að kjörstöðum var
lokað ávarpaði Saakashvili
georgísku þjóðina og lýsti sig sig-
urvegara kosninganna. „Ég vil
þakka allri þjóðinni og stuðnings-
mönnum mínum,“ sagði
Saakashvili sem var í forystuhlut-
verki í uppreisninni sem leiddi til
afsagnar Eduards Shevardnadze,
fyrrum forseta.
Kjörsókn var óvenjumikil en
fimmtíu prósent kosningabærra
manna urðu að neyta atkvæðisrétt-
ar síns til að kosningarnar teldust
gildar. Fjöldi manna var í framboði
en enginn þeirra var talinn eiga
möguleika á að sigra Saakashvili.
Aðspurður sagðist Shevardnadze
hafa greitt Saakashvili atkvæði
sitt. „Hann er ungur, kraftmikill og
vel menntaður,“ sagði forsetinn
fyrrverandi. Saakashvili stundaði
nám við Kólumbía-háskóla í New
York. Hann er giftur hollenskri
konu og talar fjölda tungumála.
Nokkur hundruð erlendir eftir-
litsmenn fylgdust með kosningun-
um. Þrír Íslendingar sinntu eftir-
liti fyrir hönd Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu. ■
Vopnaðir karlmenn
ruddust inn á heimili
Fimm til átta menn réðust vopnaðir byssu, exi og kylfum inn á heimili við Flókagötu í fyrrinótt.
Einn handtekinn í gærkvöld. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir alvarlega þróun eiga
sér stað. Húsbrot beri vott um siðblindu og virðingarleysi.
Forsetakosningar í Georgíu:
Saakashvili vann yfirburðasigur
BLAIR Í BASRA
Tony Blair, forsætisráðherra Breta, þakkaði breskum hermönnum í Basra fyrir framlag sitt í stríðinu í Írak.
A
P
M
YN
D
Tony Blair til Írak:
Óvænt
heimsókn
ÍRAK, AP Tony Blair, forsætisráð-
herra Breta, þakkaði breskum her-
mönnum fyrir þátttökuna í inn-
rásinni í Írak þegar hann fór í
óvænta heimsókn til Basra gær.
Um 10.000 breskir hermenn eru í
Basra.
Blair hefur verið í jólaleyfi í
Egyptalandi og flaug hann þaðan
með herflugvél til Basra, næst-
stærstu borgar Írak. Forsætis-
ráðherrann lýsti ánægju sinni með
það að hernámsliðinu skyldi hafa
tekist að steypa Saddam Hussein af
stóli þar sem meintar tilraunir hans
til að þróa gereyðingarvopn hefðu
ógnað öryggi heimsbyggðarinnar. ■
NÝKJÖRINN FORSETI
Saakashvili bíður það erfiða verkefni að
byggja upp land sem er á barmi efnahags-
hruns, koma á pólitískum stöðugleika og
uppræta spillingu.
Meðallestur 25-49
Höfuðborgarsvæðið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
56%
RÉÐUST INN Í HÚS Á FLÓKAGÖTU
Karl Steinar Valsson er uggandi yfir þeirri
þróun að skotvopn séu notuð sem ógn.