Fréttablaðið - 06.01.2004, Side 8

Fréttablaðið - 06.01.2004, Side 8
8 6. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Lögreglufréttir 148 fórust þegar flugvél hrapaði í Rauðahafið: Flugfélagið á svörtum lista í Sviss BERN, AP Björgunarmenn leita enn að líkamsleifum þeirra sem fórust þegar Boeing 737 farþegaþota egypska flugfélagsins Flash Airlines hrapaði í Rauðahafið á laugardaginn. Flugmálayfirvöld í Sviss bönnuðu Flash að lenda á flugvöllum landsins fyrir rúmu ári síðan þar sem félagið uppfyllti ekki öryggiskröfur. 148 manns fórust þegar vélin, sem var á leið frá Sharm el-Sheik í Egyptalandi til Parísar, hrapaði í sjóinn skömmu eftir flugtak. Björgunarmenn hafa aðeins fund- ið brot af flaki vélarinnar og örfá lík en óttast er að hákarlar hafi étið líkamsleifar farþeganna. Flugriti vélarinnar er einnig ófundinn en Frakkar hafa sent herflugvélar og kafbát til Sharm el-Sheik til að aðstoða heimamenn við leitina. Að sögn svissneskra yfirvalda voru gerðar fjölmargar athuga- semdir við öryggisbúnað vélar Flash sem lenti á flugvellinum í Zürich í október 2002. Í kjölfarið var félagið sett á bannlista. Í sama mánuði kom upp eldur í hreyfli vélar Flash yfir Grikklandi. Egypskir embættismenn fullyrða að vélin sem hrapaði í Rauðahafið hafi farið í gegnum reglubundið eftirlit áður en hún fór í loftið og engrar bilunar hafi orðið vart. ■ HJÁLP „Við verðum hluti af teymi sem danski Rauði krossinn er með. Þeir eru miklir sérfræðingar í áfallahjálp og kreppuvinnu,“ segir Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrun- arfræðingur og starfsmaður Rauða kross Íslands, sem fer ásamt Jó- hanni Thoroddsen sálfræðingi til Írans á morgun til að sinna áfalla- hjálp og öðru hjálparstarfi í borg- inni Bam, sem að miklu leyti er í rúst eftir jarðskjálftann sem þar varð um jólin. Talið er að rúmlega 30 þúsund manns hafi farist. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, segir að hluti af þeim tæplega fimm milljónum króna sem Rauði krossinn á Íslandi safnaði meðal almennings verði not- aður til að senda Guðbjörgu og Jó- hann til Írans þar sem þeirra hlut- verk verði meðal annars að meta þörfina fyrir áfallahjálp og andlega aðhlynningu. „Mikil neyð er á svæðinu þar sem um 70 þúsund manns hafast við í tjöldum. Þarna eru við störf um sjö þúsund sjálfboðaliðar sem starfa við afar erfiðar aðstæður. Á jarð- skjálftasvæðinu er kalt og mikillar þreytu gætir meðal hjálparstarfs- manna,“ segir Sigrún. Guðbjörg segist ekki kvíða starf- inu að öðru leyti en því sem tengist því að fara á ókunnugan stað. „En það er mikill stuðningur af því að við förum tvö. Við munum kenna meðlimum íranska Rauða hálmánans áfallahjálp en þess utan sinna beinni áfallahjálp og fræðslu,“ segir hún. Guðbjörg hefur mikla reynslu af áfallahjálp og síð- asta vor var hún í Írak, skömmu eft- ir innrás Bandaríkjamanna. „Ég var þar í sex vikur á vegum Alþjóða Rauða krossins að meta ástand geðheilbrigðismála. Þar var ástandið af mannavöldum og ekki hægt að líkja saman náttúruham- förum og því sem gerist af manna- völdum eins og í Írak. En báðar að- stæður eru hörmulegar,“ segir hún. Hún segir að samfélögin í Írak og Íran séu ólík að því leyti að Íran- ar séu strangtrúaðri. „Ég reikna með að þurfa að hylja hár mitt með slæðu,“ segir Guðbjörg. Hún segist ekki vera í vafa um að áfallahjálp komi að gagni undir þeim kringum- stæðum sem nú ríkja í Íran. „Ég var í Kosovo árið 1999. Þar sá ég það hvað svona vinna getur haft góð áhrif. Í sálgæslunni eru ákveðnir þættir sem eiga við alla, hvar sem er í heiminum,“ segir Guðbjörg. rt@frettabladid.is Innbrot í Keflavík: Skotvopn enn ófundin SKOTVOPN Þremur haglabyssum og þremur rifflum var stolið í innbroti í íbúðarhús í Keflavík í haust. Eftir vopnað rán, sem framið var í Bónus í Kópavogi í byrjun desember, afhentu ræningjarnir tvo riffla. Ennþá er tveggja vopna úr innbrotinu í Keflavík leitað. Ræningjarnir vildu ekki gefa upp hverjir hefðu fengið vopnin, haglabyssu og riffil. Ránið í Bón- us er upplýst en þar sem skot- vopnin eru ófundin er málinu ekki lokið. Skotvopnin voru ekki geymd í þar til gerðum skáp, sem þarf að gera ef vopnin eru fjögur eða fleiri. ■ HABL Á FILIPPSEYJUM Heilbrigð- isyfirvöld á Filippseyjum hafa sett hjón á fimmtugsaldri í sótt- kví vegna gruns um að þau hafi smitast af bráðalungnabólgu. Bæði eru með sýkingu í öndunar- færum sem veldur hita og verkj- um. Konan hafði nýlega ferðast til Hong Kong. Það mun taka tvo til þrjá daga að skera úr um það hvort hjónin eru smituð. YFIR 200 LÁTNIR VEGNA KULDA Á þriðja hundrað Bangladesa hafa látist vegna kulda á undanförnum dögum. Flestir hinna látnu voru börn eða gamalmenni sem bjuggu í moldarkofum og höfðu ekki efni á hlýjum fötum og ábreiðum. Meðalhiti á svæðinu hefur verið um níu gráður á celsíus. ■ ÚRSLITIN KUNNGERÐ Úrslit kosninganna voru skeggrædd víða í höfuðborginni Tíblisi. Nýkjörinn forseti Georgíu: Lofar róttækum breytingum GEORGÍA, AP Mikhail Saakashvili, nýkjörinn forseti Georgíu, hefur heitið því að koma á pólitískum stöðugleika, útrýminga spillingu og stuðla að friði og velmegun í landinu. Fyrstu tölur benda til þess að Saakashvili hafi unnið yf- irburðasigur í kosningunum með 95% greiddra atkvæða. Lögfræðingurinn Saakashvili var í forystuhlutverki í mótmæla- aðgerðum sem leiddu til afsagnar Eduards Shevardnadzes, fyrrum forseta, í nóvember. Hans bíður nú það erfiða verkefni að endur- reisa efnahagskerfi landsins, sem hrundi í kjölfar falls Sovétríkj- anna. „Ég mun gera mitt besta en það er ekki hægt að gera allt á ein- um degi,“ segir Saakashvili. ■ ENSKA ER OKKAR MÁL Enskunámskeið að hefjast. • Okkar vinsælu talnámskeið -7 vikur. • Kennt á mismunandi stigum. • Kennt: Kl. 9:00, 10:30, 17:20, 19:00 og 20:40. • Frítt kunnáttumat og ráðgjöf. Við bjóðum einnig upp á enskunámskeið víða um land. Hringdu í síma 588 0303 Faxafeni 8 www.enskuskolinn.is enskuskolinn@simnet.isJohn O´Neill Julie InghamSandra Eaton Robert WilliamsMaxwell Ditta Flugeldar-Flugeldar-Flugeldar Skotkökur, rakettur, blys (hand og stand), víti, froskar fjölsk.pakkar o.m.fl Erum með opið á Smáratorgi við hlið Mc Donalds frá 10-22. Dúndurverð!!! Heitt á könnunni. L I O N S F L U G E L D A R . Reykjanesbær: Sprengdu rúðu í skóla LÖGREGLAN Þrír fimmtán ára piltar límdu kínverjasprengjur á rúðu í Holtaskóla í Keflavík og sprengdu þær síðan, með þeim afleiðingum að rúðan brotnaði. Tilkynnt var um athæfi þeirra laust eftir miðnætti á sunnudag. Skömmu síðar náði lögreglan piltunum, sem viðurkenndu að hafa kveikt sprenginguna. Haft var samband við foreldra pilt- anna, sem sóttu þá á lögreglu- stöðina. ■ Indland og Pakistan: Leiðtogarnir áttu fund LEITAÐ Í SJÓNUM Egypskur björgunarmaður heldur á skóm sem fundust í sjónum þar sem flugvélin fórst. LEIÐTOGAR HEILSAST Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, og Musharraf, forseti Pakistans, takast í hendur að loknum fundi í Íslamabad í gær. PAKISTAN, AP Leiðtogar Pakistans og Indlands áttu í gær rúmlega tveggja klukkustunda fund til þess að ræða um stöðu sameiginlegra mála ríkjanna. Indland og Pakistan hafa háð tvö stríð frá því löndin öðluðust sjálfstæði frá Bretlandi árið 1947 en þar að auki margoft verið á barmi stríðsátaka. Fundur leiðtoganna tveggja er álitinn skref í átt að auknum stöðugleika á svæðinu en þeir Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, og Atal Vajpayee, forsætisráð- herra Indlands, eru báðir á ráð- stefnu Suður-Asíu ríkja sem haldin er í Íslamabad í Pakistan. Fulltrúar Musharrafs lýstu ánægju sinni með fundinn en ind- verskir embættismenn voru var- kárari og vildu lítt tjá sig um efni fundarins. Deilur ríkjanna snúast um yfir- ráð yfir landamærahéraðinu Kasmír, sem nú tilheyrir Indlandi. Pakistanar gera kröfu um yfirráð á svæðinu þar sem flestir íbúanna eru múslimar. ■ ■ Asía TIL ÍRANS Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur heldur á morgun til Írans til að veita fólki á jarðskjálftasvæði áfallahjálp. Veita áfallahjálp í Íran Guðbjörg Sveinsdóttir fer til jarðskjálftasvæðanna í Íran á morgun ásamt Jóhanni Thoroddsen. Guðbjörg var í Írak síðasta vor. Framkvæmda- stjóri Rauða krossins segir að um 70 þúsund manns hafist við í tjöldum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A TRUKKUR LOKAÐI VEGINUM 25 tonna kísilbíll sem var að flytja kísil frá kísiliðjunni í Mývatns- sveit til Húsavíkur lenti þvert á veginum á Grímsstaðahálsi í gær. Loka þurfti veginum í á þriðja tíma á meðan unnið var á stóru vinnutæki við að rétta bílinn af. Þarf ekki að setja þetta á námskrá? „Ég væri ekki að gegna skyldum mínum sem foreldri ef ég kenndi börnum mínum ekki að um- gangast krókódíla.“ Ævintýramaðurinn Steve Irwin. Morgunblaðið, 5. janúar. Herkænska Davíðs? „Engu er líkara en að hann sé að reyna að tryggja að hver sú frétt sem kann að koma sér illa við hann verði lesin í ankanna- legu ljósi.“ Guðmundur Andri Thorsson um Davíð Oddsson. Fréttablaðið, 5. janúar. Þessir Frammarar! „Sömuleiðis virðist það vera plagsiður hjá Framsóknar- flokknum að svíkja hvert einasta kosningaloforð.“ Össur Skarphéðinsson um framsóknarmenn. Fréttablaðið, 5. janúar. Orðrétt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.