Fréttablaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HVASSVIÐRI VÍÐA UM LAND Það
verður þó ekki alveg eins hvasst á Norður-
og Austurlandi. Síðdegis hvessir á Vest-
fjörðum en það dregur úr vindi sunnantil.
Úrkomusvæðið nær líklega inn á landið
eftir hádegi. Sjá síðu 6
7. janúar 2004 – 6. tölublað – 4. árgangur
● komin í útvarpið
Anne Kristine Magnúsdóttir:
▲
SÍÐA 15
Mjaltakonan
snýr aftur
● borðspil væntanlegt
Dr. Gunni:
▲
SÍÐA 30
Popppunktur
aftur í loftið
STUÐNINGUR TIL NÁMS Hagfræði-
stofnun Háskóla Íslands segir umhugsunar-
vert hvort yfirvöld hafi ekki ákveðnum
skyldum að gegna gagnvart þeim sem hafa
hætt skólagöngu að loknum grunnskóla og
vilja bæta við sig þekkingu. Sjá síðu 2
SLAPP VIÐ REFSINGU Rúmlega sjö
mánuðir liðu frá því að stúlka lagði fram
kæru um kynferðisbrot og þar til sakborn-
ingur var kallaður fyrir hjá lögreglunni á
Ísafirði og honum kynnt kæran. Sjá síðu 4
MIKIL ÁHRIF ERLENDRA LÁNA
Aukin erlend lán draga úr virkni innlendrar
hagstjórnar. Krónan er sterk og erlendir
vextir lágir. Veikari króna og hækkandi
erlendir vextir myndu þyngja greiðslubyrði
verulega. Sjá síðu 6
SALAN Á BRIMI Fulltrúar Eimskipa-
félagsins og Landsbankans héldu áfram í
gær að ræða við þá sem áhuga hafa á að
kaupa eignir Brims. Alls hafa 20 aðilar lýst
áhuga. Sjá síðu 2
HEILBRIGÐISMÁL „Við vorum önnum
kafnir við það í dag að gera samn-
ing við sérfræðilækna og þeir
samningar eru í höfn,“ sagði Garð-
ar Garðarsson, formaður samn-
inganefndar heilbrigðisráðuneyt-
isins, í gærkvöldi. „Það eru fjöl-
margir sérfræðilæknar sem vilja
halda áfram að þjónusta sína sjúk-
linga innan almannatrygginga-
kerfisins,“ bætti hann við.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
hefur nefndin samið við einstaka
sérfræðilækna, en samningur
þeirra við Tryggingastofnun ríkis-
ins rann út um áramót. Deiluaðila
hefur greint á um rétt sjúklinga til
endurgreiðslu meðan enginn
samningur væri í gildi. Heilbrigð-
isráðuneytið hefur undirstrikað,
vegna yfirlýsinga lækna um að
sjúklingar eigi endurkröfurétt á
ríkið, að Tryggingastofnun ríkis-
ins sé „óheimilt samkvæmt lögum
að endurgreiða sjúklingi kostnað
vegna þjónustu sérfræðilækna
nema í gildi sé samningur læknis
og Tryggingastofnunar“. Vísar
ráðuneytið til almannatrygginga-
laganna þar sem fram kemur að
sjúkratryggingar nái ekki til þjón-
ustu sem veitt er utan sjúkrahúsa
nema samið hafi verið um þá þjón-
ustu. Sjúkratryggingaverndin sé
þannig takmörkuð, eða skilyrt að
þessu leyti.
Fjölmargir höfðu samband við
blaðið í gær, eftir að greint hafði
verið frá að samningar hefðu tek-
ist milli Tryggingastofnunar og
einstakra sérfræðinga. Vildu les-
endur gjarnan fá upplýsingar um
hve ódýra sérfræðiþjónustu væri
að fá. Garðar sagði að samning-
arnir yrðu kynntir á allra næstu
dögum. Sem stæði væri boðið upp
á ódýra læknisþjónustu á heilsu-
gæslustöðvum, Læknavaktinni á
Smáratorgi, Barnalæknaþjónust-
unni í Domus Medica og göngu-
deildum sjúkrahúsanna, svo og á
sjálfstætt starfandi rannsókna- og
röntgenstofum.
jss@fréttabladid.is
Meðallestur fólks
á miðvikudögum
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
66%
49%
M
YN
D
IR
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R
Ofbeldisverk:
Ótrúleg
harka
OFBELDI Aðferðir handrukkara
eru óvægnar. Í fyrrinótt sætti
maður misþyrmingum vegna
meintrar skuldar. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var
ekki um háa skuld að ræða.
Hann var sóttur á heimili sitt
af rukkurum. Fjórir menn hafa
verið handteknir vegna þessa
máls og eins vinkona mannsins.
„Tölfræðin segir að ofbeldi í
undirheimum hafi ekki aukist.
Kærur vegna ofbeldis skipta
hundruðum. Harkan er að verða
meiri og áverkarnir alvarlegri.
Áður voru menn að gefa hver
öðrum á kjaftinn en ekki mikið
meira en það,“ segir Sigurbjörn
Víðir Eggertsson hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
„Við verðum ekki mikið varir
við handrukkara en heyrum
þess meira. Við drögum í efa
sumt af því sem við heyrum,“
segir Sigurbjörn.
Fórnarlömb handrukkara eru
oft treg til þess að senda málið
til yfirvalda af ótta við
hefndaraðgerðir.
Sjá nánar bls. 10 og 11
TOPPLIÐIÐ Í ELDLÍNUNNI
Grótta/KR tekur á móti ÍBV klukkan 19.15
í Remax-deild kvenna í handbolta. Á sama
tíma leika KR og Grindavík í bikarkeppni
kvenna í körfubolta á heimavelli KR.
Nauðlending í Keflavík:
Missti afl í
hreyfli
NAUÐLENDING Bandarísk farþega-
þota af gerðinni Boeing 777-200
nauðlenti á Keflavíkurflugvelli
á níunda tímanum í gærkvöldi.
Vélin, sem er í eigu United
Airlines-flugfélagsins, var á leið
frá Frankfurt til Washington
með 249 manns um borð. Vélin
lenti heilu og höldnu klukkan
20.16.
Flugstjórn á Keflavíkurflug-
velli fékk beiðni um nauðlend-
ingu klukkan 19.25 eftir að vélin
missti afl á öðrum hreyflinum.
Björgunarsveitir, sjúkraflutn-
ingamenn og lögregla voru í við-
bragðsstöðu þegar vélin kom
inn til lendingar. Um hundrað
manns tóku þátt í viðbúnaðar-
aðgerðum en viðbragðstími al-
mannavarna mun vera um átta
til tíu mínútur.
Að minnsta kosti tvö skip á
vegum Landsbjargar, Oddur V.
Gíslason úr Sandgerði og
Hannes Þ. Hafstein úr
Reykjavík, voru komin úr höfn
til þess að bregðast við ef illa
færi við lendinguna. ■
Skotárás í Írak:
Tveir Frakk-
ar myrtir
PARÍS, AP Tveir franskir starfsmenn
hjá bandarísku verktakafyrirtæki
voru skotnir til bana í vesturhluta
Íraks.
Mennirnir eru fyrstu Frakkarnir
sem falla í Írak síðan ráðist var inn
í landið í mars sl. Talsmaður
franska utanríkisráðuneytisins seg-
ir þá ekki hafa verið á skrá hjá frön-
sku ræðismannsskrifstofunni. ■
enskuskóli í hafnarfirði ● breytingar á fnv
Rannveig Sverrisdóttir:
▲
SÍÐUR 16-19
Kennir táknmáls-
fræði við Háskólann
nám o.fl.
Önnum kafnir
við samninga
Samninganefnd heilbrigðisráðuneytisins var önnum kafin við að semja
við einstaka sérfræðilækna í gær. Þeir samningar verða kynntir á allra
næstu dögum, að sögn formanns nefndarinnar.
● sinfóníutónleikar í kvöld
Sigrún Pálmadóttir:
▲
SÍÐA 26
Vínarsveifla
MIKILL VIÐBÚNAÐUR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Á annað hundrað manns tók þátt í viðbúnaði vegna nauðlendingar Boeing 777-200 farþegaþotu á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Vélin
lenti heilu og höldnu klukkan 20.16 en neyðarkall barst frá vélinni klukkan 19.25. Á innfelldu myndinni sjást flugvirkjar skoða annan
hreyfil vélarinnar, en aflmissir í hreyfli orskaði nauðlendinguna.
Sjóslys í Faxaflóa:
Mannbjörg er Húni KE sökk
SJÓSLYS Mannbjörg varð þegar
Húni KE 4, fimm tonna bátur,
sökk í Faxaflóa í gærkvöldi.
Skipverja, sem var einn um
borð, var bjargað um borð í Sól-
borgina RE, skömmu eftir
klukkan 21.
Sólborginni var snúið við af
siglingu sinni þegar beiðni barst
til báta á nálægum slóðum að
svipast eftir Húna. Þegar
Fréttablaðið hafði samband í
gærkvöldi við Ásgeir Baldvins-
son, skipstjóra á Sólborginni,
sagði hann að sjómaðurinn hefði
verið orðinn nokkuð kaldur þeg-
ar skipverjar á Sólborginni
komu auga á hann. Annars sagði
hann að sjómanninum hefði ekki
orðið meint af volkinu og að hon-
um heilsaðist ágætlega.
Tilkynningaskyldan missti
sjónar á Húna klukkan 19.47 í
gær þegar báturinn datt út úr
sjálfvirkri tilkynningaskyldu. Í
fréttatilkynningu frá Lands-
björg segir að Sólborgin hafi
komið að slysstað klukkan 21.03.
Þá sat skipverjinn á stefni báts-
ins, sem maraði í hálfu kafi.
Í fréttatilkynningunni frá
Landsbjörg segir einnig að ekki
hafi borist neyðarkall frá Húna,
né önnur neyðarboð, og að það
bendi til þess að óhappið hafi
borið brátt að. ■