Fréttablaðið - 09.01.2004, Blaðsíða 1
GLÆPASAMTÖK Bæjarlögmaðurinn í
Kópavogi, Þórður Þórðarson, vill
að lögregla kanni strax hvers kon-
ar starfsemi fari fram í iðnaðar-
húsi í austurbæ Kópavogs.
Grunur er um að þar sé talsverð
fíkniefnaneysla, ólögleg áfengis-
sala, nektardans og jafnvel stjórn-
stöð skipulagðrar glæpastarf-
semi.
„Mér barst til eyrna á síðasta
ári að þeir væru hugsanlega að
hreiðra um sig og bað lögregluna
um að kanna það. Ég hef hins veg-
ar ekki haft spurnir af því aftur
fyrr en núna þannig að ég mun
hafa strax samband við lögregl-
una og krefjast þess að þeir kanni
hvort þarna sé einhver svona
vafasöm starfsemi, því það er
algjörlega ólíðandi,“ sagði Þórður
Þórðarson þegar hann var spurð-
ur hvort grunur sé um lögbrot í
aðsetri þeirra sem grunaðir eru
um ólöglegt athæfi. Heimildir
herma að þeir sem þar hafa að-
setur tengist vélhjólaklúbbnum
Ými og einnig Bandidos á Norður-
löndum.
Hjá ríkislögreglustjóra fékkst
staðfest að vitað sé að hingað hafi
komið félagar úr Bandidos, en það
eru svipuð samtök og Hells Ang-
els og jafn mikil ógn fyrir Íslend-
inga að sögn heimildarmanns
Fréttablaðsins innan embættis
ríkislögreglustjóra. Samtökin eru
erkióvinir og oft hafa brotist hörð
átök milli félagsmanna þeirra. Þó
skipta þessi samtök með sér verk-
um á Norðurlöndum til að halda
öðrum glæpasamtökum frá.
Ágangur glæpasamtaka Hells
Angels í að koma hingað til lands
hefur verið nokkur að undanförnu
og hefur vélhjólaklúbburinn Fáfn-
ir verið nefndur í því samhengi.
Vélhjólaklúbburinn Ýmir er sagð-
ur hafa orðið til eftir klofning í
Fáfni. Einhverjir félagsmenn
Ýmis eru sagðir vera í slagtogi við
glæpasamtökin Bandidos sem eru
erkióvinir Hells Angels.
Óljósar fréttir eru af starfsemi
þeirra sem hafa skjól í iðnaðar-
húsinu. Meðal þess sem haldið er
fram, og lögregla mun kanna, er
hvort unglingsstúlkur borgi fyrir
fíkniefni með þátttöku í kynlífs-
athöfnum.
Fjöldi félaga úr Hells Angels
hefur verið stöðvaður á Keflavík-
urflugvelli.
Sjá nánar á bls. 14
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
FÖSTUDAGUR
til hnífs og skeiðar ● vín vikunnar
▲
SÍÐUR 28–29
matur o.fl.
Rekur pólska
verslun í Hafnarfirði
María Valgeirsson:
allt um svefnvandamál barna
▲
SÍÐUR 30–31
börn o.fl.
Lundarfar barn-
anna lykilatriði
Arna Skúladóttir:
leirmótunarnámskeið ● önnur námskeið
▲
SÍÐUR 24–27
nám o.fl.
Bætt aðstaða í
náttúrufræðihúsi
Sæmundur Ari Halldórsson:
LANDSLEIKUR AÐ VARMÁ
Íslenska landsliðið í handbolta mætir
Sviss í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfells-
bæ klukkan 20. Leikurinn er sá fyrsti af
þremur æfingaleikjum sem landsliðið
mun leika gegn Sviss á næstu dögum og
er hluti af undirbúningi þess fyrir Evrópu-
keppnina í Slóveníu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA VÆTA SÍST ÞÓ Í REYKJAVÍK
Þetta verður slydda eða snjókoma norð-
vestan til annars líklegast rigning. Úrkoman
verður einkum seinnipartinn á Norðurlandi.
Ekkert ferðaveður á Vestfjörðum. Sjá síðu 6.
9. janúar 2004 – 8. tölublað – 4. árgangur
ÓÁNÆGJA MEÐ FLUTNINGA
SJÚKLINGA Margir læknar á Land-
spítalanum eru afar óánægðir með að það
þurfi sífellt að flytja fárveikt fólk milli
sjúkrabygginga á Hringbraut og í Fossvogi.
Þeir segja flutningana jafnvel geta riðið
mjög veiku fólki að fullu. Sjá síðu 2
VÍSAR GAGNRÝNI Á BUG Hannes
Hólmsteinn Gissurarson vísar á bug öllum
ásökunum um ritstuld og óvönduð vinnu-
brögð við ritun bókarinnar Halldór. Hann
segir Pétur Má Ólafsson hafa lesið próförk
handritsins að beiðni fjölskyldu skáldsins.
Sjá síðu 2
KENNARAR TIL SÁTTASEMJARA
Kennarasambandið hefur óskað eftir því að
kjaraviðræður vegna grunnskólakennara
fari fram undir handleiðslu ríkissáttasemj-
ara. Ástæðan er trúnaðarbrestur. Sjá síðu 4
YFIRBURÐIR FRÉTTABLAÐSINS
Ný könnun Gallups á notkun fjölmiðla stað-
festir enn mikla yfirburði Fréttablaðsins á
dagblaðamarkaði. Meðallestur á hvert blað
Fréttablaðsins reyndist vera 65%. Sjá síðu 6
SJÁVARÚTVEGUR Útgerð
Bjarma BA frá Tálknafirði
hefur áfrýjað brottkasts-
málinu fræga til Hæsta-
réttar. Níels Ársælsson,
skipstjóri og útgerðarmað-
ur, var í sumar dæmdur til
að greiða milljón krónur í
sekt eða sitja í 30 daga
fangelsi ella. Refsingin
var fyrir að fleygja 53
þorskum í hafið aftur þar
sem Bjarmi var á snurvoð-
arveiðum út af Vestfjörð-
um. Með í veiðiferðinni voru
fréttamaður og myndatöku-
maður Sjónvarpsins.
„Ég trúi því að ég verði
sýknaður. Í dómsorði Héraðs-
dóms Vestfjarða segir að
neitun mín á því að hafa stað-
ið að brottkosti sé fyrir-
sláttur einn. Dómurinn bygg-
ir ekki á neinum lagalegum
rökum að mínu mati. Hann
byggir á persónulegri tilfinn-
ingu dómarans og er því arfa-
vitlaus,“ segir Níels Ársæls-
son, skipstjóri og útgerðarmaður
Bjarma BA.
Ríkislögreglustjóri hefur einnig
áfrýjað niðurstöðu héraðsdóms. ■
Bæjarlögmaður krefst
aðgerða lögreglunnar
Fyrir ári síðan bað bæjarlögmaður Kópavogs um að starfsemi félagsskapar yrði könnuð. Hann
krefst nú aðgerða lögreglu. Grunur liggur á að vélhjólaklúbburinn Ýmir tengist Bandidos,
en félagar þeirra samtaka hafa komið hingað til lands.
Dæmdur fyrir að kasta 53 þorskum:
Skipstjórinn á Bjarma BA
áfrýjar brottkastsmáli
9. JANÚAR TIL 15. JANÚAR 2004birta Árið 2004: Hvernig
verður það hjá þér?
Hanastél á
gamlárskvöld
Árur Sirrýar
og Jóns Ársæls
Gísli Marteinn
og Leoncie
Hulda Hákon
myndlistarkona og
kaffihúsaeigandi
Rétta líkamsræktin
Meðganga og fæðing
Huldu Jensdóttur
Heimir Karlsson í
sjónvarpinu
Í uppáhaldi hjá Heru
Stjörnuspá Birtu
Sjónvarpsdagskrá
næst 7daga
Tekur lífinu
opnum örmum
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 96 .000 E INTÖK
NR . 1 . 2004
Steinunn Ólína:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Tekur lífinu
opnum örmum
birta
meðganga og fæðing ● persónuleikapróf
KULDAKAST Á INDLANDI Indverskir lögreglumenn kveiktu bál til að hlýja sér en alls hafa um 170 manns látist vegna kulda í
indversku borginni Allahabad á síðustu dögum. Borgin er við Ganges-fljótið í norðurhluta Indlands.
Morðið á Önnu Lindh:
Réttarhöld
14. janúar
STOKKHÓLMUR, AP Réttarhöldin yfir
Mijailo Mijailovic,
sem hefur játað að
hafa myrt Önnu
Lindh, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar,
hefjast næstkom-
andi miðvikudag.
Hann mun ekki
gangast undir geð-
rannsókn fyrir
réttarhöldin.
Göran Nilsson,
héraðsdómari í Stokkhólmi, segir
að dómstólar muni hugsanlega
fara fram á geðrannsókn eftir
réttarhöldin en áætlað er að þeim
ljúki 19. janúar. Mijailovic á yfir
höfði sér allt að lífstíðarfangelsi
en sá möguleiki er fyrir hendi að
hann verði dæmdur til vistar á
réttargeðdeild. ■
Morðingja leitað:
Drap fjóra í
afbrýðiskasti
BANDARÍKIN Lögreglan í Georgíu í
Bandaríkjunum leitar nú 31 árs
karlmanns, Jerry William Jones,
sem grunaður er um að hafa myrt
þrjá fullorðna og tíu mánaða barn
fyrrum eiginkonu sinnar, Melissu
Peeler. Talið er að Jones hafi
drepið fólkið í afbrýðiskasti en
auk þess er talið að hann hafi
numið á brott þrjár ungar telpur á
aldrinum þriggja til tíu ára, en
tvær þeirra eru dætur Jones, sem
hann átti með Melissu. Þriðja
stúlkan er fyrrum stjúpdóttir
hans og dóttir Melissu.
Þau látnu fundust snemma í
gærmorgun á tveimur heimilum í
Gordon-sýslu í Georgíu og virðist
sem Jones hafi myrt þau um nótt-
ina og gefið sér góðan tíma. ■
MORÐINGINN
Mijailovic hefur
játað að hafa
myrt Lindh.
NÍELS
ÁRSÆLSSON
Sættir sig ekki við
dóm undirréttar.
BJARMI BA
Undirréttur dæmdi að skipstjórinn hefði
fyrirskipað brottkast.