Fréttablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 13. janúar 2004
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
5
1
8
Megrunarmintur
Megrun hefur aldrei verið svalari.
Prófaðu megrunarmintur sem minnka matarlyst
og auka brennslu. Þú færð Slim Mints í næsta apóteki.
Nýtt á Íslandi!
Það geri ég með því að borðahollan mat og stunda útiveru,
þó að það mætti reyndar gjarnan
vera meira ,“ segir Sigríður
Anna Þórðardóttir. Hún segist
ekki vera dugleg við líkams-
ræktarstöðvarnar þó hún hafi
vissulega æft á þannig stöð. „Þá
finnst mér eiginlega nauðsyn-
legt að hafa einhvern með mér
til að ýta á mig, en það sem mér
finnst best eru gönguferðir. Þær
stunda ég þó aðallega á sumrin.“
Sigríður Anna segist vera
heppin því hún sé grann-
vaxin að eðlisfari og þurfi
ekki að hugsa svo mikið um
holdafarið. „Ég hef alltaf
verið grönn og aldrei þyn-
gst neitt að ráði. Hollt
mataræði og göngur hafa
því hingað til dugað mér
vel.“ ■
Ég er með hesta og stunda út-reiðar frá því í janúar og
fram í miðjan júní,“ segir Hin-
rik Ólafsson leikari þegar hann
er spurður að því hvernig hann
haldi sér í formi. „Hversu oft
fer nú bara eftir veðri og vind-
um. En það þarf líka að sinna
hrossunum á hverjum degi. Þá
fer ég í sund og reyni að fara í
líkamsrækt svona tvisvar í
viku. Svo má ekki gleyma því að
ég fer mikið á fjöll og það reyn-
ir oft mikið á,“ segir Hinrik en
þegar viðtalið var tekið var
hann staddur í kvikmyndatöku
á Vestfjörðum, nánar tiltekið
við Hólskirkju í Bolungarvík.
Þar var verið að taka upp sjón-
varpsmyndina „Verði ljós“.
Hinrik segist yfirleitt reyna
að halda sér í góðu formi, aðal-
lega til að hlaupa ekki í spik.
„Stundum koma tímabil þegar
þetta dettur svolítið niður en
svo reynir maður að bæta það
upp.“ Hann segist ekki taka
neitt sérstakt átak núna eftir
jólin. „Nei, ég er löngu hættur
því.“ ■
SIGRÍÐUR ANNA
ÞÓRÐARDÓTTIR
Er lukkunnar pamfíll því hún er
grönn að eðlisfari og hefur aldrei
fitnað.
Hvernig heldurðu þér í formi?
Hollur matur í
bland við útiveru
HINRIK ÓLAFSSON
Hirðir hestana sína,
syndir, fer í líkamsrækt
og gengur á fjöll.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Hvernig heldurðu þér í formi?
Útreiðar, sund, líkamsrækt og fjöll