Fréttablaðið - 16.01.2004, Síða 2
2 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
„Nei – ég trúi ekki á tilviljanir í
þeim geira.“
Þuríður Hjartardóttir er framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna. Verðið hjá stóru olíufélög-
unum hækkaði þegar bensínbirgðir Atlantsolíu
kláruðust en félögin neita því að þetta tengist.
Spurningdagsins
Þuríður, trúirðu á tilviljanir á bensín-
markaðnum?
■ Dómsmál
MENNTAMÁL „Það verður að velja
nemendur inn í skólann á mál-
efnalegum forsendum,“ segir
Þórður Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri akademískrar
stjórnsýslu við HÍ. „Aðferðin gæti
verið inntökupróf eða einhvers
konar samkeppnispróf, en það er
ekki búið að ákveða neitt í þeim
efnum enn. Það er svo hverrar
deildar fyrir sig að athuga hvort
takmarka þurfi nemendafjöldann
í haust. Ég geri ráð fyrir að það
liggi fyrir með vorinu.“
Fjárveiting til HÍ fyrir kennslu
samkvæmt fjárlögum gerir ráð
fyrir að fjöldi virkra nemenda á
árinu 2004 verði 5.200, en áætlað-
ur fjöldi þeirra á yfirstandandi
skólaári er 5.750, miðað við
reynslu fyrri ára.
Þórður segir að menn velti því
nú fyrir sér hvort setja eigi ein-
hverjar hömlur á innritun nemenda
nú á vormisseri. Sumar deildir taka
ekki inn nemendur á þeim tíma
vegna námsskipulags. Síðan er í
skoðun hvað eða hvort til frekari
aðgerða þurfi að koma til að halda
skólanum innan ramma fjárlaga.
Hann kveðst ekki geta sagt til um
hvaða deildir komi til greina ef
gripið verður til slíkra takmarkana.
Þá segir Þórður að forráðamenn
skólans standi jafnvel frammi fyrir
því að þurfa að takmarka tiltekna
starfsþjálfun nemenda.
„Þessar takmarkanir myndu þá
stafa beint af fjárskorti,“ segir
Þórður. „Við þurfum að meta
hvernig ýmsar innri aðgerðir
skila sér. Það er ekki vilji til að
takmarka, það munum við forðast
í lengstu lög.“
Háskólaráð hefur þegar sam-
þykkt að öll stjórnsýsla, rekstur
fasteigna og framkvæmdir fái
sömu fjárveitingu og á árinu 2003,
þ.e. 2,5% raunlækkun. Þá hefur
verið samþykkt að gæta ítrasta
aðhalds í ráðningum.
Varðandi skráningu nemenda
samþykkti háskólaráð að ekki
verði veittar neinar undanþágur
frá skráningartímabili og greiðslu
skrásetningargjalds. Þá verða
ekki veittar neinar undanþágur til
nýskráninga og greiðslu skrásetn-
ingargjalds eftir 4. júní 2004. Leit-
að verður leiða til að koma í veg
fyrir að nemendur skrái sig í nám-
skeið sem þeir mæta svo ekki í.
Hömlur verða settar á breytingar
á skráningum eftir að kennsla er
hafin. Skrásetningargjald verður
ekki endurkræft.
jss@frettabladid.is
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims:
Upplausnarverð ÚA rúmir 18 milljarðar
VIÐSKIPTI „Ég upplifði þetta
þannig að titringur vegna sölunn-
ar á ÚA var mestur fyrir utan
fyrirtækið. Kaupendurnir eru
harðduglegir menn sem hafa
byggt upp stórt og öflugt fyrir-
tæki og ég er sannfærður um að
þeir eru komnir til Akureyrar til
þess að gera þar góða hluti,“ seg-
ir Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Brims.
Guðbrandur vísar á bug gagn-
rýni bæjarstjórans á Akureyri
þess efnis að rekstur ÚA standi
ekki undir níu milljarða kaup-
verði. Kaupendur verði því að
ganga á eignir.
„Bæjarstjórinn hefur eitthvað
misskilið þetta. Upplausnarverð
ÚA er á bilinu 18 til 19 milljarðar
króna.“
Nýir eigendur ÚA fóru norður í
gær og þinguðu með starfsfólki
ÚA. Þeir sögðu áherslubreytingar
koma með nýjum eigendum en
ætlunin væri að hafa áfram þá
festu í starfsmannahaldi sem ein-
kennt hefði ÚA undanfarin ár.
Framkvæmdastjóri Brims seg-
ir að þrátt fyrir að fjórum sinnum
á síðustu sjö árum hafi breytingar
orðið á eignarhaldi ÚA hafi fyrir-
tækið dafnað vel.
„Í heildarveltu hefur ÚA
stækkað að meðaltali um 20% á
hverju ári síðan Akureyrarbær
seldi sinn hlut í félaginu. Ég tel að
leitun sé að sjávarútvegsfélögum
sem hafa náð viðlíka árangri.
Þetta félag er ekki bara kvóti,
skip og hús. Við höfum hér yfir að
ráða mjög góðu starfsfólki og það
er fyrst og fremst þekking þess
sem hefur lagt grunninn að því að
ÚA er nú að mínu mati með öflug-
ustu landvinnslu við Norður-Atl-
antshaf,“ segir Guðbrandur. ■
Nýjar áherslur:
Nýtt merki
Símans
VIÐSKIPTI Síminn hefur tekið í notk-
un nýtt fyrirtækja-
merki. Ráðist var í
breytinguna eftir
að Síminn ákvað að
skerpa á áherslum
f y r i r t æ k i s i n s
vegna aukinnar
samkeppni á fjar-
skiptamarkmiði.
Tæplega ellefu
hundruð viðskipta-
vinir Símans voru
fengnir til álitsgjaf-
ar og niðurstöður notaðar til viðmið-
unar á stefnumótun.
Allar verslanir Símans verða
endurnýjaðar á þessu ári. Brynjólf-
ur segir það gert til að mæta kröf-
um viðskiptavina um að geta nálg-
ast á einum stað alla vöru og þjón-
ustu á sviði fjarskipta.
Síminn lét gera markaðskönnun
þar sem þar sem aðaláherslan var
lögð á lífsstíl og gildismat viðskipta-
vina. Brynjólfur segir Símann
fyrsta fjarskiptafyrirtækið í heim-
inum sem noti slíkar viðmiðanir í
markaðsstarfi sínu. ■
Hugo Þórisson
sálfræðingur
Wilhelm Norðfjörð
sálfræðingur
Nýtt námskeið að hefjast
Upplýsingar og skráning í
s: 562 1132 og 562 6632
eftir kl. 16 og um helgar
Á námskeiðinu verður
m.a. fjallað um:
• Þroska barna, sjálfsmynd
og samskipti.
• Vandamál sem geta komið upp
í samskiptum innan
fjölskyldunnar.
• Aðferð til þess að kenna
börnum að taka ábyrgð.
• Hvernig hægt er að tala við börn
og tryggja að þau vilji hlusta.
• Aðferðir til þess að kenna
börnum tillitsemi og sjálfsaga.
• Aðferðir til að komast út úr
samskiptum þar sem eru
sigurvegarar og taparar.
• Hugmyndir um hvernig er hægt
að hafa jákvæð áhrif á gildismat
barna.
www.samskipti.org
ÞÚSUND TONN AF EITURLYFJUM
Tollayfirvöld í Bandaríkjunum
lögðu á síðasta ári hald á yfir
þúsund tonn af ólöglegum eitur-
lyfjum sem reynt var að smygla
inni í landið. Einnig var lagt hald
á tugi milljóna Bandaríkjadala
sem flytja átti út úr landinu en
tollayfirvöld segja að aðallega sé
um að ræða gróða af eiturlyfja-
sölu.
ENGIN KONA Í FRAMBOÐI Carol
Moseley Braun, eina konan sem
gefið hefur
kost á sér í
prófkjöri
demókrata
fyrir forseta-
kosningarn-
ar í nóvem-
ber, ætlar að
draga sig út
úr slagnum
og styðja
þess í stað
Howard
Dean. Braun varð fyrst blökku-
kvenna til að taka sæti í öldunga-
deild Bandaríkjaþings.
Bensínbirgðir Atlantsolíu á þrotum:
Bensín hækkar í verði
NEYTENDUR Stóru olíufélögin þrjú,
Olís, Esso og Skeljungur, hafa öll
hækkað verð á 95 oktana bensíni á
sjálfsafgreiðslustöðvum á höfuð-
borgarsvæðinu, skömmu eftir að
bensínið kláraðist hjá Atlantsolíu.
Olís reið á vaðið og hækkaði verð-
ið á miðvikudag.
Félögin hækkuðu bensínverðið
öll um þrjár krónur og er það
komið í 96,90 krónur í sjálfs-
afgreiðslu. Að auki hækkaði verð-
ið á sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB
um rúmar þrjár krónur og fór í
95,70 krónur. ÓB er í eigu Olís.
Verð hélst óbreytt á sjálfs-
afgreiðslustöðvum Esso Express
og Orkunni. Sem fyrr er lægsta
bensínverð hjá því síðarnefnda og
kostaði lítrinn þar 92,40 krónur.
Atlantsolía hóf að selja 95 okt-
ana bensín í síðustu viku. Sama
dag lækkuðu öll olíufélögin
bensínlítrann í sjálfsafgreiðslu.
Hækkunin í gær kom í beinu
framhaldi þess að Atlantsolíu-
menn tilkynntu að bensín félags-
ins væri á þrotum. Hugi Hreiðars-
son, markaðsstjóri fyrirtækisins,
segir nýjar birgðir væntanlegar
síðar í vikunni.
Samúel Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri áhættustýringar-
sviðs Olís, var spurður hvort
ástæða hækkunarinnar væri
bensínskortur Atlantsolíu. „Ég
get ekki svarað þessu nema með
þeim hætti að við höfum litið svo
á að verðið undanfarna daga hafi
verið óeðlilega lágt miðað við
heimsmarkaðsverð. Hins vegar
bjóðum við viðskiptavinum okkar
alltaf samkeppnishæf kjör.“ ■
BENSÍNVERÐ Á SJÁLFS-
AFGREIÐSLUSTÖÐUM BENSÍN-
STÖÐVA Í GÆR
Bensín Díselolía
Atlantsolía Uppselt 35,00
Esso Express 92,50 34,90
Orkan 92,40 34,80
ÓB 95,70 40,60
Esso 96,90 41,00
Olís 96,90 40,80
Shell 96,90 41,80
BENSÍNVERÐ HÆKKAR Á NÝ
Verð hjá Esso Express og Orkunni hélst
óbreytt í gær. Lítrinn af 95 oktana bensíni
er lægstur hjá Orkunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SÍMINN KYNNIR NÝJAR ÁHERSLUR
Síminn heldur óbreyttu nafni eftir að
neyslukönnun Gallups leiddi í ljós að Sím-
inn er fjórða þekktasta nafn á Íslandi.
NÝTT MERKI
Merkið myndar
bókstaðinn S og
minnir einnig á
þrívíddarteikn-
ingu af hnetti.
SPARNAÐARAÐGERÐIR
Forsvarsmenn Háskóla Íslands útiloka ekki einhvers konar samkeppnispróf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TJALDURINN KOMINN TIL AKUREYRAR
Það vakti athygli vegfarenda á Akureyri í
gær að sjá Tjald SH 270 liggja við bryggju
skammt frá Útgerðarfélagi Akureyringa.
Töldu menn það táknrænt fyrir breytingar
á eignarhaldi Útgerðarfélagsins en útgerð-
in Tjaldur á Rifi keypti ÚA í fyrradag.
M
YN
D
/G
U
N
N
AR
E
R
N
IR
B
IR
G
IS
SO
N
■ Bandaríkin
Útiloka ekki
inntökupróf
Forsvarsmenn Háskóla Íslands útiloka ekki inntökupróf í einstakar
deildir ef til fjöldatakmarkana kemur í fleiri greinum en verið hefur.
Stúdentspróf eru ekki samræmd milli skóla og því ekki nothæf til þessa.
ÁKÆRA ÞINGFEST Ákæra á hend-
ur karlmanni sem kærður er
fyrir kynferðisbrot gegn drengj-
um og að hafa undir höndum
mikið magn barnakláms var
þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Þinghaldið var lokað
og ekki fengust upplýsingar um
hvernig maðurinn hefði svarað
ákæruliðum.
Kynferðisbrot:
Fimmtán ára
dæmdur
HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur staðfesti
í gær dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur yfir 15 ára dreng sem fund-
inn var sekur um að koma fram
vilja sínum gegn jafn gamalli
stúlku með nauðung.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að drengurinn væri
ekki sekur um nauðgun. Fyrir
dómi bar hann að stúlkan hefði
viljug tekið þátt í kynlífsathöfn
með honum og öðrum pilti. Stúlk-
an bar að hún hefði verið drukkin
og full vanlíðunar og því ekki
komið vörnum við gegn piltinum.
Drengurinn var dæmdur í sex
mánaða fangelsi, skilorðsbundið
til þriggja ára, og til þess að
greiða fórnarlambinu hálfa millj-
ón í bætur auk málskostnaðar. ■