Fréttablaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 6
6 16. janúar 2004 FÖSTUDAGURVeistusvarið?
1Hvað heitir sá frambjóðandi sem erefstur í skoðanakönnunum fyrir próf-
kjör Demókrataflokksins í Bandaríkjun-
um vegna forsetakosninganna í haust?
2Nýr samningur hefur tekist millilækna og Tryggingastofnunar. Hver
var formaður samninganefndar ríkisins?
3Fyrrum landsliðsmarkvörður Eng-lands hefur lagt skóna á hilluna en
hann lék lengst af með Arsenal. Hvað
heitir kappinn?
Svörin eru á bls. 46
Vildu hálfan
Miðneskvótann
Sandgerðingar vildu kaupa til baka helming þess kvóta sem þeir misstu
þegar Miðnes í Sandgerði var sameinað HB. Einhugur var um aðkomu
sveitarfélaga og fleiri að málinu og var fjármagn til kaupanna tryggt.
VIÐSKIPTI „Þegar ljóst var að sjávar-
útvegsfyrirtæki Brims væru til
sölu, lögðum við fram okkar hug-
myndir og vorum boðaðir til við-
ræðna. Strax í upphafi var okkur
gerð grein fyrir því að við yrðum
að kaupa HB í heilu lagi og jafn-
framt að reka fyrirtækið áfram á
þeim stað sem það er í dag. Lands-
bankamenn töldu að þeir hefðu ekki
umboð til viðræðna á þessum nót-
um en við lögðum áherslu á að þeir
fengju það umboð. Því var hafnað,“
sagði Sigurður Valur Ásbjörnsson,
bæjarstjóri í Sandgerði.
Bæjarstjórn Sandgerðis ræddi
söluna á Brimi á fundi sínum í
fyrrakvöld og var ákveðið að
aflétta trúnaði af samskiptum bæj-
arins við Landsbankann vegna
hugsanlegra kaupa á svokölluðum
Miðneskvóta.
Í vikunni var gengið frá sölu á
HB á Akranesi til Granda Reykja-
vík og ÚA var selt feðgunum sem
eiga Tjald í Reykjavík og KG-fisk-
verkun á Rifi.
Bæjarstjórn Sandgerðis bar
víurnar í hluta HB, vildi kaupa til
baka helming þeirra aflaheimilda
sem hurfu úr plássinu, þegar Mið-
nes hf. var sameinað HB á Akranesi
í upphafi árs 1997. Í kjölfarið hvarf
um 4000 tonna botnfiskkvóti og
2000 tonna uppsjávarkvóti.
„Þetta voru hamfarir. Þetta gjör-
breytti afkomu íbúa og ekki síður
hafnarinnar sem ekki hefur neina
burði til þess að reka sig eftir að
þessar tekjur hurfu út úr rekstrin-
um. En þarna var tækifæri til að
rétta okkar hlut. Það kom ekki til
greina að kaupa HB í heilu lagi. Við
vorum ekki að reyna að rýra HB á
Akranesi eins og það var, við vorum
að leita eftir því að fá til baka afla-
heimildir sem Suðurnesjamenn
höfðu áður,“ sagði bæjarstjóri
Sandgerðisbæjar.
Einhugur var meðal sveitarfé-
laga á Suðurnesjum, Lífeyrissjóðs
Suðurnesja og verkalýðsfélags um
aðkomu að málinu og var fjármagn
tryggt til kaupa á aflaheimildunum.
Í bókun bæjarstjórnar eru mála-
lokin hörmuð. Jafnramt eru stjórn
og núverandi stjórnarformaður
Eimskipa, sem jafnframt var
stjórnarformaður HB, átalin fyrir
að nota ekki tækifærið og leiðrétta
þau loforð sem gefin voru fulltrúum
Sandgerðisbæjar á sínum tíma, um
aukna útgerð frá Sandgerðishöfn.
the@frettabladid.is
Vopnaður og dópaður:
Þingmaður
ákærður
HELSINKI, AP Sjónvarpað verður frá
réttarhöldunum yfir finnska þing-
manninum Tony Halme sem
ákærður er fyrir brot á vopnalög-
um, eiturlyfjasmygl og ölvun-
arakstur.
Halme ætlar ekki láta af þing-
mennsku nema hann verði dæmdur
í fangelsi. „Ég þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur. Ef borin er virð-
ing fyrir lögum í Finnlandi slepp
ég með sektir,“ sagði Halme. Hann
er sakaður um að hafa stofnað lífi
konu sinnar í hættu þegar hann
skaut af byssu á heimili sínu í júlí.
Hann var þá ofurölvi og fluttur
rænulaus á sjúkrahús. ■
KJÚKLINGAR URÐAÐIR
Milljónir kjúklinga hafa orðið
fuglaflensunni að bráð í Asíu.
Fuglaflensan:
Þrettán látn-
ir í Víetnam
VÍETNAM, AP Heilbrigðisyfirvöld í
Víetnam tilkynntu í gær um fjög-
ur ný óstaðfest fuglaflensutilfelli
í mönnum og þar af væri einn lát-
inn, en til þessa höfðu fjórtán til-
felli verið staðfest í landinu og
þar af tólf dauðsföll.
Fuglaflensa hefur að undan-
förnu greinst í fiðurfénaði í fjórum
Asíulöndum, sem auk Víetnams
eru Japan, Suður-Kórea og Taívan.
Milljónir kjúklinga hafa þegar
orðið flensunni að bráð.
Í kjölfarið hafa Kínverjar bann-
að allan innflutning á kjúklingum
frá smitlöndunum og Alþjóða heil-
brigðisstofnunin, WHO, hefur
varað við hættu á faraldri. ■
LÍNUDANS FYRIR
BYRJENDUR
h
a
u
s
v
e
r
k
/
3
7
3
2
Frábær skemmtun!
Góð leikfimi!
Akoges salnum, Sóltúni 3, Reykjavík
Innritun og upplýsingar: www.danssmidjan.is og í síma 862 4445
...hjá Jóa dans
og vinum hans!
SANDGERÐISHÖFN
Sandgerðingar vildu kaupa til baka helming Miðneskvótans sem hvarf úr plássinu þegar
Miðnes var sameinað HB á Akranesi en fengu nei hjá Landsbankanum.
Sandgerðingar misstu 4000 tonna botnfiskkvóta og 2000 tonna uppsjávarkvóta.
SIGURÐUR VALUR ÁSBJÖRNSSON
Bæjarstjórinn í Sandgerði átelur stjórn og nú-
verandi stjórnarformann Eimskipa, sem jafn-
framt var stjórnarformaður HB, að nota ekki
tækifærið og leiðrétta þau loforð sem gefin
voru fulltrúum Sandgerðisbæjar á sínum
tíma um aukna útgerð frá Sandgerðishöfn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Sparisjóður Kópavogs:
Ránsfengur
finnst ekki
RÁNSFENGUR Ránsfengurinn úr
ráninu í Sparisjóði Kópavogs í
maí á síðasta ári hefur ekki komið
í leitirnar en ræninginn hefur
ekki viljað upplýsa hver fékk
hann í hendur.
„Við komumst ekkert lengra
með það,“ segir Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í
Kópavogi. Ákæra vegna ránsins
var þingfest í Héraðsdómi
Reykjaness fyrr í mánuðinum, en
þar kom í ljós að búið var að borga
bæði Sparisjóðnum og trygginga-
félagi hans þá upphæð sem rænt
var. ■
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 69,66 -0,14%
Sterlingspund 127,46 -0,54%
Dönsk króna 11,84 -0,20%
Evra 88,18 -0,23%
Gengisvísitala krónu 121,04 -0,63%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 458
Velta 5.989 milljónir
ICEX-15 2.246 -0,37%
MESTU VIÐSKIPTIN
Eimskipafélag Íslands hf. 976.226.301
Pharmaco hf. 218.549.058
Landsbanki Íslands hf. 196.958.477
Mesta hækkun
Eimskipafélag Íslands hf. 7,24%
Og fjarskipti hf. 4,07%
Landsbanki Íslands hf. 2,46%
Mesta lækkun
Síldarvinnslan hf -1,46%
Síf hf -1,01%
Flugleiðir hf. -0,80%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.562,1 0,2%
Nasdaq* 2.116,2 0,2%
FTSE 4.456,1 -0,1%
DAX 4.068,8 0,3%
NK50 1.363,0 0,1%
S&P* 1.133,2 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.
■ Asía
VARA VIÐ UPPÞORNUN
Vísindamenn hafa varað við
hættunni á því að Balkhashvatn,
annað stærsta stöðuvatn í Mið-
Asíu, gæti hugsanlega þornað
upp og valdið meiriháttar um-
hverfisvanda á svæðinu. Bal-
khash-vatn, sem er fjörutíu sinn-
um stærra en Genfarvatn, er í
austurhluta Kasakstan, um 400
kílómetra norður af iðnaðarborg-
inni Almaty.
Kærði árás á heimili sínu:
Hefur fallið frá kæru
LÖGREGLUMÁL „Hún viðurkennir að
sakargiftir séu rangar og hefur
fallið frá kæru,“ segir Friðrik
Smári Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn í Kópavogi, um konu sem
lagði fram kæru þess efnis að þrír
menn hefðu komið inn á heimili
hennar og sambýlismanns hennar,
vopnaðir hnífum og bareflum,
ráðist á þau bæði og stolið far-
tölvu. Einnig hafi þeir farið með
hana nauðuga í hraðbanka þar
sem hún var látin ná í peninga.
Tvennt var handtekið í húsi í
austurbæ Reykjavíkur og fannst
fartölvan þar. „Hún segist hafa
lánað öðru þeirra tölvuna,“ segir
Friðrik. Hann segir það koma
heim og saman við skýrslur sem
teknar voru af fólkinu sem hand-
tekið var. Sjálf sagði konan í sam-
tali við Fréttablaðið að hún hefði
verið þvinguð til að falla frá kær-
um á lögreglustöðinni. Öskrað
hefði verið á hana og hún ekki
þorað annað en að gera eins og
henni var sagt. Sambýlismaður-
inn átti eftir að fara í skýrslutök-
ur þegar blaðið ræddi við hann í
gær. Hann segist hafa ætlað að
falla frá kærum vegna ótta við
hefndaraðgerðir en muni láta þær
standa úr því sem komið er. Þá
lýsir hann vonbrigðum með úr-
vinnslu lögreglunnar í þessu máli.
Hann hafi snúið baki við vafasöm-
um lífsstíl og hafi ætlað að fara
réttu leiðina og leita til lögregl-
unnar en það farið svona. ■
SAMBÝLISMAÐURINN
Lýsir vonbrigðum með úrvinnslu lögregl-
unnar.