Fréttablaðið - 16.01.2004, Page 42
■ ■ LEIKLIST
20.00 Sporvagninn Girnd eftir
Tennessee Williams í Borgarleikhúsinu.
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson á litla sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Jón Gabríel Borkmann eftir
Henrik Ibsen á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00 Vegurinn brennur eftir
Bjarna Jónsson á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
21.00 Sellófon eftir Björk Jakobs-
dóttur í Iðnó.
■ ■ LISTOPNANIR
Kjartan Guðjónsson listmálari opn-
ar málverkasýningu í Gallerí VEGGUR,
Síðumúla 22, Reykjavík.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hilmar Sverrisson leikur á
Fjörukránni í Hafnarfirði.
23.00 Sammi úr Jagúar kokkar
upp funk og soul í Setustofunni.
Einar Ágúst og Gunnar Óla trúbbast
á Glaumbar á milli Idol-þáttanna á Stöð
2. Engin önnur en Birgitta Haukdal
kemur og tekur lagið með þeim.
Hljómsveitin Nýdönsk heldur ball á
NASA við Austurvöll.
Dúettinn Acoustics skemmtir á Ara í
Ögri.
Hljómsveitin Feel Freeman heldur
Red Hot Chili Peppers „tribute“ tónleika
á Grand Rokk.
Spilafíklarnir leika fyrir dansi á
Rauða Ljóninu, Eiðistorgi.
Stuðmenn skemmta á Players í
Kópavogi.
Hinni eini sanni Geirmundur Valtýs-
son og hljómsveit halda uppi sveiflunni
á Kringlukránni.
Plötusnúðarnir úr Gus Gus, þeir
President Bongo & Buckmaster, verða
aftur á Kapital.
Úrslitin í Idol verða í beinni á öllum
tjöldum í Sjallanum á Akureyri. Páll
Óskar spilar og tekur showið sitt
Danssveitin „SÍN“ leikur á Ránni í
Keflavík.
Dj Valdi skemmtir á Felix
Dj Rampage á Vegamótum.
Atli skemmtanalögga á Hverfis-
barnum.
Dj Bjarki Batman á Glaumbar.
DJ Doddi litli og Benni halda uppi
gleðinni á Café 22, Laugavegi 22.
Hljómsveitin 3-some spilar á Celtic
Cross.
Kúng Fú spila á Gauknum.
Írafár heldur uppi stuðinu fram eftir
morgni á Gauknum.
Hermann Ingi jr mun leika fyrir gesti
á Café Catalina við Hamraborg.
■ ■ FYRIRLESTRAR
13.30 Doktorsvörn í ónæmisfræði
frá læknadeild Háskóla Íslands fer fram
í hátíðasal, Aðalbyggingu. Håvard Jak-
obsen líffræðingur ver doktorsritgerð
sína.
■ ■ FUNDIR
15.00 Reykjavíkurakademían efnir
til ráðstefnu í Norræna húsinu undir
yfirskriftinni Menningarstefna, menn-
ingararfur, menningarfræði. Gestir ráð-
stefnunnar og aðalfyrirlesarar eru þau
Tony Bennett og Barbro Klein.
■ ■ SAMKOMUR
11.00 Framadagar stúdenta verða
haldnir í hinu nýja Náttúrufræðihúsi
Háskóla Íslands og standa til klukkan
18.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
42 16. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
JANÚAR
Föstudagur
Nærföt tékkneskra hermanna,sovéski fáninn og fallhlíf frá
Sovétríkjunum eru meðal þess sem
tékkneska myndlistarkonan Jana
Vyborna-Turunen notar sem hrá-
efni í verk sín. Úr þessu býr hún til
pappír, og úr pappírnum gerir hún
síðan flíkur, eins konar herklæði,
sem þó eru gjörsamlega ónothæf til
hernaðar.
„Ég er að búa til eins konar
andbúninga, herklæði sem eru
sérhönnuð til þess að vera ónot-
hæf til þess að drepa,“ segir Jana.
Í gær opnaði hún sýningu í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík. Yfir-
skrift sýningarinnar er „Flíkur til
friðar“.
Jana Vyborna-Turunen er fædd í
Tékkóslóvakíu árið 1969. Tvítug tók
hún virkan þátt í flauelsbyltingunni
árið 1989, þegar stjórn kommúnista
var kollvarpað með friðsamlegum
hætti.
„Eitt verkanna er gert úr bleik-
um nærbuxum sem faðir minn
fékk frá hernum. Hann var lengi í
tékkneska hernum og síðan í her-
sveitum NATO, alveg þangað til
hann fór á eftirlaun.“
Jana býr nú í Finnlandi ásamt
finnskum eiginmanni sínum. Síðast-
liðið vor útskrifaðist hún úr lista-
háskóla í Helsinki.
„Ég var í textíl- og tískuhönnun-
ardeild. Þegar kom að því að gera
lokaverkefnið langaði mig til þess
að gera eitthvað sem væri mikil-
vægt fyrir mig. Vegna þess að ég er
friðarsinni ákvað ég að fara þessa
leið. Ég reyni að sýna að hægt sé að
nota þetta hráefni í allt öðrum til-
gangi en hernaði, að hægt sé að
snúa þessu á hvolf, búa til hvítt úr
svörtu.“
Þetta lokaverkefni hennar nefnist
Manifesto, og er nú sýnt í Norræna
húsinu. Hingað kom hún síðastliðinn
föstudag ásamt fimm mánaða syni
sínum, sem hefur verið henni innan
handar við undirbúning sýningarinn-
ar. Þau dvelja hér í eina viku.
„Ég reyndi að venja hann af
brjósti, en það gekk ekki og því kom
hann með mér. Maðurinn minn er að
vinna og gat ekki komið með.“ ■
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON
Ég var núna á frumsýningu áEldað með Elvis í Loftkastalan-
um,“ segir Laddi. „Það var aldeil-
is frábær sýning. Hún tókst rosa-
lega vel, góðir leikarar og frábær
skemmtun.“
Bestí leikhúsinu
Gríman 2003
„Besta leiksýningi ársins“
Lau 10. jan. kl. 21. nokkur sæti laus
Fös. 16. jan. kl. 21. örfá sæti laus
Fim. 22. jan. kl. 21. laus sæti
Lau. 24. jan. kl. 21. laus sæti
Sjá nánari upplýsingar á
www.sellofon.is
Miðasölusími í IÐNO 562 9700
og sellofon@mmedia.is
■ MYNDLISTARSÝNING
Ónothæft
til hernaðar
JANA VYBORNA-TURUNEN
ÁSAMT SYNI SÍNUM
Jana stendur þarna við eitt
verka sinna. Sýning hennar
var opnuð í Norræna
húsinu í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T