Tíminn - 29.09.1971, Síða 2
2
TIMINN
MTÐVIKUDAGUR 29. september 1971
Þessa viku, eða 27. sept. til og með 3. október, verða til sýnis og sölu í
glugga Málarans vlð Bankastræti, ný málverk eftir Freymóð Jóhannesson.
Er ætlunin að sýna þar alls 10 málverk, — 5 hverju sinni, og verður skift
um myndir síðari hluta vikunnar. 8 myndanna eru málaðar á þessu ári,
og þær sem verða til sýnis fyrri hluta vikunnar eru: „Við árhólma Svarf-
aðardals", „Gjá á Þlngvöllum", „í Berserkjahrauni*, „Á Seltjarnarnesi"
og „Sumarvinir*. Myndin er af einu málverkanna, sem nú er til sýnls.
Ungir sjálfstæðismenn vilja
„skipulagt samfélag“
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
21. þing Sambands ungra sjálf-
stæðismanna var haldið á Akur-
eyri um síðustu helgi, og sóttu
það rúmlega 130 þingfulltrúar. í
ályktunum þingsins segir m.a.,
að „grundvöllur sjálfstæðisstefn-
unnar“ só „frjálsræði fólksins í
skipulögðu samfélagi". Hljóti
j^sjálfstæðismenn nú að taka föst-
um tökum á nýjum viðfangsefn-
um og endurmeta afstöðu sína
í ljósi nýrra viðhorfa”.
í sérstakri ályktun um land-
helgismálið leggur þingið ..áherzlu
á, að þjóðarcining verði um þær
aðgerðir, sem framundan eru í
landhelgismálinu“. Segir, að fyrir
huguð útfærsla verði að ná til
landgrunnsins alls.
Þá segir, að það verði „að vera
ljóst öllum þjóðum, að íslend-
ingar falla ekki frá útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar".
Varðandi varnarmálin segir m.
a. í ályktunum þingsins, að það
fordæmi stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar um varnarmál, þótt
viðurkennt sé, að þörfin fyrir varn
arliðið og hlutverk þess hljóti að
vera sífelldri endurskoðun háð.
Þá gerði þingið einnig sérstak-
ar ályktanir um skólamál og ferða
mannaþjónustu.
Ellert B. Schram, alþingismað-
ur, var endurkjörinn formaður
SUS, en í stjórninni sitja 21 mað-
ur.
49 við menntaskólanám
í Firðinum og Akranesi
EB—Reykjavík, mánudag.
Sem kunnugt er var Gagnfræðaskóla Akraness og Flensborgarskólan-
um í Hafnarfirði veitt heimild á s.l. vetri, til þess að starfrækja 1. bekk
menntaskóla í skólunum á þessum vetri. Báðir skólarnir nota þcssa
heimild. 37 nemendur stunda f vetur menntaskólanám við Flensborgar-
skólann og 12 nemendur við Gagiufræðaskóla Akraness.
Sigurður Hjartarson, skólastjóri
Gagnfræðaskóla Akraness, skýrði
Tímanum frá því, að kennsla væri
nú byrjuð í frágreindri mennta-
deild í skólanum. Stunda þar 8
piltar menntaskólanám og 4 stúlk
ur. Allt er þetta fólk búsett á
Akranesi og sparar sér að sjálf-
sögðu mikinn kostnað vegna hins
nýja fyrirkomulags, þar eð ella
hefði námsfólkið þurft að sækja
þá menntun er það nú fær f
heimabyggð sinni, til Reykjavík-
ur og jafnvel til Akureyrar.
Sigurður sagði, að kennsla í
þessari nýju dj*!ld skólans, færi
fram í hinni nýju bókhlöðu Skaga-
rr.anna. Þá skýrði Sigurður frá
því, að einum kennara, Gunnari
Bergmann, hafi verið bætt við
kennaralið skólans, vegna þess-
arar menntadeildar.
Kennsla í nýju menntadeild
Flensbórgarskólans hefst 1. okt.
n.k. og sem fyrr segir eru 37 í
þeirri deild, sem skipt er í tvær
bekkjardeildir. Námsfólkið er allt
úr Hafnarfirði, að sögn Ólafs Þ.
Kristjánssonar, skólastjóra Flens-
borgarskólans, og hefur tekið
landspróf frá skólanum s.l. vor
eða áður, ellegar það kemur úr
framhaldsdeild skólans, 5. bekk,
eins og slíkar deildir eru almennt
kallaðar.
Höfuðsmaðurinn frá Köpenick
frumsýndur á fimmtudag
Fyrsta frumsýning Þjóðleik-
hússins á þessu leikári verður n.
k. fimmtudag. Þá frumsýnir Þjóð
leikhúsið hið þekkta leikrit, Höf
uðsmanninn friá Köpenick, eftir
þýzka leikskáldið, Carl Zuckmey-
er. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson,
en þýðing leiksins er gerð af Ósk
ari Ingiimarssyni. Leikmyndir, sem
eru mjög margar og fjölbreytileg
ar, eru eftir Ekbehard Kröhn, en
hann teiknaði leikmyndir og bún
inga fyrir Fástsýningu Þjóðleik-
hússins á liðnum vetri. Lárus Ing
ólfsson teiknar búninga fyrir Þjóð
leikhúsið í Höfuðsmanninum frá
Köpenick. Carl Billich stjómar
átta manna lúðrasveit, sem tekur
þátt í sýningunni. Titilhlutverkið,
höfuðsmaðurinn frá Köpenick, er
leikinn af Áma Tryggvasyni. Hlut
verk í leiknum en> mjög mörg og
leika margir fleiri en eitt hlutverk.
Flest allir leikarar Þjóðleikhússins
taka þátt í þessari mannmörgu
sýningu og auk þess allmargir
aukaleikarar.
Æfingar á leiknum hófust s. 1.
vor og undanfarið hefur flesta
daga verið tvöfaldar æfingar í
leikhúsinu. Leikurinn er í þrem
ur þáttum og er skipt niður í
20 atriði.
®%öMncjui:( ie&sins Carl Zuck-
niéyer, ér éítt áf þekktústu leik-
•skéldum Þjöðverja á þésáaH' öldi
Fæddur er hann í Mainz árið 1896
og er því 75 ára að aldri. Sautján
ára gerðist hann sjálfboðaliði í
fyrri heimstyrjöldinni og barðist
á Vesturvígstöðvunum, var sæmd
ur jámkrossinum fyrir frækilega
frammistöðu, særðist sumarið 1918
sendur heim og skráður óhæfur
til herþjónustu.
Að stríðinu loknu tók hann mik
inn þátt i bóhema- og listamanna
lifi Berlínar næsta áratuginn og
þá hófst einnig langur og merkur
ferill hans sem leikritaskálds, sem
náði hámarki með leikritinu Höf
uðsmaðurinn frá KöpenUk, árið
1931. Á þessum tímum var Zuck
mayer meðal þeirra, er mestan
svip settu á hið atkvæðamikla leik
húslíf í Þýzkalandi, náinn vinur
og samstarfsmaður heimsþekktra
leikhúsmanna, sem sem Max Rein
hardts, Erwins Piscators, Bertolts
Framhald á bls. 14.
[HEfinnnB QQ
ÍSTUTTUMÁU O#
Ferðamálameim«á
Austf jörðum
JK-Egilsstöðum, laugardag.
Eftir ferðamálafund, sem
haldinn var á Egilsstöðum nú
fyrir skemmstu, ákváðu Flug
félag íslands, Hótel Valaskjálf,
Egilsstaðahreppur og sérlcyfis
hafar, og ’ ;óða fuiltrúum ferða
skrifstofanna í Reykjavík hing
að austur, til þess að ræða við
þá um fcrðamál á Austurlandi.
Einnig til að hitta hér menn
að máli, sem vinna að ferða-
málum. )
Þessi hópur kom á fiffiffifo*dag
inn auftur, og um kvöldiðQar
haldinn fundur með aðkori'ju-
\
mönnunum og fulltrúum Egils
staðahrepps, forráðamönnum
Valaskjálfar og nýkjörinni
ferðamálanefnd. Á fundinum
var m. a. ákveðin ein skoðunar
fcrð í viku, sem farin verður
á laugardögum næsta sumar,
umhverfis Lagarfljót og til
Seyðisfjarðar. Um kvöldið verð
ur svo flogið aftur til Reykja
víkur. Munu ferðaskrifstofurn
ar taka þessa ferð inn í aug-
lýsingabæklinga sína. í gær,
föstudag var farið með hópinn
í skoðunarferð þessa áður-
nefnda leið.
Á fundinum á fimmtudags-
kvöldið var rætt um ferðamál
almennt í fjórðungnum, aðstöðu
til að taka á móti ferðamönn
um, og hvað helzt sé til úr-
bóta í þeim efnum. Hópurinn
hélt aftur til Reykjavíkur síð
degis á föstudaginn.
Námsstyrkir
Kvenstúdentafélág íslands hef
ur nýlega veitt r.ámsstyrki að
upphæð 60.000.00 krónur, sem
skiptast þannig:
Guðríður Þorsteinsdóttir til
náms í lögfræði við Háskóla
íslands (lr þús.)
Ragna Karlsdóttir til náms
í verkfræði í Danmörku (15.
þús.).
Sigrún Guðnadóttir til nárhs
í líffræði við Háskóla íslands
(15. þús.).
Valdís Bjarnadóttir til náms
í húsagerðarlist f Þýzkalandi
(15. þús.)
(Fréttatilkynning frá Kven-
stúdentafélagi íslands.)
666 ökumenn teknir
ölvaðir
KJ—Reykjavík, mánudag.
Það sem af er árinu hafa
666 ökumenn í Reykjavík ver
ið teknir fyrir meinta ölvun við
akstur, og eru þetta töluvert
fleiri ökumenn, en á sama tíma
í fyrra, en þá voru þeir orðnir
519.
Aftur á móti virðist sem ekki
fjölgi þeim ölvuðu ökumönnum,
er lenda í umferðarslysum í
Reykjavík. Er hlutfall ölvaðra
ökumanna sáralítið í yfirlits-
skýrslum um orsök árekstra.
Sendinefndin
frá Einingar-
samtökum
Afríkuríkja
Blaðinu barst í gær fréttatH-
kynning frá utanríkisráðuneytmu
um heimsókn sendinefndar Eining
arsamtaka Afríkuríkja, sem frá
var skýrt í Tímanum í gær. f tQ-
kynningunni segir m.a.:
Dagana 2.—4. október verður
í kynningarheimsókn á íslandi
sendinefnd frá Einingarsamtöbum
Afríkuríkja, er höfuðstöðvar hef-
ur í Addis Abeba.
Formaður nefndarinnar verður
forseti Máretaníu, Moktar ould
Daddah. f för með honum verður
Hamdi ould Mouknass, utanríkis-
ráðherra Máretaníu, og nokkrir
aðrir embættismenn þess lands,
og auk þess utanríkisráðherra
Alsír, A. Bouteflika, utanríkisráð
herra Kamerún, J. Kencha, utan-
ríkisráðherra Kenya, Dr. N. Mung
ai, utanríkisráðherra Mali, Sissoko
höfuðsmaður, og utanríkisráðh.
Zambíu, E. Mudenda. Ennfremur
framkvæmdastjóri Einingarsam-
taka Afríkurflcja, Diallo Telli,
varaframkvæmdastjóri bandalags-
ins, Mohammed Sahnoun, og einn
ig framkvæmdítstjóri frelsisnefnd-
ar bandalagsins í Der Es Salaam,
George S- Mogombe.
Sendinefndin hefur undanfarna
daga verið í New York og rekið
erindi sitt hjá Sameinuðu þjóð-
unum, en fer þaðan til Washing-
ton, Ottawa, Reykjavíkur, Stokk-
hólms, Helsinki, Osló og Kaup-
mannahafnar.
Sendiför þessi er framhald af
hinni svonefndu Kaunda sendiför
1970, þegar farið var til ftalfu,
Sambandslýðveldisins Þýzkalands,
Bretlands, Frakklands og Samein .
uðu þjóðanna, en þjóðhöfðingja-
fundur Einingarsamtaka Afríku-
ríkja ákvað í október 1970 að
sendinefndir skyldu fara til allra
aðildarríkja Atlantshafsbandalags
ins, Japan og Sviss til að ræða
vandamál Afríku og leita stuðm
ings. Síðar á að fara til þeirra
Framhald á bls. 14.
Sambandið gefur
út bækling um fóður
Innflutningsdeild Sambands isL
samvinnufélaga hefur gefið út
mjög vandaðan bækling um sam
setningu fóðurblanda ásamt ýms
um leiðbeiningum um fóðrun.
Bæklingi þessum, sem dreift
verður til allra bænda á landinu,
er ætlað að kynna í smáatriðum
samsetningu hverrar fóðurblöndu
fyrr sig, bæði þeirra, sem inn eru
fluttar frá Fyens Andels-Foder-
stofforretning í Danmörku og
þeirra, sem blandaðar eru hér af
SÍS.
Sambandið hefur leitazt við að
hafa blöndurnar nægilega margar
og fjölbreytilegar til að þær geti
hæft við hin margvíslegustu sldl-
yrði og mismunandi gæði heima
ræktaðs fóðurs.
Bæklingurinn er að nokkru
leyti litprentaður og hefur Prent-
smiðjan Edda h. f. unnið það
verk.
Það er von útgefenda að upp-
lýsinga- og leiðbeiningabók þessi
verði bændum handhæg við val
rétts fóðurs og beppilega fóður-
gjöf.